Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995
Spumiiigin
Heldurðu að vorið sé
endanlega komið?
Kristín Anna Arnþórsdóttir íþrótta-
kennari: Nei, ég held að það sé ekki
alveg komiö enn þá en það er þó á
næsta leiti.
Bára Jóhannsdóttir, ferðamálafull-
trúi með Atla Má Truscott: Ég hugsa
ekki en vona það samt.
Guðmundur Simsen nemi: Nei, ég
held að það sé ekki komið enn þá.
Björg Óskarsdóttir, heimavinnandi
húsmóðir: Nei, það held ég ekki.
Ester Elín Bjarnadóttir hárgreiðslu-
ncmi: Já, þaö vona ég.
Þorfinnur Gunnlaugsson í doktors-
námi í efnafræði: Já, það lítur út fyr-
ir það. Ég kom með það með mér frá
írlandi þar sem ég bý.
Lesendur
Forsætisráð-
herra í klípu
Bréfritari telur Davíð Oddsson vera í nokkurri klipu um þessar mundir.
Friðrik Guðm. skrifar:
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins, er
sá maöur sem alltaf virðist hafa öll
trompin á hendi sér enda er hann
sagður vera slyngur bridge-spilari!
Sé talað í fullri alvöru þá er þetta
engu aö síður bláköld staðreynd.
Davíð virðist vera þeim gáfum
gæddur aö geta komist út úr hvaða
erfiðleikum sem er. Þaö er alveg
sama á hverju dynur, hvort sem það
er innan Sjálfstæðisflokksins eða
ríkisstjórnarinnar, alltaf kemur
Davíð út sem sigurvegarinn. Ávallt
eru það aðrir sem fá skömm í hatt-
inn. Bara foringinn sleppur. Þetta
var t.d. augljós staðreynd í síðustu
ríkisstjórn. Þegar hún naut sem
mestra óvinsælda var Jón Baldvin
tahnn vera sökudólgurinn! Forsætis-
ráðherrann var stikkfrí. Þetta eru
merkilegar staðreyndir og sjálfur
kann ég engar einfaldar skýringar á
þeim. I rauninni kann ég bara alls
engar skýringar á þessu.
Þegar þessar línur birtast á prenti
veröur Davíð sjálfsagt búinn að
mynda stjórn með Halldóri Ásgríms-
syni, formanni Framsóknarflokks-
ins. Með því hefur Davíð sýnt eina
ferðina enn að hann hefur öU tromp-
in á sinni hendi. Jóni Baldvini og
krötum var ýtt til hliðar eftir platvið-
ræður og Halldór tók sæti hans við
spilaborðiö. Forsætisráðherrann var
ekkert að bíða eftir viðræðum hinna
flokkanna um vinstristjórn heldur
tók af skarið og sigraði!
Þetta er allt saman gott og blessað
fyrir þá sem vilja Davíð Oddsson
áfram sem forsætisráðherra og að
hér verði rikisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks næstu
íjögur árin. Hinir verða bara að bíta
í súrt epli.
Að mínu mati er það ekki málefna-
samningur sem er höfuðverkur Dav-
íðs við þessa ríkisstjómarmyndun.
Nei, það er að skipa ráðherralista
flokksins svo að öllum líki. Það hlýt-
ur að teljast vonlaust verk því alltaf
verða einhveijir óánægður og telja
sig hlunnfarna. í þessu sambandi er
nærtækasta dæmið um Ólaf G. Ein-
arsson sem fékk embætti mennta-
málaráðherra árið 1991.
Það er alveg sama hvaða ákvörðun
forsætisráðherrann tekur í þeim efn-
um. Einhverjir verða óánægðir. Að
því leytinu til er Davíð í klípu og
meira aö segja töluvert mikilli klípu.
Það er ekki gott að fá fylkingar upp
á móti sér í flokknum, jafnvel ekki
þótt maðurinn sé formaður hans.
