Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 9 Stuttar fréttir Árás í Sarajevo Tveir létust og þrír særðust í árás í Sarajevo í gser. Útrýma kjarnavopnum Kozyrev, utanríkisráöherra Rússlands, sagði hjá Sameinuðu þjóðunum í gær að kjamorku- veldin ættu að stefna að útrým- ingu allra kjarnavopna. Delors ekki ráðherra Jacques Del- ors segist ekki sækjast eftir stöðu forsætis- ráðherra Prakklands þó Lionel Jospin verði kjörinn forseti landsins í kosningunum 7. maí. NATOtilnefnt NATO hefur verið tilnefnt til friðarverðlauna Nóheis. Hirðin gagnrýnd Ein af hirðkonum Elísabetar Englandsdrottningar varð fyrir harðri gagnrýni í breska þinginu þar sem mörg skyldmenni hemr- ar eru sögð búa í íbúðum krún- unnar án þess að greiða leigu. Mannréttindadómstóll Evrópu er með mál bresks blaðamanns til meðferðar sem var sektaður fyrir óvirðingu við réttinn þegar hann neitaði að gefa upp heimild- armenn sína. Varlakosiðáítaliu Líkur á kosn- ingum á Ítalíu í júní þykja'hafa fariö: minnk andi.þráttfyrir sigur flokks Berlusconis í sveitarstjórn- arkosnmgum. Berlusconi hafði kraíist þing- kosninga sem fyrst til að skýra stjórnmálaástandið í landinu. KosiðíMalasíu Búist er við að Mahatir Moham- ’ ad og flokkur hans vinni stórsíg- ur í kosningum sem lauk í Malas- íu í gær. Leiðtogarspáídollar Fjármálaráðherrar sjö stærstu iðnríkja heims munu hittast til að ræða slæma stöðu dollarans. Kjamorkuskipi neitað Bresku flutningaskipi sem flyt- ur kjarorkuúrgang var neitað um að leggjast að bryggju í Japan. Marokkó og ESBfunda Fulltrúar ESB og Ma- rokkó vonast til að ná sam- komulagiiílsk- veiðidcilu aðil- anna á fundum sem hóftist í gær. Marokkó- menn vilja takmarka fjöída spænskra og portúgalskra fiski- skipa um helmíng og skerða kvóta til að vemda fiskstofnana undan ströndum landins. i Slléstíddsvoða Fimmtíu og einn lést í eldsvoða sem geisaði í skemmtanahverfi í Urumql í Kína. Deiltumhomma Breskir stjómmálamenn og for- ingjar í hernum deila um áfram- haldandi bann viö að leyfa hommum og lesbíum að gegna herþjónustu. Reuter Eitt þúsund herskáir hútúar eftir í flóttamannabúðunum í Rúanda: Búist við enn meira blóðbaði - stjómarher Rúanda hefur búðirnar 1 herkví Her Rúanda-stjórnar hefur Kibeho flóttamannabúðimar í suðvestur- héraði landsins enn þá í herkví. Um þúsund manns eru eftir í búðunum, allir af ættbálki hútúa. Yfir eitt hundruð þúsund manns voru í búð- unum þegar mest var áður en „slátr- unin“ hófst þar um síðustu helgi. Þá drap stjórnarherinn, sem tútúar ráða, í það minnsta 2000 manns í búðunum á hrottalegan hátt. Sumir halda því þó fram að allt að 8000 manns hafi látist. Fólkið hafði flúið í borgarastríðnu á síðasta ári og feng- ið afdrep í búðunum. Sameinuðu þjóðirnar reyna nú að semja um að fá að flytja á brott þá þúsund sem eftir eru en Rúanda- stjórn er því andvíg þar sem hún segir að um stríðsglæpamenn sé að ræða. Aðstæður í búðunum em öm- urlegar og þar var engin aðstaöa fyr- ir rúmlega eitt hundrað þúsund manns sem voru þegar mest var. Mikil skálmöld ríkir í landinu milh tútsía og hútúa eins og verið hefur síðustu árin. Hútúar eru taldir hafa drepið mörg hundruð þúsund tútsía í vargöldinni sem ríkt hefur á síðustu tveimur árum. Hjálparstarfsmenn segja að herinn sæki ipjög að hútúum sem eru í nágrenni búöanna og skipi þeim að yfirgefa svæðið friðsamlega eða verða fluttir á brott nauðugir að öðrum kosti. Þeir eitt þúsund hútúar sem eftir eru í búðunum eru staðráðnir í berj- ast við stjórnarherinn geri hann árás inn í búðirnar. Það er því ekki víst að þeir sætti sig við milligöngu SÞ í máhnu heldur ætli sér að berjast þar til yfir lýkur. Það er því hætta á frek- ara blóðbaði í Rúanda. Fréttaskýr- endur spá frekara blóðbaði á næst- unni enda líti hútúarnir svo á að ef þeir gefist upp án skilyrða og yfir- gefi búðirnar bíði þeirra ekkert nema dauðinn. Rúandastjórnin lítur á þá hútúa sem eftir eru í búðunum sem morðingja og neitar því að þeir fái að yfirgefa búðirnar undir vernd Sameinuðu þjóðanna. Það sem mælir þó gegn því að Rú- andastjórnin láti til skarar skríða og ráðist inn í flóttamannabúðirnar er að staða hennar er veik enda er hún