Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 13 Fréttir Er túníiskur í túnfæti íslenskrar lögsögu? Utlendingar hafa rutt braut- ina við veiðar á íslandsmiðum - Norðmenn, Rússar og Þjóðverjar duglegastir Útlendingar hafa veriö duglegir viö að ryöja brautina fyrir íslendinga þegar um er að ræða veiöar á hinum ýmsu fisktegundum í kringum land- iö. Frumherjarnir við veiöar á mörg- um þeirra flskistofna sem í dag eru mjög mikilvægir fyrir íslenskt þjóö- arbú koma frá mörgum þjóðlöndum. Fremstir veröa aö teljast Norðmenn þá koma Rússar, Þjóðverjar, Frakk- ar, Belgar og Búlgarar. Nýlegasta dæmiö er úthafskarfinn sem íslendingar báru reyndar gæfu til að finna. Dr. Jakob Magnússon Fréttaljós Reynir Traustason fiskifræðingur fann þann stofn árið 1972 í leiðangri á Bjarna Sæmunds- syni RE. Þeir veiddu smávegis af þessum fiski sem í dag gefur millj- arða í þjóðartekjur en aflinn féll í grýttan jarðveg þegar heim kom. Töluðu um „kýlakarfa" „Menn fussuðu og sveiuðu þegar þetta kom á land og kölluðu þetta kýlakarfa," segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafró. íslenskar útgerðir sinntu þessum veiðum ekki næstu árin og 1977 gaf dr. Jakob út skýrslu um rannsóknir sínar til Alþjóða haf- rannsóknaráðsins. Strax árið eftir hófu Rússar tilraunaveiðar á úthafs- karfanum og fjórum árum síðar voru þetta orðnar stórveiðar. Það tók ís- lendinga 17 ár að taka við sér en 1989 hófust veiðar íslenskra skipa á út- hafskarfa. Nú eru Rússar nánast horfnir frá þessum veiðum og íslend- ingar orðnir stærstir. Síld ekki mannamatur Norðmenn hófu fyrstir síldveiðar við ísland 1868 þegar veiðar á sOd brugðust viö Noreg. Jakoh Jakobs- son segir að Norðmennirnir hafi byijað með landnót á Eyjafirði og á Síld: Norömenn áriö 1868 Human Belgar og fleiri áriö 1951 Blálanga: Þjóöverjar um 1940 Úthafskarfi: Rússar um 1978 Karfi: Vestur-Þjóöverjar áriö 1930 Grálúða: Austur-Þjóöverjar gpi n ■i Brautryðjendastarf útlendinga á íslandsmiðum - nokkrar tegundir uppgötvaöar af öörum en íslendingum - og Rússar árin 1962-1974 Hvalur: Norömenn áriö 1883 PVJ Austfjörðum. Upp úr aldamótum byijuðu síðan íslendingar síldveiðar. Síld var ekki talin mannamatur á íslandi og eru til sagnir af því að kröfur hafi verið settar um að henni væri ekki beitt fyrir annan fisk vegna hættu á eitrunaráhrifum á nytja- fiska. Þama var sama uppi á ten- ingnum og með úthafskarfann. Menn lærðu síðar að meta síldina sem í stað þess að vera kölluð skít- fiskur var nefnd silfur hafsins. Norðmenn kenndu íslendingum að veiða fleira en síld; árið 1883 settu þeir upp hvalverksmiðju á Langeyri viö Álftaflörð skammt innan við Súðavík. Norðmenn sáu um hval- veiðar hér við land allt til 1935 þegar fyrsta hvalstööin í meirihlutaeign íslendinga reis við Tálknafjörð. Grálúðu hent Austur-Þjóðveijar og Rússar voru fyrstir til að hefja nýtingu á grálúðu- stofninum á árunum eftir 1960. Þess- ar þjóðir beittu stórum flota til veiða á veiðislóð sem seinna kallaðist Hampiðjutorg. Veiðarnar gengu vel en þeir íslendingar sem slysuðust til veiða þarna