Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Side 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
Afmæli
Hj álmar Ágústsson
Hjálmar Ágústsson, fyrrv. eftirlits-
maður, Hvassaleiti 58, Reykjavík,
er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Hjálmar er fæddur á Bíldudal og
ólstþarupp.
Hjálmar var verkstjóri hjá Nið-
ursuðuverksmiðjunni hf. á Bíldudal
1953-57 og Hraðfrystihúsi Bílddæl-
inga 1957-70. Hann var verkstjóri
hjá Barðanum í Kópavogi 1971-72
og eftirlitsmaður hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna 1972-90.
Hjálmar var form. sóknamefndar
á Bíldudal 1953-67, í stjóm ogform.
Sjálfstæðisfélags Amfirðinga
1960-67 og kjördæmisráði Sjálfstæð-
isflokksins á Vestfjörðum 1960-64.
Hann fluttist búferlmn frá Bíldudal
til Reykjavíkur eftir hálfrar aldar
búsetu.
Fjölskylda
Hjálmar kvæntist 3.9.1945 Svan-
dísi Ásmundsdóttur, f. 28.6.1925,
skrifstofumanni hjá SH. Foreldrar
hennar: Ásmundur Jónasson,
verkamaður á Bíldudal, og kona
hans, Marta Guðmundsdóttir.
Böm Hjálmars og Svandísar: Jak-
ob Ágúst, f. 17.4.1947, dómkirkju-
prestur, kvæntur Auði Daníelsdótt-
ur, aðalgjaldkera SH, þau eiga þrjá
syni; MartaÁsdís, f. 27.2.1951,
meinatæknir í Reykjavík, gift Þor-
steini A. Jónssyni, deildarstj. í
dómsmálaráðun., þau eiga tvo syni;
Hera, f. 8.10.1954, lyfjafræðingur í
Reykjavík, gift Hafsteini Hafsteins-
syni verkfræðingi, þau eiga tvö
böm.
Systkini Hjálmars: Guðrún Sigríð-
ur, f. 23.5.1914, d. 18.2.1990, gift
Gunnari Þórðarsyni, yfirfiskmats-
manni á ísafirði; Unnur, f. 15.12.
1915, kaupmaður í Reykjavík, gift
Kjartani Jónssyni, fyrrv. kaup-
manni; Amdís, f. 5.9.1917, gift Jóni
Jóhannssyni, verkamanni á Bíldu-
dal; Páll, f. 9.3.1923, d. 2.9.1986,
skólastjóri á Fáskrúðsfiröi, kvænt-
ur Hebu A. Ólafsson; Jakob, f. 12.11.
1926, rafveitustjóri á Ólafsfirði,
kvæntur Álfheiði Jónasdóttur;
Hrafnhildur, f. 27.3.1934, kaupmað-
ur á Patreksfirði, ekkja Ólafs Bær-
ingssonar verktaka. Fóstursystur
Hjálmars: Ingibjörg Ormsdóttir, f.
30.10.1936, verkakona á Bíldudal;
Karolína Sigurðardóttir, f. 19.5.1909,
látin, gift Theodóri Ólafssyni, versl-
unarmanni í Reykjavík.
Foreldrar Hjálmars: Ágúst Sig-
urðsson, f. 13.8.1886, d. 18.2.1943,
verslunarstjóri á Bíldudal, og kona
hans, Jakobína Pálsdóttir, f. 15.10.
1892, d. 18.2.1943.
Ætt
Ágúst var bróðir Jakobs, afa Gísla
Alfreðssonar, fyrrv. þjóðleikhús-
stjóra. Ágúst var sonur Sigurðar b.
á Desjamýri, bróður Sæmundar,
langafa Björgvins, fóður Sighvats
alþingismanns. Sæmundurvar
einnig langafi Gríms M. Helgasonar,
forstöðumanns handritadeildar
Landsbókasafnsins. Sigurðurvar
sonur Árna, b. í Stokkhólma í
Skagafirði, Sigurðssonar, og konu
hans, Margrétar Magnúsdóttur,
systur Pálma, langafa Helga Hálf-
dánarsonar skálds, og Péturs, föður
Hannesar skálds. Móðir Ágústar
var Sigríður Sigfúsdóttir, systir
Katrinar, móður Ágústs Ármanns
stórkaupmanns.
