Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 3 Fréttir MiðlunartiIIaga sáttasemjara í farmannadeilunni felld: Tillagan alger- lega ótímabær - segir Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavikur „Eg var andvígur þessari miðlun- artillögu sáttasemjara. Málin höfðu ekki verið rædd nóg og því var hún ótímabær þegar sáttasemjari lagði hana fram,“ sagði Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykja- víkur, eftir að miðlunartillaga ríkis- sáttasemjara í deilu undirmanna á farskipum og viðsemjenda þeirra var kolfelld. Atkvæðagreiðsla hefur staðið yfir í um tvær vikur og voru atkvæði talin í gær. Af þeim sem rétt höfðu til þátttöku í atkvæðagreiðslunni tóku 83 prósent þátt í henni og af þeim sagði 81 prósent nei en 19 pró- sent sögðu já. Farmenn sem rétt höfðu til þátttöku eru 95. Jónas Garðarsson sagði að nú væri málið aftur komið til sáttasemjara. „Hér er allt húsnæöi upptekið og sökum þessara anna er ekki búist við að ríkissáttasemjari kalli til samningafundar í deilunni fyrr en í vikulokin," sagði Jónas. Áöur en sáttasemjari lagði fram miðlunartillöguna hafði verið boðað til verkfalls og var þaö dagsett. Þess vegna er sú verkfallsboðun úr gildi falhn og ef verkfall verður aftur boð- að verður að gera það með 7 daga fyrirvara. „Nei við erum ekki með verkfalls- boðun tilbúna en við erum aö skoða máUð í þessu nýja ljósí,“ sagði Jónas Garðarsson. Þetta er önnur miðlunartiUagan sem ríkissáttasemjari hefur lagt fram í þessum mánuði sem er feUd fyrir honum. Hin miðlunartillagan var í kjaradeilu Sleipnismanna. Bræðurnir mokveiddu á línuna Gylfi Kiistjánsson, DV, Akuieyri; „Þetta er auðvitað stórskemmtilegt þegar svona vel gengur en það er því miður ekki alltaf," sögðu bræðumir Guölaugur og Júlíus Bessasynir þeg- ar þeir komu að landi á Húsavík 1 síðustu viku með um 2 tonn af mjög vænum þorski á triUunni sinni, Skýjaborginni ÞH-118. „Það hefur verið mjög góð veiði aö undanfomu út af Leirhöfn á Slétt- unni, reyndar á mjög Utlum bletti." Suðumes: Sveitarfélagið fær 13 íbúðir Ægir Már Káiasan, DV, Suðumesjum; Byggingarsjóður verkamanna hef- ur úthlutað sveitarfélaginu Kefla- vík-Njarðvík-Höfnum þrettán íbúð- um til byggingar eða kaupa í félags- lega húsnæðiskerfmu. Þetta eru sjö félagslegar leiguíbúðir, flórar félags- legar kaupleiguíbúðir og tvær al- mennar kaupleiguíbúðir. Guðlaugur Bessason hifir fullt kar af vænum þorski upp úr Skýjaborginni. DV-mynd gk Bágborið ástand á humarslóðinni við landið: Kvótinn skert- ur um 700 tonn „Fyrsta vísbending bendir til að það sé miklu minna af humri á ferð- inni en veriö hefur. Reyndar hefur það komið fyrir áður að humarinn hafi ekki gefiö sig í upphafi vertíðar. Núna er þetta hins vegar gegnum- gangandi á allri slóðinni. Við erum því komnir í viðbragðsstöðu," segir Sólmundur Einarsson, fiskifræðing- ur á Hafrannsóknastofnun, sem fyrir skömmu kom úr humarleiðangri með hafrannsóknaskipinu Dröfn. Humarvertíðin hófst 20. maí síð- astliðinn, um viku síðar en venju- lega. Á síðasta ári mátti veiða um 2.200 tonn en nú leggur Hafrann- sóknarstofnun til að upphafsveiði- heimild á næsta ári verið 1500 tonn. Búast má við tímabundnum friðun- araðgerðum á veiöislóðinni vegna bágborins ástands humarstofnsins. Lítið hefur aflast á humarmiðun- um síðan veiðar hófust. Veiöislóðin er sunnanvert við landið, frá Lóns- dýpi vestur fyrir Eldey og norður að Jökuldýpi. Skást hefur ástandið ver- ið hjá Vestmannaeyjabátum. Að sögn Sólmundar er ofveiði ekki eina ástæðan fyrir slæmu ástandi á humarmiðunum. AUt árið um kring séu stundaðar annars konar veiðar á slóðinni, bæði með dragnót og flot- vörpu. Þá togi menn þaö lengi að undirmálshumar, einkum hrygnur, lifi ekki af þótt þeim sé sleppt. „Umhverfið er undir stöðugu álagi. Núna er þetta opið öllum veiðarfær- um og engin hvíld á milli. Þetta er eilíf truflun. Humarinn kemst ekkert heldur lifir í sínum holum. Sé skaflð yfir þetta hvað eftir annað raskar það öllu. í raun og veru ætti að hvíla slóö- ina á milli þess sem humarveiöar standa yfír,“ segir Sólmundur. -kaa Ibwer Madntosh Framtíðin erkomin! 6100/66 174.739 S t g r. á i/ V S K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.