Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Page 3
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 1995 3 Fréttir Vestmannaeyingar fá ekki að flytja síld af miðunum með flutningaskipi: Af ar einkennileg afstaða - segir Sighvatur Bjamason um neitun sjávarútvegsráðuneytisins „Eg fékk þau svör að þetta væri bannað. Ég er búinn að senda ráðu- neytinu bréf og biðja um rökstuðning vegna þessarar neitunar en það svar er ekki komið. Ég botna ekkert í því hvað er að baki þessari neitun,“ seg- ir Sighvatur Bjarnason, útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, vegna þess að sjávarútvegsráðuneytið hef- ur neitað fyrirtæki hans um að flytja síld með flutningaskipi af síldarmið- unum til Vestmannaeyja og spara þar með langa siglingu veiðiskipa og skapa atvinnu í Vestmannaeyjum. Sighvatur er með útgerð tveggja nótaskipa, Kap VE og Sighvats Bjarnasonar VE. Það munar um tveimur sólarhringum fyrir skipin að þurfa að sigla til Vestmannaeyja í stað Austfjarðahafna og hugmyndin var sú að leigja flutningaskipið Stapafell til að flytja sOdarafla til Vestmannaeyja í vinnslu þar. Skipið hefði getað flutt um 2 þúsund tonn í ferð. „Við ætluöum að reyna að hagræða og auka afkastagetu flotans. Þá hefð- um við með þessu geta aukið atvinnu í landi sem er ekki vanþörf á. Þetta hefði skapað 15 ný störf. Við erum með 15 starfsmenn í mjölverksmiðj- unni en hefðum getað fjölgað þeim í 30 hefði þetta orðið að veruleika. Það er að okkar mati skynsamlegra að sigla með þetta til Vestmannaeyja en Hjaltlandseyja eða Færeyja. Þetta er því afar einkennileg afstaða. Það er sífellt verið að krefjast hagræðingar í sjávarútvegi en þegar á svo að gera eitthvað þá er það bannað. Þetta er óþolandi," segir Sighvatur. Ólafur Einarsson, skipstjóri á Kap VE, sagði í samtali við DV þar sem hann var á leið á síldarmiðin að þessi afstaða ráðuneytisins væri óskiljan- leg. Þetta hefði verið leyft á loðnu- vertíðinni en sé nú bannað. „Ég er mjög óánægður með að þetta leyfi skuli ekki fást. Þetta er óskiljan- legt í því ljósi að leyft var að flytja loðnu á stjórnlausum pramma á vetrarvertíðinni," sagði ÓLafur. Jón B. Jónasson sagði sjávarút- vegsráðuneytið byggja afstöðu sína á lögum um vigtun sjávarafla, auk þess að íslendingar hafi ekki heim- ildir til að vera með flutningaskip í færeyskri lögsögu. „Við erum með heimildir til að víkja frá lögum um vigtun sjávarafla en við höfum ekki heimildir til að vera með flutningaskip í færeyskri lögsögu; þaö er ekkert í samningnum milli þjóöanna sem leyfir slíkt,“ segir Jón. -rt Flæmski hatturinn: Góð rækju- veiði „Það hefur veriö ágætis veiði á þessutn slóðum. Hafrafellið er komið með um 70 tonn af rækju eftir 18 daga á veiðum,“ segir Pálmi Stefáns- son, útgerðarstjóri hjá Básafelli hf. á ísafirði sem gerir út tvö skip, Hafra- fell ÍS og Guðmund Péturs ÍS á Flæmska hattinn við Kanada til rækjuveiða. Skipin frysta rækjuna um borð en hún er síðan unnin á verksmiðju Básafells á ísafirði. Pálmi segir að nú séu 5 íslensk skip á þessum slóðum og þrjú á leið- inni. Alls eru um 1500 sjómílur frá Reykjavík á Flæmska hattinn eða um 6 sólarhringa sigling. Hann segir að skip Básafells verði við veiðar þama fram á haust. „Það eru engin verkefni hér heima vegna skorts á rækjukvóta þannig að ég reikna með að skipin verði við þessar veiðar fram á haust,“ segir Pálmi. -rt Noröurá í Borgarfirði: Útboð í haust „Þetta er áfangasigur fyrir okkur að fá það í gegn að fá útboð í haust. Því tUboðinu okkar var hafnað af stjórninni en það átti aö færa bænd- um 160 milljónir næstu fimm árin,“ sagði Pétur Pétursson í samtali viö DV í gær. En einhver fjörlegasti fundur sem haldinn hefur verið í Borgarfirðinum í fyrrakvöld í Hreöa- vatnsskálanum. Fundurinn, sem var um málefni Norðurár, stóð langt fram eftir nóttu og voru mjög skiptar skoðanir um málið. „Ég fagna því að bændur skuli ekki hafa tekið tilboði Péturs og félaga. Það var skynsamlegt hjá bændum,“ sagöi Friðrik Þ. Stefánsson, formaö- ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í gær, en félagið hefur ána leigu fram á haust. pcao Mest seldi smábíllinn á Islandi FALLEGUR - RÚMGÓÐUR - ÖRUGGUR Á ALLA VEGU ! Polo Cu VW Polo þ riggja dyra kostar aðeins kr. 925.000.- tilbúinn á götuna ! iir kia /,'/‘f/Af /t ty/ Volkswagen Onjggur á alla vaquf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.