Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1995, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1995 Ný rikisstjórn og nýir þingmenn setja svip á þingstörf næsta haust. Enginn senuskrekkur „Ég man ekki eftir að ég hafi verið með neinn fiðring né senu- skrekk þegar ég kom fyrst á þing. Það er alveg sama nú.“ Páll Pétursson i DV. Trakteringar „Við erum að sjálfsögðu hund- óánægðir... Menn eru ekki vanir þessum trakteringum hér í Reykjanesi." Kristján Pálsson I DV. Ekki notið hand- leiðslu kvenna „Þeir hafa greinilega ekki notið handleiðslu kvenna." Kristin Halldórsdóttir i DV. Ummæli Nægjusamur flokkur „Framsóknarflokkurinn lætur sér bara nægja að taka við gömlu krataráðuneytunum." Ólatur Ragnar Grimsson i DV. Verður þetta nokkuð langt viðtal? „Verður þetta nokkuð mjög langt viðtal? Ég er nefnilega mjög þreyttur." Birkir Sveinsson, 7 ára, i DV. Mest gaman að vinna „Mér ílnnst eiginlega mest gam- an að vinna.“ Johann Jónsson, 9 ára, í DV. Robert Mitchum hefur tvisvar verið dæmdur til fangelsisvistar. Frægtfólk í fangelsi Það þarf ekki alltaf að vera mannskemmandi til frambúðar að lenda í fangelsi. Margt frægt fólk hefur setið inni fyrir mis- munandi sakir og haldið reisn sinni eftir það. Hér eru nokkur dæmi: Chuck Berry sat í fangelsi í tvö ár fyrir að reyna að smygla fjórt- án ára stúlku milli fylkja í Banda- Blessuð veröldin ríkjunum. Þótti sannað að hún var ástkona hans. James Brown hefur setið þrisv- ar í fangelsi. Fimmtán ára var hann dæmdur í átta ára fangelsi fyrir þjófnað, sat inni í þrjú ár. 1978 var hann nokkra daga í fang- elsi vegna rannsóknar á útvarps- stöð sem hann átti og tíu árum síðar sat hann inni í tvö og hálft ár fyrir að vera með ólögleg skot- vopn og veijast handtöku lögregl- unnar. Stacy Keach sat í sex mánuði í fangelsi í Englandi eftir að hafa verið handtekinn með nokkurt magn af kókaíni á Heathrow- flugvelli árið 1985. Robert Mitchum hefur tvisvar setið í fangelsi. Fyrst sem ungl- ingur fyrir smáglæpi og síöar árið 1949, þá frægur leikari, fyrir að hafa undir höndum marijuana. Bjart sunnanlands Áfram verður fremur hæg breytileg eða norðlæg átt á landinu. Um landið norðan- og norðaustanvert verður Veðrið í dag skýjað að mestu og lítils háttar slyddu- eða snjóél á stöku stað, eink- um þó úti við sjóinn, en reikna má með björtu veðri um nær allt sunn- anvert landið. Svalt verður áfram um landið norðan- og norðaustan- vert, en sæmilega hlýtt að deginum syðra. Á höfuðborgarsvæðinu verð- ur norðaustan eða breytileg átt, lengst af gola og léttskýjað. Hiti 5-8 stig i dag en 0 til 3 stig í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 21.31 Sólarupprás á morgun: 5.19 Siðdegisflóð í Reykjavík: 15.56 Árdegisflóð á morgun: 4.19 Heimild: Almanak Hnskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri slydduél 0 Akumes alskýjað 2 Bergsstaðir alskýjað -1 Bolungarvík úrkoma 0 Kefla vikurflugvöllur þokuruðn. 1 Kirkjubæjarklaustur alskýjað 3 Raufarhöfn skýjað -1 Reykjavík þokuruðn. 0 Stórhöfði skýjað 4 Bergen skýjað 8 Helsinki skýjaö 7 Kaupmannahöfn skýjað 10 Ósló skúr 10 Stokkhólmur léttskýjað 6 Þórshöfn skýjað 4 Amsterdam léttskýjað 13 Barcelona alskýjað 10 Chicago alskýjað 7 Feneyjar rigning 12 Glasgow mistur 7 London mistur 9 Lúxemborg skýjað 15 Madrid léttskýjað 0 MaUorca léttskýjað 11 Montreal heiðskírt 3 New York léttskýjað 11 Nuuk skýjað 1 Orlando alskýjað 20 París þrumuveð- 9 Róm ur þrumuveö- 12 Valencia ur léttskýjað 11 Vín rigning 12 Hjálmar Árnason, skólameistari og þingmaður: Ægir Már Kárasan, DV, Sudumesjum: „Ég mun sækja um fjögurra ára leyfi frá skólanum og sjá hvernig mér líkar þingmannsstarfíð. Það verður erfitt fyrir mig að yfirgefa skólann en þar er ég búinn að starfa lengi og liöið mjög vel. Þetta er eins og að kveðja gamlan ást- Maðurdagsins vin,“ segir Hjálmar Árnason, nýr þingmaður framsóknarmanna á Reykjanesi og skólameistari Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Hjálmar sagði að á sínum tíma þegar hann tók við starfi skóla- meistara heföi hann sagt að það væri eðlilegt að vera i þessu starfi í tíu ár ogbreyta siðan til. Þessi tiu ár eru brátt liðin og Hjálmar kom- inn i nýtt starf, Hjálmar segist kunna ákaflega vel við þá fram- Hjólmar Árnason. sóknarmenn sem hann sé að vinna meö þessa dagana: „Þetta er skemmtilegur hópur og ánægjulegt að sjá hvað þarna er samankomið hresst fólk, hópur sem hefur góðan húmor.