Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1995, Side 17
16
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
17
íþróttir
Rósa Dögg Jónsdóttir og félagar hennar í Stjörnunni sigruðu KR, 1-0, i
gær. Rósa er hér í harðri baráttu við fyrirliða KR, Helenu Ólafsdóttur.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kvennaknattspyman í gærkvöldi:
Óvæntur Stjörnusig-
ur í Frostaskjólinu
Ingibjörg Hmiiksdóttir skrifar:
Stjarnan vann óvæntan sigur, 1-0,
á KR í Frostaskjóli í gærkvöldi.
Leikurinn var opinn og skemmti-
legur. KR-ingar sóttu meira mest-
allan leikinn en góö vörn Stjörnunn-
ar og frábær markvarsla Hönnu
Kjartansdóttur kom í veg fyrir aö
KR næði að skora. Ragna Lóa Stef-
ánsdóttir skoraði sigurmark Stjörn-
unnar á 69. mínútu. Auður Skúla-
dóttir tók aukaspyrnu við miðlínu,
sendi háan bolta inn á vítateig þar
sem Rósa Dögg Jónsdóttir skallaði
að marki og Ragna Lóa potaði boltan-
um í netið.
„Þetta var táin, það skiptir nefni-
lega ekki máli hvernig mörkin eru
skoruð, það sem gildir er að skora,“
sagði Ragna Lóa. „Þetta var mjög
sætur sigur, við ætlum að vera með
í toppbaráttunni og berjast fyrir því.
Þessi leikur sýnir að við erum á góðri
ferð. Viö lékum ekki eins vel og KR
í þessum leik. Það spyr enginn að því
í leikslok hvort liðið lék betur heldur
hverjir skoruðu mörkin og fengu
stigin."
Tíu mörk í Kópavogi
Breiðablik vann auðveldan sigur á
nýliðum ÍBV, 10-0. Blikarnir þurftu
ekki að hafa mikið fyrir sigrinum,
sem hæglega heíði getað orðið stærri.
Sigrún Óttarsdóttir skoraði 3 mörk
fyrir Blika, Erla Hendriksdóttir 2,
Margrét Ólafsdóttir, Ásthildur
Helgadóttir, Ásta María Reynisdóttir
og Helga Ósk Hannesdóttir skoruðu
sitt markiö hver. Eitt marka Breiða-
bliks var sjálfsmark.
Nýliðinn með tvö mörk
Akranes lagði Hauka, 2-0, á Skipa-
skaga. Helga Lind Björgvinsdóttir,
14 ára leikmaður ÍA, skoraði bæði
mörkin í sínum fyrsta 1. deildar leik.
Skagastúlkur sköpuðu sér mörg færi
sem ekki nýttust, mest vegna góðrar
markvörslu Aðalheiðar Bjarnadótt-
ur í marki Hauka.
Valssigur á Akureyri
Valur vann IBA á Akureyri, 1-4.
Kristbjörg Ingadóttir skoraði tvö
mörk, Ólöf Helgadóttir og Erla Sigur-
bjartsdóttir eitt hvor. LiUý Viðars-
dóttir skoraði mark ÍBA.
Úrslit í 2. deild
FH - Selfoss.....................3-1
Kolbrún Dóra Kristinsdóttir 2, Vala
Björg Garðarsdóttir - Helena Jó-
hannsdóttir.
Reynir S. - Afturelding..........0-5
Erla Edvardsdóttir 3, Harpa Sigur-
björnsdóttir, Halldóra Hálfdánardótt-
ir.
KS - Tindastóll..................1-0
Ólöf Ásta Salmannsdóttir.
Tvö 2. deildar lið féllu
Tvö 2. deildar lið féllu út úr Mjólk-
urbikarkeppninni í knattspymu í
gærkvöldi en þá fóru fram 11 leikir
af 16 í 2. umferð. Völsungur úr 3.
deild skellti KA á Húsavík og 23 ára
lið Eyjamanna vann Skallagrím.
