Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 9 Utlönd fomíubúateliir Ruönings- hetjan O.J. Simpson á sér formælendur fáa heima í Kaliforníu þar sem sífellt fleiri telja líklegra aö hann sé sekur um að hafa myrt eiginkonu sína fymrerandi og ástmann hennar í fyrra. í nýrri skoöanakönnun kemur fram að 75 prósent aöspuröra telja að Simpson sé mjög svo lík- lega eða fremur líklega sekur um morðin. Æ fleiri eru hins vegar í vafa um að kviödómurinn komist að einróma niðurstöðu í málinu. Í júlí í fyrra töldu 58 prósent Kalifomíubúa aö Simpson væri sekur. Líkinekkiaf frönskuferða- mönnunum Prönsk stjórnvöld sögöu í gær að graílr, sem fundust í Casa- mance-héraði í Senegal þar sem aðskilnaöarsinnar ráða ríkjum, væru ekki graflr fjögurra fran skra feröamanna sem hafa verið týndir í nærri tvo mánuði. Grafirnar voru nálægt staö þar sem bílaleigubill ferðamannanna fannst um helgina falinn í „helg- um skógi“, stað sem ókunnugir fara til upp á eigin ábyrgö, sam- kvæmt gamalli trúa heimamanna í Vestur-Afriku. Tvö lík voru grafm upp í gær og var flogið meö þau til Dakar, höfuðborgar Senegals, til rann- sóknar. Aöskilnaöarsinnar í Casa- mance neita aö hafa átt nokkurn þátt í hvarfi ferðamannanna. Malaví-Banda of heilsuveillfyrir réttarhöld Kamuzu Banda, fyrrum forseti og ein-: valdur í Aftiku- : ríkinu Malaví, er ekki í standi til að koma fyr- ir rétt vegna morðákæruþar sem heili hans hefur skroppið saman, hann er næstum heyrnar- laus og mundi ekki skilja það sem fram færi. Banda er kominn á tí- ræöisaldurinn. Þetta er niðurstaða neíhdar þriggja lækna aö lokinni rannsókn á forsetanum fvriverandi sem er ákærður fyrir aö hafa myrt fjóra andstæðinga sina árið 1983, „Við erum allir sammála um að Banda sé ekki í standi til aö koma tyrir rétt. Hann er fjörgam- all maöur," segir meðal annars í skýrslu læknanna. Reuter Sameinuðu þjóðimar og NATO fá það óþvegið frá Bosníu-Serbum: Serbar rifta öll- um samningum Leiðtogar Bosníu-Serba hafa rift öll- um samningum sínum við Samein- uðu þjóðirnar á þeim forsendum að SÞ hafi tekið afstöðu með Bosníu- stjóm, óvini þeirra, í stríðinu. „Vegna sviviröilegrar afskiptasemi í átökunum og afstööu SÞ og NATO með öðram deiluaðilanum lýsum við yfir því að allar ályktanir Öryggis- ráðs SÞ, allir úrslitakostir NATO og allir samningar við SÞ, sem hafa ver- ið misnotaðir, séu dauðir og ómerk- ir,“ sagði í yfirlýsingu sem leiðtogar Serba sendu frá sér í höfuðstöðvum sínum í Pale, skammt frá höfuðborg- inni Sargjevo. Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Rúss- landi, Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi náöu samkomulagi um það í nótt aö styrkja friðargæslu- NATO-hersveitir tilbúnar til aðqerða í Bosníu Nærri 4.500 flugmenn, sjóliðar og hermenn frá 12 löndum NATO eru tilbúnir til aðgerða í fyrrum Júgóslavíu, að sögn embættismanna Vesturveldanna Tengja heilann við tölvu Bresk rannsókn sýnir aö vísinda- menn muni geta tengt mannsheilann beint viö tölvu innan næstu fimmtíu ára. Um 2020 munu vísindamenn byrja aö þróa aðferðir til aö tengja öflugar silíkonflögur beint við mannsheilann, mögulega með því að rækta taugafrumur í flögunum. Verði þetta aö veruleika mun fólk geta látið koma heilum alfræöibók- um fyrir í heilanum á sér með ígræðslueinnarsilíkonflögu. Reuter sveitir SÞ í Bosníu og hvöttu jafn- framt Bosníu-Serba til aö láta friöar- gæsluliða SÞ, sem þeir halda í gísl- ingu, lausa eða taka afleiðingunum ella. Utanríkisráöherrar landanna