Jakobína var systir Guðrúnar,
ömmu Þórðar Þ. Þorbjarnarsonar
borgarverkfræðings og Þorbjöms
Broddasonar dósents. Jakobína var
dóttir Páls alþingismanns og pró-
fasts í Vatnsfirði, Ólafssonar, dóm-
kirkjuprests og alþingismanns,
Pálssonar, prests í Guttormshaga,
Ólafssonar, prests í Eyvindarhól-
um, Pálssonar, bróður Páls, langafa
Guðrúnar, móður Péturs Sigur-
geirssohar biskups. Móðir Páls var
Helga Jónsdóttir „eldprests" Stein-
grímssonar. Móðir Ólafs á Mel var
Kristín Þorvaldsdóttir, prófasts og
skálds í Holti, Böðvarssonar, lan-
Hjálmar Ágústsson.
gafa Finnboga, föður Vigdísar for-
seta. Móðir Páls í Vatnsfirði var
Guðrún Ólafsdóttir Stephensen,
dómsmálaritara í Viðey, og konu
hans, Sigríðar Stefánsdóttur Step-
hensen, systur Stefáns, langafa Þór-
is Stephensen dómkirkjuprests.
Móðir Jakobínu var Amdís, dóttir
Péturs Eggerz, verslunarstjóra á
Borðeyri, og konu hans, Jakobínu
Pálsdóttur Melsteð, systur Ragn-
heiðar, langömmu Ástu, ömmu
Davíðs Oddssonar.
Hjálmar er að heiman.
Rannveig Jóhannesdóttir,
Dvalarheimilinu Höföa, Akranesi.
Snorri D. Halldórsson,
Jökulgrunni lb, Reykjavík.
Pálína Gísladóttir,
Hrísalundi 4e, Akureyri.
60 ára
Jóhanna Stefánsdóttir,
Borgarhöfn 2, Neðribæ, Borgar-
hafnarhreppi.
Pálhildur Guðmundsdóttir,
Hraunbraut 37, Kópavogi.
Már Karlsson,
Hrauni 3, Djúpavogshreppi.
80 ára
75 ára
Ásgrímur Stefánsson,
Flögusíðu 5, Akureyri.
70 ára
50ára
Kristinn Gamah'elsson,
Þórustöðum 2, Ölfushreppi.
Fríðrik Sigurðsson,
Góuholti4, ísafiröi.
Friðjón Kristinsson,
Svarfaðarbraute, Dalvík.
Ingi Einarsson,
Framnesvegi57, Reykjavík.
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Mýrargötu I8a, Neskaupstaö.
Þóra Sigurðardóttir,
Höföagötu 29, Stykkishólmsbæ.
Magnús Annasson,
Tjörn 2, ÞverárhreppL
40ára
Þórhildur Sigurjónsdóttir,
Lyngbergi 35, Hafnarfirði.
Huida Ragnarsdótt ir,
Esjubergi 2, Kjalarneshreppi.
Kristján Hólm Hauksson,
Bröttukinn 33, Hafnarfirði.
Gylfi Guðbjörn Guðjónsson,
Norðurbraut 5, Skagastrond.
Guðbjörg B. Sigfúsdóttir
Guöbjörg Bryndís Sigfúsdóttir hús-
móðir, Þórufelli 10, Reykjavík, er
sextugídag.
Fjölskylda
Guðbjörg er fædd í Reykjavík og
ólst þar upp á Óðinsgötu 30. Hún
hefur unnið ýmis störf en lengst af
vann Guðbjörg í kexverksmiðjunni
Frón. Hún hefur nú látið af störfum
vegnaveikinda.