Þá unnu 4. deildar lið Golfklúbbs
Grindavíkur, Magna og Sindra góða
sigra á 3. deildar liðum og em komin
í 32 liða úrslitin þar sem 1. deildar
liðin og bróðurpartur 2. deildarinnar
heQa keppni.
Úrslitin í gærkvöldi:
BÍ - Breiðablik-23..............1-3
Trausti Ámason - Grétar Sveinsson
2, Þórhallur Hinriksson.
Leiknir R. - Ægir............. 3-1
Steindór Elísson, Heiðar Ómarsson,
Friðrik Jónsson - Guðmundur Valur
Sigurðsson.
Selfoss - Reynir S..............3-1
Sævar Þór Gíslason, Jón Þorkell Ein-
arsson, Njörður Steinarsson - (Guó-
mundur Hilmarsson Arnar Óskars-
son.)
GG - Haukar.....................3-1
Leifur Guöjónsson, Guðjón Gunn-
laugsson, Grétar Schmidt - Benedikt
Ketilsson. 1-1, framlenging.
Víðir-Léttir ...................5-0
Sigurður Valur Ámason 4, Óskar Al-
fréðsson.
ÍBV-23 - Skallagrímur...........2-1
ívar Bjarklind, Hermann Hreiðarsson
- Þórhallur Jónsson.
Þór-23 - Neisti H...............6-0
Radovan Ratcha 2, Elmar Eiríksson,
Sigurður Pálsson, Guðmundur Há-
konarson, Hreinn Hringsson.
Völsungur - KA..................2-0
Viðar Sigurjónsson, Baldvin Viðars-
son.
Magni - Dalvík..................6-5
0-0, framlenging og vítaspyrnukeppni.
Sindri - Þróttur N..............2-1
Hermann Stefánsson, Gunnar Ingi
Valgeirsson - Geir Brynjólfsson.
Neisti D. - KVA.................1-3
Hallur Ásgeirsson - Miroslav Nikolic,
Róbert Haraldsson, Aron Haraldsson.
„Við höfum gengið frá munn-
legu samkomulagi viö Patrek og
við erum alveg með það á hreinu
að hann veröur áfram hjá okk-
ur,“ sagöi Þorvaldur Þorvalds
son, formaður handknattleiks
deildar KA, 1 samtali við DV í
gærkvöldi.
„Það er mjög líklegt að Sigmar
Þröstur verði áfram í markinu
hjá okkur og vitum ekki annað.
Þá er líklegt aö Sævar Árnason í
Þór gangi til liðs við okkur en
hann hefur æft með okkur und-
anfarið. Valur Amarson verður
ekki með okkur og hann fer lík-
lega í Val,“ sagðí Þorvaldur.
Miklar líkur era á því að Alfreð
Gíslason leggi skóna á hilluna en
að sögn Þorvaldar er möguleiki á
að hann leiki varaarleikinn með
KA næsta vetur. „Hann hefur
lýst því yflr að hann hafi áhuga
á að leika Evrópuleik með KA,“
sagði Þorvaldur.
Davíðkominn
Davíð Garöarsson, vamarmað-
urinn marksækni úr Val, er kom-
inn aftur til Hlíðarendafélagsins
eftir að hafa spilaö með varaliði
Hamburger SV í þýsku 3. deild-
inni í vetur. Davíð bytjar á að
taka út leikbann gegn FH en get-
ur byrjað að spila gegn Leiftri í
5. umferð.
Fjóríríbráðabana
Á opna Motorola golfmótinu,
sem fram fór í Grafarholti. um
helgina, þurftu fjórir keppendur
í flokki án forgjafar að heyja
bráðabana um 1.-3. sætið. Jón
Haukur Guðlaugsson, GKJ,
hreppti þar fyrsta sætiö á 76
höggum, Garðar Eyland, GR,
varð annar og Haraldur Stefáns-
son, GB, þriðji. Með forgjöf sigr-
aði Friðjón Öm Friöjónsson, GR,
á 68 höggum. Birgir Bjarnason,
GR, og Guðmundur Pétursson,
GR, léku báöir á 70.
