Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 1995
45
J3V
Anna Guðný Guðmundsdóttir og
ingvar Jónasson.
Víóla og
píanó í
Gerðar-
safni
í kvöld heldur Ingvar Jónasson
víóluleikari tónleika ásamt Önnu
Guönýju Guðmundsdóttur
píanóleikara og leika þau sónötur
eftir J. Brahms og D. Sjostako-
vits. Ennfremur munu þau frum-
flytja nýtt verk eftir Jón Nordal
sem hann hefur skrifaö sérstak-
lega fyrir Ingvar.
Þetta mun verða í síðasta sinn
Tónleikar
sem tónleikagesth- hér sunnan-
lands fá aö heyra Ingvari Jónas-
son leika ehtleik þar sem ætlun
hans er aö hætta að leika ein-
leiks- og kammerverk en tón-
leikagestir á Norðurlandi munu
heyra hann á tónleikum ásamt
Önnu Guðnýju og Sigurði I.
Snorrasyni halda tónleika á Ak-
ureyri næsta sunnudag.
Starfstími Ingvars er orðinn
langur og upplýsti hann að elsta
prentaða prógramm frá tónleik-
um sem hann hefði tekið þátt i
væri frá 1940. Þess má geta að
Ingvar Jónasson varð fyrstur til
að halda viólutónleika á íslandi
og hefur hann frumflutt fjölda
íslenskra og erlendra verka.
Launamisrétt-
iðeykst-hvað
er til ráða?
Kvenrétt-
indafélag ís-
lands boöar til
morgunverðar-
fundar á Hótel
Sögu, Skála, í
fyrramálið kl.
8.15. Stuttar
framsögu halda
m.a. Lára V. Júlíusdóttir og Guð-
rún Hallgrímsdóttir.
Leiöin til framtíðar
Málstofa verður haldin í stofu 157
í VR-II í húsi Verkfræðideildar
háskólans og verður umræðuefn-
iö Leiðir til framtíöar. Frummæl-
endur eru Albert Jónsson og
Trausti Valsson.
Samkomur
Tölvur og skjaiastjórnun á
ísienskum vinnustööum
Námskeiðið Inngangur að skjala-
stjórnun verður endurtekið í dag
og á morgun kl. 13.00-16.30 báða
dagana að Hótel Lind, litla sal,
Rauðarárstíg 18.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Eins og önnur mánudagskvöld
verður uppákoma í Þjóðleikhús-
kjallaranum í kvöld á vegum Lista-
klúhbs Leikhúskjallarans og eru
það tónlistarmenn sem verða í
Skemmtanir
sviðsljósinu í kvöld.
Hinrik Bjarnason og Rúnar Þór-
isson gítarleikarar leika suður-
ameríska tóniist á léttum nótum
og hörpuleikarinn Sophie Schoonj-
ans og flautuleikarinn Guðrún
Birgisdóttir leika franska tónlist og
verk eftir Atla Heimi Sveinsson og
Jón Hlöðver Áskelsson. Tónieik-
arnir heQast um kl. 20.30.
Tónlistarfólkið sem kemur fram í Leikhúskjallaranum í kvöld.
Sarah Jessica Parker og Antonio
Banderas verða fyrir tilfinninga-
legum áföllum i Miami Raph-
sody.
Fjör í Flórída
Fjör í Flórída (Miami
Rhapsody), sem Bíóhöllin sýnir,
er rómantísk gamanmynd og ger-
ist í hinni sólríku Miami. Aðal-
persónan er Gwyn Marcus sem
starfar sem textahöfundur aug-
lýsinga. Þegar myndin hefst hef-
ur hún ákveðið aö taka bónorði
kærasta síns. Þaö er draumur
Kvikmyndir
hennar að búa í jafn hamingju-
sömu hjónabandi og foreldrar
hennar hafa gert. Áður en að gift-
ingu kemur kemst hún að því aö
nánast allir í hennar fjölskyldu
eiga í ástarsambandi fyrir utan
hjónabandið og eru foreldrar
hennar engin undantekning.
Þetta verður til þess að Gwyn
sest niður og fer að hugsa sitt ráð.
Það er Sarah-Jessica Parker
sem leikur Gwyn. í öðrum stór-
um hlutverkum eru Gil Bellows,
Antonio Banderas, Mia Farrow,
Paul Mazursky og Kevin Polack.
