Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 17
16 FÖSTUÐAGUR 28. APRÍL 1995 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995 Iþróttir _ 'O. V É 'f' Þjódíþjálfun - heilsuef ling • Það deyja u.þ.b. 300 fslend- ingar á ári úr reykingum eða 6 stykki 50 manna rútur. Reyking- ar valda hrukkum, getuleysi og tannlosi. Það er misskilningur að fólk verði sexí, grannt og smart af því að reykja, líttu bara í kring- um þig. • Til að styrkja hjartavöðva- ann þarf að reyna á hann reglu- bundið og hæfilega mikið. Nýj- ustu rannsóknir gefa til kynna aö lágmarksálagið þurfi ekki að vera nema um 50% af hámarks- hjartsláttarhraða til að hjartað þjálfist. TO að finqa hámarks- hjartsláttarhraða er þumalfing- ursreglan að draga lífaldur frá 200. • Við áreynslu, sem nemur 50-60% af hámarkspúlsi, brennir líkaminn frekar fitu en kolvetni og slíkt álag í langan tíma (60 mín.) hentar því betur til aö grennast en mikið álag í stuttan tíma. • Heppilegasta hreyfingin og sú einfaldasta er rösk ganga, skokk eða hjólreiðar, hvort sem það er á reiðhjóli eða þrekhjóli. Sund er einnig afbragðsgóð hreyfing. Öll hreyfing í daglegu lífi gerir okkur gott. Stigarnir styrkja okkur en lyftan letur. Spörum bílinn, göngum meira. • Þegar einstaklingurinn eyk- ur reglubundna hreyfingu styrk- ist oft geta hans til að bæta enn frekar eigin lífsstíl. Áhugi á aö borða hollan mat eykst og tóbaks- löngun getur minnkað. Streita minnkar og við það batna oft samskipti við sína nánustu á vinnustað. Likamsrækt er gott svefnmeðal. • Hugarfar skiptir máli. Þegar við erum neikvæð, öfundum aðra, erum þrasgjörn, segjum ósatt og beinum athyglinni ein- göngu að vandamálum missum við orku. Til að hlaöa sig orku þarf aö hugsa eins og vinnendur gera. Landshðsstrákamir okkar í handknattleik gera þaö. Þeir læra af mistökum, gefast ekki upp og halda jákvæðir áfram í átt að settu markmiöi, staðráðnir í að gera sitt besta. Hvað meö þig? • Slökun dregur úr streituein- kennum eins og höfuðverk, vöðvaspennu og svefnerfiöleik- um. Slökun, íhugun og jóga eru góðar aðferðir til að vinna gegn streitu. Kynntu þér þessar að- ferðir og geföu þér ákveðinn tíma dags til að iðka slökun. • Þið sem eruð í prófum, takiö ykkur af og til hlé frá lestrinum, farið út aö ganga eða skokka eða í sund og teygið vel á. Þaö skerp- ir athyglina. Nartið í ávexti milli mála. Þjálfun heimsmeistaranna í bridge og skák fer ekki eingöngu fram við skák- eða spilaborðið. • Á heilsugæslustöövum getur þú fengið ráð hjá fagfólki hvernig best er fyrir þig að stunda eða hefja líkamsrækt. Þar er hægt að fá ýmsar mælingar og athuganir sem skipta máli fyrir kyrrsetu- fólk sem vill hefja líkams- og heilsurækt. Heilsugæslustöðvar vinna að forvömum. Þú átt rétt á þeirri þjónustu. Gunnar Einarsson þjálfari. IÞROTTIR FVRIR RLLR Kvennalandsliöið 1 knattspymu: ísland í 4. sæli - á nýjum styrkleikalista UEFA Ingibjörg Hmriksdóttir skriíar: íslenska landsliðið í kvenna- knattspymu er í fjórða sæti sam- kvæmt nýjum styrkleikalista sem UEFA hefur gefið út. Listinn er gefinn út samkvæmt nýjum reglum sem kvennanefnd UEFA hefur sett og var samþykktur í stjórn UEFA í síðasta mánuði. Þar er keppninni skipt upp í tvo styrkleikaflokka og verður keppnin tvískipt, þar sem sterk- ari hðin leika í fjórum riölunum í fyrsta styrkleikaflokki, en liðin í 17.