Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRIL 1995
7
dv________________________________Fréttir
Nýju ráöherramir eru í óðaönn að leita sér að aðstoðarmönnum:
Sex hætta störfum og
átta koma nýir inn
Sex aðstoðarmenn ráðherra hafa
hætt störfum eftir að ný ríkisstjórn
tók við völdum. Segja má að þrír
þeirra fari aftur í sín gömlu störf en
hinir séu í atvinnuleit. Talsverðar
breytingar verða í aðstoðarmanna-
hði sjálfstæðisráðherranna og nýir
menn koma inn til aðstoðar ráðherr-
um Framsóknarflokksins. Fram-
sóknarráðherramir eru allir að velta
máhnu fyrir sér. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur enginn þeirra ráöið
sér aðstoðarmann enn sem komið er
enda hörð barátta flokksmanna og
annarra að komast í þessi störf.
Margrét S. Bjömsdóttir, sem hefur
verið aðstoðarmaður viðskiptaráð-
herra frá 1993, hefur verið í launa-
lausu leyfl frá starfi sínu sem endur-
menntunarstjóri Háskóla íslands og
tekur hún við því starfi í vor eða
sumar eins og hún hefur stefnt að.
Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi
aðstoðarmaður félagsmálaráðherra,
er í leyfi frá Félagsmálastofnun
Kópavogs og Sigfús Jónsson, sem
hefur verið aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra, heldur áfram að
reka ráðgjafarfyrirtækið Nýsi hf.
Aðrir aðstoðarmenn fyrrum al-
þýðuflokksráðherra ganga ekki að
framtíðinni jafn vísri. Þröstur Ólafs-
son, sem var aðstoðarmaður utan-
ríkisherra, og Birgir Hermannsson,
sem var aðstoðarmaður umhverfis-
ráðherra, hafa hvorugir í fóst störf
að venda og eru því í atvinnuleit. Sá
síðarnefndi er reyndar á leið í fram-
haldsnám haustið 1996 og þarf að
komast í vinnu í milhtíðinni.
Nokkrar óráðnar gátur
Steingrímur Ari Arason heldur að
öhum líkindum áfram sem aðstoðar-
maður fjármálaráðherra en Ari
Edwald, sem var aðstoðarmaður
dóms- og kirkjumálaráðherra, flyst
yfir í sjávarútvegsráðuneytið. Sigur-
geir Þorgeirsson, fyrrverandi aöstoð-
armaður landbúnaðarráðherra, hef-
ur sótt um starf framkvæmdastjóra
Bændasamtakanna og er óráðiö hver
tekur við hans starfi. Inga Dóra Sig-
fúsdóttir, aðstoðarmaður Ólafs G.
Einarssonar, er óráðin gáta og ekki
er vitað hvern Hahdór Blöndal ræð-
ur til sín i samgönguráðuneytið. Þá
er óvíst hvort Eyjólfur Sveinsson
heldur áfram í forsætisráðuneytinu.
Ráðherrar Framsóknarflokksins
hafa ekkert ákveðið enn um ráðning-
ar í störf aðstoðarmanna. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra, Ingi-
björg Pálmadóttir hehbrigðisráö-
herra og Páh Pétursson félagsmála-
ráðherra æha að íhuga máhð en ekki
er vitað hvað Finnur Ingólfsson iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra eða Guð-
mundur Bjarnason landbúnaðar- og
umhverfisráðherra hafa í hyggju.
-GHS
Hótel Island kvnnir skemmtidagskrána
ÞÓ LÍBI ÁR 06 ÖLD
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - 25 ÁRA AFMÆLISTÓNLEIKAR
BJÖKGVIN HALLDÓRSSÖN lítur yfir dagsverkiá seni dægurlagastingvari ;i
hfjóinplölum í aldarfjóröung, og \iö he.vTum na>r 60 lög f'rá /
glæstum f'erli - frá 1969 til okkar daga
vV01 Næstu sýningar:
29- aPrí|
6. maí
Gestasöngvari:
SIGHÍDI R BKINTKINSDÓITIR '
Leikm.Mtd og li*ikstjórn:
BJÖKN G. BJÖKNSSON
IHjomsvcitarstjori):
Gl''NNAK MÍRDARSON JBB
asamt lOmanna Iiljomsvrit
JÓ\ AXKL ÓLAFSSON
Danshöt'undur:
HKLKNAJONSDOTTIK
Dansarar ur BATTl' llokknum
Matseðill
Súpa: Koníakstónuö humarsúpa
meó rjómatoppi
Aðalréttur: Lambapiparsteik með
gljáðu grœnmeti, kryddsteiktum
jaróeplum og rjómapiparsósu
Eftirréttur: Grand Marnier ístoppur
með hnetum og súkkuðlaði,
karamellusósu og ávöxtum
Verð kr. 4.600 - Sýningarv. kr. 2.000
Dansleikur kr. 800
Steingrímur Hermannsson
DV1
Feður og synir
Utanríkis- og
dómsmálaráðh. '47-"49.