Ásgerðurfyrst
Opna sveiflu kvenna golfmótiö
var haldið á Hvaleyrinni um
hvítasunnuna. Þar sigraði Ás-
gerður Sverrisdóttir, GR, í A-
flokki án forgjafar á 85 höggum.
Björg Ingvarsdóttir, GK, sigraði í
A-flokki með forgjöf á 71 höggi. 1
B-flokki án forgjafar sigraði Anna
Einarsdóttir, NK, á 92 höggum og
í B-flokki með forgjöf lék hún
einnig best, á 68 höggum.
Pæjumótiö
Sjötta Pæjumót íþróttafélagsins
Þórs hefst í dag. Ura er að ræða
knattspymumót fyrir stúlkur á
aldrinum 8-14 ára. 82 lið keppa á
mótinu og þátttakendur verða
um 800. Reiknað er með 12-1300
gestum til Eyja vegna mótsins.
Arsictil ÍBV
Þorstemn Guimarsscm, DV, Eyjum:
ÍBV-stelpurnar i knattspymu
hafa fengið mikinn liösstyrk. í
vikunni gekk til liös viö þær
markvöröur júgóslavneska
landslíðsins í knattspymu, Tatj-
ana Arsic. Allt verður lagt í söl-
urnar til að hún geti verið með
V í fyrsta heimaleik liðsins
gegn KR á laugardagínn i Eyjum.
Roberto Baggio tilkynnti í gær
að hann myndi ekki leika áfram
með Juventus, ítölsku meistur-
unum í knattspyrau. Baggio
sagöi að ljóst væri að félagið vildi
ekki hafa hann áfram og að hann
hefði rætt við mörg félög, þar á
meöal Inter Milano og Parma.
Auk þess er sagt aö AC Milan,
Roma, Real Madrid og Barcelona
auk margra japanskra félaga hafi
sýnt mikinn áhuga á honum,
Iþróttir
British Open í golfi:
Tveir íslenskir
komnir áfram
Birgir Leifur og Sigurpáll
Tveir íslenskir kylfmgar af þremur
eru komnir áfram eftir tvo hringi á
British Open áhugamánna sem fram
fer þessa dagana í Liverpool í Eng-
landi.
Þeir Birgir Leifur Hafþórsson, GL,
og Sigurpáll Sveinsson, GA, komust
áfram en Björgvin Sigurbergsson,
GK, datt út. Birgir Leifur lék fyrsta
daginn á 73 höggum og á 72 höggum
í gær. Þetta er frábær árangur og
Birgir Leifur er í 10. sæti af um 200
kependum þegar mótið er hálfnað.
Sigurpáll Sveinsson lék á 77 höggum
fyrsta daginn og var á 72 höggum í
gær. Hann er í 64. sæti en 64 kylfing-
ar komust áfram eftir að fækkað var
eftir 36 holur. Björgvin lék á 77 högg-
um fyrsta daginn og á 84 í gær og
það dugði ekki til áframhaldandi
þátttöku.
Þetta er í 100. skipti sem British
Open áhugamanna fer fram og þátt
taka í því allir bestu kylfmgar Evr-
ópu á meðal áhugamanna. Tii að fá
inngöngu á mótið þarf viðkomandi
kylfmgur aö hafa 0 í forgjöf. Það sýn-
ir vel hversu mótið er sterkt.
„Árangurinn framar
björtustu vonum“
„Þetta er hreint stórkostlegur árang-
ur og viö getum verið stolt af strák-
unum. Þetta er árangur framar björt-
ustu vonum. Vonandi veröur fram-
haldið gott hjá þeim Birgi Leifi og
Sigurpáh," sagði Ragnar Ólafsson,
landsliðseinvaldur í golfl, í samtali
við DV í gærkvöldi.
Sigutjón Amarsson, kylfingur úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur, gerir það ekki enda-
sleppt á golfmótum erlendis. Á Tommy
Armour túrnum náöi hann frábærum ár-
angri á þremur mótum á einni viku.
