Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 Fréttir Veiðar íslendinga á Svalbarðasvæðinu fyrir hæstarétt Noregs: Út í hött að Norðmenn taki sér einkarétt til veiðanna „Norömenn hafa tekið sér einka- rétt tii veiöa á Svaibarðasvæðinu og það er að mínu viti út í hött. Verði niðurstaðan sú að Björgúlfi hafi ver- ið heimilt að veiða þar yrði mjög erf- itt fyrir Norðmenn að neita íslend- ingum um kvóta á Svalbarðasvæð- inu,“ segir Brynjar Ostgárd, fyrrum verjandi útgerðar Björgúlfs EA í málaferlum vegna veiða skipsins á fiskvemdarsvæðinu við Svalbarða. Östgard hefur verið skipaður dóm- ari við áfrýjunardómstól í Norður- Noregi og er því hættur sem verjandi íslensku útgerðanna. Hann segir að málinu hafi nú verið áfrýjað til hæstaréttar og hann sé sannfærður um að samþykkt verði að taka það fyrir þar. Ákvörðun í haust „Öll mál sem tekin em fyrir í hæstarétti hér verða að skoðast með það fyrir augum að þau standist þær kröfur sem gerðar era til mála sem þangað fara. Þau mál sem hæstirétt- ur tekur á verða aö hafa fordæmis- gildi og ég er viss um að Björgúifs- málinu verður hleypt inn þar sem þar er tekið á grundvallaratriðum. “ segir Brynjar 0stgárd, dómari og fyrrum verjandi Björgúlfs EA Ostgárd segir að niðurstaða hæsta- réttar Noregs vegna málsins liggi væntanlega fyrir í haust. Hann segir að málið sé snúið fyrir norska dóm- stóla þar sem þeir megi ekki dæma nema samkvæmt norskum lögum sem þýði að þeir geti ekki dæmt sam- kvæmt Svalbarðasáttmálanum. „Það er grundvallarspuming í mál- inu hvort Svalbarðasamningurinn heimilar íslendingum veiðar innan lögsögu Svaibarða til jafns við Norð- menn. Svalbaröasamningurinn veit- ir öllum aðildarþjóðum hans jafnan aðgang að miðunum umhverfis Sval- barða. Þetta gildir um þá sem hafa staðfest samkomulagið og það gerðu íslendingar á síöasta ári,“ segir 0stgárd. Hann segir að það sem allt snúist nú um sé með hvaða hætti hæstirétt- ur Noregs taki á málinu. „Það er mögulegt að hæstiréttur taki þá ákvörðun aö dæma á grund- velli þess að skipið hafi verið með ólögleg veiðarfæri fremur en aö taka á grandvallarþættinum sem snýr að því hvort skipið hafi mátt veiða á svæðinu. Þá er einnig mögulegt að þeir verði dæmdir fyrir að tilkynna Brynjar Ostgárd, dómari í Noregi og fyrrum verjandi Björgúlfs EA, segir að erfitt verði fyrir Norðmenn að standa gegn þvi að íslendingar fái kvóta á Svalbarðasvæðinu. Hann telur fráleitt að Norðmenn geti tekið sér einka- rétt til veiða á þessum slóðum. DV-mynd Reynir sig ekki inn á svæðið. Það er í raun sama hver niðurstaðan verður; það veröur hægt að vísa henni til Al- þjóðadómstólsins," segir 0stgárd. Tekjur upp á 2,5 milijarða? Hann segir að komi til þess að Norðmenn tapi málinu verði þeir að skipta veiðum á svæðinu með öðram aðildarþjóðum. Veiðar í Barentshafi vora áður en hraniö varð fyrir 1987 á bilinu 900 þúsund tonn til 1,2 millj- ónir tonna af þorski á ári. Á Sval- barðasvæðinu vora tekin í kringum 20 prósent af þeim afla. Ef gengið er út frá því í dag að 10 þjóðir beri sig eftir þorskveiðum á þessum slóðum þá liggur fyrir að samkvæmt jafn- ræðisreglunni bæri hverri þjóð að fá um 20 þúsunda tonna kvóta. Þar á meðal Islendingar sem fengju þar afla sem gæti gefið um 2,5 milljarða króna í tekjur. Á þessu gæti þó orðið bið þar sem enn er ekki ljóst hvort niðurstaða verður í haust fyrir hæstarétti í Nor- egi eða eftir tvö til þijú ár fyrir Al- þjóðadómstólnum. -rt Raufarhöfn: Fáum von- andi útikörf- Gylfi Kri3tjáns3on, DV, Akureyri; „Við höfum