Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995
Fréttir
DV
Átök í aðsigi á fyrsta aðalfundi Lyflaverslunar íslands:
Ríkisskipaðir stjórnarmenn
vilja halda stólum sínum
- fulltrúar almennra hluthafa vilja einnig í stjom
Fyrsti aðalfundur Lyfjaverslunar
íslands hf. fer fram í Háskólabíói nk.
laugardag. Búist er við miklum átök-
um um sæti í nýrri stjóm. Fjórir af
fimm núverandi stjórnarmönnum
ætla að gefa kost á sér áfram en þeir
voru skipaðir í stjórn á síðasta ári
af ríkinu til að tryggja að einkavæð-
ingin færi fram samkvæmt hlutafjár-
lögum. Núna á ríkið engan hlut held-
ur 1.630 nýir hluthafar. Fulltrúar
þessara nýju hluthafa, með Jón Þor-
stein Gunnarsson, rekstrarhagfræð-
ing og fyrrum framkvæmdastjóra
Friggjar, í broddi fylkingar stefna
einnig á stjórnarsetu og hafa tilnefnt
fjóra í stjóm. Auk Jóns em þaö Bolli
Héðinsson, hagfræðingur í Búnaðar-
bankanum, Pétur K. Maack, prófess-
or við verkfræðideild Háskólans, og
Úlfur Sigurmundsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs. Ekki
er ljóst hver verður fimmti frambjóö-
andinn úr fylkingu Jóns.
Enginn þessara 1.630 hluthafa á
stærri hlut en 0,6% í Lyfjaverslun-
inni. Starfsmenn eiga samtals um 6%
hlut en þeir máttu kaupa fyrir tvö-
falt hærri upphæð en aðrir, eða fyrir
1 milljón króna hver. Ríkisskipuðu
stjórnarmennirnir fimm keyptu allir
hlut af ríkinu. Einn þeirra, Margrét
S. Björnsdóttir, sækist ekki eftir
áframhaldandi stjórnarsetu. í stað
hennar gefur einn fulltrúi starfs-
manna kostá sér, Rúna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri markaðssviðs
Lyfjaverslunarinnar. Hinir fjórir eru
Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu og núverandi
stjórnarformaður, Ólafur B. Thors,
forstjóri Sjóvár-Almennra, Jóhannes
Pálmason, forstjóri Borgarspítalans,
og Einar Stefánsson, prófessor við
læknadeild Háskóla íslands.
Fjórmenningarnir, auk Rúnu, hafa
sent öllum hluthöfum bréf þar sem
þau skýra sjónarmið sín og biðja
hluthafa um stuðning í stjórnarkjöri,
Jón Þorsteinn Gunnarsson.
annaðhvort með því að mæta á aðal-
fund eða veita umboð til að fara með
atkvæði sitt á aðalfundi. Hluthöfum
er bent á að senda umboð til Péturs
Guðmundarsonar lögmanns.
Einkavæðing sem ekki
á sér fordæmi
Aðalfundarins er beðið með nokk-
urri eftirvæntingu þar sem um eins-
dæmi er aö ræða í stuttri sögu einka-
væðingar á íslandi. Ekkert hlutafé-
lag er með jafn dreiföri eignaraðild
auk þess sem engir stórir stofnana-
fjárfestar eiga hagsmuna að gæta.
Búist var við baráttu nokkurra fylk-
inga hluthafa um sæti í stjórn en
fæstir áttu von á að núverandi stjórn,
sem skipuð var á sínum tíma af fyrr-
verandi eiganda, ríkissjóði, ætlar að
gefa kost á sér áfram. Nú eru það
þessir menn sem berjast við eina
fylkingu annarra hluthafa. Til að
aðalfundurinn verði lögmætur þurfa
að lágmarki 50% hluthafa aö mæta
eða veita umboð sitt, eða meira en
815 manns. Aðalfundurinn er talinn
prófsteinn á hvernig eigi að skila rik-
isfyrirtæki í hendur almennings.
Þórhallur Arason sagði við DV að
Þór Sigþorsson.
meginástæðan fyrir því aö fjórir af
núverandi stjórnarmönnum gæfu
kost á sér væri að tryggja stöðugleika
í rekstri á tímum stórbreytinga í sögu
fyrirtækisins.
„Við erum í hópi almennra hlut-
hafa og viljum sjá viðgang fyrirtæk-
isins sem mestan og bestan. Tveir
okkar hafa verið í stjórn fyrirtækis-
ins um nokkum tíma og þekkja vel
til rekstursins, hinir tveir komu ný-
lega úr atvinnulífinu og Háskólanum
með góða reynslu. Svo er fulltrúi
starfsmanna í okkar hópi því við telj-
um afar mikilvægt að þeir eigi hlut
að máli meö stjómarsetu. Auk eigna-
breytinganna hafa átt sér stað nokkr-
ar breytingar á innri starfsemi síð-
ustu ár til að mæta fyrirhugaöri
einkavæðingu eða samkeppni,“ sagði
Þórhallur.
