Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Blaðsíða 8
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 1995
Utlönd
Stuttarfréttir
Borgarstjóri höfuðborgar Saír heldur neyðarfund vegna banvænu veirunnar:
Éq vona að við verð-
um ekkiyf irbugaðir
„Það er ekkert vandamál með
starfsfólk. Það er tækjabúnaðurinn
sem er vandamálið. Við munum
reyna að sigrast á vandanum og ég
vona bara að við verðum ekki yfir-
bugaðir," sagði Bernadin Mungul
Diaka, borgarstjóri í Kinshasa, höf-
uðborg Afríkuríkisins Saír, á neyð-
arfundi með heilbrigðisstarfsmönn-
um í gær vegna ebola-veirunnar
bráðdrepandi sem nálgast nú höfuð-
borgina.
Borgarstjórinn lét herða eftirlit við
vegatálma á aðalþjóðveginum til
Kinshasa frá farsóttarsvæðunum í
nágrenni bæjarins^Kikwit. Þá greindi
borgarstjórinn einnig frá því hvaða
sjúkrahús í höfuðborginni ætti að
nota til að einangra alla þá sem veikj-
ast af völdum veirunnar.
Mama Yemo sjúkrahúsið í Kins-
hasa, eitt helsta sjúkrahús landsins,
með rúm fyrir tvö þúsund sjúklinga,
er eitt þeirra. Þar eru nú allt að þrír
sjúklingar um hvert rúm, margir
þeirra með alnæmi. Þeir sjúklingar
sem eru svo heppnir að hafa eigið
rúm koma með rúmfötin með sér.
Ruslið er alls staðar og man starfs-
fólk ekki eftir því hvenær sorp var
hirt þar síðast.
Jean-Jacques Muyembe, helsti
veirusérfræðingur Saír, sagði frétta-
mönnum í gær að erlendir sérfræð-
ingar, sem væru komnir til að hefta
úfbreiðslu ebola-veirunnar, væru
farnir að sjá árangur erfiðis síns. Á
sjöunda tug manna hefur látist af
völdum veirusjúkdómsins sem engin
lækning er við.
Heilsugæslustarfsmaður með andlitsgrímu og hanska stendur við rúm eins þeirra sem hafa sýkst af völdum hinn-
ar bráðdrepandi ebola-veiru í bænum Kikwit í Saír. Símamynd Reuter
„Við erum farnir að ná tökum á
faraldrinum af því að við erum með
mjög sterkt lið sem vinnur við þetta,"
sagði Muyembe.
Sérfræðingarnir hafa ekki enn
komist að uppruna sjúkdómsins, sem
lét fyrst á sér kræla í Kikwit í mars.
Þeir hafa útvegað starfsfólki sjúkra-
hússins í bænum sloppa, grímur,
hanska og sérstaka skó og vonast til
að það dugi til að hefta frekari út-
breiðslu. Hugsanlegir smitberar hafa
veriðsettiríeinangrun. . Reuter
AFMÆLISTILBOÐ
A
ZANUSSÍ
heimilistækj um
í nokkra daga.
Hágæðatæki á frábæru verði!
* Þvottavélar
* Þurrkarar
* Eldhúsviftur
* Uppþvottavélar
* Kæliskápar
* Frystiskápar
* Frystikistur
* Þeytivindur og
m.fl.
Eldavélar
Þvottavelar/Þurkarar
Kæliskáoar
3ja ára ábyrgð
Suðurlandsbraut 16, s. 588-0500
Klaus Kinkel, formaður flokks
frjálsra demókrata. Simamynd Reuter
Fylkiskosningar í Þýskalandi:
demókratar
þurrkaðirút
Frjálsir demókratar, samstjórnar-
flokkur kristilegra demókrata Hel-
muts Kohls Þýskalandskanslara,
þurrkuðust út af fylkisþingunum í
Nordrhein-Westfalen og Bremen í
kosningum þar í gær, samkvæmt
fyrstu tölum sem birtar voru í gær-
kvöld. Flokkurinn náði ekki fimm
prósenta lágmarksfylgi sem þarf til
að koma manni á þing.
Jafnaðarmenn, sem eru við völd í
báðum fylkjunum, misstu fylgi en
allt bendir þó til þess að þeir muni
ganga í eina sæng með græningjum,
stóru sigurvegurum kosninganna.
Ekki er tahð að þessir síðustu
ósigrar frjálsra demókrata hafi áhrif
á stöðu flokksformannsins, Klaus
Kinkels utanríkisráðherra. „Klaus
Kinkel er flokksformaður og veröur
það áfram," sagði Guido Westerwelle
flokksritari. Ritzau,Reuter
Bátarieknir
Bandaríska strandgæslan tók
tvo japanska fiskibáta áð meint-
um ólöglegum veiðum í Kyrra-
hafi.
Skjálftiskemmir
Nærri þúsund heimili eyðilögð-
ust í öflugumjarðskjálfta i Grikk-
landi um helgina.
Grete Khuds^
en, viðskipta-
ráðherra Nor-
egs, segir að
missMlrdngur
hljóti að valda
því að Svíar
vilji ekki stað-
festa samning
um fiskútflutning sem Norðmenn
gerðu við Evrópusambandið.
Sprengtogsprengt
Rússneskar hersveitír vörpuðu
sprengjum á þorp í Tsjetsjeníu.
BaristíBosníu
Grimmilegir bardagar voru
háðir í norðurhluta Bosníu.
Minni umhverf isáhugi
Áhugi fyrir umhverfisvemd fer
dvinandi í heiminum, að sögn
yfirmanns umhverfisstofhunar
SÞ í Naíróbi.
Rættumfrið
Uppreisnarmenn indíána i
Mexikó og stjórnvöld reyna að
finna leiðir til að draga úr
spennu.
EintómirEvrópusinnar
Aiain Juppé
verðurvæntan-
lega forsætis-
ráðherra nýrr-
ar Frakklands-
stjórnar þar
sem Evrópu-
sinnaðir mark-
aðshyggju-
menn verða i öllum lyklembætt-
unum.
Forsetiífýlu
Forseti Hvíta-Rússlands sakaði
Clinton Bandaríkjaforseta um að
hafa sniðgengiö landið í heim-
sókn sinni öl þessa heimshluta.
Móðh-áEveresl
Alison Hargraves, bresk 2ja
barna móðir, varð fyrst kvenna
til að komast ein og óstudd og án
súrefniskúta á Everest-fjaE, hið
hæsta í heimi.
Þridji maðurinn
Þriðji maðurinn er nú í haldi
vegna sprengjutilræðisins iOkla-
homaborg.
Ekkiafturkallaður
íranir segja að dauðadómurinn
yfir Salman Rushdie verði ekki
afturkallaður en ætla ekki að
gera út feigumorðingja.
Menemsigraði
Carlos Me-
nem, forseti
Argentínu.lýsti
í gærkvöldi yfir
sigri í forseta-
kosningunum
þar í landi en
samkvæmt
fyrstu tölum
fékk hann 46 prósent atkvæða og
helsti keppinautur hans 32 pro-
sent.
Alvegákveðnir
ísraelsstjórn ítrekaði þá ætlan
sína að gera Iand í arabískum
austurhluta Jerúsalem upptækt.
Slæmarsendingar
Öryggisverðir hafa stöðvað
bögglasprengjur til Karls Breta-
prins frá öfgafullum dýravinum.
Reuter, NTB
I