Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
13
Meiming
Samsf illtir strengir
Tveir af okkar ágætustu hljóðfæra-
leikurum, þær Guðný Guömundsdótt-
ir og Sigrún Eðvaldsdóttir íiðluleikar-
ar, efndu til tónleika ásamt Peter Maté
píanóleikara sl. sunnudag.
Það er svo sannarlega ekki á hverj-
um degi sem við fáum tækifæri til að
Tónlist
Askell Másson
heyra í tveim fiðluleikurum leika sam-
an, hvað þá slíkum fiðlurum sem þær
Sigrún og Guöný eru.
Tónhstin er þar af leiðandi sjald-
heyrð en ánægjulegt var að heyra hve
góð tónhst er til fyrir tvær fiðlur.
Tónleikamir hófust á Sónötu nr. 5
fyrir tvær fiðlur eftir barokktónskáld-
ið Jean-Marie Leclair. Ferill Leclair
var óvenjulegur. Hann vakti fyrst at-
hygh sem ballettdansari og bahett-
stjórnandi, síöar sem fiðluleikari og
upp úr fertugu helgaði hann tónsmið-
um tíma sinn. Sónata hans, sem þær
Guðný og Sigrún léku, er í þrem þátt-
um og er hún bæði vel og skemmtilega
skrifuð fyrir hljóðfærin. Hún gerir þó
nokkrar kröfur th flytjendanna, en að
þessu sinni var hún leikin létt og leik-
andi.
Næst heyrðum við tíu af 44 dúettum
eftir Béla Bartók. Bartók var mikill
þjóðlagasafnari og bera mörg verka
hans þess sterk merki hve mjög þjóðla-
gatónhst átti hug hans og eru dúettarn-
ir þar engin undantekning. Dansar,
leikur og skemmtilegar laghnur ein-
kenna þessa dúetta sem þær Sigrún
og Guðný fóru geysiskemmtilega með.
Sónata óp. 56 fyrir tvær fiðlur eftir
Sergei Prokofiev var síðasta verk fyrir
hlé. Þetta er meistaralega skrifuð tón-
Guðný Guðmundsdóttir og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikarar
léku við undirleik Peters Maté píanóleikara.
smíð sem spannar ótrúlega vítt tilfinn-
ingasvið, enda voru flytjendurnir hér
sérlega gefandi.
Eftir hlé slóst Peter Maté í hópinn
og léku þau fyrst Svítu op. 71 fyrir tvær
fiðlur og píanó eftir Maurice
Moszkowski. Fyrsti og þriðji þátturinn
búa yfir nokkuð fallegum laghnum og
píanóhlutverkið er krefjandi, einkum
í síðasta þættinum. Gaman var að
kynnast þessu verki, einkum i þeim
frábæra flutningi sem þetta tríó skilaði
hér.
Síðasta verkið var eins konar „sýn-
ingarnúmer", en það var Navarra -
spán9kur dans op. 33 fyrir tvær fiðlur
og píanó eftir Pablo de Sarasate. Luku
flytjendumir góðum tónleikum með
dihandi skemmtilegri tæknisýningu
þar sem hvergi bar skugga á glæsileik-
ann. Vonandi sér þetta frábæra tónlist-
arfólk sér fært að halda áfram sam-
starfi.
Tónn sem helst...
Að fljóta með þér/á laufblaði/út í bláinn. Þann-
ig hljómar stysta ljóð Thors Vhhjálmssonar í
nýútkominni Ijóðabók hans, Snöggfærðar sýnir,
einfalt en sterkt og vekur upp ahs kyns hugleið-
ingar. Hugleiðingar um ástina eða frelsi hugans
sem fleytir manni yfir ahar mögulegar og
ómögulegar hindranir. Og hvað höfundinn
varðar þá lætur hann tungumáhð ekki binda
sig á klafa nú fremur en endranær, skýst með
lesendur sína út í bláinn, út á hið freyðandi haf
í upphafi bókarinnar í ljóðabálknum „Thalatta:
Fimm ljóð um hafið“:
Sær
sær á mannlausa dranga öskrar
að mannauðum vitahúsum
að vofum sem í hár þeirra féhu flögur af hvítu
máh
friðugt sem í gærdagsins kjassandi þey
Þannig opnar Thor bók sína á dæmigerðan
Thorslegan máta, málfarið er þungt og upphaf-
iö, orðin sett í óvenjulegt en um leið myndrænt
samhengi. Textinn er fagur en kaldur eins og
særinn sem „lemur húsið grátt“. Ljóðið fjallar
um einsemd manneskjunnar og vanmátt and-
spænis ægivaldi náttúrunnar, magnað og
kraftmikið ljóð en um leið dáhtið uppskrúfað
og fjarlægt, a.m.k. samanborið við ljóðin í seinni
hluta bókar sem eru sum hver bæði faheg og
persónuleg. Þar get ég t.d. nefnt „Vísu“ á bls.
