Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1995, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995
Spurningin
Hefur þú verið
í verkfaili nýlega?
Eggert Guðmundsson slökkviliðs-
maður: Nei. Ég hef aldrei veriö í
verkfalli.
Sædís Guðmundsdóttir skrifstofu-
maður: Nei, ekki nýlega.
Margrét Steinarsdóttir líffræðingur:
Nei. Ég hef ekki verið í verkfalli,
ekki síðan í BHMR-verkfallinu ’89.
Erling Ingi Sævarsson nemi: Nei. Ég
hef aldrei verið í verkfalli.
Ómar Gísli Sævarsson nemi: Nei,
ekki nema sem þolandi í kennara-
verkfallinu.
Ingigerður Stefánsdóttir leikskóla-
kennari: Nei. Ég hef aldrei verið í
verkfalli en fer kannski í verkfall.
Lesendur
Sauðfjárrækt - á
enn að skera?
„Mitt mat er að á milli sölu á fiski og kjöti sé ekki reginhaf," segir Konráð
í bréfinu.
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Sagt er að laun íjárbóndans ís-
lenska hafi verið á bilinu 25-30 þús-
und kr. á mánuði áriö 1994 en lækki
í 15-20 þúsund 1995. Að öllu óbreyttu
og ef marka má fregnir þá eru menn
enn að tala um niðurskurð á fé vegna
þess að til eru í frystigeymslum
lambskrokkar, sem líklega tekst ekki
að selja á árinu.
Spumingin nú hlýtur því að vera
hvort ekki sé kominn tími til fyrir
aðila að setjast niður og hugsa málin
upp á nýtt. Spyija þeirrar spumingar
hvort ætlunin sé að stunda þennan
búskap áfram eða ekki. Bændur eiga
heimtingu á að fá afdráttarlaus svör.
Velvilji einn dugir ekki í þessu máli.
Þetta er orðað svona hér vegna
þess að ekki gengur stundinni lengur
að draga þessa einu starfsstétt í land-
inu á asnaeymm. Það sem hér hefur
gerst á liðnum áram er aö menn eru
sveltir til uppgjafar og klipiö á
laumulegan hátt af framfærslunni
með þeim afleiðingum að menn yfir-
gefa bú sín og halda burt tómhentir
því að búin eru óseljanleg undir
svona kringumstæðum.
Sú aðferð að slá hring utan um
borgir er vel þekkt fyrirbæri í hem-
aði. En bolabrögð af þessu tagi mis-
bjóða samvisku sérhvers ærlegs
manns. Af þessu má einnig sjá aö
lægstu launin í landinu eru komin
niður fyrir allt sem skynsamlegt má
kalla. Að vísu er þá um meðaltöl að
ræða, en hafa ber í huga að flestir
útreikningar í þjóðfélaginu byggja
einmitt á þessum meðaltalsútreikn-
ingi og laun og annað reiknað út frá
honum. Og þetta er gert þótt menn
viti að meðaltölin gefa fráleitt rétta
mynd af ástandinu. Því miður.
Hið eina sem getur orðið sauðfjár-
ræktinni til bjargar er aukinn út-
flutningur. Sú leið er þó bæði torsótt
og erfið. En spyrja mætti: Því í ósköp-
unum beina menn ekki sjónum sín-
um til okkar öflugu og ágætu fisk-
sölufyrirtækja? Þar er þekkingin,
reynslan og kunnáttan mjög mikil á
markaðsmálum ytra. Einnig hafa
þau gott orð á sér fyrir vandaða vöm.
Nokkuð sem vert er að gefa gaum.
Og hvað mælir á móti því að þar
verði stofnuð deild með það sérsvið
að selja útlendingum íslenskt kjöt?
Mitt mat er að á milli sölu á fiski og
kjöti sé ekki reginhaf. Og í huga
kaupenda fer þetta ágætlega saman.