A Cypress Creek veliinum lék Sigurjón á
75 - 66 - 75, eða á samtals 216 höggum, sem
er par vallarins og var hann í sjöunda sæti
af 42 keppendum. Þetta mót vannst á 212
höggum en skor Sigurjóns á öðrum keppnis-
degi, eða sex undir pari, var besta skor
mótins. Þá fékk hann átta fugla, átta pör
og tvo skolla.
Á Horbor Hills, sem er 6878 yardar og 72,
lék Sigmjón á 71 höggi en þetta var eins
dags mót. Eins og sést á skorinu lék Sigur-
jón á einu undir pari og var í 6. sæti af 45
keppendum. Mótið vannst á 68 höggum.
Sigurjón lét ekki deigan síga á móti á
Heathrow-golfvellinum sem er 7152 yardar
og par 72. Þetta var eins dags mót þar sem
aðstæður voru allar erfiðar vegna mikils
vinds sem var á Flórida í fyrradag. Siguijón
lenti þar í ööru sæti, lék á 69 höggum, eða
á þremur höggum undir pari vallarins.
Keppendur á mótinu voru 52.
Amar og Bjarki á förtun frá Niimberg:
Tvíburarnir til
Grasshoppers?
mjög spennandi kostur, segir Bjarki Gunnlaugsson
„Við höfum orðið varir við áhuga
frá ýmsum stöðum og erum að kanna
málin þessa dagana. Það er rétt að
Grasshoppers er eitt af þessum lið-
um,“ sagði knattspyrnumaðurinn
Bjarki Gunnlaugsson í samtali við
DV í gærkvöldi.
Tvíburamir af Skaganum, Bjarki
og Arnar, eru lausir allra mála hjá
þýska liðinu Nurnberg þann 1. júlí
nk. og verða ekki áfram hjá liðinu.
Lið svissnesku meistaranna Grass-
hoppers hefur sýnt þeim mikinn
áhuga en mál eru þó skammt á veg
komin.
Sýnum vonandi eitthvað
gegn Ungverjunum
„Það er ekkert öruggt í þessu ennþá.
Þeir eru aö skoða myndbönd um
þessar mundir og þaö kæmi okkur
ekki á óvart þótt útsendarar frá lið-
inu myndu fylgjast með okkur í
leiknum gegn Ungverjum á sunnu-
daginn. Það er vonandi að við getum
sýnt eitthvað gott þá,“ sagöi Bjarki
ennfremur.
Hollenska liðið Feyenoord „á“ tví-
burana ennþá og því verða félaga-
skipti þeirra að fara í gegnum hol-
lenska liðið. Þeir eru þó ekki samn-
ingsbundnir Feyenoord. „Forráða-
menn Grasshoppers höfðu samband
við umboðsmann okkar og við getum
ekki neitað því að þetta er mjög
spennandi kostur. Þetta er það lang-
heitasta í dag. Klúbburinn er stór og
svissneskur meistari og Evrópu-
keppni er fram undan hjá félaginu.
Það er samt best að segja sem minnst
enda er þetta á byijunarstigi,“ sagði
Bjarki Gunnlaugsson.
„Eins og ég hef heyrt um atvik-
ið kemur það mér mikið á óvart
og þá alveg sérstaklega þegar
drengskaparmaður á borö við
Þormóð Egtisson á í hlut. Það
hlýtur eitthvað óvænt að hafa
gerst þama og ég trúi því ekki á
hann né aðra íslenska knatt-
spyraumenn að bregðast við með
þessum hætti. Ég endurtek enn
og aftur að þama hlýtur að hafa
orðið slys,“ sagði Eggert Magnús-
son, formaður KSÍ, um atvikíð
sem átti sér stað í leik KR og Fram
á sunnudagskvöldið þegar KR-
ingar skomðu mark í kjölfar þess
að Framarar spymtu boltanum
út af til að KR-ingur fengi aö-
hlynningu vegna meiðsla.