Jón Þorsteinn Gunnarsson sagði í
samtali við DV að það hefði verið hin
sérstæða dreifða eignaraöild sem
hefði knúið sig og félaga til að bjóða
fram krafta sína í stjórn Lyfjaversl-
unarinnar.
„Markmiðið er að komast til áhrifa
í stjórn félagsins og standa þar með
vörð um hagsmuni hinna smáu hlut-
Þórhallur Arason.
hafa en tryggja jafnframt áframhald-
andi góðan rekstur. Einnig viljum
við benda á þá staðreynd að núver-
andi stjórn var skipuð af ríkissjóði.
Við teljum hlutverk stjómarinnar
einungis hafa verið það að koma fé-
laginu í almenningshlutafélagaform.
Síðan verði hluthafar, sem eru eig-
endur fyrirtækisins, að kjósa nýja
stjórn,“ sagði Jón Þorsteinn.
Vilja ekki Kolkrabbann
Jón sagði að núverandi stjómar-
menn ættu ekki að sitja áfram í
stjórn sökum hagsmunaárekstra við
dagleg störf þeirra. Fyrsta nefndi
hann Jóhannes Pálmason, forstjóra
Borgarspítalans, og Einar Stefáns-
son, yfirmann augndeildar Landa-
kotsspítala, til sögunnar.
„Svo er Ólafur B. Thors áhrifamik-
ill í stærstu valdablokk atvinnulífs-
ins, Kolkrabbanum. Við teljum ekki
heppilegt að sú valdablokk komist
þannig til áhrifa í Lyfjaversluninni.
Ég vil taka skýrt fram að meö fram-
boði okkar erum við ekki að van-
meta það sem þegar hefur verið gert
af starfsmönnum Lyljaverslunarinn-
ar. Það er misskilningur, sem sumir
hafa haldið á lofti, að það verði okkar
fyrsta verk að fara að ráðskast með
starfsmenn. Við viljum stjórn ein-
staklinga með faglega og breiða
þekkingu á málefninu sem farsæl-
lega geti markað félaginu stefnumót-
un til framtíðar og staðið vörð um
hagmuni þess og hluthafa," sagði Jón
Þorsteinn.
Þór Sigþórsson, forstjóri Lyfja-
verslunar íslands, sagði viö DV að
hann hefði átt gott samstarf við nú-
verandi stjórnarmenn og treysti sér
vel til aö starfa með þeim í framtíð-
inni.
„Ég þekki ekki þá aðila sem hafa
lýst vilja sínum á að taka yfir stjórn
fyrirtækisins og get því ekki gefið
neina umsögn um þá. Átök um
stjórnarsetu eru aldrei neinu fyrir-
tæki til framdráttar og LyOaverslun-
in er þar engin undantekning. Ein
helstu verömæti lyfjafyrirtækis er
fólkið sem þar starfar. Það er mjög
mikilvægt hjá fyrirtækinu, kannski
umfram önnur, aö það ríki stöðug-
leiki og aðilar komi þar inn í sátt við
starfsmenn og stjórnendur. Mark-
mið sem við vinnum að eru öll til
langs tíma og þar af leiðandi mikil-
vægt að okkur haldist vel á hæfu
starfsfólki. Ég vil síðan hvetja alla
hluthafa til að mæta á aðalfundinn
til að tryggja lögmæti hans,“ sagði
Þór.
Óbreytt afkoma 1994
Lyfjaverslun íslands tilkynnti i
gær um afkomu síðasta árs, fyrir og
eftir einkavæðingu. Hún breyttist
sama og ekkert frá árinu 1993 eða
hagnaður upp á 55,7 milljónir króna
fyrir skatta. Ef aðeins er tekinn
rekstur Lyfjaverslunar íslands
seinni helming ársins varð 16 millj-
óna hagnaður eftir skatta. Velta árs-
ins var rúmur 1 milljarður og jókst
um 12% frá 1993.
í dag mælir Dagfari
Á milli línanna
Þeir voru kokhraustir, vestfirsku
sjálfstæðismennirnir fyrir kosn-
ingar. Settu fram nýja og breytta
stefnu í sjávarútvegsmálum og
lýstu því yfir að þeir myndu ekki
styðja ríkisstjóm sem ekki væri
þeim sammála.
Það var völlur á körlunum fyrir
vestan og þeir voru harðir og
grimmir á svipinn og kjósendur
trúöu þessum bardagamönnum og
kusu þá unnvörpum. Sjálfstæðis-
flokkurinn á Vestfjörðum vann
góöan kosningasigur og Einar
Guðfinnsson og Einar Oddur
Kristjánsson náðu báðir kjöri.