Og því bendi ég á fisksölufyrirtækin
að ef einhver hefur það bolmagn sem
þarf í þessu máli þá eru það sölusam-
tök fiskafurða réttu aðilamir.
Dómaramistök á knattspyrnuvelli
Uros Ivanocevic skrifar:
Fyrir tveimur árum skrifaði ég
grein í DV um mistök dómara á
knattspyrnuvellinum og hve mikið
þau mistök áttu eftir að kosta. Ná-
kvæmlega það sama gerðist í annarri
umferð íslandsmótsins í knatt-
spymu í leik Leifturs gegn KR á Ól-
afsfirði á dögunum. Þar færði dómari
leiksins, Sæmundur Víglundsson,
KR-ingum sigur á silfurfati með því
að dæma vítaspymu á Leiftur á síð-
ustu mínútunni.
Ég, sem er fyrram atvinnumaður
í knattspymu, hef aldrei á ferli mín-
um séð aöra eins gjöf eins og í þessu
tilviki þegar dómarinn benti á víta-
punktinn. Og ég trúi því í raun ekki
að þjálfari KR hefði dæmt víti hefði
hann verið í sporum dómarans.
Mér datt í hug sá möguleiki að
dómarinn hefði gert þetta viljandi og
þannig skipulagt strax að koma fé-
lagi að norðan úr 1. deildinni.
Ég skrifa þetta bréf einungis í þeim
tilgangi að lesendur geti velt þessum
málum fyrir sér. Ég vil eirtdregið fara
að sjá betri dómgæslu á íslandi og
einnig að réttlæti milli stóru félag-
anna og þeirra smærri verði full-
nægt.
Svanasöngur verkalýðsfélaganna?
þjonusta
allan sólarhringinn
__i
Aöeins 39,90 mínútan
eða hringið í síma
5632700
milli kl. 14 og 16
Axel skrifar:
Það hefur orðið æ ljósara í yfir-
standandi verkfallshrinu að verka-
lýðsfélögin sem slík eru ekki jafn
sterk og áður var. Nú ræðir Vinnu-
veitendasambandið beint við ein-
staka formenn og fulltrúa þeirra fé-
laga sem þá og þá stundina era í
verkfalli eöa hafa boðað til þeirra,
en sem heild era launþegafélögin lít-
ils megandi og gera heldur ekki mikl-
ar gloríur þegar á reynir.
Það era þá helst einstakir formenn
þessara félaga sem hafa orðið fyrir
hönd síns félags, en sem heild era
félögin ekki svipur hjá sjón miðaö
við stöðu þeirra fyrir svo sem ára-
tug. Og samstaða á milli verkalýðsfé-
laga er nánast ekki fyrir hendi í dag.
Þetta er aö mörgu leyti gott, en
slæmt fyrir athafnalífið í heild, þar
sem nú er enginn friður svo aö segja
allt árið um kring fyrir verkfallsboð-
unum. Eitt félagið tekur við af öðra,
og það era sífelld átök sem eru keðjir-
verkandi á allt þjóðlífiö. Nú er t.a.m.
enn ósamið við tugi verkalýðsfélaga.
Og hvað gagnar að semja við eitt fé-
lag ef allt annað er stopp?
Farið er aö bera á því æ meir að
samiö sé við fyrirtæki beint víða um
landið, síðan annars staðar þar til
allir semja um svipað og um samdist
fyrst. Verkalýðsfélögin sjálf sem
heild og á landsvísu eru að molna
og við taka svo vmnustaðasamning-
ar áður en nokkum varir. Þetta er
það sem löngum hefur verið bent á
að myndi verða affarasælast. Margir
sjá fram á gjörbreyttar vinnuaðferð-
ir, og kannski er yfirstandandi verk-
fallshrina svanasöngur verkalýðsfé-
lagnna í þeirri mynd sem þau hafa
lengst af verið.
Sem heild eru verkalýðsféiögin ekki svipur hjá sjón frá þvi sem áður var,
segir hér i bréfinu.
