Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1995, Síða 36
~rm
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIOSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA.
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL, 6>S LAUGAftDAGS^OG MÁNUDAGSMORGNA
Frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 1995.
--- k —" —.
hálfa aðra milljón
íslenska skáksveitin á Kanaríeyjum:
Ólympíumeistarar
Selabændur hafa þurft að kosta til
einni og hálfri milljón til að fá niður-
stöðu í lögreglurannsókn á drápi 40
útselskópa í Skjaldarbjarnarvík á
Ströndum fyrir hálfu öðru ári. Málið
fer til ríkissaksóknara næstu daga.
Forsaga málsins er sú að hræ af
útselskópunum fundust á landi í
einkaeigu. Drápið á kópunum þótti
hrottalegt þar sem kjálkamir voru
skomir frá gónunum (hausunum) en
hringormanefnd greiðir fyrir kjálka
af dauðum kópum. í kjölfariö voru
tveir menn kallaðir til yfirheyrslu á
ísafirði grunaðir um að hafa staðið
að drápinu. í fórum þeirra fundust
kjálkar, sem hald var lagt á, en
mennimir neituðu aliri aðild og var
sleppt.
Rannsóknin hefur verið mjög um-
fangsmikil. Fyrst eftir að máliö kom
upp vom nokkrir menn sendir frá
Hólmavík um þriggja daga leið í
Skjaldarbjamarvík til að ná þar í
gónurnar og afla sönnunargagna.
Þær voru svo sendar suður ásamt
haldlögðu kjálkunum til samanburð-
arrannsóknar á tilraunastööinni að
Keldum. í þeirri rannsókn tókst ekki
að færa sönnur á að kjálkamir til-
heyrðu gónunum. Því var ákveðið
að senda hvort tveggja í DNA-rann-
sókn til líffræðistofnunar Háskóla
íslands. Niðurstaða þeirrar rann-
sóknar hefur nú leitt í ljós að tveir
kjálkanna, sem hald var lagt á, til-
heyrðu gónunum.
Að sögn Hlyns Snorrasonar, rann-
sóknarlögreglumanns á ísafirði,
verður máhð sent á næstu dögum til
saksóknara. Hann segir að mennim-
ir tveir sem upphaflega voru kallaðir
fyrir og kjálkamir fundust hjá hafi
verið kallaðir fyrir á ný en þeir neiti
enn allri aðild að málinu.
Málið er sérstætt að því leytinu til
að rannsóknin, sem kostað hefur
hálfa aðra milljón, er ekki kostuð af
hinu opinbera þótt um opinbera
rannsókn sé að ræða.
Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði
á Ströndum, formaður Samtaka sela-
bænda, sagöi í samtali við DV að
ástæða þessa væri sú að koma í veg
fyrir að verknaður sem þessi endur-
tæki sig. „Mér finnst mjög óeðlilegt
að við séum látnir borga rannsókn-
ina sjálfir ef við viljum láta fram-
kvæma hana. Lögreglan virðist vera
blönk,“ sagði Pétur. -pp
„Við unnum mótið á baráttugleð-
inni. Okkur tókst að ná frábærri ein-
beitingu sem tryggði okkur jafnan
árangur á öllum borðum. Þetta er
ótrúleg tilfinning," segir Haraldur
Baldursson, fararstjóri íslensku
skáksveitarinnar sem í gær tryggði
sér sigur á ólympíuskákmóti bama
og unglinga, 16 ára og yngri.
ísland eignaðist í gær ólympíu-
meistara í skák með sigri á mótinu.
Mótið fór fram á Kanaríeyjum og var
haldið af FIDE í tengslum við Alþjóða
ólympíunefndina. Urshtin lágu fyrir
eftir að íslenska sveitin hafði unnið
Englendinga með 2,5 vinningum
gegn 1,5. Islenska sveitin hlaut alls
19 vinninga. í öðm sæti hafnaði ung-
verska sveitin með stórmeistarann
Peter Leko í broddi fylkingar með
17,5 vinninga.
í hinni sigursælu sveit íslands vora
þeir Jón Viktor Gunnarsson, Bragi
Þorfinnsson, Bergsteinn Einarsson,
Björn Þorfinnsson, bróðir Braga, og
Einar Hjalti Jensson. Von er á piltun-
um til landsins annað kvöld.
