Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1995, Side 3
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1995
3
Fréttir
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf:
Skoðum möguleikann á að
leigja skipin úr landi
- líka raunhæfur möguleiki að skrá skipin á Vestfjörðum
„Það er rétt aö við erum að skoða
þann möguleika að leigja okkar skip
til Færeyja eða Grænlands ef til sjó-
mannaverkfalls kemur. Maður von-
ar auðvitað að samningar takist í sjó-
mannadeilunni en ég er að verða
svartsýnn á að samið verði áður en
boðað verkfall hefst,“ sagði Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja á Akureyri hf. á Akureyri,
í samtali viö DV.
Hann sagði að ef af þessu yrði væri
það alfarið mál áhafnanna hvort þær
færu með skipinu og réðu sig hjá
þeim sem tækju það á leigu eða væru
í verkfalli hér heima. Hann sagist
viss um að það væri ekki mikill áhugi
á verkfalli hjá sjómönnum á Akur-
eryi enda hefðu þeir ekki fengið mik-
ið út úr síðasta verkfalli.
Samherji gerir út átta togara. Þor-
steinn var spurður álits á því sem
margir útgerðarmenn væru að tala
um, að skrá skip sín á Vestfjörðum,
þar sem sjómannaverkfall hefur ekki
verið boðað í háa herrans tíð, eða
skrá þau undir erlendum hentifána:
„Það er ljóst að Vestfirðingar hafa
ekki verið að fara í verkfall á liðnum
árum. Því tel ég að sú leið, að skrá
skipin þar, sé raunhæfur möguieiki.
Þar virðist vera meiri friður en ann-
ars staðar. Alla vega hljóta menn að
skoða alla möguleika í þessu sam-
bandi. Fyrirtæki eins og Samheiji
Stefán Guðmundsson: dró sæti
númer 50 á alþingi í þriðja sinn f röð.
Stefán Guðmundsson:
Dró í þriðja
sinn sama
sætisnúmerið
í upphafi nýs þings draga þing-
menn um sæti í þingsalnum og ríkir
alltaf dálítil spenna hjá þeim um
hvaða sæti þeir fá.
Stefán Guðmundsson, þingmaður
Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra, dró sæti núm-
er 50. Það væri ekki í frásögur fær-
andi ef þetta væri ekki í þriðja sinn
í röð sem hann dregur þetta sætis-
númer á alþingi - en Stefán er nú að
hefja sitt fimmta kjörtímabil. Og ekki
nóg með það, heldur dró hann sama
sætisnúmer tvisvar í röð fyrstu kjör-
tímabil sín á alþingi.
Stefán var spurður hvort 50 væri
einver happatala hjá honum.
„Nei, ekki svo ég viti til, en ég er
bara lánsamur maður í lífinu. Þetta
sæti í þingsalnum er mitt óskasæti
ég kann alveg einstaklega vel við
mig þama,“ sagði Stefán.
lifir ekki við það að verkfall sé sett
á fyrirtækið einu sinni á ári. Verði
það gert, án þess að gripið verði til
mótleiks, mun það eitt gerast að fyr-
irtækið dregst saman. Það hefur ekki
fjárhagslegt bolmagn til þess að fá á
sig verkfall einu sinni á ári. Enda
þótt skaðinn sé fyrst og fremst fyrir-
tækjanna er alveg ljóst að sá skaði
mun í framhaldinu koma niður á sjó-
mönnunum sjálfum,“ ságði Þor-
steinn Már Baldvinsson.
C3D Dolby Pro Logic
Kannast þú við það að sitja í kvikmyndahús,i [oar sem hljóðið leikur um þig
og þú hefur það ó tilfinningunni að þú sért staddur inn í myndinni?
Þessa tilfinningu getur þú nú fengið heim í stofu með Dolby Pro Logic
útvarpsmagnaranum fró...
JAPISS
BRAUTARHQLTI 2 OG KRINGLUNNI
SIMI 562 5200
að sjálfsögðu
fylgir fjarstýring
magnaranum
Þeir sem kaupa Dolby Pro Logic magnara er boSið
sértilboS á 70W miðjuhátalara og pari af 50W
bakhátölurum á frábæru verði aðeins...
SONY S T R - D 5 1 5
SONY S S - C R 1 0