Guöbjörg giftist 4.12.1965 Oddgeiri
S. Júlíusssyni, f. 6.2.1928, fyrrv.
verkstjóra í kexverksmiðjunni
Frón. Foreldrar hans: Júhus Sól-
bjartsson, f. 24.7.1897, d. 9.7.1977,
og Ágústa Guðrún Sigurgeirsdóttir,
f. 14.8.1905, d. 25.12.1984.
Guðbjörg á eina dóttir af fyrra
hjónabandi. Guðbjörg á tvö fóstur-
böm (böm Oddgeirs af fyrra hjóna-
bandi). Bamabömin eru níu.
Foreldrar Guðbjargar: Sigfús
Gunnlaugsson, f. 2.10.1903, d. 18.11.
Guðbjörg B. Sigfúsdóttir.
1983, bifreiðarstjóri og María Lilja
Brynjólfsdóttir, f. 23.11.1911, d. 8.9.
1969, húsmóðir, þau bjuggu á Óðins-
götu30íReykjavík.
Guðbjörg tekur á móti gestum 10.
júní í sal Fella- og Hólakirkju frá
kl. 16.
JóhannÁ. Oddgeirsson
Jóhann Ágúst Oddgeirsson, verk-
stjóri hjá Ryðvörn hf., Helgalandi
7, Mosfellsbæ, er fimmtugur í dag.
Fjölskylda
Jóhann er fæddur í Grafamesi,
Grundarfirði. Hann hefur verið bú-
settur í Grundarfirðí, Hveragerði,
Reykjavík og í Mosfellsbæ en þar
býr Jóhannnú.
Jóhann kvæntist 12.4.1969 Krist-
ínu Björk Aðalsteinsdóttur, f. 27.6.
1950, leigubifreiðarstjóra. Foreldrar
hennar: Aðalsteinn Bjömsson
leigubifreiðarstjóri og Jóhanna Sig-
ríður Árnadóttir húsmóðir, þau eru
búsettíMosfellsbæ.
Böm Jóhanns og Kristínar Bjark-
ar: Hafþór, f. 9.4.1971, sambýliskona
hans er Þórunn, f. 26.10.1968, þau
eiga eina dóttur, Alexöndm, f. 1.6.
1994; Rósa, f. 28.9.1972, Rósa á tvo
syni, Jóhann Gunnar, f. 13.5.1991,
og Hrannar Má, f. 29.8.1994; Ágústa
Björk, f. 26.5.1974, samhýlismaður
hennar er Einar Júlíus, f. 8.12.1970;
Aðalsteinn, f. 3.1.1985.
Systkini Jóhanns: Kristján, f. 1940;
Kristbjörg, f. 1942; Ásta Erna, f. 1950;
Samúel, f. 1953. Hálfsystir Jóhanns:
Dúna.
Foreldrar Jóhanns: Oddgeir
Kristjánsson, f. 3.9.1913, d. 18.7.1986,
frá Naustum í Eyrarsveit, smiður
og Jóhanna Hallgrímsdóttir, f. 14.12.
1917 í Fljótsdal á Héraði, húsmóðir,
þau skildu, seinni kona Oddgeirs
var Elísabet Matthíasdóttir, f. 20.11.
1914, d. 31.8.1987.
Ætt
Oddgeir var sonur Kristjáns
Skúlasonar frá Eiði í Eyrarsveit og
Steinunnar Jónsdóttur úr Eyrar-
sveit.
Jóhanna er dóttir Hallgríms Frið-
Jóhann Á. Oddgeirsson.
rikssonar frá Hóli í Fljótsdal og
Rósalindar Jóhannsdóttur frá Seyð-
isfirði, þau bjuggu á Vaðbrekku á
Jökuldal og síðan í Reykjavík.
Jóhann tekur á móti gestum á
heimilisínu3.júnífrákl. 18-21.
Andlát________________
Sverrir Guðmundsson
Sverrir Guðmundsson skósmiður,
Hátúni 10, Reykjavík, lést 21. maí.
Hann verður jarðsunginn frá
Kristskirkju, Landakoti, í dag,
þriöjudaginn30. mai, kl. 15. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á
Sjálfsbjörg, Félag fatlaðra í Reykja-
vík.
