Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Side 30
42 MÁNUDAGUR 15. MAÍ 1995 Afmæli Guðmundur Indriðason Guömundur Indriöason, garðyrkju- bóndi og trésmiður, Lindarbrekku, Biskupstungum, er áttræður í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Ásátúni í Hrunamannahreppi og ólst þar upp. Hann nam í farskóla í þrjá vetur og tók sveinspróf í trésmíði utan skóla 1972. Guðmundur vann við bústörf hjá Bjarna, skólastjóra á Laugarvatni, í tíu ár og einnig við jarðvinnslu og var einn af fyrstu jarðýtumönnum á landinu. Eftir að hann kvæntist bjuggu þau hjónin eitt og hálft ár á Laugarvatni en haustið 1951 fluttu þau að Laug- arási í Biskupstungum og stofnuðu þar nýbýlið Lindarbrekku. Guðmundur vann við smíðar all- lengi, þar á meöal við allar bygging- ar í Skálholti. Seinni ár hefur hann alfarið stundað garðyrkju. Áhugamál Guðmundar eru hesta- mennska, enda smíðaði hann skeif- urítómstundum. Fjölskylda Guðmundur kvæntist24.6.1950 Jónínu Sigríði Jónsdóttur, f. 6.2. 1927, húsfreyju. Hún er dóttir Jóns Péturssonar, pípulagningamanns í Neskaupstað, ogk.h., Katrínar Guðnadóttur húsmóður. Börn Guðmundar og Jónínu eru Indriði, f. 6.6.1951, vélvirki í Reykja- vík, kvæntur Ester Gunnarsdóttur, þau eiga fjögur börn; Jón Pétur, f. 15.6.1955, þungavinnuvélstjóriá Selfossi, kvæntur Guðrúnu H. Hjartardóttur og eiga þau þrjú börn; Katrín Gróa, f. 10.10.1956, húsmóðir í Neskaupstað, gift Þórarni Guðna- syni og eiga þau þrjú börn; Grímur, f. 27.6.1961, b. í Ásatúni, kvæntur Guðbjörgu Jóhannsdóttur hús- freyju og eiga þau þrj ú börn, auk þess á Grímur dóttur fyrir hjóna- band. Systkini Guðmundar: Guðný, f. 1902, lést þriggja vikna; Magnús, f. 22.9.1903, d. 1994; Sigríður, f. 13.8. 1905, d. 1973; Hallgrímur, f. 7.9.1907, d. 1982; Óskar Guðlaugur, f. 1.4.1910; Guðný, f. 23.2.1912; Helgi, f. 30.1. 1914, d. 1995; Laufey, f. 24.2.1917; Jakob, f. 11.11.1918, d. 1991; Krist- inn, f. 1.5.1912, d. 1936. Foreldrar Guðmundar eru Indriði Grímsson, f. 17.5.1873, d. 19.4.1928, b. í Ásatúni í Hrunamannahreppi, og k.h., Gróa Magnúsdóttir, f. 21.8. 1877, d.6.6.1939. Ætt Indriði var sonur Gríms, b. Guð- mundssonar, b. á Kjaransstöðum í Biskupstungum, Þorsteinssonar. Móðir Indriða var Helga Guð- mundsdóttir, b. í Brekku, Guð- mundssonar. Gróa var dóttir Magnúsar, b. í Bryðjuholti, Jónssonar, b. í Efra- Langholti, Magnússonar. Móðir Gróu var Guðný Einarsdóttir, b. í Bryðjuholti í Hrunamannahreppi, Einarssonar, bróður Sigurðar, b. í Gelti í Grímsnesi, ættföður Galtár- ættarinnar. Móðir Einars var Guð- Guðmundur Indriðason. rún Kolbeinsdóttir, prests og skálds í Miðdal, Þorsteinssonar og konu hans, Arndísar Þorsteinsdóttur. Guðmundur og Jónína Sigríður verða að heiman á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 15. maí 70 ára Þórunn Þórðardóttir, Nýbýlavegi52, Kópavogi. 60 ára Þorvaldur Ingólfsson, Skipholti 64, Reykjavík. Einar Birgir Eymundsson, Brekkuseli 8, Reykjavík. Kristrún EHertsdóttir, Eyjabakka 14, Reykjavík. 50ára Marinó Ólafsson, Grenigrund 6, Kópavogi. Gerður Ingimarsdóttir, Hólagötu 1, Sandgerði. Kaja Óladóttir Joensen, Laugarbrekku 5, Húsavík. Hjálmar Þorsteinn Baldursson vélfræðingur, Grænukinn28, Haftiarfiröi. HjálmarÞor- steinn tekur á mótiættingjum ogvinumað Ármúla40,2. hæð, í dag, millikl. 17.30 og 20.00. 40ára ÁlfheiðurVilhjálmsdóttir, Kleppsvegi 38, Reykjavik. Birna Óladóttir, Hverfisgötu 32, Siglufirði. VilhelmínaÞ. Þorvarðardóttir, Efstasundi 46, Reykjavík. Helga Óladóttir, Norðurtúni 7, Siglufirði. Sigurlína B. Valgeirsdóttir, Sandabraut 12, Akranesi. Ingibjörg Eggertsdóttir, Dvergholti 4, Mosfellsbæ. Pétur Jósafatsson, Dalseli 34, Reykjavík. Guðrún Þóranna Ingólfsdóttir, Yrsufelli 15, Reykjavík. Erlendur Þráinn Halldórsson, Neströö 3, Seltjarnarnesi. Erla Bjartmarz, Tjamarmýri 12, Seltjarnarnesi. Jónas Eyjólfsson, Ásvallagötu 37, Reykjavík. L LANDSVIRKJUN ÚTBOÐ Fjarskiptahús á Búrfelli Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingu 44 m2 húss úr steinsteypu ásamt undirstöðu fyrir stálmastur á Búrfelli í Þjórsárdal, í um 670 metra hæð yfirsjávar- máli. Húsið er hugsað þannig að sökklar, gólfplata, loft- plata og þakbiti verði steypt á staðnum en útveggir og innveggir verði forsteyptir í verksmiðju. Masturs- undirstaða verður steypt á staðnum og fest niður með bergboltum. Verkinu skal Ijúka í september á þessu ári. