Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995
3
Fréttir
Aðsúgur gerður að sænskum unglingum eftir íþróttamót:
Áttum fótum fjör að launa
- sögðu unglingarnir - sökin ekki síður þeirra, segir Geir Hallsteinsson
„Viö urðum fyrir aðkasti nokkurra
íslenskra krakka og áttum fótum íjör
að launa. Til að losna við ryskingar
tókum við á rás og reyndar rétt
sluppum inn í Víðistaðaskóla sem við
búum í. Árásarliðið hélt áfram að
hamast utan á skólanum og varð loks
að kalla til lögreglu sem tók fasta
þrjá af óróaseggjunum. Þetta leit
mjög illa út um tíma og fengu sum
af okkur skrámur eftir átökin. Okkur
fmnst þetta nokkur ljóður á annars
nyög skemmtilegri ferð til íslands,"
sögðu sænskir krakkar sem tóku
þátt í alþjóðlegu handboltamóti,' Ice-
cup-móti FH, sem haldið var fyrir
rúmri viku.
Eftir mótið fóru nokkrir ungling-
anna á dansleik og urðu þar fyrir
aðkasti íslenskra unghnga. Geir
Hallsteinsson, talsmaður FH, sagði í
samtali við DV að ljóst væri að
sænsku krakkarnir hefðu ekki síður
átt upptökin að átökunum heldur en
þeir íslensku. Þeir hefðu verið með
leiðindaframkomu meðan á mótinu
stóð og sennilega væri atburðurinn
afleiðing þess. Hann sagðist hafa átt
tal við fararstjóra sænska liösins og
ljóst væri að engin eftirmál yrðu af
atvikinu. Hann sagði jafnframt að
um leiðindaatvik hefði verið að ræða
en unglingarnir, sem þarna áttu í
hlut, væru ekki þátttakendur í
íþróttastarfi FH heldur vandræöa-
unghngar sem stunduðu að efna til
óláta.
Að sögn lögreglu var rætt við þá
unghnga sem lögreglan flutti á lög-
reglustöð og þeim sleppt eftir tiltal.
-pp/Hson
Þingeyjarsýslur:
Sænsku krakkarnir láta annars vel af dvölinni hér á landi. Frá vinstri Malin Andersson, Sávehof, en hún brákaðist
í fæti í spennandi leik á mótinu, Linda Gustavsson, Sávehof, Eric Hallbert, Wasiterna, Jimmy Greenlee, Sávehof,
Jonas Hellgren, Sávehof, og Martin Axelsson, Wasiterna. í sambandi við væntanlegt heimsmeistaramót á íslandi
á næstunni voru öll sammála um að Svíar yrðu heimsmeistarar í handknattleik.
DV-mynd Hson
Uggur meðal kartöf lubænda
Sameiningarmálin
sett niður í skúff u
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
„Ég held að það sé óhætt að segja
að úthtið hjá kartöflubændum sé
ekki gott og verst er það án efa hjá
þeim sem hafa ekki annan búskap,"
segir Sveinberg Laxdal, kartöflu-
bóndi í Eyjafirði, um ástandið meðal
kartöflubænda og úthtið í vor.
Sveinberg segir að kartöflubændur
hafi fengið htið fyrir afurðir sínar í
vetur. Afleiðingin er sú að einhver
hluti þeirra skuldar m.a. enn greiðsl-
ur vegna áburðarkaupa á síðasta
ári. Nú bætast við vetrarhörkur, á
Norðurlandi sjá menn ekki fram á
hvenær verður hægt að fara um
garðana vegna mikilla snjóalaga og
á Suðurlandi er geysilega mikill
klaki í jörðu eða aht að einum metra.
„Það er því ekkert sérlega bjart fram
undan hjá okkur,“ segir Sveinberg
Laxdal.
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
„Ég er hræddur um að það þurfi
eitthvað mikið th að hrinda þessari
áætlun í framkvæmd," sagði Einar
Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, um
fyrirhugaða sameiningu fjögurra
sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum sem
nú virðast vera úr sögunni, í bili
a.m.k.
Th stóð að sameina í eitt sveitarfé-
lag Húsavík, Tjörneshrepp, Keldu-
neshrepp og Öxarfjaröarhrepp en
Einar Njálsson segir að í viðræðun-
um hafi menn rekið sig á úreltar regl-
ur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
„Þessar reglur virkuðu öfugt við það
sem ætlað var. Þær hygluðu minni
sveitarfélögunum sem hafa færri en
300 íbúa en sveitarfélag eins og orðið
hefði th við sameiningu þessara fjög-
urra sveitarfélaga með yfir 4 þúsund
íbúa hefði ekki fengið neinar greiðsl-
ur úr jöfnunarsjóðnum," segir Einar.
Hann segir að nýjar reglur um jöfn-
unarsjóðinn eigi að taka ghdi á næsta
ári. Frekari hugmyndir um samein-
ingu sveitarfélaganna fjögurra verði
þó ekki á dagskrá á næstunni og ör-
ugglega ekki fyrr en í fyrsta lagi þeg-
ar séð verður hvernig hinar nýju
reglur jöfnunarsjóðsins kmi Ct.
þnefaUup
fyrsti
vinningur!
rinafrkr.T
Er nööin komin að þén?
V I K I N G A
Ltm
Sölu í Víkingalottóinu iýkur á miövikudag kl. 16:00, dregið verður í Sjónvarpinu um kvöldið. Freistaðu gæfunnar!