ekki nema þessa einu útikörfu héma og hún er ekki mjög góð,“ sögðu körfuboltastrákamir Ari, Steini, Freyr og Einar sem voru að spila körfubolta á gamla lélega körfu utan á félagsheimilinu á Rauf- arhöfn þegar DV átti leiö þar um. Körfuna, sem er bæði gömul og ryðguö utan á vegg félagsheimilisins, sögðu þeir félagar vera einu útikörf- una í bænum og hún yrði að nægja þeim í bili. „Við höfum þó heyrt að það eigi að setja upp almennilegar útikörfur í sumar og vonandi verður það gert,“ sögðu þeir félagar. í haust verður tekið í notkun nýtt og langþráð íþróttahús á Raufarhöfn sem mun gjörbreyta allri íþróttaað- stöðu þar. „Þaö verður allt annað líf að fá nýja íþróttahúsið. Við reiknum með að íþróttaáhugi muni þá aukast mjög og ætli körfuboltinn verði ekki vinsælastur," sögðu þeir félagar. Selfoss: Garðsláttur hafinn Regína Thorarensen, DV, SeUbssi: Byijað var að slá garða á Selfossi í síðustu viku. Húseigendur og bæj- arfélag hiröa vel lóðir sínar enda mikil keppni um að hafa þær sem fallegastar. Selfossbær er til fyrir- myndar með alla snyrtimennsku og allur bærinn mjög vel hirtur. Ég álykta og veit að hvergi er hugs- að betur um eldri borgara en hér og bamaheimilin era alveg til fyrir- myndar. Ari, Steinl, Freyr og Einar vió körfruna á vegg félagsheimilisins á Raufarhöfn. DV-mynd gk Skipulagsstjóri ríkisins: Stöðvaber framkvæmdir við víkingahof ið Skipulagsstjóri ríkisins telur að stafbygging ofan á aðra hæð Fjöra- garðsins við Strandgötu í Hafnarfirði samræmist ekki staöfestu deiiiskipu- lagi þar sem aðeins sé gert ráð fyrir einni hæð á tengibyggingu milli húsa í Fjöragarðinum, samkvæmt deili- skipulagi. í bréfi frá skipulagsstjóra til um- hverfisráðuneytisins segir að bygg- ingamefnd beri að ganga úr skugga um að fyrirhuguð bygging sé í sam- ræmi við deiliskipulag áður en bygg- ingarleyfi er veitt. Þar sem ekki hafi verið tekið tillit til grenndarkynning- ar beri að stööva framkvæmdina þar til úrskurður umhverfisráðherra Uggur fyrir eða deiliskipulagi hefur verið breytt með formlegum hætti. „Þeir era sammála því að þetta samræmist ekki deiliskipulagi og biðja um að framkvæmdir séu stöðv- aðar,“ segir Ámi Sv. Mathiesen, íbúi við Suðurgötu í Hafnarfirði, en hann kærði byggingamefnd bæjarins fyrir að leyfa byggingu víkingahofs ofan á aðra hæð Fjörugarðsins við Strand- götu í trássi við deiliskipulag og án grenndarkynningar. „Það er fundur í byggingamefnd á miðvikudagsmorgun og þar vérður lögð fram umsögn okkar til umhverf- isráðuneytisins. Tilmæli skipulags- stjóra era bara þau að stöðva fram- kvæmdir meðan á þessu ferli stend- ur. Það er gefið í skyn að byggingin samræmist ekki deiliskipulagi með- an ekki hafi verið gerðar breytingar á skipulaginu. Bæjarstjóm hefur í hendi sér aö gera tillögur um breyt- ingar," segir Ellert Borgar Þorvalds- son, formaður byggingamefndar í Hafnarfirði. Búist er við að umhverfisráðherra kveði upp úrskurð fljótlega. -GHS BensínafgreiðslU' Danití ÓlaÍBOn, ÐV, Akrane®: Eins og DV greindi frá fyrir stuttu var mikil óánægja meðal bensínaf- greiðslumanna með uppsagnir bjá Skeijungi en raáiin skýrðust betur síðastliðinn föstudag. Tveír bensín- afgreiöslumenn haía verið endur- ráðnir, einn hætör í júlí vegna ald- urs og annar í október af sömu ástæðu. Þá hafa áætlanir Skeljungs um sjálfsafgreiöslu verið lagöar á hilluna í biii. Nýja bensinstöðin verður tekin í notkun um miðjan júní og hefur alit starfsfólk sem þar mun vinna verið ráðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.