-34. sæti listans leika í öðrum styrkleikaflokki sem jafnframt er landfræðhega raðaður. Sigurvegarar í riðlunum í fyrsta styrkleikaflokki komast beint í fjórðungsúrslit en liðin í öðru og þriðja sæti hvers riðils leika tvo leiki milli riðla til að ákvarða hvaða fjögur lið til við- bótar leika í fjórðungsúrslitum. Neðstu lið hvers riðils leika gegn sigurvegurnum í riðlum annars styrkleikaflokks til að skera úr um hvort lið falla um flokk eða ekki. Röðunin í fyrsta styrkleika- flokki lítur þannig út: Þýskaland, Svíþjóð, Danmörk, ísland, Noreg- ur, England, Rússland, ítaha, Frakkland, Spánn, Rúmenía, Finnland, Króatía, Hohand, Portúgal og Slóvakía. Þegar hefur verið dregið í riðla í öðrum styrkleikaflokki en drátt- ur í fyrsta styrkleikaflokki fer fram í Belgíu 6. maí næstkom- andi. Noröurlandamót í badminton: Margiraf þeim bestu í heiminum - veröa með á mótinu sem haldiö veröur hér á landi um helgina Broddi Kristjánsson, besti badmintonmaður okkar í áraraðir, verður í eldlin- unni í TBR húsunum um helgina. Margir bestu badmintonleikmenn heims hafa tilkynnt komu sína á Norðurlandamótið sem verður í Reykjavík um helgina. Þetta verður i fjórða sinn sem mótið er haldið hér á landi og nú sem áður er um stórvið- burð að ræða í badmintonlífinu. Eins og áður skipa Svíar og Danir sér á fremsta bekk í þessari íþrótt og má því segja að mótið sé eitt það sterk- asta sem haldið er í Evrópu. Margir frábærir leikmenn hafa boðað komu sína á mótið. Má þar fremstan nefna Thomas Stuer Lau- ritsen frá Danmörku en hann er af mörgum talinn arftaki Mortens Frosts sem nú er þjálfari danska landsliðsins. Lauritsen hefur verið allra fremsti badmintonleikari heims undanfarin ár. Hann hefur sigrað á flestum stór- mótum heims og vann til bronsverð- launa á síöustu ólympíuleikum. í hópi Dana má einnig nefna Camilu Martin, sem er í fjórða sæti á alþjóða Grand Prix listanum. Hún fær þó lík- lega harða keppni frá „kínverska" Svíanum Lim Xiao Qing, sem nú er í þriöja sæti á heimslistanum. Lim þessi dvaldi hér á landi við þjálfun og keppni hjá TBR 1991. Besti tvenndarleiksspilari heims, Thomas Lund frá Danmörku, kemur einnig en hann hefur slegið í gegn á öllum stórmótum síðustu fjögur ár. Hann leikur með unnustu sinni, Marlene Thomsen, en þau hafa ekki tapað leik á síðustu tíu Grand Prix mótum. Norðurlandamótið verður í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykja- víkur á laugardag og sunnudag. Handboltaþjálfarar óskast Handknattleiksdeild Gróttu óskar eftir þjálfurum fyrir yngri flokka deildarinnar fyrir næsta vetur. Iþrótta- menntun eða reynsla af þjálfun æskileg. Upplýsingar veitir Gísli í s. 611133, íþróttamiðstöð- inni á skrifstofutíma, og Hafliði í s. 628853. DV Sigur með súru bragði - aðeins tveggja marka sigur á Pólverjum og ísland 13ja sæti á Bikuben Víðir Sigurðsson, DV, Danmörku: Að vera 7 mörkum yfir rúmum 20 mínútum fyrir leikslok og vinna síðan nauman sigur, 21-23, telst engan veginn nógu gott gegn Pólverjum, sem voru búnir að tapa með samtals 28 mörkum gegn Dönum og Svíum á Bikuben-mót- inu. Niðurstaða mótsins er því að ís- lenska liðið spilaði einn heilsteyptan leik, gegn Dönum, og hvað sem hver segir þá er það ekki nægilega uppör- vandi á lokasprettinum fyrir HM. Þegar staðan var 17-10 snemma í síð- ari hálfleik í Valby-höllinni í Kaup- mannahöfn í gærkvöldi benti ekkert til annars en að ísland myndi valta yfir Pólverjana