Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Blaðsíða 10
10
ÞRIDJUDAGUR 25. APRIL 1995
Fréttir
Nýtt „stríð" íslenskra sjávarafurða og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna:
Sölurisarnir berjast um
Fiskiðjusamlag Húsavíkur
Gylli Kristjánssort, DV, Akureyri:
Ný barátta sölurisanna tveggja sem
versla meö sjávarafurðir, Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna og íslenskra
sjávarafurða, er nú hafin og svipar
um margt til þess þegar þessi fyrir-
tæki börðust um afurðasölumál Út-
gerðarfélags Akureyringa í vetur.
Um er að ræða viðskipti með afurðir
Fiskiðjusamlags Húsavíkur sem ver-
ið hefur í viðskiptum við íslenskar
sjávarafurðir hf. og fyrirtæki tengd
Sambandinu sáluga í áratugi.
Bæði fyrirtækin hafa gert Húsvík-
ingum tilboð um kaup á hlutabréfum
í Fiskiðjusamlagi Húsvíkinga. Sölu-
miðstöðin hefur óskað eftir viöræð-
um við bæjaryfirvöld, sem eiga
meirihluta í Fiskiðjusamlaginu, og
vill SH kaupa hlutabréf í fyrirtækinu
eða taka á annan hátt þátt í hlutafjár-
aukningu þess. íslenskar sjávaraf-
urðir sendu um helgina tilboð til
bæjaryfirvalda um kaup á tiltekinni
upphæð í þeirri hlutafjáraukningu
sem fyrir dyrum er hjá Fiskiðjusam-
laginu en ekki er látið uppi hversu
háa upphæð þar er um að ræða.
Hlutafé Fiskiðjusamlagsins, sem er
vinnslufyrirtæki þeirra Húsvíkinga,
er 190 mihjónir króna. Heimild liggur
fyrir til að auka hlutaféð um 200
milhónir og hefur verið ákveðið að
nýta helming þeirrar heimildar nú.
„Það sem mun gerast næst í þessu
máli er að stjórn Fiskiðjusamlagsins
mun fjalla um tilboð íslenskra sjáv-
arafurða hf. en bæjarráð mun taka
erindi SH til afgreiðslu. Ég ætla að
vona að þótt þessi risafyrirtæki séu
að bítast komi það ekki til með að
skapa neinn glundroða í þessu htla
samfélagi okkar," segir Einar Njáls-
son, bæjarstjóri á Húsavík.
Raufarhöfn:
Óánægja með undir
tektir sölurisanna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Mikil óánægja er ríkjandi á Raufar-
höfn með afstöðu sölurisanna, Sölu-
miðstöðvar hraöfrystihúsanna og ís-
lenskra sjávarafurða hf., til þátttöku
í hlutafjáraukningu í sjávarútvegs-
fyrirtækjunum á Raufarhöfn og
Kópaskeri.
Stjórnir Jökuls, Fiskiðju Raufar-
hafnar og Geflu á Kópaskeri hafa
freistað þess að fá aukið hlutafé inn
í rekstur fyrirtækjanna, ekki síst til
þess að geta breytt framleiðslu sinni
og framleitt í dýrari pakkningar. Var
um það rætt á sínum tíma að ÍS
kæmi hugsanlega inn í fyrirtækin
með hlutafé og fengi þar með við-
skiptin með afurðirnar sem SH hefur
haft með höndum.
Stjórnir fyrirtækjanna og sveitar-
srjórnir beggja staðanna mátu tilboð
sölufyrirtækjanna þannig að þau
væru óaðgengileg og þeim var báðum
hafnað. Eins og staöan er í dag held-
ur því SH viðskiptunum en sam-
kvæmt heimildum DV er ekki víst
að það verði til frambúðar.
„Við höfum fullan hug á að taka
strax í okkar hendur söluna á rækj-
unni og teljum að SH hafi ekki greitt
okkur það verð sem hægt er," segir
heimildarmaður DV á Raufarhófn.
Sami heimildarmaður segir að það
sé lífsspursmál fyrir fyrirtækin að
geta hafið framleiðslu á bolfiski í
dýrari pakkningar og stöðva þannig
taprekstur sem verið hefur undan-
farin ár. „Ætli við verðum ekki að
berjast í þessu sjálfir eins og hingað
til," sagði heimildarmaöur DV um
þetta mál.
Borgarlögmaður skrifar Eir bréf:
að inngöngu
nýrra félaga
„Nokkrura klukkutímum fyrir
fundinn á miðvikudEfeinn kom bréf
frá borgariögmanni þar sem hann
dró í efa að það heföi verið löglega
staðið að inntöku þessara nýju að-
ila. Það er mjög sérkennilegt að
þetta bréf skuli hafa verið sent meö
svo stuttum fyrfrvara og ekki geng-
ið úr skugga um þetta fyrr. Fóik
tekur betta sem Sandskap í garð
þessara samtaka. Það virðist anda
köldu i garð þeirra frá núverandi
ráðamönnum í borginni eftir að
borgin sieit samstarfi við Eir vegna
byggittgar hjúkranarheimilis í
Mjódd," segjr Guðrun Zoéga borg-
arfulltrui.
