Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
3
Fréttir
MiðlunartiIIaga sáttasemjara í farmannadeilunni felld:
Tillagan alger-
lega ótímabær
- segir Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavikur
„Eg var andvígur þessari miðlun-
artillögu sáttasemjara. Málin höfðu
ekki verið rædd nóg og því var hún
ótímabær þegar sáttasemjari lagði
hana fram,“ sagði Jónas Garðarsson,
formaður Sjómannafélags Reykja-
víkur, eftir að miðlunartillaga ríkis-
sáttasemjara í deilu undirmanna á
farskipum og viðsemjenda þeirra var
kolfelld.
Atkvæðagreiðsla hefur staðið yfir
í um tvær vikur og voru atkvæði
talin í gær. Af þeim sem rétt höfðu
til þátttöku í atkvæðagreiðslunni
tóku 83 prósent þátt í henni og af
þeim sagði 81 prósent nei en 19 pró-
sent sögðu já. Farmenn sem rétt
höfðu til þátttöku eru 95.
Jónas Garðarsson sagði að nú væri
málið aftur komið til sáttasemjara.
„Hér er allt húsnæöi upptekið og
sökum þessara anna er ekki búist
við að ríkissáttasemjari kalli til
samningafundar í deilunni fyrr en í
vikulokin," sagði Jónas.
Áöur en sáttasemjari lagði fram
miðlunartillöguna hafði verið boðað
til verkfalls og var þaö dagsett. Þess
vegna er sú verkfallsboðun úr gildi
falhn og ef verkfall verður aftur boð-
að verður að gera það með 7 daga
fyrirvara.
„Nei við erum ekki með verkfalls-
boðun tilbúna en við erum aö skoða
máUð í þessu nýja ljósí,“ sagði Jónas
Garðarsson.
Þetta er önnur miðlunartiUagan
sem ríkissáttasemjari hefur lagt
fram í þessum mánuði sem er feUd
fyrir honum. Hin miðlunartillagan
var í kjaradeilu Sleipnismanna.
Bræðurnir
mokveiddu
á línuna
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akuieyri;
„Þetta er auðvitað stórskemmtilegt
þegar svona vel gengur en það er því
miður ekki alltaf," sögðu bræðumir
Guölaugur og Júlíus Bessasynir þeg-
ar þeir komu að landi á Húsavík 1
síðustu viku með um 2 tonn af mjög
vænum þorski á triUunni sinni,
Skýjaborginni ÞH-118.
„Það hefur verið mjög góð veiði aö
undanfomu út af Leirhöfn á Slétt-
unni, reyndar á mjög Utlum bletti."
Suðumes:
Sveitarfélagið
fær 13 íbúðir
Ægir Már Káiasan, DV, Suðumesjum;
Byggingarsjóður verkamanna hef-
ur úthlutað sveitarfélaginu Kefla-
vík-Njarðvík-Höfnum þrettán íbúð-
um til byggingar eða kaupa í félags-
lega húsnæðiskerfmu. Þetta eru sjö
félagslegar leiguíbúðir, flórar félags-
legar kaupleiguíbúðir og tvær al-
mennar kaupleiguíbúðir.
Guðlaugur Bessason hifir fullt kar af vænum þorski upp úr Skýjaborginni.
DV-mynd gk
Bágborið ástand á humarslóðinni við landið:
Kvótinn skert-
ur um 700 tonn
„Fyrsta vísbending bendir til að
það sé miklu minna af humri á ferð-
inni en veriö hefur. Reyndar hefur
það komið fyrir áður að humarinn
hafi ekki gefiö sig í upphafi vertíðar.
Núna er þetta hins vegar gegnum-
gangandi á allri slóðinni. Við erum
því komnir í viðbragðsstöðu," segir
Sólmundur Einarsson, fiskifræðing-
ur á Hafrannsóknastofnun, sem fyrir
skömmu kom úr humarleiðangri
með hafrannsóknaskipinu Dröfn.
Humarvertíðin hófst 20. maí síð-
astliðinn, um viku síðar en venju-
lega. Á síðasta ári mátti veiða um
2.200 tonn en nú leggur Hafrann-
sóknarstofnun til að upphafsveiði-
heimild á næsta ári verið 1500 tonn.
Búast má við tímabundnum friðun-
araðgerðum á veiöislóðinni vegna
bágborins ástands humarstofnsins.
Lítið hefur aflast á humarmiðun-
um síðan veiðar hófust. Veiöislóðin
er sunnanvert við landið, frá Lóns-
dýpi vestur fyrir Eldey og norður að
Jökuldýpi. Skást hefur ástandið ver-
ið hjá Vestmannaeyjabátum.
Að sögn Sólmundar er ofveiði ekki
eina ástæðan fyrir slæmu ástandi á
humarmiðunum. AUt árið um kring
séu stundaðar annars konar veiðar
á slóðinni, bæði með dragnót og flot-
vörpu. Þá togi menn þaö lengi að
undirmálshumar, einkum hrygnur,
lifi ekki af þótt þeim sé sleppt.
„Umhverfið er undir stöðugu álagi.
Núna er þetta opið öllum veiðarfær-
um og engin hvíld á milli. Þetta er
eilíf truflun. Humarinn kemst ekkert
heldur lifir í sínum holum. Sé skaflð
yfir þetta hvað eftir annað raskar það
öllu. í raun og veru ætti að hvíla slóö-
ina á milli þess sem humarveiöar
standa yfír,“ segir Sólmundur.
-kaa
Ibwer
Madntosh
Framtíðin erkomin!
6100/66
174.739
S t g r. á i/ V S K