„Þessi háttvísi hefur viðgengist
í knattspyrnunni um allan heim
1 langan tima. Við hjá KSÍ höfum
verið með herferð I gangi og tejj-
um að hún hafa gefist mjög vel.
Þetta umrædda atvik á KR-vellin-
Jafntefli meistaranna
Bandarísku heimsmeistararnir
urðu að gera sér að góðu jafntefli,
3-3, við Kína í fyrsta leik sínum á
heimsmeistaramóti kvenna í knatt-
spymu sem fram fór í Svíþjóð í gær.
Valm-Keflavík
0-0
Lið Vals: Lárus Sigurðsson - Jón Grétar
Jónsson Bjarki Stefánsson V., Petr
Mrazek Kristján Halldórsson V. -
Sigþór Júlíusson, Hilmar Sighvatsson,
Ólafur Brynjólfsson (ívar Ingimarsson
83. ), Hörður Már Magnússon - Kristinn
Lárusson (Guðmundur Benediktsson
77.), Stewart Beards g«.
Lið Keflavíkur: Ólafur Gottskálksson
>Xv - Helgi Björgvinsson Kristinn
Guðbrandsson >7, Karl Finnbogason -
Róbert Sigurðsson, Ragnar Margeirsson
(Sverrir Þór Sverrisson 75.), Hjálmar
Hallgrímsson, Marko Tanasic, Eysteinn
Hauksson - Kjartan Einarsson, Óli Þór
Magnússon (Jóhann B. Guðmundsson
84. )
Valur: 11 markskot, 9 hom.
Keflavík: 8 markskot, 5 hom.
Gult spjald: Mrazek (Val).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson - hafði
ágæt tök á leiknum og var ekki með
spjaldasýningu eins og margir kollegar
hans undanfarið.
Áhorfendur: Um 540.
Skilyrði: Kvöldblíða og þokkalegur
grasvöllur Valsmanna.
Maður leiksins: Ólafur Gottskálks-
son, Keflavík. Kom í veg fyrir sigur
Vals með frábærri markvörslu og greip
oft inn í leikinn með tilþrifum eins og
honum einum er lagið.
Svíþjóð tapaði óvænt fyrir Brasilíu,
0-1, England vann Kanada, 3-2, og
Noregur burstaði Nígeríu, 8-0.
Brasilía vann Japan, 3-0, á fjögurra
þjóða móti karlalandsliða sem nú
stendur yfir í Englandi. Zinho skor-
aöi tvö markanna og Roberto Carlos
eitt.
um dæmir sig sjálft en ég ítreka
það að ég held að þarna hafa ver-
ið um slys að ræða hjá Þormóði.
Ég þekki hann aö öllu öðm en
að vilja hafa rangt við í svona
leik eða yfirleitt í lífinu. Við vilj-
um að sjálfsögðu að þessari hátt-
vísi sé fylgt eftir en hún er ekki
í knattspyrnureglunum. Þetta
em óskráðar reglur,“ sagði
Eggert Magnússon.
ISLAND - UNGVERJ ALAND
Á LAUGARDALSVELLI SUNNUDAGINN
11.JÚNÍ KL. 20.00
Forsala í Eymundsson, Spörtu og hjá
íslenskum getraunum.
MUNIÐ PAKKATILBOÐIÐ
Jón Grétar Jónsson, varnarmaður Vals, er höfðinu hærri en Keflvíkingurinn Eysteinn Hauksson í þessu návígi og þannig var það yfirleitt í gærkvöldi þegar Keflvík-
ingar komu nálægt Hlíðarendavörninni. DV-mynd Brynjar Gauti
Ólaf ur bjargaði Kef lavík
- Valsmenn áfram á botninum eftir 0-0 jafntefli
Víðir Sigurðsson skri&r:
Valsmenn sitja áfram í botnsæti 1.
deildarinnar eftir markalausan leik
gegn Keflavík á Hlíðarenda í gær-
kvöldi. Samt sem áður geta þeir litið.á
leikinn sem eitt skref í rétta átt - Valur
var mun betri aðilinn í leiknum og að-
eins frábær markvarsla Ólafs Gott-
skálkssonar forðaði Keflvíkingum frá
því að snúa alveg tómhentir suður
Reykjanesbrautina.