eins og hin liðin gerðu. En eftir það fór hver sóknin á fætur ann- arri forgörðum, flestar vegna línu eða ruðnings, auk þess sem tvö vítaköst fóru í súginn á þessum kafla, og Pólverjar minnkuðu muninn þrívegis í eitt mark. Síðast 21-22 þegar mínúta var eftir og þeir manni fleiri, en Sigurður Sveinsson bjargaði andliti íslands, hann krækti í vítakast hálfri mínútu fyrir leikslok og úr því skoraði Valdimar Grímsson. Það var ýmislegt jákvætt viö leik ís- lenska liðsins framan af. Sérstaklega frammistaöa Gústafs Bjarnasonar sem skoraði úr fimm fyrstu skotum sínum og ætti að vera öruggur með aö spiia í vinstra horninu á HM. Valdimar var líka mjög ógnandi í hægra horninu og Dagur Sigurðsson og Sigurður Sveinsson drjúgir fyrir utan. En slaki punkturinn var skyttustaðan vinstra megin, Patrek- ur náði sér ekki á strik og hvorki Júlíus né Jón náðu að bæta um betur. Óvenju- litið fór fyrir Geir á línunni lengst af. Ólafur Stefánsson leysti Valdimar af í hægra horninu síðasta korterið en gerði lítið og Einar Gunnar lék aðeins í vörn- inni. Guömundur Hrafnkelsson var í markinu aUan leikinn en náði sér ekki vel á strik, enda fékk hann mikið af dauðafærum til að glíma við. Boltinn tapaðist allt of oft í sókninni, ekki bara í seinni hálfleiknum heldur líka á meðan ísland var vel yfir, og Pól- veijar skoruöu 10 mörk úr hraða- upphlaupum. í eðhlegri uppstillingu var íslenska vörnin ekki í teljandi erfiðleik- um og því blóðugt að fá á sig mörkin í gegnum bakdyrnar. Sem sagt, sigur, en með frekar súru bragði og enn sem fyrr er það stóra spurningin sem blasir við í lok undir- búningsins fyrir HM: Getur íslenska lið- ið skilað jöfnum og heilsteyptum leikjum þegar í alvöruna kemur þegar það geng- ur svona brösuglega fram aö henni? Danir unnu Svía Víðir Sigujðsson, DV, Danmörku: Danir gerðu sér lítið fyrir og unnu Svía á sannfærandi hátt, 31-27, í lokaleik Bikuben-mótsins í gærkvöldi. Þeir voru yfir í hálf- leik, 18-11, og þurftu einmitt að vinna með sjö marka mun til að vinna mótið. Staðan var 29-22 skömmu fyrir leikslok, en Svíar minnkuöu muninn í lokin og tryggðu sér með því efsta sætið. Danirnirgóðir Þaö var allt annað að sjá til danska liðsins en í leiknum gegn íslendingura. Það er nánast eins- dæmi aö Svíar fái á sig 18 mörk í einum hálfleik og það er ljóst aö danska liöið getur hæglega gert það gott á HM Claus Jacob Jensen skoraöi 9 mörk fyrir Ðani og Nikolaj Jacobsen 8 en Magnus Andersson skoraði 8 mörk fyrir Svia og Erik Hajas 6. Lokastaðan Lokastaðan á Bikuben-mótinu: Sviþjóð....3 2 0 1 86-67 4 Danmörk....3 2 0 1 85-72 4 ísland.....3 2 0 1 64-66 4 Pólland....3 0 0 3 61-91 0 Svenssonveikur Thomas Svensson, hinn snjalli markvörður Svía, missti alveg af Bikuben-mótinu. Hann lá veikur á hótelinu allan timann. Tværbreytingar Tvær breytingar voru gerðar á íslenska liðinu frá leiknum við Dani. Valdimar og Júlíus komu inn í staðinn fyrir Bjarka og Gunnar. Konráð, Sigmar Þröstur og Róbert hvíldu áfram og Róbert spilaði því ekkert á mótinu. Kaplakriki í kvöld íslenska liöið er væntanlegt heim nú eftir hádegið og hvíldin verður ekki mikil því það mætir Austurríki 1 landsleik í Kapla- krika í kvöld klukkan 20 og síðan aftur í Höllinni kl. 16 á morgun. Annriki hjá Valda Valdimar Grímsson á annríkt um þessar mundir. Hann er ekki bara aö bua sig undir HM með landsliöinu, heldur er hann að undirbúa opnun