Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1995, Side 4
24
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1995
íþróttir
Íslandsglíman um Grettisbeltið:
Margar skemmtilegar og jafnar
glímur sáust á mótinu sem fór mjög
vel fram. Ingibergur J. Sigurðsson
úr Ármanni og Arngeir Friðriks-
son, HSÞ, voru jafnir og þurfti
aukaglímu til að skera úr um hvor
hreppa skyldi annað sætið og hafði
Ingibergur betur.
Jóhannes sagði í samtali við DV
í mótslok að hann heföi ekkert
frekar átt von á því aö sigra á mót-
inu. Ingibergur, sem er bóndason-
ur úr Þingvallasveit, stundar nám
við búvísindadeild að Hvanneyri.
„Ég hef ekki neina sérstaka að-
stöðu til æfinga á Hvanneyri. Ég
hef reynt að halda mér í góðri lík-
amlegri þjálfun og reynt að glíma
eins og kostur er. Þetta mót var
nokkuð jafnt og að mínu mati áttu
4-5 glímumenn góða möguleika á
að sigra,“ sagði Jóhannes og bætti
við: „Ég er bjartsýnn á framhald
glímunnar og það eru að koma
fram einstaklingar sem eiga eftir
að láta að sér kveða í framtíðinni.“
Jóhannes hiaut sex vinninga á
mótinu, Ingibergur J. Sigurðsson
5,5, Arngeir Friðriksson 5,5, Orri
Bjömsson, KR, 4, Jón Birgir Vals-
son, KR, 4, Ólafur Sigurðsson, Ár-
rnanni, 2, Yngvi Ragnar Kristjáns-
son, Ármanni, 1, og Arngrímur
Jónsson, HSÞ, fékk engan vinning.
Jóhannnes Sveinbjörnsson úr HSK
vann Íslandsglímuna sem háð var
í Laugardalshöllinni á laugardag-
inn. Þetta var í þriðja sinn sem
Jóhannes vann sigur í Íslandsglím-
unni þar sem keppt var um Grettis-
beltið, elstu sigurlaun sem keppt
er um á íslandi.
• Orri Björnsson, KR, tekur hraustlega á andstæðingi sínum í Islands-
glímunni. DV-mynd Brynjar Gauti
• Júlíus Jónasson reynir hér að skora gegn Austurrikismönnum um helgina. T\
Norðurlandamótiö í badminton:
Danir sigursælir
- enginn Islendingur í undanúrslitin
Danir urðu sigursælir á Norður-
landamótinu í badminton sem
haldið var í Reykjavík um helgina.
Danir unnu til fernra gullverð-
launa en Svíar hömpuðu einu gulli
í einliðaleik kvenna. Enginn ís-
lensku keppendanna komst í und-
anúrslit en Guðrún Júlíusdóttir og
Birna Petersen komust næst því í
tvíliðaleiknum en biðu þar lægri
hlut fyrir norskum mótherjum.
Danir sýndu mikinn styrk á
þessu móti eins og reyndar var
búist við en helstu mótherjar
þeirra voru Svíar. Danir og Svíar
skipa sér á bekk meðal fremstu
badmintonþjóða í heiminum og
áhorfendur fengu því um helgina
að berja á því besta sem sést í þess-
ari íþrótt.
í einliðaleik kvenna var mjög jafn
leikur á milli þeirra Lim Xiao Zing
frá Svíþjóö og löndu hennar Christ-
ine Magnusson. Sú síöarnefnda átti
Norðurlandameistaratitil að verja
en varð að játa sig sigraða gegn
Zing í bráðskemmtilegum leik,
11-4,11-12,12-10. Þar sást á köflum
badminton eins og það gerist best
en þar sýndi Zing að hún er best í
einliðaleik kvenna í heiminum í
dag.
Thomas Stuer Lauridsen frá Dan-
mörku sigraði einliðaleik karla eft-
ir úrslitaviðureign gegn Svíanum
Jens Olsson, 15-8, og 15-4. Laurid-
sen var að keppa á sínu fyrsta
móti eftir nokkurt hlé en sýndi
góða takta enda maöur í fremstu
röð.
Guðmundur Adolfsson mætti
Lauridsen í 1. umferð og tapaði,
15-1 og 15-8. Broddi Kristjánsson
mætti Svíanum Henrik Bengtsson
í 1. umferð og beið lægri hlut, 15-8
og 15-9. í einliðaleik kvenna mætti
Birna Petersen sjálfum meistaran-
mn, Zing, og tapaði báðum hrinum,
11-0.
• Lim Xiao Zing frá Svíþjóð varð Norðurlandameistari í einliðaleik
kvenna.
DV-mynd Brynjar Gauti
Islendingar gerðu jafntefli við Austurríkis]
Jón Kristján Sigurðsson skri&r:
íslenska landsliðið í handknattleik
þreytti síðasta próíið fyrir heimsmeist-
arakeppnina, sem hefst á sunnudaginn
kemur, þegar liöið gerði jafntefli við
Austurríki, 19-19, í Laugardalshöllinni
á laugardaginn var. Þetta var fyrsti
leikurinn í endurbættri Laugardalshöll
og hafa aldrei fleiri fylgst með landsleik
á íslandi áður. Aðgangur var ókeypis
og troðfylltu .5000 áhorfendur Höllina.
Erfitt er að dæma íslenska liðið af þess-
um leik, sem var langt frá því að teljast
góður, en ljóst er að erfiður undirbún-
ingur á síðustu dögum kom greinilega
niður á leikmönnum í þessum leik.
Margir hverjir í liðinu léku langt und-
ir getu og má ganga út frá því sem vísu
að þar hafi þreyta spilað þar inn í. Það
sem skiptir öllu máli er að liðiö hrökkvi
í gang þegar stóra stundin rennur upp
á sunnudaginn kemur en þá leika Is-
lendingar sinn fyrsta leik í heimsmeist-
arakeppninni gegn Bandaríkjamönn-
um.
Undir eðlilegum kringumstæðum
hefði íslenska liðið ekki átt að vera í
neinum vandræðum með austurríska
liðiö. Samt má alls ekki gera lítið úr því
en það hefur tekið þó nokkrum framfór-
um hin síðustu ár og verður eflaust
komið í hóp þeirra bestu í framtíðinni
ef rétt veröur haldið á spilunum.
Allflestir íslensku leikmannanna
voru ekki líkir sjálfum sér í þessum
leik. Gústaf Bjarnason, sem sýnt hefur
góðar framfarir með liðinu og sýndi það
einnig vel á mótinu í Danmörku í síð-
ustu viku, lék illa og vill örugglega
gleyma leiknum sem allra fyrst. Gústaf
fór illa með hvert tækifærið af öðru
gegn markverðinum, nokkuð sem hann
gerir mjög sjaldan. í þessu dæmi hefur
þreytan sagt til sín.
Patrekur Jóhannesson sýndi nokkur
góð tilþrif, sem hann er frægur fyrir, í
fyrri hálfleiknum en var ekki eins áber-
andi í þeim síðari. Bergsveinn Berg-
sveinsson varði á köflum ágætlega en
getur samt miklu meira. Ekki kæmi á
óvart þó Ólafur Stefánsson væri orðinn
vítaskytta liðsins en hann skoraði úr
sjö slíkum í leiknum í ýmsum útgáfum.
Eitt þeirra varði þó austurríski mark-
vörðurinn.