Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRIL 1995 5 PV__________________________________________________________________________________________Fréttir Karlmaður á sextugsaldri sem hafði unnið sér traust tveggja stúlkna: Tvö ár í fangelsi fyrir að misnota böm - neitaði sakargiftum en framburðir bamanna þóttu trúverðugir og stöðugir Karlmaður á sextugsaldri hefur verði dæmdur í tveggja ára fangelsi og til að greiða tveimur ungum stúlk- um eina milljón króna í skaða- og miskabætur fyrir að hafa misnotað þær kynferðislega með ýmsum hætti um talsvert skeið og fram til hausts- ins 1993. Maðurinn er venslaður stúlkunum og hafði unnið sér traust þeirra þegar hann gerðist sekur um brotin. Hann var yíirleitt einsamall með hvorri stúlkunni fyrir sig þegar þau voru framin. Héraðsdómur Reykjavíkur sak- felldi manninn fyrir allt sem honum var gefið að sök í ákæru. Sakborning- urinn neitaði hins vegar ávallt sök. Stuðst var við framburð stúlknanna sjálfra, matbarnasálfræðings, starfs- Seyðisflörður: íbúum fækkar um 10 prósent Ibúum í sumum sveitarfélögum á landinu hefur fækkað verulega síð- ustu ár. Þannig hefur íbúum á Seyð- isíirði fækkað mest, eða um 10,4 pró- sent á tímabilinu 1990 til 1993, og íbú- um í Snæfellsbæ og þar áður Olafs- vík hefur líka fækkað verulega eða um tæplega átta prósent á sama tíma. íbúar í Neskaupstað fylgja fast á eft- ir með tæplega sjö prósenta fækkun og íbúum á Blönduósi, í Bolungarvík, á Patreksfirði og í Vesturbyggð eftir sameininguna á þeim slóðum í fyrra og Sigfiufirði hefur einnig fækkað talsvert. „Þetta er því miður staðreynd. Við höfum orðið fyrir geysilegum áfóll- um í atvinnulegu tilliti og störfum hefur fækkað hér. Tvö mjög stór fyr- irtæki hafa orðiö gjaldþrota og hætt rekstri. Vegasamband inn til lands- ins er okkur mjög erfitt og Fjarðar- heiðin er okkur ákaflega mótdræg. Mönnum finnst bara staðurinn vera einangraöur," segir Þorvaldur Jó- hannsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði. Seyðisfjörður var eitt skuld- minnsta sveitarfélag á landinu á ár- unum 1989-1990‘en er nú í hópi skuld- ugustu sveitarfélaga í landinu. Bæj- arsjóður Seyðisfjaröar hefur lagt um 150 milljónir til atvinnulífsins á staðnum, til dæmis með uppbygg- ingu á dráttarbraut og stofnun út- gerðarfyrirtækis. íbúar á Seyðisfirði eru ríflega 800 talsins. -GHS Sjóbirtingsveiðin tekur kipp: Veiddu 30 f iska á tveimur dögum Vorveiðin hefur heldur betur tekið kipp eftir að það hlýnaði verulega í veðri síðustu dagana. Þetta á bæði við um veiðina í Þorleifslæknum og austur í Geirlandsá. Ekki hefur verið hægt aö hefja veiði ennþá í Vatna- mótunum en það stendur allt til bóta. „Veiðin gekk feiknavel hjá okkur í Geirlandsánni, við fengum 30 fiska á tveimur dögum og sá stærsti var 10 punda. Þeir sem opnuðu ána veiddu 4 fiska og einn þeirra var 11 punda,“ sagði Óskar Færseth en hann var að koma úr Geirlandsá með þeim Ásdisi Guðbrandsdóttur, Vilberg Þorgeirs- syni og Guðrúnu Jóhannesdóttur fyrir fáum dögum. „Allir fískarnir voru yfir 4 pund en sá stærsti á fluguna var 8 punda og tók Nobbler. Við fengum