kaffihúss við Ráðhústorgiö á Akureyri. „Við erum mjög bjartsýnir“ Víöir Sigurösson, DV, Danmörku: „Þetta var allt í lagi fram að stöðunni 17-10 og viö vorum að skapa okkur færi allan tímann. Eftir það var dæmd þrisvar sinnum lína á Gústa, tvisvar á Valda og dæmdur þrisvar sinnum ruöningur. Síðan veröa aðrir að meta hvort það voru réttir dómar eða ekki, en þetta var aðalástæðan fyrir því að við misstum niður þetta for- skot,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson við DV eftir leikinn við Pólverja í gær. „Þetta er einu sinni þannig að það var búið aö rótbursta þetta pólska hð í hinum leikjunum og það er alltaf erfitt að „mótí- vera“ sig við slíkar aðstæður til að keyra þetta á fullu. „Ég held samt að það þurfi ekki aö kryfja þennan leik mikið til mergjar, þetta er ekkert sem truflar okkur. I mótinu hafa komið mikið skýrari línur í leik hðs- ins, við skorum rúm 20 mörk í leik sem á að vera nóg. Við sjáum líka að ef við viljum spila góðan handbolta þá getum við það,“ sagði Þorbergur. Það greip um sig eitthvert kæruleysi „Við náðum stöðunni 17-10 og þá leit þetta vel út, og ég er mjög sáttur við leikinn fram að því, en eftir það tóku dómararnir þetta í sínar hendur. Það greip líka um sig eitthvert kæruleysi hjá okkur, en end- anleg niðurstaða í leiknum er ahs ekki nógu góð,“ sagði Valdimar Grímsson. „Síðustu 20 minúturnar voru hroðaleg- ar, það hefur oft verið séríslenskt fyrir- bæri að sleppa síðustu sendingunni og ætla að gera hlutina bara sjálfur, og þá er okkur refsað. Við höfum verið að vinna markvisst að því að losna við þetta kæru- leysi og það hefur tekist nokkuð vel. En ég er klár á því að þetta hverfur, þegar menn koma út í alvöruna á HM. Við erum mjög sáttir við þessa ferð. Við spiluðum vel fjóra hálfleiki af sex en fyrri hálfleikurinn gegn Svíum og sá seinni í kvöld voru slakir. Á móti Austurríki um helgina ætlum við að sýna okkar bestu hliðar, það er hð sem við eigum að vinna en verður samt ekki auðunniö. Við þurf- um að klára þá leiki á einbeitingunm. Við erum mjög bjartsýnir. Leikmenn eru passlega þreyttir, við höfum farið í gegn- um erfitt prógramm en leikgleðin er samt til staðar. Nú er aðalatriðið að fá upp rétta stemningu og mér finnst hugarfar allra vera til staðar til þess. Ég hvet síðan alla íslendinga til að fylgjast meö og styðja okkur á þessari löngu leið sem fram undan er,“ sagði Valdimar Grímsson. Pólland - ísland (10-14) 21-23 0-1, 2-1, 3-2, 3-6, 5-7, 5-9, 8-11, 9-14, (10-14) 10-17, 13-17, 16-18, 19-20, 20-21, 20-22, 21-22, 21-23. Mörk Póllands: Robert Lis 5, Piotr Badowski 5/1, Marek Stopczynski 4, Roman Judycki 3, Jacek Olejnik 2, Krzysztof Wroblewski 1, Grzegorz Gowin 1. Varin skot: Arkadiusz Dudaref 3, Artur Goral 9/3. Mörk íslands: Gústaf Bjarnason 6, Sigurður Sveinsson 5/1, Valdimar Grímsson 5/1, Dagur Sigurðsson 4, Geir Sveinsson 2, Patrekur Jóhannesson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9. Brottvlsanir: Pólland 8 mín., ísland 6 mín. Dómarar: Kjeld Lövqvist og Per Elbrönd, Danmörku, dæmdu mikiö af sóknarbrot- um og Unu, sem bitnaði frekar á íslenska liðinu. Áhorfendur: Um 300 í byrjun en fjölgaði jafnt og þétt, enda Danir og Svíar að spila á eftir. Maður leiksins: Artur Goral, Póllandi. Langsk. Gegnumbr. Horn Pólland (íoi 21 ísland (14) 23 Hraöaupphl. 