Leikstjóri og handritshöfundur
er David Frankel sem með Miami
Rhapsody leikstýrir sinni fyrstu
kvikmynd.
Nýjar myndir
Háskólabió: Star Trek: Kynslóðir
Laugarásbíó: Háskaleg ráóagerð
Saga-bló: í bráóri hættu
Bióhöllin: Fjör i Flórida
Bióborgin: Strákar til vara
Regnboginn: North
Stjörnubió: Litlar konur
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 113.
12. mai 1995 kl. 9.15
Gengið með ströndinni
Það er ekki óalgeng sjón að sjá fólk
þessa dagana á göngu úti í náttúr-
unni enda varla til betri afþreying
aö vori. Þeim sem vilja keyra fyrst og
labba svo er bent á ágæta gönguleið
Umhverfi
með fram ströndinni við Þorláks-
höfn. Gott er að hefja gönguna við
Strandarkirkju og geta menn þá gert
áheit á staðnum. Sagan segir að
kirkjan hafi í upphafi verið byggð
vegna áheits í sjávarháska. Gengið
er á hrauni alla leið til Þorlákshafnar
og víða á leiðinni eru sérkennilegir
klettar og skvompur meitlaðar af
briminu. Eins má sjá hvernig sjórinn
hefur hreinsað klappirnar og hent
heljarbjörgum langt upp á land.
Ef mikill sjógangur er gerir það
gönguna enn mikilfenglegri og ævin-
týralegri. Öll leiðin er tæpir 20 kíló-
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,030 65,290 63,180
Pund 101,970 102,380 102,070
Kan. dollar 47,920 48,160 46,380
Dönsk kr. 11,5080 11,5660 11,6280
Norsk kr. 10,0180 10,0680 10,1760
Sænsk kr. 8,8020 8,8460 8,6960
Fi. mark 14,7020 14,7760 14,8560
Fra. franki 12,7560 12,8200 12,8950
Belg. franki 2,1807 2.1917 2,2274
Sviss. franki 53,7200 53,9900 55,5100
Holl. gyllini 40,0100 40,2100 40,9200
Þýskt mark 44,8600 45,0400 45,8000
it. líra 0,03865 0,03889 0,03751
Aust. sch. 6,3690 6,4070 6,5150
Port. escudo 0,4271 0,4297 0,4328
Spá. peseti 0,5190 0,5222 0,5146
Jap. yen 0,74840 0,75210 0,75320
irsktpund 103,510 104,130 103,400
SDR 99,72000 100,32000 99,50000
ECU 82,8700 83,2800 84,1800
metrar og hæfilegt er að ætla 5-6
tíma í gönguna.
EvuDísar
Myndarlegi drengurinn á mynd-
inni fæddist á fæðingardeild
Landspítalans 18. apríl kl. 18.04.
Hann reyndist vera 3890 grömm
þegar hann var vigtaður og 52
sentímetra langur. Foreldrar hans
eru Eva Gunnarsdóttir og Einar
Finnur Valdimarsson og á hann
eina systur, Evu Dís, sem er 10 ára.
Krossgátan
Heimild: Gönguleiðir á íslandi
eftir Einar Þ. Guðjohnsen
7 T~ 3 T~ F~
7- 1
lú 1 f",
12 ir
lí 1 u JT
1 )(? sr /?
/4 1
Lárétt: skoðun, 7 þarmar, 8 mynrn, 10
gleði, 11 klafi, 12 andvörp, 13 einnig, 15
hrygningarsvæði, 16 kraminn, 19 ílát, 20
aukast.
Lóðrétt: 1 deila, 2 gangur, 3 staílar, 4
yndis, 5 tannstæði, 6 bert, 9 óhreinindin,
12 þvllík, 14 hema, 17 gangflötur, 18 átt.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 kríu, 5 kál, 8 lumman, 9 ósa,
10 brák, 12 klaufsk, 14 vinn, 15 ata, 16
æö, 17 galað, 19 rói, 20 rómi.
Lóðrétt. 1 klók, 2 ruslið, 3 íma, 4 umbun-
ar, 5 karfa, 6 án, 7 lokkaði, 11 Ásta, 13
angi, 14 vær, 18 ló.