Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995
Spurningin
Heldurðu aö vorið sé
endanlegá komið?
Kristín Anna Arnþórsdóttir íþrótta-
kennari: Nei, ég held að þaö sé ekki
alveg komiö enn þá en það er þó á
næsta leiti.
Bára Jóhannsdóttir, ferðamálafull-
trúi með Atla Má Truscott: Ég hugsa
ekki en vona það samt.
Guðmundur Simsen nemi: Nei, ég
held aö það sé ekki komið enn þá.
Björg Óskarsdóttir, heimavinnandi
húsmóðir: Nei, það held ég ekki.
Ester Elín Bjarnadóttir hárgreiðslu-
nemi: Já, það vona ég.
Lesendur
Forsætisráð*
herra í klípu
Þorfinnur Gunnlaugsson í doktors-
námi í efnafræði: Já, það lítur út fyr-
ir það. Ég kom með það með mér frá
írlandi þar sem ég bý.
Friðrik Guðm. skrifar:
Davíð Oddsson, forsætisráöherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins, er
sá maður sem alltaf virðist hafa öll
trompin á hendi sér enda er hann
sagður vera slyngur bridge-spilari!
Sé talað í fullri alvöru þá er þetta
engu að síður bláköld staðreynd.
Davíð virðist vera þeim gáfum
gæddur að geta komist út úr hvaða
erfiðleikum sem er. Það er alveg
sama á hverju dynur, hvort sem það
er innan Sjálfstæðisflokksins eða
ríkisstjórnarinnar, alltaf kemur
Davíð út sem sigurvegarinn. Ávallt
eru það aðrir sem fá skömm í hatt-
inn. Bara foringinn sleppur. Þetta
var t.d. augljós staöreynd í síðustu
ríkisstjórn. Þegar hún naut sem
mestra óvinsælda var Jón Baldvin
talinn vera sökudólgurinn! Forsætis-
ráðherrann var stíkkfrí. Þetta eru
merkilegar staðreyndir og sjálfur
kann ég engar einfaldar skýringar á
þeim. I rauninni kann ég bara alls
engar skýringar á þessu.
Þegar þessar línur birtast á prenti
verður Davíð sjálfsagt búinn að
mynda stjórn með Halldóri Ásgríms-
syni, formanni Framsóknarflokks-
ins. Með því hefur Davíð sýnt eina
ferðina enn að hann hefur öll tromp-
in á sinni hendi. Jóni Baldvini og
krötum var ýtt til hliðar eftir platvið-
ræður og Halldór tók sæti hans við
spilaborðið. Forsætisráðherrann var
ekkert að bíða eftir viðræðum hinna
flokkanna um vinstristjórn heldur
tók af skarið og sigraði!
Þetta er allt saman gott og blessað
fyrir þá sem vilja Davíð Oddsson
áfram sem forsætisráðherra og að
hér verði ríkisstjóm Sjálfstæðis-
Bréfritari telur Davíð Oddsson vera í nokkurri klipu um þessar mundir.
flokks og Framsóknarflokks næstu
fjögur árin. Hinir verða bara að bíta
í súrt epli.
Að mínu mati er það ekki málefna-
samningur sem er höfuðverkur Dav-
íðs við þessa ríkisstjórnarmyndun.
Nei, það er að skipa ráðherralista
flokksins svo að öllum líki. Það hlýt-
ur að teljast vonlaust verk því alltaf
verða einhverjir óánægður og telja
sig hlunnfarna. í þessu sambandi er
nærtækasta dæmið um Ólaf G. Ein-
arsson sem fékk embætti mennta-
málaráðherra árið 1991.
Það er alveg sama hvaða ákvörðun
forsætisráðherrann tekur í þeim efn-
um. Einhverjir verða óánægðir. Að
því leytinu til er Davíð í klípu og
meira að segja töluvert mikOli klípu.
Þaö er ekki gott að fá fylkingar upp
á móti sér í flokknum, jafnvel ekki
þótt maðurinn sé formaður hans.