Olafur varði í tvígang frá Sigþóri Júl-
íussyni sem hafði komist einn inn fyrir
Keflavíkurvörnina og að auki hirti
hann góð skot frá Stewart Beards og
Herði Má Magnússyni. Keflvíkingar
sköpuöu sér hins vegar afar fá umtals-
verð færi, það besta fékk Kjartan Ein-
arsson sem komst (rangstæður?) upp
að marki Vals en Lárus Sigurðsson
varði vel.
Þetta var annars leikur varnarmann-
anna sem stóðu upp úr í báðum liðum.
Valsvörnin var afar þétt, með Petr
Mrazek í aðalhlutverki, og hafði hina
hættulegu sóknarmenn Keflavíkur í
vasanum. Hinum megin lék Helgi
Björgvinsson mjög vel í vörn Keflavík-
ur og er liðinu greinilega góður styrk-
ur. Eini sóknarmaður liðanna sem náði
aö sýna eitthvaö var Stewart Beards,
Bretinn hjá Val, sem sýndi oft skemmti-
lega takta.
„Það er engin spuming að þetta er á
réttri leið hjá okkur, við vomm betri
aðilinn og Óli Gott bjargaði þeim með
frábærri markvörslu. Sjálfstraustið er
komið hjá mönnum og þeir famir að
gera sér grein fyrir því að þegar þeir
spila samkvæmt getu er liðið gott. Við
erum að skapa okkur færi og menn eru
að beijast úti um allan völl og fyrir
hver annan. Við Valsmenn ætlum okk-
ur meira en þetta,“ sagði Hilmar Sig-
hvatsson, fyrirliði Vals, við DV eftir
leikinn.
„Ég vissi að Valsmenn kæmu vitlaus-
ir í þennan leik eftir slæma byijun og
þetta gekk ekki upp hjá okkur á móti
þeim. Það vantaði neistann, við vorum
góðir upp að vissu marki, komum
ágætu spili af stað, en botninn datt úr
á síðustu stundu og við sköpuðum okk-
ur ekki færi. Við eigum meira inni, við
verðum að fara að skora mörk, en ég
er ánægður með vörnina," sagði Ólafur
Gottskálksson, fyrirliði og bjargvættur
Keflvíkinga.
Akranes ...3 3 0 0 6-1 9
KR ...3 2 0 1 5-3 6
FH ...3 2 0 1 4-3 6
Breiðablik.. ...3 2 0 1 5-5 6
ÍBV ...3 1 1 1 10-4 4
Keflavík ...3 1 1 1 2-2 4
Leiftur ...3 1 0 2 7-5 3
Grindavík... ...3 1 0 2 4-6 3
Fram ...3 0 1 2 1-7 1
Valur ...3 0 1 2 2-10 1
Markahæstir:
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV......4
Jón Þór Andrésson, Leiftri....3
Mihajlo Bibercic, KR..........3
Sumarliði Ámason, ÍBV.........2
Rastislav Lazorik, Breiðabl...2
Anthony K. Gregory, Breiðabl..2
ívar Bjarklind, IBV...........2
Ólafur Þórðarson, ÍA..........2
Páll Guðmundsson, Leiftri.....2
L
0PNA MIÐNÆTURMÓT
LANDSBANKANS
í Grafarholti laugardaginn
10. júní kl. 21.00.
□ Punktakeppm.^^tableford7/^xforgjöf.
□ Vegleg verðlaun í boði fyrir þrjú efstu sætin
ásamt fjölda aukaverðlauna.
□ Ræst verður út af öllum teigum sarritímis.
□ Borðhald að keppni lokinni.
□ Keppnisgjald og matur kr. 3.000,-
□ Skráning fií fram í Golfverslun Sígurðar
Péturssonar í
□ Skráningu lýkur fö%udag(nn 9. júní kl. 21.00.
GOLFKLÚBBUR RtYKJAVÍKUR.