„Þetta var óvæntur sigur. Undir-
búningurinn bar greinilega góðan
árangur. Þetta era duglegir strákar
og þeir fóm eftir þeim fyrirmælum
sem þeir fengu í Skákskólanum fyrir
mótið. Ég átti ekki von á að árangur-
inn kæmi svona fljótt í ljós,“ segir
Margeir Pétursson stórmeistari um
áranguríslenskupiltanna. -kaa
Deilt um 7,6 milljóna lottóvinning:
Þriggja ára
barn eyði-
lagði miðann
- krafist ógildingar fyrir Héraösdómi VestQarða
„Við fómm, ég og móðir mín, á
föstudagsmorgni og keyptum sinh
lottómiðann hvor. Eg setti miðann á
stofuborðið þegar heim kom. Þar
komst þriggja ára dóttir mín í mið-
ann og reif hann í tætlur. Ég reyndi
að raða honum saman þegar búið var
að draga í lottóinu en það var ekkert
hægt að sjá út úr honum svo ég lagði
hann til hhðar. Það henti svo einhver
tætlunum,“ segir rúmlega þrítug
húsmóðir á höfuðborgarsvæðinu
sem telur sig eiga tilkall til lottóvinn-
ings upp á rúmlega 7,6 milljónir
króna.
Konan, sem var gestkomandi á
Patreksfirði, fór ásamt móður sinni
í Rafbúð Jónasar Þórs þar sem þær
keyptu miðana. Hún segist ekkert
hafa hugsað út í að vinningur hafi
fahið á miðann fyrr en viku síðar
þegar auglýst var eftir vinningshaf-
anum í blöðum.
„Þegar farið var að kanna máhð
kom i ljós að minn miði var sá eini
sem kom til greina sem vinnings-
miði. Ég fékk auðvitað áfah þegar ég
komst að því að dóttir mín hafði eyði-
lagt vinninginn. Þetta hlýtur að vera
dýrasta bam íslandssögunnar," seg-
ir konan.
Búið að skoða alla aðra miða
Anna Stefanía Einarsdóttir, sem á
Rafbúð Jónasar Þórs ásamt manni
sínum, sagði í samtcdi við DV að af-
greiðslustúlka sem starfar í verslun-
inni hafi staðfest að konan hafi keypt
miða umræddan morgun. Hún segir
að búið sé aö skoða alla aðra miða
sem seldir voru þennan morgun og
enginn þeirra sé vinningsmiðinn.
„Það er staðfest að konan kom í
verslunina og keypti miða. Þegar í
ljós kom að vinningur hafði komiö á
miða sem seldur var hjá okkur var
gengið í það að skoða miöana hjá
öllum þeim sem keyptu um svipað
leyti. Þar kom í ljós að enginn átti
rétta miðann. Það er ýmislegt búið
að ganga á hérna út af þessu máli,“
segir Anna Stefanía.
Umrædd kona hefur höfðað mál
fyrir Héraðsdómi Vestfjarða þar sem
hún krefst ógildingar hins glataða
miða.
-rt
Sigurður Sigurðarson og Karl Skírnisson, á tilraunastöð Háskólans að Keldum, halda hér á kjömmum og gónum
(kópshausum). Samanburðarrannsókn fór fram að Keldum en hún leiddi ekki til niðurstöðu og þurfti þvi að fara
fram DNA-rannsókn. DV-mynd 6G
Niðurstaöa DNA-rannsóknar á gónum og útselskjömmum liggur fyrir:
Kostar selabændur
M .
LOKI
Landsliðið í handbolta gæti
sýnilega lært eitthvað af
skákstrákunum okkar!
Veörið á morgun:
Léttskýj-
að víðast
hvar
Á morgun verður norðvestan- og
norðangola víðast hvar á landinu.
Við norðausturströndina verða
smáél en annars staðar á landinu
verður þurrt og víðast hvar létt-
skýjað. Hiti verður á bihnu 1 til 10
stig, hlýjast sunnanlands.
Veðrið 1 dag er á bls. 44
Kaiiu
alltaf á
Miövikudögimi