Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 15. MAÍ1995 Fréttir Atján ára piltur í haldi eftir að hafa ekið á fyrrum stjúpföður sinn í Hafnarfirði: Reiðhjól hins látna barst 100 metra með bflnum - játar að hafa skemmt bifreið fómarlambsins daginn áður Rannsóknarlögregla ríkisins hefur í haldi 18 ára pilt sem ók á hjólandi mann á Flatahrauni í Hafnaifiröi á fóstudagskvöld. Maöurinn var flutt- ur í sjúkrahús þar sem hann lést af völdum áverka sinna. Hann hét Sig- urgeir Sigurðsson, 43 ára að aldri og lætur eftir sig konu og tvær dætur. Sigurgeir er bamsfaðir móður pilts- ins sem ók bílnum þegar slysið varö. Neitar viö yfirheyrslur Málið var í fyrstu í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglunni í Hafnar- firði en i ljósi þess að pilturinn hafði komið við sögu þar eftir að hafa unn- ið skemmdir á eignum Sigurgeirs og einnig vegna þess að hann er talinn hafa lýst því yfir í votta viðurvist að hann vildi Sigurgeir feigan var mál- inu vísað til Rannsóknarlögreglu rík- isins. Við yfirheyrslur þar hefur hann neitað að hafa ekið viljandi á Sigurgeir heldur einungis ætlað að ná tali af honum. Hann hefur þó við- urkennt að hafa skorið á tvo hjól- barða á bíl Sigurgeirs daginn fyrir slysið. Rannsókn málsins er skammt á veg komin og er enn veriö að kanna til- drög slyssins og hvort pilturinn hafi hemlað áður en hann ók á Sigurgeir. Var að koma af AA-fundi Sigurgeir var á leið af AA-fundi þegar slysið varð. Pilturinn mun hafa ekiö bílnum á nokkurri ferð á reiðhjóliö sem Sigurgeir var á með þeim afleiðingum að hann kastaðist upp á bílinn og skall í jörðina fyrir aftan hann. Reiðhjólið ýttist hins vegar á undan bilnum um 100 metra áður en hann stöðvaðist. Pilturinn var kallaður til yfir- heyrslu hjá RLR í hádeginu í gær og voru yfirheyrslur skammt á veg komnar í gærkvöld. Framburður hans þar mun stangast á viö frum- skýrslu af slysinu en þar er haft eftir honum að hann hafi ekki séð Sigur- geir og því ekið á hann. Ekki munu vera tengsl á milli þess aö Sigurgeir var á reiðhjóli og að skorið var á hjólbarða bíls hans. ítrekuð skemmdarverk Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði mun hafa haft afskipti cif samskipt- um Sigurgeirs og piltsins. Skemmdir hafa itrekað verið unnar á eigum Sigurgeirs og snemma á þessu ári Pilturinn ók bílnum á nokkurri ferð á reiðhjólið. Sigurgeir kastaðist upp á bílinn og skall i 100 metra áöur en hann stöðvaðist. viöurkenndi pilturinn, sem er í haldi hjá RLR, aö hafa kastað gosflösku inn um glugga heima hjá Sigurgeiri. Nú er hins vegar verið að rannsaka hvort rétt sé að pilturinn hafi, í votta viðurvist, sagst vilja fyrrum stjúp- fóður sinn feigan. - Móðir piltsins og Sigurgeir hafa deilt um forræði dóttur þeirra. Þau skildu skömmu fyrir fæðingu telp- unnar. Þegar hún var hálfs annars árs kærði móðirin Sigurgeir til barnavemdaryfirvalda í Hafnarfiröi fyrir að hafa misnotað telpuna kyn- ferðislega. Hann var sviptur forræð- inu en málið var aldrei rannsakað af hálfu lögreglu. Sigurgeir kærði málsmeðferðina nýlega. Að sögn kunnugra mun óvild piltsins í garð Sigurgeirs m.a. hafa stafað af hinni meintu misnotkun. -PP jörðina fyrir aftan hann. Reiðhjólið ýttist síðan á undan