hentu í mörgum tilvik- um grálúðunni í sjóinn aftur af þeirri einfoldu ástæðu að hún var ekki selj- anleg þegar í land kom. Veiðum út- lendinganna á þessum slóðum lauk við útfærslu landhelginnar í 200 sjómilur árið 1974. Áriö 1969 hófu íslendingar að veiða grálúðu með línu við Kolbeinsey og upp úr 1980 byijuðu togarar að veiða grálúðu á Hampiðjutorginu. í dag er þetta einn verðmætasti nytjafiskur íslendinga. Þjóðverjar byijuðu veiðar á karfa Góðir raftar sem rekur á Ströndum Gísli Hjartarson, DV, ísafirði: „Það hefur rekiö þó nokkuð í vet- ur. Það byrjaði upp úr áramótum og það hafa verið góðar spýtur sem hafa verið að koma. Undanfarin ár hefur þetta verið frekar svona draslviður sem hefur verið aö koma en nú eru óvenju góðir raftar sem rekur,“ sagði Torfi Halldórsson, bóndi á Brodda- dalsá á Ströndum, í samtali við DV. „Menn hafa fram að þessu að mestu sagað viðinn í girðingarstaura en maður veit ekki hvað verður þeg- ar Pétur í Ófeigsfirði fer að ferðast um sveitir með stórviðarsögina og saga fyrir bændur. Sumir eru að tala um að láta hann saga fyrir sig í planka og borð. Það er samdráttur í landbúnaði og það hefur þau áhrif að mjög lítil sala er í girðingarstaur- um núna og verið mjög erfitt að selja þá,“ sagði Torfi, bóndi á Brodda- dalsá. til manneldis um 1930. íslendingar veiddu hann aftur á móti í bræðslu frá 1935. Það var ekki fyrr en á árun- um eftir 1950 að frysting á karfa til manneldis hófst hérlendis. Karfinn var fiuttur á Rússlandsmarkað en þess ber að geta aö togarar sem sigldu með afla sinn veiddu karfa í nokkrum mæli. Samhliða karfaveiðum veiddu Þjóðverjar blálöngu hér við land. Blálönguveiðar íslendinga hófust ekki að gagni fyrr en um 1980 þegar blálöngumið fundust suður af Vest- mannaeyjum. Þess má geta að Frakkar lögðu hönd á plóg viö kort- lagningu blálöngumiðanna þegar franskir togarar fundu Franshól sem er á 200 sjómílna mörkunum suður af landinu. Belgar og fleiri voru fyrstir til að nýta humar. Humarinn kom reyndar sem meðafli með fiski en var nýttur. íslendingar hófu humarveiðar 1958. Þetta er ekki tæmandi úttekt á frumheijastarfi útlendinga á ís- landsmiðum. Norðmenn komu t.d. við sögu rækjuveiða íslendinga og fleira má tína til. Spurningin er hvort þessum kafla í sögu fiskveiða hér við land sé lokið. Japönsk útgerö, sem vildi vísa veginn til veiða á túnfiski, fékk ekki leyfi til veiöa á honum og mörgum þótti þessi umsókn Japan- anna beinlínis hlægileg. Nú reynir á það hvort íslendingar sjálfir kanna hvort túnfiskur sé í túnfæti íslenskr- ar lögsögu. Það skyldi þó aldrei vera. Nýtt Stjömukort S jálfsþekking hjálpar þér að ná árangri í samskiptum og starfi. Nýja stjömukoitið er vinnubók og persónulýsing. Gunnlaugur Guðmundsson Stjömuspekistöðin Laugavegur 59, sími 10377 HÚS & GARÐAR /////////////////////////////// 12 síðna aukablað um hús og garða fylgir DV á morgun. Meðal efnis: * Klippingar * Gróðursetning * Áburðargjöf * Geitungar * Matjurtagarðurinn * Umhirða og skipting fjölærra plantna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.