Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Blaðsíða 5
ÞRIDJUDAGUR 30. MAÍ 1995
Fréttíx
Vilhjálmur Egilsson um nýstofhuð Evrópusamtök:
Davíð taldi heppi
legra að ég gæf i
ekki kost á mér
Bakarar sömdu efftir
6 stunda verkfall
Bakarasveinar og viðsemjendur
þeirra náðu samkomulagi snemrna
í gærmorgun. Þá bafði verkfall
bakara staðið í 6 kluKkustundfa'.
.; Bákarasvemar fóru fram á aö
prlof þeirra iengdist um þrjá daga
en fengu einn. Þá náðu þeir fram
nökkrum sérkröfum en launa-
hækkunin mun vera á nptum
ASÍ/VSÍ samningsins frá í vetur.
Verkfaili hakarasveina er frestaö
þar til atkvæöagreiðsla hefur farið
fram innan félagsins um þennan
n$a kjarasamning.
„Davið Oddsson kom að máh við
mig og sagði það sína skoðun að hann
teldi það heppilegra að ég gæfi ekki
kost á mér til starfa í þessum samtök-
um. Hann bað mig að hugsa málið.
Fyrst hann fór fram á þetta fannst
mér réttara að verða við því frekar
en að búa til eitthvert ergelsi fyrir
mig eða samtökin," sagði Vilhjálmur
Egilsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, við DV, en aðstandendur
nýstofnaðra Evrópusamtaka báðu
hann að sitja í fulltrúaráði samtak-
anna.
Ólafur Stephensen, formaður sam-
takanna, hélt því fram á stofnfundin-
um að forystumenn srjórnmálaflokk-
anna hefðu meinað nokkrum þing-
mönnum sínum að taka þátt í starfi
samtakanna.
Vilhjálmm- sagði að þessi ákvörðun
breytti engu um skoðanir sínar á
Evrópumálum, hann væri eftir sem
áður á því að íslendingar ættu að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu.
„Það er gott að þessi samtök eru
komin af stað. Ég get tekið þátt í
starfi þeirra þótt ég sitji ekki í full-
trúaráðinu. Auk þess hef ég næg til-
efni til að koma skoðunum mínum á
framfæri í Evrópumálum, hvort sem
er innan samtakanna eða utan
þeirra,"sagðiVilhjálmur. -bjb
Þessum bíl hefur veriö ekið 105 þúsund km frá því hann var tekinn i notkun
tii ferða milli Reykja vikur og Hornafjaröar fyrir 10 mánuðum. DV-mynd Júlia
Landslagsmyndir á
vöruflutningabíl
Júlía Imsland, DV, Homa&rði:
Einn af vöruflutningavögnum
Kaupfélags Austur-Skaftfellinga hef-
ur verið myndskreyttur á báðum
hiiðum með myndum frá Hornaflrði.
Þessa ágætu hugmynd fékk Björn
Jónsson hjá vöruafgreiðslu KASK og
fyrirtækið Pamfíll í Reykjavík sá um
verkið. Myndirnar tóku Ragnar Th.
og Sigurjón Sigurðsson.
Mikil aukning hefur orðið á flutn-
ingum með bílum miUi Hornafjarðar
og Reykjavíkur og er KASK með tvo
flutningabíla á þessari leið.
Skrásetningargjald Háskóla íslands:
Nýir útreikningar
til umboðsmanns
„Við verðmn við tilmælum um-
boðsmanns Alþingjs um að telja
fram kostnaðarhði, vissulega í víð-
ari skilningi orðsins, sem við telj-
um að megi fella undir kostnað sem
hlýst af skráðum nemanda í skól-
anum," segir Sveinbjörn Björnsson
háskólarektor.
Umboðsmaður Alþingis skilaði
nýlega áhti í tilefni kvörtunar nem-
anda Háskólans vegna skólagjalda.
Umboðsmaður telur að Háskólan-
um sé heimilt að innheimta skrá-
setningargjöld en í þeim megi ekki
felast skattlagning. Lítur umboðs-
maður syo á að skrásetningargjald-
ið hafi ekki mátt vera hærra en sem
nemur kostnaði á þeirri þjónustu
sem veitt er. Hins vegar sé fjárhæð
gjaldsins byggð á sjónarmiðum um
öflun tekna til að standa undir al-
mennum kostnaði við yflrstjórn
skólans. Skrásetningargjaldið hafi
verið byggt á lögmætum sjónar-
miðum en óljóst sé hvort það hafi
verið of hátt. Til að fá úr því skorið
beinir umboösmaður þehn tilmæl-
um til Háskólans að reikna út fjár-
hæð skrásetningargjalds í sam-
ræmi við ofangreind sjónarmið.
„Umboðsmaður mun væntanlega
segja áht sitt á okkar útreikning-
um. Ef umboðsmaður tekur okkar
rök ekki gild munum við óska eftir
að annað hvort gerist - að Alþingi
veiti fé sem nemur þeim mun sem
er á heimild okkar til að innheimta
skrásetningargjöld og þess sem að
umboðsmaður teldi rétt að við
tækjum eða þá að Alþingj breytti
lögum um Háskóla íslands.þannig
að hann fengi heimild til að inn-
heimta þessi skrásetningargjöld,"
segirSveinbjörn. -pp
Háskólinn hyggst rökstyðja betur innheimtu skráningargjalds nemenda.
Skipalyftan leigð
Daníel Ólafsson, DV, Akranesi:
Verið er að ganga frá samningum
milli Hafnarsjóðs Akraness og Skipa-
smíðastöðvar Þorgeirs og EUerts hf.
um að stöðin taki á leigu skipalyft-
una sem hafnarsjóður eignaðist við
gjaldþrot Þorgeirs og Ellerts hf.
Nýi tölvuleikurjnn frá Virgin á kynningarveröi.
Aðeins kr. 4.499,-
Kringlunni
Laugavegi 96
stórverslun
Laugavegi 26
S-K-l-F-A-N
FULL BÚO AF HJÓLUM
Á FRÁBÆRU VERÐI!
Um 200 mismunandi tegundir,
stærbir og litir af rei&hjólum.
Vöndub, traust hjól frá
viburkenndum framleibendum.
Hjólin eru afhent samsett og stillt
á fullkomnu reibhjólaverkstæbi.
Á okkar hjólum er árs ábyrgb og frí
upphersla eftir einn mánub.
BARNAHjÓL*
» frá kr. 9.600?
stgr. kr. 9.120.
FJALl
IOL
Herra- og dömusteil.
18 gíra, verb frá kr. 20.900, stgr. 19.855.
21 gíra, verb frá kr. 25.900, stgr. 24.605.
Topp merkin:
GIANT
SCOTT
BRONCO
SCHWINN
EUROSTAR
DIAMOND
ITALTRIKE
VIVI
Varahlutir og aukahlutir: Hjálmar,
barnastólar, bjöllur, brúsar, töskur,
dekk, slöngur, hrabamælar, Ijós og
flest annab, sem þig vantar á hjólib.
DÖMUHJOL
^;..~
• •
ÞRIHJOL
V /" \
Verö frá kr. 3.450.
Sendum
í póstkröfu.
3 gíra, verð frá kr. 23.900, stgr. 22.705.
18 gíra meo öllu, verb frá kr. 28.900, stgr. 27.455.
Kreditkort og greiðslusamningar. Ármúia 40 - símar 35320 og 688860
l/erslunin XÍy
amrkIð