Starfsferill
Sverrir var fæddur í Reykjavík
28.3.1914. Hann var í námi hjá
Stefáni Gunnarssyni skósmið
1935- 36.
Sverrir var skósmiður í Reykjavík
1936- 83, var lögskipaður 1942 og
fékk síðan meistararéttindi sem
skósmiður.
Sverrir æfði ungur fótbolta með
Víkingi og starfaði að bindindismál-
um og hjá Sjálfsbjörg.
Fjölskylda
Systkin Sverris: Sigurður, f. 14.8.
1900, látinn, ljósmyndari í Reykjavík
og formaður Sjálfsbjargar, fyrri
kona hans var Ingibjörg Guðbjarn-
ardóttir, látin, seinni kona Sigurðar
var Elínborg Guðbjamardóttir, d.
1988; Laufey, f. 1903, látin, var gift
Þorsteini Sveinbjömssyni, d. 1982,
verslunarmapni í Reykjavík; Bene-
dikt, f. 1908, látinn, kjötvinnslumað-
ur á Selfossi, var kvæntur Svandísi
Vilhjálmsdóttim, d. 1988; Guðmund-
ur, f. 1910, d. 1980, dömuklæðskeri í
Reykjavík; Guðríður Bang, f. 1912,
látin, var gift Ole Bang, kaupmanni
í Reykjavík; Haukur, f. 1916, d. 1981,
pressari í Reykjavík; Svanlaug, f.
1918, látin, systir Klemenzína,
nunna og kennari í Landakoti.
Foreldrar Sverris vom Guðmund-
ur Sigurðsson, klæðskeri í Reykja-
vík, og kona hans, Svanlaug Bene-
diktsdóttir.
Ætt
Föðursystir Sverris, sammæðra,
var Birgitta, móðir Jóns Engilberts
hstmálara. Föðursystir Sverris,
samfeðra, var Sigríður, amma ívars
Helgasonarsöngvara. Guðmundur
var sonur Sigurðar, b. á Völlum í
Ölfusi, Þórðarsonar, b. á Gljúfri,
Guðmundssonar. Móðir Þórðar var
Sesselja ljósmóöir Jónsdóttir, b. á
Þóroddsstööum, Magnússonar, b. á
Úlfljótsvatni, Magnússonar, lög-
réttumanns í Árbæ í Holtum, Korts-
sonar, klausturhaldara á Skógum,
Þormóðssonar, klausturhaldara á
Skógum, Kortssonar, kaupmanns,
Lýðssonar frá Hamborg.
Móðursystir Sverris var Guðrún,
amma Ragnars Tómassonar hrl.
Svanlaug var dóttir Benedikts,
verslunarmanns og smiðs í Reykja-
vík, Samsonarsonar, hreppstjóraog
dbrm. á Brekku í Dýrafirði, Sam-
sonarsonar. Móöir Benedikts var
Margrét Gunnlaugsdóttir. Móðir
Margrétar var Oddný Ólafsdóttir.
Móðir Oddnýjar var Margrét, systir
Sverrir Guðmundsson.
Bjöms Olsen, afa Bjöms Olsen rekt-
ors og langafa Margrétar, móður
Auðar og sr. Jóns Auðuns. Annar
bróðirMargrétar var Magnús Berg-
mann, ættfaðir Bergmann-ættar-
innar sunnlensku. Systir Margrétar
var Oddný, móðir Guðrúnar, konu
Björns Blöndal, ættmóðir Blöndals-
ættarinnar. Margrét var dóttir Ól-
afs, b. og hreppstjóra á Vindhæh á
Skagaströnd, Guðmundssonar, og
konu hans, Guðrúnar Guðmunds-
dóttur, „Skagakóngs", b. í Höfnum
á Skaga, Bjömssonar. Móðir Svan-
laugar var Guðríður Tómasdóttir,
b. á Brúsastöðum í Vatnsdal, Jóns-
sonar, og konu hans, Guörúnar
Sveinsdóttur.