Utanríkis-, dóms- og
menntamálaráðh.
'49-'50. Utanríkis- og
dómsmálaráðh. '50-'53.
Dóms- og
menntamálaráöh.
'53-'56. Oóms- og
kirkjumálaráöh. '59-'63.
Forsætisráöherra '63-'70.
Bjarni Benediktsson
Félagsmáiaráðh. '56-58.
Félags- og
samgöngumálaráöh.
'71-'73.
Menntamálaráðh.
'95.
Bjöm Bjarnason
Fjármáiaráöh.
'87-'88.
Utanríkisráöh.
'88-'95
Jón Balvin Hannibalsson
Mennta- og
iönaöarmálaráöh.
'56-'58. Mennta-,
viðskipta- og
iönaöarmálaráðh.
'58-'59. Mennta- og
viöskiptamálaráöh.
'59-'63. Mennta- og
viðskiptamálaráöh.
'63-'71.
Mennta-, dóms-
og kirkjumálaráðh.
'79-'80.
Gylfi Þ. Gíslason
Vilmundur Gylfason
Landbúnaðarráöh.
'49-'50.
Landbúnaðarráðh.
'80-'83.
Jón Pálmason
Pálmi Jónsson
Forsætis- og
dómsmálaráöh.
'34-'41. Forsætis-,
landbúnaðar- og
dómsmálaráöh.
'41-'42.
Landbúnaðarráðh.
'50-'53. Forsætis-,
landbúnaöar og
dómsmálaráðh.
'56-'58.
Hermann Jónsson
Dóms-, kirkju- og
landbúnaðarráöh.
'78-'79. Sjávarútvegs-
og samgönguráðh.
'80-'83.
Forsætisráöh. '83-'87.
Utanrikisráöh. '87-'88.
Forsætisráöh. '88-'91.
Ríkisstjómir Lindanfarinna ára:
Synir ráðherra feta í fótspor feðra
- Bjöm Bjamason eini ráöherrasonurinn íríkisstjóm Davíös
Svo einkennilega hefur viljað til
að allt frá árinu 1978 hefur minnst
einn ráðherra í hverri ríkisstjórn átt
fóður sem áður gegndi ráðherraemb-
ætti. Ráðherrasynimir sem sest hafa
í ráðherrastól eru þeir Steingrímur
Hermannsson, sonur Hennanns
Jónassonar, Pálmi Jónsson, sonur
Jóns Pálmasonar, Vilmundur Gylfa-
son, sonur Gylfa Þ. Gíslasonar, Jón
Baldvin Hannibalsson, sonur
Hannibals Valdimarssonar, og nú
síðast Björn Bjamason, sonur Bjamá
Benediktssonar. -kaa
Frosti hf. í Súðavík:
Tapi snúið
í hagnað
Frosti hf. í Súðavík hagnaðist um
50 milljónir á síðasta ári samkvæmt
heimildum DV. Þetta er algjör um-
snúningur í rekstri fyrirtækisins
sem tapaði 100 milljónum á árinu
1993. Fyrirtækið hætti í júní á síðasta
ári vinnslu á bolfiski og sneri sér
alfarið að rækjuvinnslu.
Fyrirtækið, sem er langstærsti at-
vinnurekandinn í Súðavík, á og rek-
ur þrjú skip, ísfisktogarann Bessa og
togskipin Haffara og Kofra sem öll
eruárækjuveiðum. -rt
Akranes:
Þrír rústuðu bíl
Lögreglan á Akranesi handtók í
fyrradag þrjá unga menn fyrir aö
stórskemma bíl sem stóð fyrir utan
hús í bænum.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
ætluöu piltarnir að stela bílnum.
Þeim tókst að gangsetja hann en stýr-
islásinn gátu þeir ekki opnað. Óku
þeir bílnum á girðingu og bmtu síðan
í honum allar rúður. Ennfremur
dælduðu þeir bílinn með því að
sparka í hanu.
Piltarnir, sem voru ölvaðir, voru
settir í hald lögreglu og málið rann-
sakað. -pp
örugglega fati framar
KUMHO
NORÐDEKK
IIJÓWARÐASTÖÐM H/f á að
erum fluttir úr Skeifunni en tökum vel á móti þér að
Bfldshöfða 8 - þar sem rauði bfllinn er á þakinu.
Fljót og góð þjónusta.
Bíldshöfða 8-112 Reykjavík
Sími 587-3888
Allir þeir sem láta umfelga
fá 50% afslátt af þvotti hjá
þvottastöðinni við hliðina á.