ákváðu hins vegar aö leggja ofur- kapp á að leysa deiluna á friðsamleg- an hátt. Bosníu-Serbar tóku nærri fjögur hundruð hermenn SÞ og óvopnaða eftirlitsmenn samtakanna í gíslingu eða umkringdu þá eftir loftárásir flugvéla NATO á vopnageymslur þeirra við Sarajevo. Sjónvarp Bosníu-Serba sýndu í gær myndir af breskum friðargæslulið- um sem Serbar hafa í haldi og virð- ist sem þeir hafi afhent vopn sín. í sjónvarpinu voru bresku her- mennimir kallaðir „stríðsfangar“ og voru þeir sakaðir um að hafa lagt stjórnarher Bosníu lið í Gorazde- héraði í austurhluta Bosníu. Bosniu-Serbar hafa krafist trygg- inga fyrir því að NATO geri ekki fleiri loftárásir og segjast ætla að halda gæsluliðunum þar til SÞ gefi eftir. Herforingi Serbanna, Ratko Mladic, sagði að gæsluliðarnir væru ekki lengur hlekkjaðir við líkleg skotmörk NATO en þeir yrðu áfram við hernaöarlega mikilvæg mann- virki til að koma í veg fyrir frekari árásir. Reuter 21. leikvika 27 maí 1995 Nr. Leikur: Röðin 1. Degerfors - Norrköping - -2 2. Djurgárden - Örebro 1 - - 3. Göteborg - Helsingbrg -X- 4. Halmstad - Hammarby 1 -- 5. Malmö FF-AIK -X- 6. Frölunda - Örgryte - -2 7. Öster - Trelleborg 1 -.- 8. Brage - Brommapoj. 1 -- 9. Luleá - GIF Sundsv 1 - - 10. Visby-Gefle 1 11. Vásby - Assyriska 1 12. Elfsborg - Landskrona 1 13. Myresjö - Skövde 1 Heildarvinningsupphæð: 71 mllllónlr Ágreiningur var í færeyska lög- þinginu í gær um afgreiðslu bankamálsins en danska ríkis- stjómin hefur lagt fram tillögu um aö skipuð vérði nefnd sér- fræðinga sem rannsaki málið í stað þess að það verðí rannsakað fvrir dómi. Þrátt fyrfr mótbárur nokkurra þingmanna var ákveð- ið aö fresta afgreiðslu á tillögu dönsku rikisstjómarinnar þar til í dag í von um aö fram kæmu breytingartillögur af hálfu Dana og Færeyingar gætu sætt síg við málsmeðferðina. Færeyingar hafa meðal amiars krafist munn- legra yfirheyrslna fyrir opnum tjöldum. Þeir þingmenn sem vildu taka málið strax á dagskrá óttuðust að með frestun myndu Danir halda að Færeyingar vildu alls ekki að málið yrði rannsakað. Grænlands- versluninni Ríkisfyrirtækið Grænlands- verslunin (Grönlands Handel) var rekiö með 1290 milijóna króna tapi á síðasta ári. Orsak- imar mun vera að finna í röö samfélagsverkefna auk dýrrar endm-skipulagningar. Verslunin á í miklum lausafjárserfiðleikum. Hefur hún óskað samtals 1900 milljóna króna yfirdráttar í grænlensku böukunum tveimur og 900 milljóna króna yfirdráttar hjáheimastjóminni. RB 21. leikvika 28. maí 1995 | Nr. Lelkur: Rööln 1. Roma - Juventus 1 - - 2. Parma - Fiorentina 1 -- 3. Sampdoria - Inter -X- 4. Cagliari - Napoli --2 5. Foggia - Lazio --2 6. Padova - Genoa -X- 7. Milan - Bari - -2 8. Brescia - Cremonese - -2 9. Torino - Reggiana 1 - - 10. Vicenza - Perugia 1 - - 11. Como - Cesena 1 - - 12. Udinese - Salernitan -X- 113. Ancona - Chievo - -2 Heildarvinningsupphæð: 7,6 mllljónlr 13 réttirf 12 réttirf 11 réttirf 10 réttiri 106.160 6.510 1.130 3 kr. kr. kr. kr. Alveg Einstök Gæði SUMARTILBOD Þegar gamla ryksugan sýgur sitt síBasta, þá er kominn tími til að endurnýja. Er jbó ekki tilvalið oð skoða AEG möguleikana. Mí» i' n'Ryksuga Vampyr 7400 1400 w. Þrjár sogstillingar. Sexföld síun.Ultrafilter skilar 99.97% hreinu lofti. Pokastærð 4 L. Inndraganleg snúra. Lengjanlegt sogrör. Fylgihlutageymsla. Verb á&ur 18.720,- eða 17.789,- stgr. Verö nú 15.900,- stgr. B R Æ Ð U R N I R DIORMSSONHF Lágmúla 8, Sími 553 8820

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.