fordæmd um allan heim eftir atburði síðustu vikna og því hiki hún við frekara blóðaði. Stjórnvöld í Rúanda afsaka blóð- baðið um helgina með því aö hútúar í búðunum hafi byrjað á því aö skjóta á hermenn stjórnarhersins og því hafi þeir orðið að svara fyrir sig. Reuter — Friðargæsiuliði frá Sameinuðu þjóðunum dregur lík tveggja barna úr líkhaug í Kibeho-flóttamannabúðunum i Rúanda. Nú er talið að um 2000 manns hafi verið drepin í búðunum þegar her Rúanda-stjórnar réðst til atlögu gegn flóttamönnunum. Líkin verða grafin í fjöldagröf. Simamynd Reuter Norðmenn og ESB náð samningi um tollfríðindi: Norðmenn ekki allt of ánægðir Norðmenn og Evrópusambandið (ESB) hafa náð samningum um toll- fríðindi á útflutning sjávarafurða til fyrrum EFTA-ríkjanna Svíþjóðar, Finnlands og Austurríkis en auka- tollur lagðist á útflutning Norð- manna til þessara landa eftir að þau gengu í Evrópusambandið. Sama átti við um ísland. Áður hafði útflutning- urinn verið tollfrjáls. Samningurinn hljóðar upp á ákveðið stóran kvóta sem flytja má til þessara landa án þess að tollur leggist á. Eivinn Berg, sendiherra Noregs hjá ESB, segir samninginn vera ásættan- legan en ekki mikið meira en það. í sjávarútvegsráðuneytinu eru menn á því að hægt sé að lifa við samning- inn, en eru ekkert allt of ánægöir með hann. Magn algjörlega tollfrjáls útflutn- ings er ekki eins mikið og Norðmenn höfðu búist við en sendiherrann legg- ur áherslu á að ekki hafi verið mögu- legt aö fá ESB til að teygja sig lengra í átt aö óskum Norðmanna. Norð- menn höfðu óskað eftir að útflutn- ingstölur frá árinu 1994 væru lagðar til grundvallar þegar kvótinn var ákveðinn en það fékkst ekki sam- þykkt heldur var miðað við meðaltal áranna 1992 til 1994. Norðmenn höfðu til dæmis óskað eftir því að kvótinn fyrir lax skyldi vera 8.900 tonn en hann verður nokkru minni. Tölur hafa þó ekki enn veriö gefnar upp. Samningurinn nær til 32 fiskteg- unda sem fengu á sig toll þegar lönd- in þrjú gengu í Evrópusambandið þann 1. janúar sl. Tollurinn sem lagð- ist á hefði komið til með að kosta Noreg tæplega 1,5 milljarð á þessu ári. Mikílvægustu afurðirnar fyrir Noreg, sem samningurinn nær til, eru rækjur, síld, lax og makríll. NTB Útlönd Kalifornía: Pakkasprengja drepureinn Sprengja, sem fahn var í pakka, sprakk i skrifstotubyggingu timburfyrirtækis í Sacramento í Kaliforníu í gær og varð einum manni að bana. Lögregla og slökkvilið þustu á vettvang en sprengian haföi brotið flestar rúður og hurðir í húsinu. Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyrir sprengingunni. Talið er að pakk- inn hafi veríð skilinn eftir fyrir utan bygginguna, starfsmaður hafi síðan borið hann inn og rétt öðrum sem hafi opnað hann. Tíl- ræðið er talið tengjast sams kon- ar tilvikum þar sem sprengju- pakkar hafa verið sendir stofnun- un, skólum og tölvufyrirtækjum síðastliðin tvö ár. Tveir hafa lát- ist og 23 særst í sprengingunum. Engin tengsl eru talin vera við sprengjutilræðið í Oklahoma þar sem að minnsta kosti 80 fórust og 150 manns er saknað. Reuter Nr. Lelkur: ____________________Rööin Nr. Lelkur: _____________ Bðöln 1. WBA- Derby -X - 2. Notts Cnty - Grimsby - -2 3. Charlton - Luton 1 - - 4. Oldham - Millwall - -2 5. Watford - Bristol C. 1 - - 6. Stoke - Port Vale --2 7. Assyriska - Vásterás -X - 6. Brage - GIF Sundsv -X - 9. Luleá-Gefle --2 10. Umeá - Sirius 1 - - 11. Landskrona - Falkenbergl -- 12. Myresjö - Hássleholm -X- 13. Skövde - Kalmar FF -X - Heildarvinningsupphæð: 7Omllljónlr 13 réttir 12 réttir 11 réttirj 10 réttir 6.258.580 kr. 221 kr. kr. 3 kr. 5.330 Nr. Lelkur;_____________________Röðln Nr. Lelkur;_______________Röðln 1. Roma-Lazio --2 2. Parma - Inter 1 - - 3. Sampdoria - Fiorentina -X - 4. Napoli - Foggia 1 - - 5. Cremonese - Genoa 1 - - 6. Cagliari - Reggiana 1 - - 7. Juventus - Padova - -2 8. Bari - Brescia 1 - - 9. Verona - Atalanta -X - 10. Lucchese - Ancona -X- 11. Perugia - Cesena -X - 12. Ascoli - Cosenza -X - 13. Vicenza - Palermo 1 -- Heildarvinningsupphæð: 9,7 mllljónlr 13 réttir 422.810 kr. 12 réttir 5.350 kr. 11 réttir 360 kr. 10 réttir kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.