Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRlL 1995 fþróttir Fimmhvfldu Víðir Sigurðsson, DV, Danmörku: Fimm leikmenn hvíldu í Svía- leiknum í gær, þeir Guðmundur Hrafnkelsson, Einar Gunnar Sig- urðsson, Gunnar Beinteinsson, Bjarki Sigurðsson og Róbert Sig- hvatsson. Þeir Sigurður Sveins- son og Gústaf Bjarnason voru í hópnum en spiluðu lítið og Berg- sveinn Bergsveinsson kom aldrei inn á. Sigurðursparaður Þorberg- ur lét Sig- urð spila lítið til að hafa hann í góðu formi gegn Dön- um í kvöld. „Sigurður spilar yfir- leitt vel á móti Dönum,“ sagði landsliðsþj álfarinn. Leikiðá Falstri Leikur íslands og Danmerkur fer fram klukkan 17.45 að íslensk- um tíma í dag, í bænum Nyköping á eynni Falstri, en þangað er hátt í tveggja tíma akstur frá Ishöj í útjaðri Kaupmannahafnar, þar sem íslenska liðið dvelur. Margir íslendingar Allmargir íslendingar voru á meðal áhorfenda á leiknum við Svía í Helsingör í gær, sennilega nokkrir tugir. Flestir þeirra eru búsettir í Danmörku, en nokkrir komu frá Svíþjóð, enda stutt yfir sundið með ferju frá Helsingborg. Hins vegar virtust fáir Svíar hafa haft áhuga á aö fylgja sínum mönnum þá stuttu leiö. Bogdanerhættur Menn áttu von á því að sjá Bogdan Kow- alczyck, fyrrum landsliðs: þjálfara ís- lands, við stjórnvölinn hjá Pólverjum á mótinu. í ljós kom aö hann hætti í haust og tók viö þjálfun félags- liðsins Slask, en Jacek Zglinicki er tekinn við pólska landsliðinu og teflir fram mörgum ungum leikmönnum á mótinu. Stórsigur Dana Danir unnu stórsigur á Pólverj- um, 34-23, í síðari leik mótsins í gær. Pólverjar komust þó í 3-0 og jafnt var framan af, en síðan stungu Danir af, og voru 15-10 yfir í hálfleik. Kim Keller Christ- ensen var markahæstur Dana með níu mörk. Þrjásterka vantaði Þrír sterkir leikmenn frá GOG léku ekki með gegn Pólverjum í gærkvöldi. Það eru þeir Nikolaj Jakobsen, Klaus Jacob Jensen og René Boeriths sem allir voru að leika með liði sínu í úrslitum Evrópukeppninnar um helgina en reiknað er með að þeir allir leiki með gegn íslendingum i kvöld. Slökdómgæsla Dómgæslan í leik íslendinga og Svía var ekki upp á marga fiska og ótrúlegt að þama skyldu vera alþjóðlegir dómarar á ferð. Þeir dæmdu leik í úrslitakeppni kvenna í Danmörku daginn áður og fengu líka afar slaka dóma fyrir hann. Frjálsariþrottir: Guðrún náði lágmarki - fyrir HM í 100 m grindahlaupi íslenskt frjálsíþróttafólk stóð sig með ágætum á móti Tusca í Banda- ríkjunum um síðustu helgi. Hæst bar árangur Guðrúnar Arnardóttur í 100 metra grindahlaupi þar sem hún náði lágmarki fyrir heimsmeistara- mótið í Gautaborg í sumar. Guðrún hljóp á tímanum 13,40 sekúndum. Hún tók einnig þátt í 400 metra grindahlaupi og hljóp á 58,33 sekúnd- um sem er hennar besti tími á þess- ari vegalengd. Af öðrum árangri íslendinganna stökk Þórdís Gísladóttir 1,83 metra í hástökki og hljóp 100 metra hlaup á 13 sekúndum sléttum. Fnða Run Þórðardóttir hljóp 3000 metra hlaup á 9:49,62 mínútum. Vésteinn Haf- steinsson kastaði kringlu 59,08 metra og Pétur Guðmundsson, sem kunn- ari er fyrir afrek sín með kúluna, kastaði kringlunni 50,58 metra. Guðrún, Þórdís, Fríða Rún og Vé- steinn sigruðu öll i sínum greinum. Sigurður Einarsson, Einar Vil- hjálmsson og Jón Arnar Magnússon dvelja allir einnig í Bandaríkjunum við æfingar um þessar mundir en kepptu ekki á þessu móti