Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Síða 11
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 1995 11 dv ______________________________________________________________Fréttir Afkoma Landsvirkjunar: Nær 1500 milljóna rekstrarhalli 1994 JÁLKURINN Nýtt frá Kawasaki Lipur, léttur og knár Fjórgengisvél m/rafstarti Sjálfskiptur, læsanlegt afturdrif Mikil burðargeta Hagstætt verð Á síðasta ári varð tæplega 1.500 millj- óna króna rekstrarhalli hjá Lands- virkjun. Hallinn minnkaði um 1.700 milljónir frá árinu 1993 þegar hann nam 3.250 milljónum. Tapið skýrist fyrst og fremst af útgjöldum vegna Blönduvirkjunar sem námu 1.395 milljónum á síðasta ári án þess að auknar tekjur kæmu á móti. Þetta kom fram á ársfundi Landsvirkjunar á dögunum. Fé úr rekstri nam 1.215 miiljónum en var 871 milljón árið 1993 en jafn- ffamt lækkaði sjóðsstaðan um 565 milljónir. Fjárfestingar Landsvirkjun- þar af 1400 milljónir vegna Blönduvirkjunar ar hafa aldrei verið minni eða fyrir um 175 milljónir. Afborganir lána umfram lántökur voru 1.606 milljónir. Rekstrartekjur síðasta árs námu 6.917 milljónum og hækkuðu um 5,2% frá fyrra ári. Þar af voru tekjur vegna almenningsveitna 4.990 millj- ónir, 1.872 milljónir frá stóriðjunni og 55 milljónir af jarðgufusölu og öðru. Rekstrarkostnaður nam 8.408 milljónum. Hann skiptist þannig að 3.099 milljónir voru vextir, rekstrar- gjöld voru 1.985 milljónir og afskrift- ir 3.324 milljónir. Skuldir Landsvirkjunar í árslok 1994 námu hvorki meira né minna en rúm- um 51 milljarði króna, eða sem jafn- gildir helmingi fjárlaga íslenska ríkis- ins. Eigið fé var rúmir 26 milljarðar og lækkaði milh ára um 900 milljónir. Skutuvogi 12A, s. 581 2530 Akranes: Ný áhorfendastúka Daníel Ólafeson, DV, Akianesi: Það á ekki að fara illa um þá áhorf- endur sem leggja leið sína á knatt- spymuleik á Jaðarsbökkum í sumar því ný áhorfendastúka hefur verið byggð. Stúkan tekur um 580 manns í sæti og verða stólamir svartir og gulir með merki ÍA, sams konar stól- ar og á Nou Camp velh Barcelona. Það eru Knattspyrnufélag Akra- ness og Akraneskaupstaður sem hafa séð um fjármögnun verksins. Akraneskaupstaður greiðir 60% og knattspymufélagið 40% af áætluðum kostnaði sem er um 32 milljónir króna. Trésmiðjan Akur hf. á Akranesi og Skóflan hf. hafa séð um byggingu stúkunnar og hefur verið tekið eftir því hve framkvæmdir aliar hafa gengið vel og allar áætlanir staðist. Áætlað er að taka stúkuna í notkun um miðjan maí. GARÐ- VINNUDAGAR 15 21. maí Nú er réttí tíminn til að sinna viSkvæmri grasflötinni með áburSi og gróðurkalki, og huga að útsæði fyrir uppskeru haustsins. Þess vegna bjóðum við þessar vörur, ásamt öllum garSverkfærum á afar góéum kjörum út vikuna. Og gleymið ekki ráögjöf sérfræöinga. Gras- og trjááburöur 5 kg 295 kr., 10 kg 545 kr. | Gróöurkalk 10 kg 390 kr., 25 kg 75O kr. Grænmetisáburöur 5 kg 295 kr., 10 kg 545 kr. Suðumes: Færri ráðnir hjá ís- lenskum aðalverktökum Allar tegundir útsæöis 5 kg 475 kr. AAO/ Opið laugardag kl.10-18 Zv /O og sunnudag kl.13-16 GROÐURVÖRUR VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA SmiSjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 3211 • Fax: 554 2100 afsláttur á öllum garðverkfærum. Garðyrkjufélagið kynnir nýútkomna bók sína, „Garöurinn, hugmyndir að skipulagi og efnisvaliy laugardag kl.13-17. Ægir Már JCárason, DV, Suðumesjum: Gert er ráð fyrir að 20 manns verði ráðnir hjá íslenskum aðalverktökum á Keflavíkurflugvelli í sumarafleys- ingar en í fyrrasumar en þá voru 30 manns ráönir. Fækkunina má rekja til minni malbikunar í sumar en í fyrra voru flugbrautirnar malbikaöar. Þá verð- ur minna um jarðvinnu sem er sam- dráttur miðað við undanfarin ár. Viðhaldsvinna hefur hins vegar auk- ist mikið hjá verktökum. Bílar - innflutmngur Mini Van Ýmsar tegundir Suzuki jeppar EV BILAUMBOÐ Egill Vilhjálmsson Smiðjuvegi4, Kópavogi-sími55 77200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.