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 16. maí 1995, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð 3000 krónur. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík fyrir klukkan 14 þriðjudaginn 30. maí 1995 en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóð- endum sem þess óska. Reykjavík, 12. maí 1995 LANDSVIRKJUN Einar Birgir Eymundsson Einar Birgir Eymundsson deildar- stjóri, Brekkuseli 8, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Einar fæddist að Flögu í Skriödal í Suður-Múlasýslu og ólst þar upp. Hann lauk landsprófi frá Álþýðu- skólanum á Eiðum 1953 og kennara- prófifráKÍ 1957. Að námi loknu réðst Einar til starfa hjá tollgæslunni á Keflavík- urflugvelli og hefur hann starfað þar óslitið síðan. Einar hefur gegnt ýmsum trúnað- arstörfum fyrir Tollvarðafélag ís- lands. Fjölskylda Eiginkona Einars er Auður Hafdís Valdimarsdóttir, f. 2.3.1938, versl- unarmaður. Hún er dóttir Valdi- mars Hafliðasonar, húsasmíða- meistara í Reykjavík, og Ljósunnar Jónasdóttur húsmóður. Börn Einars Birgis og Auðar Haf- dísar eru Nikulás Þór Einarsson, deildarviðskiptafræðingur hjá fiár- mála- og hagsýsludeild Reykjavík- urborgar, kvæntur Berry Rosemary Davie frá Salford á Englandi, og er dóttir þeirra Emma Rosemary Auö- ur, f. 7.2.1994; Eymundur Sveinn Einarsson viðskiptafræðingur, í sambýli með Ásgerði Óskarsdóttur, starfsmanni hjá Hugbúnaöi hf., og er sonur þeirra Búi Alexander, f. 24.8.1991, en sonur Eymundar með fyrri sambýliskonu, Soffíu Haralds- dóttur, er Einar Alexander, f. 13.9. 1987. Alsystir Einars er Sigríður Ey- mundsdóttir. Hálfbræður Einars eru Alfreð Ey- mundsson og Sigurður Stefánsson. Foreldrar Einars voru Eymundur Einarsson, f. 28.3.1900, d. 1938, bóndi að Flögu í Skriðdal, og Sveinbjörg Einar Birgir Eymundsson. Magnúsdóttir, f. 25.12.1904, d. 14.9. 1972, húsfreyja. Einar Birgir og Auður Hafdís verða að heiman á afmæhsdaginn. Merming Söngtónleikar í Sel- tjamameskirkju Þuríður Baxter messósópran og Ólafur Vignir Al- bertsson héldu tónleika í Seltjamarneskirkju sl. laug- ardag. Þuríður hefur sungið m.a. í Þjóðleikhúskórn- um, Söngsveitinni Fílharmóníu og Heimskómum og með þessum tónleikum hélt hún upp á fimmtugsaf- mæh sitt. Á efnisskránni fyrir hlé voru ljóðasöngvar eftir Liszt, Schumann, Dvorák, Tsjajkovskíj, Richard Strauss og Jón Ásgeirsson, tvö lög eftir hvern höfund. Tónlist Áskell Másson Þuríður söng lögin af innileik. Hún hefur kraftmikla rödd og vel fyllt neðra regístur. Söngur hennar ein- kennist fyrst og fremst af innlifun og þroska. Rútíner- ingu þyrfti hún að fá meiri og að vinna að öruggari inntónun og meiri breidd í styrk. Mest var þetta áberandi í konsertaríu Mozarts, „Vado, ma dove?“, sem var fyrst eftir hlé. Textafram- burður hennar er skýr og hún söng flest lögin bæði vel og af þokka. Best tókst henni upp í lögunum Zigeun- erlied nr. 2 eftir Schumann, Das Lied der Zigeunerin eftir Tsjajkovskíj og Allerseelen eftir Richard Strauss en þau voru mjög vel flutt af henni og áðurnefnt lag Tsjajkovskíjs raunar frábærlega. Áríur úr óperam mynduðu síðari hluta efnisskrár- innar. Eftir konsertaríu Mozarts söng Þuríður Va, la- isse couler mes larmes! úr óperunni Werther eftir Massenet og síðan aríu Pálínu úr Spaðadrottningu Tsjajkovskíjs. Báðar vora þær vel fluttar með dyggum stuðningi Olafs Vignis. Hljómburður kirkjunnar er mjög líflegur og var pedalanotkun Ólafs kannski full- Þuriður Baxter, messósópran. mikil í sumum laganna fyrir hlé þótt leikur hans allur væri hinn vandaðasti. A kostum fór hann í aríunni Una voce poco fa og söng Þuríður hana ennfremur ágætlega. Þau fluttu að lokum nokkur aukalög, m.a. Wien, Wien Nur du allein o.fl. og voru þau öl) bæði vel og skemmtilega flutt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.