25 Iþróttir Islandsmót í skvassi • Grant Long, til hægri, skoraði 18 stig fyrir Atlanta í nótt gegn Indiana. Simamynd Reuter NBA-úrslitin 1 nótt: Utah vann Houston Skvassnefnd ÍSÍ og Skvassfélag Reykjavíkur halda íslandsmót í skvassi í Veggsporti, Stórhöfða 17, um helgina og hefst mótið kl. átta í kvöld. Keppendur á mótinu verða um 70 talsins og verður keppt í átta flokkum. Keppni í meistaraflokkum karla og kvenna lýkur á laugardag á milli kl. 16 og 17. Keppni í unglinga- flokkum fer fram á sunnudag og hefst kl. 11. Strákamirtöpuðu Austurríkismenn lögðu u-21 árs landslið íslendinga í vináttuleik í handknattleik í gær. Lokatölur urðu 19-25 en staðan var jöfn í hálíleik, 9-9. Davíð Ólafsson var markahæstur íslensku strák- anna með 5 mörk og Gunnleifur Gunnleifsson skoraði 3. Íslandsglíman Stórmót ghmumanna, íslands- glíman, verður haldið í Laugar- dalshöllinni á morgun og hefst klukkan 12.30. Níu ghmukappar keppa um Grettisbeltið, elsta og virðulegasta verðlaunagrip ís- lenskra íþrótta. Það stefnir í óhemjuspennandi keppni og verður fróðlegt að sjá hvort Orri Björnsson, KR, nær að verja titil- inn. ÓvæntursigurVals Valur sigraði KR, 4-1, í fyrri leik Reykjavíkurmóts kvenna í knattspyrnu í gær. Staðan í hálf- leik var 2-0. Ólöf Helgadóttir skoraði þrjú mörk fyrir Val en eitt marka þeirra var sjálfsmark KR-stúlkna. Olga Færseth, sem er nýgengin til liðs við KR frá Breiðabliki, skoraði mark KR. ÖruggursigurBlika Breiðablik sigraði Reyni S, 6-0, í Litlu bikarkeppnninni í knatt- spyrnu í Kópavogi í gær. Staðan í hálfleik var 2-0. Gunnlaugur Einarsson skoraði tvö mörk og þeir Rastislav Lazorik, Grétar Sveinsson, Júlíus Kristinsson og Guðmundur Guðmundsson sitt markið hver. HM 9 dagar til stefnu 30 erlendar stöðvar Nú hafa 30 erlendar sjónvarps- stöðvar fengiö rétt til sýninga frá HM, Síðasti samningurinn um útsendingarréttindi var undirrit- aður á milh svissneska fyrirtæk- ísins CWL Telesport og TVE, rík- issjónvarpsins á Spáni. Þar með er lokið öllum samningum í þessa veru. 40 Ijósvakafyrirtæki 10 utvarpsstöövar hafa öðlast rétt til þess að lýsa leikjum keppninnar. Samtals er hér um að ræða 40 ljósvakafyrirtæki, en upphaflega var áætlað að þau yrðu ekki fleiri en 30 þannig að áhuginn á keppninní er mun meiri hjá slíkum fyrirtækum en búist var við fyrirfram. Lýsingabúnaður í vikunni var haflst handa við að sefja upp lýsingarbúnað fyrir íþróttafréttamenn undir yfirum- sjón norsks tæknimanns sem er hér á landi gagngert í þessum til- gangi. Þessum búnaði er safnað saman á öllum Norðurlöndum og hefur Sjónvarpið gertleigusamn- inga um 40 slíkar einingar. John Stockton tryggði Utah Jazz sigur gegn meisturum Houston í nótt með körfu tveimur sekúndum fyrir leikslok en þá hófst úrslitakeppnin í NBA-deildinni. Utah vann Houston á heimavelli sínum, 102-100, þrátt fyrir 45 stig frá Hakeem Olajuwon fyrir Houston. Stockton skoraði 28 stig fyrir Utah Jazz og Karl Malone 25. • Shawn Kemp skoraði 21 stig fyr- ir Seattle sem burstaði LA Lakers 96-71. Detlef Schrempf skoraði 20 stig fyrir Seattle og Kendall Gill 17. Hjá Lakers var Nick Van Exel stigahæst- ur með 29 stig. Þetta var lægsta skor Lakers í deildinni síðan 1972. • New York Knicks burstaði Cleveland á heimavelli sinum, 103-79. Patrick Weing skoraði 21 stig fyrir Knicks, Charles Oakley 19 og Derek Harper 16. Danny Ferry var með 20 stig fyrir Cleveland. • Indiana sigraði Atlanta, 90-82. Reggie Miller