Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ1995
Sviðsljós
.A
Rollingarnir ótengd-
ir í Amsterdam
Mick Jagger og Ronnie Wood láta gamminn geisa á ótengdum eða unplugged tónleikum
innar í Amsterdam um helgina.
MTV-sjónvarpsstöðvar-
Simamynd Reuter
barbecooK
QlH.1l 9CA
mm 1 imW
Viö leitum til þín eftir slagorði fyrir Barbecook
Grlll-strompinn! Taktu þátt í þessari
skemmtilegu leit meö því aö hringja í síma
99-1750 og leggja inn þína tillögu. þú getur
lagt inn eins margar tillögur og þú vilt.
Barbecook Grill-strompurinn er bylting á
íslandi fyrir griUáhugamenn sem vilja fá hiö
ómissandi kolagrillbragð af matnum. Grillið
sameinar það besta úr kola- og gasgrillum
því grillið nýtir kolin betur, gerir fólki kleift
að grilla í hvaða veðri sem er og gefur hið
ekta grillbragð. Barbecook Grill-strompurinn
er náttúruvænn því það þarf engin kemísk
efni, eins ogt.d. grillolíu, til þess að kveikja
uþp í grillinu og grillið er tilbúið á innan við
15 mínútum.
Verðlaun:
Glæsileg verölaun eru í boði fyrir heppna þátttakendur.
Meðal annars hlýtur eigandi besta slagorðsins 10
manna grillveislu sem Klúbbur matreiðslumeistara sér
um. Matreitt verður á Barbecook Grill-strompinum sem
síðan verður skilinn eftir hjá vinningshafa.
Þú getur lagt inn slagorö tll 16. júní.
Pylévabœjwi
jfítfffr
dieinz>
Þó gamlir séu og hálfgráhærðir eru
meðlimir gömlu rokkhljómsveitar-
innar The Rolling Stones ekkert á
því að leggja upp laupana. Rúllandi
steinar safna ekki mosa. Jagger, Ric-
hards og félagar spila af sama krafti
og væru þeir táningar og draga að
sér stóra áhorfendaskara í hvert sinn
þegar þeir halda tónleika. Eins og svo
margar aðrar rokkstjörnur ákváðu
Rollingarnir að vera með í órafmagn-
aðri eða ótengdri þáttaröð sjónvarps-
stöðvarinnar MTV, Unplugged. Upp-
tökur fóru fram nú um helgina á
þekktum hljómleikastað í Amster-
dam sem nefnist Paradiso. Þar léku
þeir ganúingjar við hvern sinn fingur
og virtist spilamennskan falla í góð-
an jarðveg hjá gestum.
Boy George:
Guði sé lof
að ég tók
ekki of stór-
anskammt
Breski popparinn Boy George sagði
eitt sinn um sjálfan sig, með stríðn-
istóni í röddinni, að hann vildi miklu
heldur fá sér einn tebolla en stunda
kynlíf. Þá sagði hann í viðtali við
bresk æsifréttablöð: „Ég tek ekki
nein eiturlyf og hef aldrei gert."
Það er bara ekki rétt og Boy George
viðurkennir það í nýrri og opin-
skárri sjálfsævisögu sinni, Take it
like a Man. Þar kemur fram að hann
hafi nærst á kynhfi, eiturlyfjum og
rokki og róli þegar hann var á há-
tindi frægðarinnar. Síðan eru mörg
ár.
„Ég keypti eiturlyf eins og ég væri
að kaupa tískufót. Það er bara fyrir
mildi og miskunn guös að ég tók aldr-
ei of stóran skammt," segir söngvar-
inn sem lagði sig í mikla hættu þegar
hann var að flytja fíkniefnin með sér
milli landa, hvort það var í nærbux-
unum eða hreinlega inni í endaþarm-
inum.
En nú er öldin önnur. Boy George
er orðinn 33 ára gamall, búinn að
fara oftar en einu sinni í meðferð og
er laus undan oki eiturlyfjanna.
Reyndar segir hann í bók sinni að
hann hati fikniefni, notar meira að
segja stóra stafi til að leggja áherslu
á orð sín.
Boy George i þá gömlu góðu daga
þegar hann var á hvers manns vör-
um.
Sjálfsævisagan er skemmtilegust
þegar Boy George sendir öðru frægu
fólki tóninn. Hann segir til dæmis
um söngkonuna Madonnu að hún sé
samkynhneigður karlmaður fastur í
kvenmannslíkama.
Boy George býr nú með íranum
Michael Dunne en hefur átt óteijandi
elskhuga, eins og segir frá í bókinni.
Þar má nefna snoðinkoll og bílaþjóf,
allt í sama manninum, og stæðilegan
hermann með húðflúr um allan
skrokkinn, að ekki sé minnst á Jon
Moss, trommara hljómsveitarinnar
Culture Club sem lék undir hjá Boy
George.
BókumJack-
sonogslekti
Hvers eiga Michaei Jackson og
fiölskylda hans að gjalda? Útgafu-
fyrirtækí í Bandaríkjunum gefur
á næstunni út ævisögu piltsms
og fjöiskyldu hans og heitir hún
Jackson fiölskyldugildin. Sam-
býliskona eins Jackson-hræðr-
anna skrifar bókina í félagi við
annan og verður verkinu hraðað,
Marlon
Brando syrgir
Marlon Brando hefur átt erfitt
að undanförnu vegna sjálfsvígs
dóttur sinnar, Cheyenne. Brando
syrgir dótturina mjög en hann
ætlar samt að hella sér út í kvik-
myndagerð strax í júlímánuöi.
Þá fer hann til írlands að leika í
myndinni Divine Rapture. í haust
er það svo Eyja doktors Moreaus.
Clint stofhar
plötoifyrirtæM
CMnt Eastwood er ékki einasta
frábær leikari og leikstjórt Hann
er lika ágætis djassleikari og
áhugamaður mikill ura þá tónlist
Hann hefur nú stofnað piörufyr-
xrtækið Malpaso Records og
fyrsta platan sem fyrirtækið gef-
nr út verður tónlist úr myndinnJ
um Brýrnar í Madison-sýslu, sem
hann leikur sjálfur í.
MerylStreep
himinlifandi
Leikkonan Meiryl Streep var í
sjöunda hirnni t«gar Ciint
Eastwood valdi bana til að leika
á móti sér i Brúnum í Madison-
sýslu, Ekki svo að skflja að Meryl
hafi verið sérstakiega hrifin af
petsöiuskáldsr^unni sam-
nefndu, aldeilis ekki. Henni
íannst naftdritið að mynaltmi
skárra, enda fáorðara.
4