Borgarlögmaður hefur skrifað
fulltrúaráði sjálfseignarstofnunar-
innar Eirar bréf um að ekki hafi
veriö staðið rétt aö ihngöngu Sókn-
ar, Framsóknar, Hússjóðs Oryrkja-
bandalagsins og SÍBS í samtöMn
þar sem borgarráð hafi þurft að
samþykkja inngönguna. Bréf borg-
arlögraanns barst fantrúaráöimi á
miðvikudag og var fundinum frest-
að meðan gengið yrði úr skugga
um þetta. Félagasamtökin fjögur
voru samþykkt inn í Eir á fuJltrúa-
tóosfundi í fyrravor og staöfest á
fundi í október.
„Þetta er algjörlega fráieitt og
hefur ekkert með þessi félög að
gera. Það er ekkert sem mælir gegn
því að taka inn nýja félaga en menn
verða aö gera það meö réttum
hætti. Bréf borgarlögmanns er
bara athugasemd um að til þess að
taka inn nýja félaga þurfi sam-
þykki ailra stofnaðila. Reykjavík-
urborg er stofnaðili og hefur greitt
40 prósent af stofnkosrnaði Þegar
nýir félagar era teknir inn sem fá
fulltrúa I stjórn minnkar vægi
Reykjavikurborgar og þá þarf auð-
vitað að leita samþykkis hennar
sem stofnaðila," segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
„Við fórum að veita fyrir okkur
af hverju þessir aðilar væru allt í
einu komnir inn í Eir sem var fjár-
magnað og til stofnað með þeim
hætti að Reykjavíkurborg lagöi
fram 40 prósent, rfMð 40 prósent
og aðrir aðilar 20 prósent. Við átt-
uðum okkur allt í einu á þvl að
þarna voru fleiri aðilar koránir inn
án þess að leitað hefði verið eför
formlegu samþykki hér," segir
borgarsrjóri.
-GHS
'¦•¦•¦••¦•"••¦,,::- i
Frá undirritun samnings um D-álmuna, (rá vinstri: Anna Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaóur SS, Jón Gunn-
arsson oddviti, Vogum, Siguröur Jónsson sveitarstjóri, Garði, Sighvatur Björgvinsson, Friörik Sophusson, Ellert
Eiríksson bæjarstjóri, KNH, Jón Gunnar Stetánsson bæjarstjóri, Grindavík, Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjar-
stjóri, Sandgerði. DV-myndir Ægir Már
D-álma við Sjúkrahús Suðurnesja:
Mesta hagmuna-
mál byggðarlagsins
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta þýðir mikla aukningu við
þá heilbrigðisþjónustu sem við veit-
um og stækkar heilsugæslustöðina
sem er í þröngu húsnæði. Við fáum
fullkomna endurhæfingaraðstöðu og
legurými fyrir 28 manns tíl viðbótar
auk starfsmannaaðstöðu. Þessi bygg-
ing leysir þó ekkj allan vandann sem
við hefðum viljað leysa en er stórt
spor í rétta átt," sagði Jóhann Ein-
varðsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Suðumesja í Keflavík.
Þáverandi heilbrigðisráðherra og
fjármálaráðherra undirrituðu fyrir
hönd ríkisins ásamt fulltrúum sveit-
arfélaganna á Suðurnesjum samning
um byggingu D-álmu við Sjúkrahús
Suðurnesja í Keflavík 3. apríl að viö-
stöddum fjölda gesta.
Byggingin verður staðsett austast
á sjúkrahúslóðinni og tengist bæði
heilsugæslustöðinni og sjúkrahúsi.
Heildarflatarmál 2667 m2 og bygging-
Jóhann Einvarðsson, framkvaemda-
stjóri Sjúkrahúss Suöurnesja.
in verður á 2 hæðum og kjallari.
Húsið verður boðið út í áföngum.
Áætlaður heildarkostnaður er um
335 millj. króna. Framlag ríkissjóðs
er 85% eða um 285 milljónir og sveit-
arfélaga á Suöurnesjum 15% eða um
50 milljónir. Lokið verður við fyrsta
áfanga í ár en þá verður húsið steypt
upp og gengið frá því að utan ásamt
lóð. Áætlaður kostnaöur við fyrsta
áfanga er um 130 milljónir og munu
sveitarfélögin fjármagna hluta af
framlagi ríkissjóðs þar til 1998-1999.
„Samtökin voru stofhuð með það
markmið að vinna að byggingu og
búnaði D-álmunnar. Það hefur verið
unnið markvisst að málinu og nú er
þetta loks í höfn. Þetta hefur veriö
að velkjast í kerfinu í einhver ár.
Þetta er að okkar mati í röð mestu
hagsmunamála byggðarlagsins ef
ekki það stærsta," sagði Tryggvi
Valdimarsson, formaður D-álmu
samtakanna á Suðurnesjum. Þau
voru stofnuð 1987 og stendur 31 félag
að þeim. Þau verða lögð niður þegar
D-álman hefur tekið til starfa.
Alþingi:
Vorþing um miðjan maí
Ákveðið hefur verið að kalla Al-
þingi saman um miðjan maí og sagð-
ist Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarmaö-
ur forsætisráðherra, gera ráð fyrir
að þingið kæmi saman 15. maí.
Á þessu vorþingi verða aðallega
tekin fyrir mál sem snerta GATT-
samninginn og EES-samninginn. Þar
er um að ræða staðfestingu á nokkr-
um málum sem ekki hefur unnist
tími til að afgreiða.
Þá mun einnig ákveðið að taka fyr-
ir nokkur atriði í lógunum um stjórn
fiskveiða sem getið er um í stjórnar-
sáttmálanum. Ekki er gert ráð fyrir
að þinghald standi lengur en tvær
vikur.