Ólafur G. er svo umdeildur að
menn skiptast bara í tvo fiokka þegar
hann er annars vegar. Annaðhvort
eru þeir með honum eða á móti. Út-
strikanir kjósenda Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjanesi segja sitt en jafn-
framt er erfitt að ganga fram hjá
kjördæmi þar sem flokkurinn á fimm
þingmenn. Þaö hlýtur að vera eríitt
að láta þá vera ráðherralausa.
Hvernig sem málið fer er ljóst að
Davíð er í klípu.
Stórkostieg kvikmynd
Guðrún B. skrifar:
Ég vil flytja forráðamönnum Sjón-
varpsins kærar kveðjur og þakklætí
fyrir kvikmyndasýninguna á sumar-
daginn fyrsta, fimmtudaginn 20.
apríl sl. Þá var sýnd aldeilis frábær
kvikmynd sem heitir Konunglegt
brúðkaup frá árinu 1951.
Þar fór hinn dásamlegi Fred Asta-
ire á kostum ásamt Jane Powell, Pet-
er Lawford og mörgum öörum, mjög
góðum dönsurum og leikurum. Þrátt
fyrir að myndin sé komin til ára
sinna mátti glögglega sjá að kvik-
myndagerðarmenn þess tíma kunnu
vel til verka. Sérstaklega var eftir-
tektarvert atriðið þar sem Fred Asta-
ire bókstaflega dansaði um allt her-
bergið. Tæknibrellur í því atriði voru
einstaklega vel útfærðar og gefa nýj-
ustu kvikmyndunum ekkert eftir.
í þessu sambandi vil ég einnig
minnast á að gömlu kvikmyndirnar
eru ekkert síðri heldur en þær nýju
og oft á tíöum miklu betri. Vissulega
kann þetta að vera smekksatriði en
mörg okkar, sem eru komin yfir
miðjan aldur, kjósa frekar að horfa
á gömlu myndirnar. Fyrir því eru
margar ástæður og nægir að nefha
ofbeldið sem nú tíðkast í bíómynd-
um. í myndinni á sumardaginn
fyrsta var engum blóðsúthellingum
fyrir að fara og þar var rómantíkin
alls ráðandi og ástarsenurnar voru
fallegar, ólíkt því sem nú þekkist.
Ég ítreka þakkir mínar tíl Sjón-
varpsins og hvet þá til að halda áfram
á þeirri braut að sýna meira af þess-
um gömlu, góðu myndum. T.d. væri
gaman aö fá að sjá myndir með Fred
Astaire og Ginger Rogers í aðalhlut-
verkunum. Því myndu örugglega
margir fagna.
Eðlileg samkeppni
E.E. hringdi:
Ingi Björn Albertsson talar um
stóru Framsóknarflokkana tvo og á
þar við þann gamla og væntanlega
Sjálfstæðisflokkinn líka, sem allir
þekkja. Ég get tekið undir þessa skýr-
ingu hans eftir framlag flokksins til
landbúnaðarmála og fleiri mála-
WmMþjónusta
- eða hríngið í síma
563 2700
mil!ikl.l4ogl6
Kolkrabbinn er þjóðinni ekki til
heilla, að mati hringjanda.
flokka er snúa að þjóðinni.
Á þessu kjörtímabili ræðst hvort
hér fái eðlileg samkeppni aö ráða.
Aðeins er farið að örla á samkeppni
erlendis frá og ferskir vindar blása
um kinnar. Stóru einokunarfélögin
eru farin að setja sig í stellingnar til
að takast á við heilbrigða sam-
keppni. Því víst eru að myndast
sprungur í múrinn. Kannski fer þjóð-
in að átta sig á því að enginn hagur
er lengur í óskapnaði þeim er kallað-
ur hefur verið Kolkrabbinn meðal
landsmanna. Að sjálfsögðu mun fóð-
ur hans rýrna að miklum mun við
samkeppnina þó hann drepist ekki
alveg.
Á þessu kjörtímabili ræðst hvort
þjóðin heldur eignarrétti á þjóðararf-
inum, fiskimiðunum, eða hvort fáum
einstaklingum verði færð þessi eign
á silfurfati og er það hin mesta hroll-
vekja að hugsa um. Þarna yrði þjóð-
inni keyrt aftur á svipað plan og ban-
analýðveldin hafa þurft að búa við.