var með 24 stig fyrir Indiana og Grant Long skoraði 18 stig fyrir Atlanta. Cantona verður áfram Nær öruggt er tahö að Frakkinn Eric Cantona tilkynni á blaöa- mannafundi í dag að hann verði áfram hjá Man. Utd til ársins 1999. Cantona er í banni til 30. september en þá getur þessi stór- snjalli leikmaður byijað að leika aftur. „Yrðum himinlif andi“ Inter Milan bíöur enn og vonar að Cantona semji ekki við United. Ef marka má orð Fergusons, stjóra United, í gær er öruggt að Cantona veröur áfrara á Old Traf- ford: „Við yrðum himinlifandi ef Cantona yrði áfram hjá okkur,“ sagði Ferguson. ChrísWaddle neitar Enski knattspymumaðurínn Chris Waddle ncitaði því í gær að hann væri á fórum frá Sheffi- eld Wednesday til franska 1. deildar hðsins Martigues. Waddle var á ferð á dögunum í Suður- Frakklandi og eftir þá ferð komst kjaftasaga á kreik. OpiðmóthjáKeili Fyrsta opna golfmót ársins hjá Keili 1 Hafharfirði fer fram um helgina en um er að ræöa afmæl- ismót klúbbsins. Keppt verður á laugardag og verður ræst út frá kl. 09.00. Keppnisfyrirkomulag verður 7/8 Stableford punktakeppni og skráning er í síma 653360. LíkaopíðíGrindavík Opið golfmót verður einnig á Húsatóftarvelh í Grindavík um helgina. Leikið veröur á sunnudag. Glæsileg verðlaun veröa i boöi. Skráning er í síma 92-68720 frá kl. 13.00 á fóstudag til kl. 19.00 á laugardag. Fiskimjöl og Lýsi er styrktaraðili mótsins. SlegiðáHellu Golfklúbbur Hellu byijar sitt árlega mótshald á mánudaginn, 1. mai. Þá fer fram opna vormótið á Strandarvelli. Leikinn verður 18 holu höggleikur með og án for- gjafar. Mótiö hefst kl. 08.00 og pöntunarsími rástíma er 98-78208. Almenningshlaup Almenningshlaup Námsflokka Reykjavíkur verður á laugardag kl. 11 árdegis. Hlaupið er 10 km langt, 3ja manna sveitakeppni er í öllum flokkum kvenna og karla og allir fá vegleg verðlaun. Pasta- veisla verður að hlaupi loknu en búningsaðstaða og skráning er við Miðbæjarbarnaskólann. Liverpool klúbburínn Forsvarsmenn aödáendaklúbbs Liverpool í ensku knattspyrn- unni hvetja aha sanna aðdáendur Liverpool til að mæta í Ölver kL 14 á laugardag og horfa þar á leik Liverpool og Norwich í beinni útsendingu hjá RÚV. 1. mai kaffi Framara Framarar verða meö árlegt af- mæliskaffi sitt í Safamýri þann 1. maí. Þar selja Framkonur kaffi og vöfilur gegn vægu verði frá kl, 14.00 til 17.00. Þrirsundmeimíbann Þrír austurrískir sundmenn hafa verið dæmdir í tveggja ára keppnisbann. Þremenningarnir neituðu að gangast undir lyfiapróf og er það fréttist til aðalstöðva sundsam- bandsins í Austurríki dæmdi þaö sundmennina samstundis í keppnisbannið. Tveir Svíar nef brotnir „Ég er auðvitað ánægður með sigurinn á Svíum en ég hefði heldur viljað vinna leikinn gegn íslendingum. Við erum með betra lið en íslendingar en höfum ekki fengið tækifæri til að sýna það,“ sagöi Ulf Schefert, þjálfari danska landsliðsins, eftir sigurinn á Svíum í gærkvöldi. Tveir sænsku leikmannanna nefbrotnuðu í leiknum, þeir Ola Lindgren og Thomas Sievertson. Litli Iþróttaskólinn Laugarvatni Stórkostlegt tækifæri fyrir 9 tii 13 ára stelpur og stráka fyrir aðeins 16,100,- krónur ATH. sérstakur vina- og systkinaafsláttur! 1. námskeið 18.-25. júní 2. námskeið 26.júní-1. júlí 3. námskeið 2.-8. júlí 4. námskeið 9.-15. júlí Upplýsingar og skráning í síma: 98-61151 fax: 98-61255

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.