Raunar mátti engu muna að þriðji
maður á lista næði inn. Var reynd-
ar oftar en ekki inni á kosninga-
nóttinni og allt var það út á hina
vestfirsku sjálfstæðisstefnu í sjáv-
arútvegsmálum.
En svo gengu kosningarnar yfir
og stjómarmyndunarviðræður
hófust og allt í einu ákvað Davið
að ekki væri hægt að púkka upp á
kratana lengur og bauð Halldóri til
samstarfs. Haildór Ásgrímsson er
holdgervingur núverandi fisk-
veiðistefnu sem sjálfstæðismenn-
imir á Vestfjörðum höfðu sagt stríð
á hendur og nú voru góð ráð dýr.
Ekki til að rísa upp gegn Davíð og
Halldóri því svoleiðis gerir maður
ekki í pólitík. Nei, vandinn var
auðvitað sá að gleypa öll stóm orö-
in, því þaö er einmitt það vit-
lausasta sem menn gera í pólitík
að taka eitthvað upp í sig sem ekki
er hægt að standa við.
Hvaö var nú til ráða fyrir hetj-
urnar að vestan? Ekki gátu þeir
sagt sig úr flokknum, enda aldrei
staðið til. Ekki gátu þeir lýst yfir
stjórnarandstöðu gegn eigin ríkis-
stjórn, enda ekkert gagn að því, svo
fáir sem þeir eru. Ekki gátu þeir
rekið fiskveiðistefnuna hans Hall-
dórs ofan í Halidór, vegna þess að
Halldór gleypir ekki sína eigin
stefnu bara fyrir það eitt að bjarga
andlitinu á vestfirskum sjálfstæð-
ismönnum.
Æ, æ, hvaða vandræði! Hvað seg-
ir nú aftur í stjórnarsáttmálanum?
Jú, þar segir að byggja eigi að
mestu á aflahlutdeildarkerfi í sjáv-
arútvegi en banndagakerfi svo-
nefndra krókabáta verði tekið til
endurskoðunar. Skapaö verði
svigrúm tii að rétta hlut þeirra afla-
marksbáta sem harðast hafa oröið
úti vegna minnkandi þorskafla.
Með öörum orðum: hér stendur
ekki neitt um breytta fiskveiði-
stjórn nema síður sé, ef frá eru
skildir banndagamir hjá krókabát-
unum, sem var alls ekki það sem
Vestfirðingarnir voru að tala um.
Var það þetta sem Véstfirðing-
arnir voru að berjast fyrir? Að
byggja áfram á aflahlutdeildarkerf-
inu en laga banndagakerfi króka-
bátanna til? Ekki alveg. En næstum
því. Eða þannig sko. Enda segja
Einar Oddur og Einar Guðfinnsson
aö það standi miklu meira á milli
línanna heldur en venjulegt fólk
getur lesið. Bíðið bara og sjáið til.
Stjórnarsáttmálar segja ekki allt
og það á að gera miklu meira held-
ur en stjórnarsáttmálinn segir til
um. Þess vegna styðja þeir stjórn-
ina. Ekki vegna þess hvaö stendur
í stjómarsáttmálanum, heldur
vegna þess hvað þar stendur ekki.
Það er eimitt þess vegna sem þeir
em sáttir við stjórnina með Hall-
dóri aö það verður samt gert það
sem ekki stendur neitt um hvað
gert skuli, vegna þess að þar með
er ríkistjórnin að samþykkja
breytta fiskveiöistjórn.
Þetta skilja kannske ekki aliir,
en það kemur í ljós á vorþinginu
og þá skilja aörir íslendingar það
sem Vestfirðingarnir skilja strax.
Fólk verður að fá tíma til að skilja
stjómarsáttmála og umbjóðendur
þingmannanna fyrir vestan munu
sjá það í tímans rás að lykillinn að
breyttri fiskveiðistjórn er einmitt í
því fólginn að semja um óbreytta
fiskveiðistjóm til að fá henni
breytt. Annars hefðu þeir aldrei
samþykkt þessa stjórnarmyndun.
Yfirlýsingar þeirra fyrir kosningar
réðu einmitt úrslitum um að
stjórnarflokkamir gerðu sam-
komulag um aflahlutdeildarkerfið
óbreytt að mestu, til að Vestfirðing-
arnir gætu stutt stjómina. Og ef
þeir hefðu verið á móti samstarfi
við Framsóknarflokkinn hefði
þessi ríkisstjóm ekki verið mynd-
uð og þá hefði heldur ekki verið
skrifaö á milli línanna það sem
ekki stendur í stjórnarsáttmálan-
um.
Þar em einmitt stóru orðin fahn.
Þess vegna styðja Vestfirðingarnir
ríkisstjórnina.
Dagfari