Sem sagt skömmtunarkerfi örfárra
fjölskyldna.
SkemmtiJeg
tilbreyting
Helga hfingái:
Ég er sammála því að nætur-
sundið sé sketttmtiieg tílbreyöng
frá þvi aö hanga niðri í bæ, En
mér fihnst að það ætti að lækka
aldurstakmarkið ráður í 14 ára.
Það myndi halda krökkum undir
16 ára aldri frá miðbænum um
helgar.
Músíkin
mildarsíðina
GG skrifar;
Það er rnikið ánægjuefni að nú
skuli boðið upp á útvarpsrásir
sem ftytja eingöngu sígilda tón-
list.
Enn skemmtilegra hefði þó ver-
ið ef viðkomandi stöðvar hefðu
leitað til kunnáttumanna tíl að
kynna tónlistina. Þar dettur mér
fyrst í hug Jóhannes Jóriasson
lögreglumaður en hann er nánast
óþrjótandi viskubrunnur, bæði
um tónlistina og fjytjendur. Nú-
verandi kynnar virðast hins veg-
ar eiga í erfiðleikum með að hafa
rétt eftír upplýsingar af diska-
hulstrum og þekking þeírra á
tónlist er bundin við „Greatest
Hits" tónskáldanna.
Því legg ég tíl að Jóhannes verði
kallaður tii liös við þá. Þótt skarð
verði fyrir skildi í lögreglunni,
kann hins vegar aö draga úr
glæpatíöni með hann í útvarpinu
því eins ogskáldið sagði: .^lúsík-
in mildar siðina".
Oiæsílegír
fulltrúar
Kjósandi skrifar:
Þótt deila megi endalaust um
úrslit nýafstaðinna alþingiskosn-
inga held ég að fiestir geti verið
ánægðir með þann hóp fólks sem
núíekur sæti á Alþingi í fyrsta
skiptí. Þetta fólk er sannarlega
glæsilegir fulltrúar þjóðarinnar.
Endurnýjunar var þörf á þing-
liðinu og ég get ekki annað sagt
en vél hafi til tekist í þeim efnum.
Og skiptir þá engu hvaða stjórn-
málaflokkar eiga í hlut. Fram-
sóknarmenn eru með nýja konu
á Reykjanesi, sjálfstæðismenn á
Austfjörðum og Alþýðubandalag-
ið í Reykjavik. Kratar eru með
kornungan mann á Suðurlandi
pg með Þjóðvaka koma ný andiit
ásamt Jóhönnu. Ekki má heldur
gleyma hinum vðsku kvennalis-
takonum.
Þaö ér alveg sama hvert sfjom-
armynstrið er. Það er full astæða
til bjartsýni með dugmikið fólk í
öllum stjórnmálaflokkum.
Hert eflirlit
Guðjón Sigurðsson skrifar:
Atburöirnir óhugnanlegu í
Bandaríkjunum lujóta að vekja
upp þá spurningu hvernig örygg-
ismálum aös staðar sé háttað.
Hryðjuverk geta gerst alls staðar,
líka á íslandi og þess vegna er
nauösynlegt að skoöa þau mál
ofan í kjölinn, Hér er td. banda-
rísk herstöð og hún hlýtur að
vera hugsanlegt skotmark
hermdarverkamanna. Þaö þýðir
jafnframt að þúsundir islendinga
eru í hættu.
Atburðirnir hroðalegu í Okla-
homa kalla skilyrðislaust á það
að við íslendingar förum vel yfir
öll okkar öryggismáL Það er eng-
inn lengur óhultur í þessari ver-
öld.
Vantar
hugmyndaflug
Jóna hringdi:
Þaö er ánægjulegt hversu unga
fólkið er duglegt að setja upp leik-
sýningar á sumrin. Eini gallinn
er sá að þetta eru flest „gömul"
stykki. Það er eins og vantí aðeins
meira hugmyndaflug hjá þessum
ungmennum. Framtak þeirra er
samt rajög gott.