bílnum um DV-mynd Stuttar fréttir Pilturinn játar að hafa skorið á hjól- barða á þessum bíl. DV-mýnd ÞÖK Sigurgeir Sigurðsson lætur eftir sig konu og tvær dætur. Fjölskylda varð fyrir símaónæði vegna „Einn plús einn“: Hringt um miðja nótt - viljum láta stoppa þetta, segir Rögnvaldur Snorri Hilmarsson „Mér var brugðið og vissi ekki hvað var að gerast eða hvaðan þeir höfðu fengið nafnið og númerið fyrr en einn þeirra sagðist hafa hringt í Einn plús einn símastefnumótið og fengið upplýsingar um mig. Konan þar virtist þekkja raddir okkar því að hún skellti á ef við hringdum en þessi maður var svo almennilegur að hringja í stefnumótiö, taka rödd- ina upp á símsvara og leyfa okkur að heyra í henni. í nokkra daga á eftir var hringt í okkur, andað í sím- ann og skellt á, en sem betur fór kom aldrei neinn heim til okkar,“ segir Berglind Jóhannesdóttir. Þriggja manna fjölskylda varð fyrir símaónæði i fjórar til fimm klukku- stundir um miðja nótt í vetur þegar ókunnug kona hringdi i símastefnu- mótið Einn plús einn. Konan þóttist vera að selja blíðu sína og hélt síma- línunni opinni í sex klukkustundir. Hún lýsti Berglindi og gaf hveijum sem vildi heimilisfang hennar og símanúmer. Þegar eiginmaður Berg- lindar, Rögnvaldur Snorri Hilmars- son, tók tólið af símanum undir morgun höfðu 16-20 karlar hringt og beðið lögregluna að vera í nágrenn- inu af ótta við að einhver kæmi heim til þeirra. „Við héldum í fyrstu aö þetta væri kona sem drykki kaffi úr glasi og reykti fílterslausar camelsígarettur en eftir á að hyggja gæti þetta hafa verið karlmaður. Viö vildum gera allt til að stoppa þetta en gátum ekki fundiö þann sem stóð á bak viö ónæöið. Við vissum ekki að við gæt- um kært stefnumótalínuna sjálfa og svo koðnaði þetta niður út af Súða- víkurslysinu. Við höfum kvartað við starfsmenn fyrirtækisins sem hafa veriö með skæting og stæla og nú síðast spurði starfsmaður þar hvort við værum atvinnulaus og hefðum ekkert annað aö gera en aö ofsækja þá,“ segir Rögnvaldur. „Við viljum helst láta stoppa þessa starfsemi. Þetta er ekkert annað en vændi," segir hann og hvetur aöra sem hafa orðið fyrir símaónæöi að láta í sér heyra. -GHS Pállversttilskipunum Páll Pétursson félagsmálaráð- herra ætlar að leita allra leiða til að íslendingar komist hjá því aö leiöa í lög tilskipanir ESB um hámarksvinnutíma og vinnu- vernd bama og ungmenna. RÚV haföi þetta eftir ráðherranum. H.í.kaupirhús Háskóh fslands hefur keypt Austurstræti 16 fyrir um 100 milljónir króna. Skóiinn hefur rekið Reykjavíkurapótek í hús- inu fil fjölda ára. Stöð tvö greindi frá þessu. Aukin atvinna Núna virðist bjartara framund- an í atvinnulífi landsmanna held- uren á sama tíma í fyrra ef marka má nýja atviimukönnun Þjóð- hagsstofnunar. RÚV greindi frá. Marhaðurinn breytist Eftirspurn eftir eldri og ódýrari endursöluíbúðum í félagslega kerfinu hefur aukist en aö sama skapi hefur dregið úr eförspurn eftir nýjum og dýrari íbúðum í nýjum hverfum. Mbl. greindi frá. Rannsóknhafnað Ríkissaksóknari hefur hafnað beiðni bæjarstjómar Hafnar- flarðar um opinbera rannsókn vegna Hagvirkis-Kletts. Af hálfu bæjaryfirvalda í Hafharfiröi er málinu lokið. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.