Ólafur G. er svo umdeildur að
menn skiptast bara í tvo flokka þegar
hann er annars vegar. Annaðhvort
eru þeir með honum eða á móti. Út-
strikanir kjósenda Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjanesi segja sitt en jafn-
framt er erfitt að ganga fram hjá
kjördæmi þar sem flokkurinn á fimm
þingmenn. Það hlýtur að vera erfitt
að láta þá vera ráðherralausa.
Hvernig sem málið fer er ljóst að
Davíð er í klípu.
Stórkostleg kvikmynd
Guðrún B. skrifar:
Ég vil flytja forráðamönnum Sjón-
varpsins kærar kveðjur og þakklæti
fyrir kvikmyndasýninguna á sumar-
daginn fyrsta, fimmtudaginn 20.
apríl sl. Þá var sýnd aldeilis frábær
kvikmynd sem heitir Konunglegt
brúðkaup frá árinu 1951.
Þar fór hinn dásamlegi Fred Asta-
ire á kostum ásamt Jane Powell, Pet-
er Lawford og mörgum öörum, mjög
góðum dönsurum og leikurum. Þrátt
fyrir að myndin sé komin til ára
sinna mátti glögglega sjá að kvik-
myndagerðarmenn þess tíma kunnu
vel til verka. Sérstaklega var eftir-
tektarvert atriðið þar sem Fred Asta-
ire bókstaflega dansaði um allt her-
bergið. Tæknibrellur í því atriði voru
einstaklega vel útfærðar og gefa nýj-
ustu kvikmyndunum ekkert eftir.
í þessu sambandi vil ég einnig
minnast á að gömlu kvikmyndimar
eru ekkert síðri heldur en þær nýju
og oft á tíðum miklu betri. Vissulega
kann þetta að vera smekksatriði en
mörg okkar, sem eru komin yfir
miðjan aldur, kjósa frekar aö horfa
á gömlu myndimar. Fyrir því eru
margar ástæður og nægir að nefna
ofbeldið sem nú tíðkast í bíómynd-
um. í myndinni á sumardaginn
fyrsta var engum blóðsúthellingum
fyrir að fara og þar var rómantíkin
afls ráðandi og ástarsenumar voru
fallegar, ólíkt því sem nú þekkist.
Ég ítreka þakkir mínar til Sjón-
varpsins og hvet þá til að halda áfram
á þeirri braut að sýna meira af þess-
um gömlu, góðu myndum. T.d. væri
gaman að fá að sjá myndir með Fred
Astaire og Ginger Rogers í aðalhlut-
verkunum. Því myndu örugglega
margir fagna.
Eðlileg samkeppni
E.E. hringdi:
Ingi Bjöm Albertsson talar um
stóm Framsóknarflokkana tvo og á
þar við þann gamla og væntanlega
Sjálfstæðisflokkinn líka, sem allir
þekkja. Ég get tekið undir þessa skýr-
ingu hans eftir framlag flokksins til
landbúnaðarmála og fleiri mála-
Aöeins'39,90 mínútan
- eða hringið f síma
k ^ 5632700
v^mUÍi kl. 14 og 16
Kolkrabbinn er þjóðinni ekki til
heilla, að mati hringjanda.
flokka er snúa aö þjóðinni.
Á þessu kjörtímabili ræðst hvort
hér fái eðlileg samkeppni að ráða.
Aðeins er farið að örla á samkeppni
erlendis frá og ferskir vindar blása
um kinnar. Stóra einokunarfélögin
era farin að setja sig í stellingnar til
aö takast á við heilbrigða sam-
keppni. Því víst eru að myndast
sprangur í múrinn. Kannski fer þjóð-
in aö átta sig á því að enginn hagur
er lengur í óskapnaði þeim er kallað-
ur hefur verið Kolkrabbinn meðal
landsmanna. Að sjálfsögöu mun fóð-
ur hans rýrna að miklum mun við
samkeppnina þó hann drepist ekki
alveg.
Á þessu kjörtímabili ræðst hvort
þjóðin heldur eignarrétti á þjóðararf-
inum, fiskimiðunum, eöa hvort fáum
einstaklingum verði færð þessi eign
á silfurfati og er þaö hin mesta hroll-
vekja að hugsa um. Þarna yrði þjóð-
inni keyrt aftur á svipaö plan og ban-
analýöveldin hafa þurft að búa við.