“ Þegar spurst er fyrir um áhuga- málin hjá Hjálmari svarar hann því fijótt: „Eg hef verið það lánsamur að siðustu fimmtán árin hafa starf mitt og áhugamál farið saman: Skólamál snerta alla þætti mann- lífsins. Ég verð þó að gera eina játn- ingu. Þegar laxveiðitímabilið fer að nálgast fer ólga um mig allan. En á næstunni stefni ég á að eyða meiri tíma með {jölskyldunni en ég hef gert undanfarið." Hjálmar hefur ekki aðeins fengið nýtt starf heldur varð hann einnig afi um páskana þegar sonur hans eignaðist dóttur: „Vinir mínir segja í gamni að það sé skrýtið að þessi ungi maður sé orðinn afi og er ég alveg saramála þeim um að ég sé ungur." Eiginkona Hjálmars er Valgerður Guömundsdóttir sem gegnir forstöðu 1 skólaselinu i Keflavík og eiga þau tvö böm sam- an, en Hjálmar á tvö böm frá fyrri sambúð og Valgerður eina dóttir. Myndgátan Ódýr í rekstri 13 V Fótbolti og handbolti Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu verður framhaldið í kvöld, en loks er komið bærilegt veður til aö leika fótbolta og má því búast við að áhorfendur fari iljótt að láta sjá sig á vellinum. i kvöld eru þaö Fram og Víkingur sem leika á gervigrasinu i Laug- ardal og hefst leikurinn kl. 20.00. íþróttir Eins og flestir vita er íslenska landsliðið í handbolta í Dan- mörku um þessar mundir þar sem þaö tekur þátt í sterku móti, sem er eins konar lokaáfangi æf- ingatímabilsins fyrir HM-keppn- ina sem hefst í næsta mánuði. i gær léku okkar menn viö Svía en í dag kl. 17.45 er leikið gegn Dön- um og er ekki að efa að þar verð- ur hart barist eins og ávallt þegar þessar þjóðir mætast. Síðari hálf- leiknum er lýst á rás 2. Skák Grípum aftur niður í tafl Kasparovs við Vaganjan, á minningarmótinu um Mik- hail Tal í Riga, sem við sáum brot úr í DV í gær. Eyjólfur Ármannsson skáká- hugamaður benti á að Vaganjan (hvítt) hefði misst af gullnu tækifæri í þessari stöðu: Skákin tefldist29. Rxg2?? Hxfl+ 30. Kxfl Dcl+ 31. Kf2 Bxd7 32. Dxd7 Hg8 og Kasparov vann létt. Rétt er frá stöðumyndinni 29. HxfB! Hxel+ 30. Hfr (fráskák!) Kg8 31. Hxel Bxd7 32. Dxd7 og hvítur á sigurstrang- lega stöðu. Vaganjan var hins vegar alveg aö falla á tima og hefur treyst því að útreikning- ar heimsmeistarans væru réttir. Jón L. Árnason Bridge Edgar Kaplan, einn þekktasti spilari Bandaríkjanna, á spil dagsins að þessu sinni. Kaplan hefur verið rúma fjóra ára- tugi í fremstu röð en hann var sagnhafi í þessu spih sem kom fyrir snemma á ferlinum. Hann varð sagnhafl í fjórum spöðum sem nánast enginn möguleiki virtist á aö vinna. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og NS á hættu: ♦ KDG64 V 7642 ♦ 9 + D85 ♦ 8 ¥ Á853 ♦ Á1087 + K1064 * 95 V G109 ♦ 6542 + ÁG93 ♦ Á10732 V KD ♦ KDG3 + 72 Vestur Norður Austur Suður Pass Pass Pass 1* Pass 4* p/h Vestur ákvaö að spila út trompáttunni í upphafi og greinilegt var að vömin gat alltaf tekið fjóra slagi. Kaplan fann hins vegar stórskemmtilega blekkingarspila- mennsku í öðrum slag. Hann drap fyrsta slaginn heima og spilaði tigulþristinum frá hendinni. Ef vestur hefði sett lítið spil hefði spilið að sjálfsögðu staðið en vestur hitti á að setja tiuna. Tilgangur Kaplans með þessari spilamennsku er ekki beint augljós en frá sjónarhóli vest- urs virtist sem austur ætti örugglega a.m.k. eitt háspil í tígh og með tilliti til þess virtist ekki nauðsyn á því að taka slagi á lauflitinn. Vestur ákvaö þvi að leggja niður hjartaás og spila meira hjarta og það var nóg fyrir Kaplan. Nú gat hann trompsvínað fyrir tigulás vest- urs og losnað við tvö lauf úr blindum. Ef Kaplan hefði hins vegar spUað háspifl í tigU er mun líklegra að vestur hefði séð að taka þyrfti slagi á lauflitinn. ísak örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.