frábærar tökur í Ármótunum. Holiið á eftir okkur veiddi 8 fiska og það næsta fékk 12 fiska. í því holli veiddist 11 punda fiskur. Það eru komnir tveir 11 punda,“ sagði Óskar ennfremur. í Þorleifslæknum hefur verið ágæt veiði og eru líklega komir á milli 300 og 350 fiskar á land. • Ásdís Guðbrandsdóttir og Óskar Færseth með 30 fiska veiði úr Geir- landsá fyrir fáum dögum. Áin hafði gefið 50 fiska i gærkveldi. DV-mynd Vilberg menn bamaverndaryfirvalda og fleiri aðila sem eru tengdir stúlkun- um. Sérstaklega var tekið til þess að framburðir beggja stúlknanna fyrir mæðrum sínum og starfsmönnum barnaverndaryfirvalda hafi verið stöðugir og trúverðugir. í dómi héraðsdóms kemur fram að mat bamasálfræðingsins var m.a. að brot sem þessi hafi neikvæð áhrif á sjálfsmynd barna og sérsfaka við- kvæmni þeirra við að gengið sq yfir persónuleg mörk. Einnig gæti tor- tryggni gagnvart öðrum samfara mikilli reiði. Blygðunarkennd ein- staklinga verður einnig vemlega særð auk þess sem kviði verður áber- andi. í niðurstöðu héraðsdóms segir: „Með ólögmætum og refsiverðum meingerðum sínum braut ákærði gegn persónu stúlknanna og mann- helgi. Liggur fyrir að athafnir hans hafa valdið þeim miklum þjáningum og eru líklegar til þess að setja á þær varanlegt mark.“ Skaðabætur þóttu hæfilegar 500 þúsund krónur til hvorrar stúlkunnar. -Ótt Keflavík: Erillogdrykkja Tölvuverður erill var hja lög- reglunni í Keflavík um helgina. Snemma á laugardagsmorgun þurftu lögreglumenn að þvinga ökumann bifreiðar, sem ekki sinnti stöövunarmerkjum lög- reglu, út af Reykjanesbraut á Vogastapa. Engar skemmdir urðu á ökutækjum en í ljós kom að ökumaðurinn var verulega ölvaður og réttindalaus. Hann veitti mótspymu við handtöku og gisti fangageymslur þar til af honum rann áfengisvíman. Þá var nýjum jeppa stolið fyrir utan hús í Keflavik á laugardag. Eigandi bílsins haföi skilið eftir lyklana í kveikjulásnum og ung- ur ölvaður vegfarandi sá sér leik á borði að spara sér sporin. Stal hann bílnum og ók honum m.a. út af Reykjanesbraut þar sem sprakk á framdekki hans. För hans endaöi ekki fyrr en nokkru seinna þegar lögreglan stöðvaði piltinn nálægt Höfhum og var bíllinn þá nokkuð skemmdur. -pp ikkun l9@0-l -2,7% n Bolungárvik _ Sigiufjöröur -2,0% “£9 Vesturbyggð/ _______ Patrekshreppur Blönduós -3,0% Seyðisfjörður Snæfellsbær/ Ólafsvík Neskaupstaður -10,4% -7,9% -6,8% Hettupeysur frá kr. 4.990 m Síðar buxur frá kr. 3.990 Bermudabuxur frá kr. 2.990 Derhúfur frá kr. 1.400 Barnabuxur frá kr. 1.990 Barnapeysur frá kr. 2.990 Útsölustaðir Reykjavík: Frísport, Laugavegi 6, Sportkringlan, Kringlunni, Útilíf, Glæsibæ, íþróttabúðin, Borgartúni 20 Hafnarfjörður: Fjölsport, Miðbæ Kópavogur: Sportbúð Kópavogs Keflavík: K-Sport Selfoss: Sportbær Akureyri: Sportver, Glerárgötu Egilsstaðir: Táp og fjör ísafjörður: Sporthlaðan Sauðárkrókur: Skagfirðingabúð Húsavík: Skóbúð Húsavíkur Akranes: Akrasport Borgarnes: Borgafsport Flúðir: Sportvörur Hvolsvöllur: Apótek Ath. Óvlst er aö allar tegundir fáist á hverjum útsölustað á tíma auglýsingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.