Tusca. Jóhann Ingi aöstoöar landshðiö: Fyrirliðinn mjög ánægður Víöir Sigurösson, DV, Helsingör: Jóhann Ingi Gunnarsson er Þor- bergi Aðalsteinssyni landsliðsþjálf- ara til aðstoðar á Bikuben-mótinu, eins og hann verður síðan á HM. Jóhann Ingi ræddi við íslensku leik- mennina fyrir Svíaleikinn í gær, eftir að Þorbergur hafði lagt línurnar. Geir Sveinsson, fyrirliði íslands, lýsti yfir ánægju með þetta fyrir- komulag: „Hann sér þetta kannski frá öðru homi en þjálfaramir og við, því við erum kannski orðnir nokkuð nánir. Hann bendir okkur á punkta sem hann sér utan frá sem betur mættu fara. Það er kannski ekki komin mikil reynsla á þetta en mér líst mjög vel á þaö sem hann er að gera, og það hefur verið mjög já- kvætt,“ sagði Geir Sveinsson. HM 12 dagar til stefnu Austurríkismenn koma Síðasta verkefni íslenska landsliðsins fym HM eru tveir landsleikir gegn Austurríkis- mönnum. Sá fyrri fer fram í Kaplakrika á föstudagskvöldið og sá síðari i Laugardalshöll klukk- an 16 á laugardaginn. Guðmundur E. Stephensen og Eva Jóstein í borðtennis. Boröt Sá fyrsti í HöBlinni Þetta verður fyrsti leikurinn í Höllinni eftir endurbætur og verður fróðlegt að sjá hvernig strákunum okkar kemur til með að ganga á nýja gólfinu. Fríttáleikinn Mókollur, sem er lukkudýr keppninnar, hefur ákveðið að bjóða frítt á leikinn og leggur framkvæmdanefnd HM og HSÍ mikla áherslu að góð mæting verði á leikinn því þetta er gott tækifæri til að máta Höllina. Guðmuni Guðmundur E. Stephensen, Víkingi, ís- landsmeistari í borðtennis, sannaði enn einu sinni að hann er besti borðtennisleik- ari landsins. Guðmundur sigraði á tveim- ur mótum um helgina. Það fyrra var topp 12 mótið þar sem tólf bestu borðtennisspil- arar landsins kepptu. Til úrslita léku Guö- mundur og Kjartan Briem, KR, og sigraði Guðmundur, 21-16 og 26-24. í þriðja sæti varð Ingólfur Ingólfsson, Víkingi. í stóra borðtennismóti Víkings léku Guðmundur og Kjartan öðru sinni til úrslita og aftur hafði Guðmundur betur og sigraði í tveim- Bikuben-mótið Svíþjóð - ísland (12-7) 25-19 2-0,2-3,7^4,8-6,12-6, (12-7) 12-8,15-8,15-11,16-13,18-14,21-17,21-19,25-19. Mörk Svíþjóðar: Staffan Olsson 4, Per Carlén 4, Magnus Andersson 4, Johan Pettersson 4, Pierre Thorsson 3, Ola Lindgren 3, Magnus Wislander 1, Erik Hajas 1, Robert Hedin 1. Varin skot: Peter Gentzel 15/2. Mörk íslands: Ólafur Stefánsson 5/2, Valdimar Grímsson 4, Geir Sveinsson 3, Patrekur Jóhannesson 2, Júlíus Jónasson 2, Konráð Olavsson 2, Dagur Sigurðsson 1. Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 9. Brottvísanir: Svíþjóð 12 mín., ísland 10 mín. Dómarar: Finn Ósterballe og Charles R. Pedersen, Danmörku. Afar slakir en það bitnaði svipað á báðum. Áhorfendur: Um 700. Maður leiksins: Peter Gentzel, Svíþjóð. SagteftirleiMnn: Fyiri hálfleikurinn var algjör hörmung Víðir Sigurðason, DV, Helsingör: um við að hafa 15 varín skot en við vorum alltaf að vinna upp muninn „Viðhefðumgetaðveriðsáttirvið og maður er ragur við að skipta að vinna seinni hálíleikinn og það um markvörð á meðan. Markvarsl- var óþarfi að tapa honum með eins an hjá Gentzel réð úrslitum. Hann marks mun. Fyrri hálfleikurinn er besti markvörður Svía í dag, að var algjör hörmung, sóknamýting- Svensson undanskildum. in hreinn skandali og það verður Það sem er jákvætt í þessu er að að segjast eins og er