Sem sagt skömmtunarkerfi örfárra
íjölskyldna.
Skemmtileg
tilbreytibg
Helga hringdi:
Ég er sammála þvi að nætur-
sundið sé skemmtileg tilbreyting
frá því að hanga niðri í bæ. En
mér fmnst aö það ætti að lækka
aldurstakmarkiö niður í 14 ára.
Það myndi halda krökkum undir
16 ára aldri frá miðbænum um
helgar.
Músíkin
miidarsiðina
GG skrifar:
Það er mikið ánægjuefhi aö nú
skuli boðiö upp á útvarpsrásir
sem flytja eingöngu sígilda tón-
list.
Enn skemmtilegra hefði þó ver-
ið ef viökomandi stöðvar hefðu
leitað til kunnáttumanna til að
kynna tónlistina. Þar dettur mér
fyrst í hug Jóhannes Jónasson
lögreglumaður en hann er nánast
óþijótandi viskubrunnur, bæði
um tónlistina og flytjendur. Nú-
verandi kynnar virðast hins veg-
ar eiga í erfiðleikum með að hafa
rétt eftir upplýsingar af diska-
hulstram og þekking þeirra á
tónlist er bundin við „Greatest
Hits“ tónskáldanna.
Því legg ég til að Jóhannes verði
kaflaður til liðs við þá. Þótt skarð
verði fyrir skildi í lögreglunni,
kann hins vegar að draga úr
glæpatíöni með hann í útvarpinu
því eins og skáldið sagði: „Músik-
in mildar siðina".
Glæsilegir
fulltrúar
Kjósandi skrifar:
Þótt deila megi endalaust um
úrslit nýafstaðinna alþingiskosn-
inga held ég að flestir geti verið
ánægðir með þann hóp fólks sem
nú tekur sæti á Alþingi í fyrsta
skipti. Þetta fólk er sannarlega
glæsilegir fulltrúar þjóðarinnar.
Endurnýjunar var þörf á þing-
liðinu og ég get ekki annaö sagt
en vel hafl til tekist í þeim efnum.
Og skiptir þá engu hvaða stjórn-
málaflokkar eiga í hlut. Fram-
sóknarmenn era með nýja konu
á Reykjanesi, sjálfstæðísmenn á
Austíjörðum og Alþýðubandalag-
ið í Reykjavík. Kratar eru með
komungan mann á Suðurlandi
og með Þjóðvaka koma ný andlit
ásamt Jóhönnu. Ekki má heldur
gleyma hinum vösku kvennalis-
takonum.
Það er alveg sama hvert stjórn-
armynstrið er. Það er full ástæöa
til bjartsýni með dugmikið fólk í
öllum stjórnmálaflokkum.
Hert eftirlit
Guðjón Sigurðsson skrifar:
Atburðirnir óhugnanlegu í
Bandarikjunum hljóta að vekja
upp þá spumingu hvemig örygg-
ismálum alls staðar sé háttaö.
Hryðjuyerk geta gerst alls staðar,
líka á íslandi og þess vegna er
nauðsynlegt að skoöa þau mál
ofan í kjölinn. Hér er t.d. banda-
rísk herstöð og hún hlýtur að
vera hugsanlegt skotmark
hermdarverkamanna. Þaö þýðir
jafnframt aö þúsundir íslendinga
eru í hættu.
Atburðimir hroöalegu í Okla-
homa kalla skilyrðislaust á það
að við íslendingar íoram vel yfir
öfl okkar öryggismál. Það er eng-
inn lengur óhultur í þessari ver-
öld.
Vantar
hugmyndaflug
Jóna hringdi:
Það er ánægjulegt hversu unga
fólkið er duglegt að setja upp leik-
sýningar á sumrin. Eini gallinn
er sá að þetta eru flest „gömul“
stykki. Það er eins og vanti aðeins
meira hugmyndaflug hjá þessum
ungmennum. Framtak þeirra er
samt mjög gott.