Vamarmálog
lánamál
Einar Jónsson skrifar:
Nú er enn eina ferðina farið að
ræða varnarmál íslendinga í
samhengi við lántökur íslendinga
erlendis, eínkum í Bandaríkjun-
um. Mörgum finnst þetta nú vera
orðin svo gömul lumma að eng-
inn taki við henni lengur. En
lengi má hamra jámið og nú
vantar vinstrimenn og fyrram
kommúnista á íslandi eitthvað til
að japla á, eftir að þeir hafa gjör-
samlega fallið af stalli hér á landi
sem annars staðar. Þar sem þeim
skýst þó hæst er þegar þeir fara
að draga löngu látna heiöurs-
menn inn í þessa hugljómun sína
mn varnarlið og lánamál meö
þeim hætti að vamir landsins
hafi lengst af svo gott sem verið
til sölu.
Nýrforseti
ísjónmáli?
Gunnar Guðjónsson skrifar:
Ég tek eftir því að farið er að
ýja að forsetakosningu sem á að
fara fram á næsta ári. Ekki ráð
nema í tíma sé tetóð. í einni kjall-
aragrein í DV nýlega er líka vikið
að þessu og þá reiknað með að
forsetakosningar eigi sér stað
1996. En er það svo nauðsynlegt?
Er ekki langhagkvæmast fyrir
land og þjóð að halda núverandi
forseta í starfi næsta kíörtímabil
a.m.k. ef hún svo kýs? Jafhvel
lengur. Til hvers nýjan forseta
ef sá sami fæst til að starfa áfram?
Enda sé ég engan mann, hvortó
karl né konu, sem tiltækan fram-
bjóðanda að ári.
Ennervoná
verfcföllum
K.R.P. skrifar:
Þótt nú finnist fólki sem verk-
fallsaldan rísi hvað hæst, þá er
enn von á verkfóllum. Og það frá
stéttarfélögum sem maður hélt
aö væru búin að sernja. Þar á ég
við t.d. flugmenn og flugvirkja,
svo og sjúkraliöa. Þannig aö enn
má búast við óróa í kringum
ferðamannaþjónustuna og
sjúkrahúsin - enn einu sinni! Og
þá eru það félög eins og meina-
tækna (vorum við ekki búin að
fa ónæöi af þeim áður?), lögreglu-
menn og viðstóp'ta- og hagfræð-
ingar. Hvar endar þetta?
ÁTVR-lokun
umhelgar
Guðbjörg skrifar:
Hún gengur nú of langt þessi
árátta hins opinbera að halda
verslunarhóttum ÁTVR óbreytt-
um, nú, áriö 1995! Ég er útivinn-
andi og fer yfirleitt aldrei í versl-
anir fyrr en eftir vinnutíma. Það
sama er uppi á teningnum fyrir
hvitasunnu. Ég ætlaði að kaupa
tvær flöskur af rauðvíni og velja
þær vel og vandlega. Eför kl. 17
á fóstudegi er orðin þvílík biðröð
og þrengsli í ÁTVR-verslununum
að mig fýsir ekki að fara þangað.
Því má ektó hafa opið þar á laug-
ardögum líkt og í öörum verslun-
um? Eða færa léttvín og bjór í
almennar matvöruverslanir? Er
þetta óumbreytanlegt lögmál hjá
ríkinu?
Frlsvæðlvið
Keflavík
Gestur hringdt:
Mér blöskrar umræðan um fyr-
irhugaö frísvæði á eða við Kefla-
víkurflugvöU. Þeta er hugmynd
sem allir, jafnt einstaklingar sem
stjómmálaílokkar, hafa sýnt
áhuga. Nú er lokað á allt, jafnvel
umræðu um máliö! Ég legg til að
Suðumesjamenn fari sjálfir af
stað með málið á ný og leiti fyrir
sér erlendis um stuöning.