að Svíar voru núna vorum við aö skapa færin, langt frá því að vera að spila ein- fengum mikið af þeim, og þá er ein hvem gæðahandbolta. Það er íangt þraut eftir, að nýta þau,“ sagði Þor- síðan ég hef séð þá svona slaka og bergur. það var sorglegt að nýta það ekki,“ sagöi Geir Sveinsson, fyrirliði ís- Per Carlén lenska landsliðsins, við DV eftir „Ég er ekki ánægður með leikinn, ósigurínn í gær. við þurfum að spila hraðar og bæta við okkur 25-30 prósentum fyrir Þorbergur Aðalsteínsson heimsmeistarakeppnina á íslandi „Víð komumst aldrei inn í leikinn en ég er viss um að við getum það. í fyrri hálfleik, sóknarlega, en í Annars er þetta Utill undirbúning- seinni hálfleik var boltinn farinn ur hjá okkur fyrir þessa keppni, að ganga betur. Fyrir leikinn lögð- það hefur ekki verið tími fyrir hann um við fyrst og fremst upp með að en viö fórum héðan til Frakklands sýna þolínmæði en án hennar nálg- og spilum við heimamenn og Spán- umst við ekki svona lið. Hún brást, verja og eitt liö enn, og það verður en um leið og við förum að læra á að duga,“ sagði Per Carlén, línu- hana kerour þetta. Við ætlum okk- maðurinn öflugi. ur að vera í hópi liða á borð viö Carlén er orðinn 34 ára og nálg- Svía, ekki með öðram," sagði Þor- ast 300 landsleiki og 1000 mörk fyr- bergur Aðalsteinsson landsliðs- ir Svíþjóö. Hann hefur átt við þjálfari. meiðsl í hásin að stríða í vetur og „Svíarnir höfðu líka heppnina hætta var talin á að hann myndi með sér í lokin. Þeir fengu frákast missa af HM á íslandi. þegar þeir skoruðu 22. markið og „Ég byrjaði aö æfa aftur fyrir eftir það héldum við ekki haus.“ fjórum vikum og held að ég sé bú- - Af hverju skiptir þú ekki um inn aö ná mér alveg, vona það alla- markvörð í seinni hálfleík þegar vega, og ætti aö geta veriö meö á Sigmar fann sig ekki? íslandi. Maður getur þó aldreí ver- „Þaö er Ijóst að í svona leik þurf- ið viss,“ sagði Per Carlén. Sóknarleik - og Svíar, sem léku sinn slakasta leik gegn Víðir Sigurðsson, DV, Helsingör: Gegn Svíum er engan veginn nóg að spila vel í 20 mínútur. Svíar léku senni- lega slakasta leik sinn gegn íslending- um í mörg ár þegar þjóðirnar hófu Bikuben-mótið í gær en samt unnu þeir tiltölulega öruggan sigur, 25-19. Sá sig- ur var hins vegar óþarflega stór því ís- lenska liðið var búið að minnka muninn í 21-19, en Svíar rööuðu inn mörkum í lokin. Það var seinni hluti fyrri hálfleiks sem geröi útslagið. ísland var yfir, 4-3, eftir afspyrnuslakan stundarfiórðung af beggja hálfu, en Svíar breyttu stöð- unni í 12-6 og voru komnir í 15-8 í seinni hálfleiknum. Þá tók íslenska liðið við sér, kom vel út á móti Svíunum í vörn- inni og vann boltann þannig hvað eftir annað. Munurinn fór niður í tvö mörk þegar 4 mínútur voru eftir og allt virt- ist geta gerst, en Svíar fengu 22. markið ódýrt og það réð úrslitum. í fyrri hálfleik var það sóknarleikur- inn sem brást algerlega hjá íslenska lið- inu og nýtingin þá var aðeins 25 pró- sent. Ekki eitt einasta mark var skorað með langskoti og það var varla að slík skot kæmust í gegnum sænsku vörn- ina. Einnig var léleg nýting á opnum færum, sérstaklega úr hornunum. Geir Sveinsson var besti maður íslenska liðsins ásamt Ólafi Stefánssyni gegn Svi í höggi við sænsku landsliðsmennina Ola Lindgren, Robert Hedin og Magnus V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.