41, „Eitt sinn hét hann... “ (47) og síðasta ljóð
bókarinnar, „Sértu". Fyrstu tvö erindi þess ljóðs
hljóma svona:
Sértu ekki farin héðan burt
sértu hérna megin fljótsins enn
sértu enn með ljós í brosi hér
að lýsa mér um svala og dimma nótt
Þá skal ég líka á háls þinn anda laust
þá skal ég líka breiða hár þitt mjúkt
Thor Vilhjálmsson.
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
yfir augu mín og vaka undir því
og vita hvort þú heyrir hjartað slá
Og síðar í ljóðinu segir: „í mínum faðmi á
spegh skaltu dansa/í aha nótt og alveg fram á
vor“. í myndmáh nokkurra ljóða má greina
hugleiðingar um tímann sem engu eirir og notar
höfundur gjarnan náttúrumyndir th að koma
þeim hugleiðingum á framfæri. Tónn þeirra
ljóða (t.d. „Um minningarstigu" (35), „Lómur-
inn“ (45), „Eitt sinn hét hann... “ og „Haust“
(49)) er heihandi æðrulaus en um leið þrunginn
depurð. Því er það dáhtið skemmtheg (thvilj-
un?) aö höfundurinn skuh ljúka bók sinni á því
káta ljóði „Sértu" þar sem hann dansar burtu
með lesandann frá öhum heimsins sorgum! En
ég held ég megi fullvissa lesendur um að þótt
þeir fari burtu um stundarsakir eiga þeir örugg-
lega afturkvæmt inn í þessi Ijóð sem eru ekki
„Snöggfærðar sýnir sem leiftra og loga/unz lið-
ast þær sundur og gliðnandi eimur/vefst þá um
ása, vart nema keimur/í vitund þér lifir" eins
og segir í „Vísu“ á bls. 25! Mörg ljóðanna, sér-
staklega þau sem einlægust eru, eiga eftir að
lifa í vitund þessa lesanda sem kemur th með
að opna bókina oft, þó ekki sé nema th þess að
rifja upp ljóðið sem ber þann sérstæða tith:
„Tónn sem helzt í tvær og hálfa mínútu, úr skál-
klukku (í fis-moh)“ (37):
Þytur í þessum stráum
shtnum á bakka
þessa lækjar sem rennur hjá
í hendi þér þessi fáu strá
Syngur golan sem bar þig hvurt
enn í þessum gulnuðu stráum
sem ég hélt eftir
á eftir þér sem fórst burt
Engu öðru hélt ég á
utan þyt í þessum stráum.
Thor Vilhjálmsson
Snöggfærðar sýnir
Mál og menning 1995
íslendingar. Þarf ekki að kanna meint
lögbrot æðstu embættismanna réttar-
kerfisins nú, þegar dómarafulltrúar
hafa verið settir af? Bókin Skýrsla um
samfélag upplýsir. Útg.
Talaðy vlð okkur um
BÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
VINNINGAR
FJÖLDI
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ A HVERN
VINNINGSHAFA
1.S
2.274.520
88.550
3. 4 af 5
308
2.470
4.;
3.540
500
Heildarvinningsupphæð:
7.522.550
BIRT MEb FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
T-T E3T
L I
HÚS & GARÐAR
///////////////////////////////
16 síðna aukablað um hús og garða
fylgir DV á morgun.
Meðal efnis:
* Sumarblómin (gróðursetning og umhirða)
* Margt um rósir
* Verkfæri í garðinn
* Eitrun gegn maðki og illgresi
* Bekkir og borð í garðinn eða sumarhúsið
* Og margt fleira