Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1995, Qupperneq 28
28
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
Simaskráin er umdeild bók.
Útgefandi á
rangri hillu
„Útgáfa Póst- og símamála-
stofnunar á símaskrám er ótrúleg
sorgarsaga um útgefanda sem er
á rangri hillu.“
Herbert Guðmundsson i DV.
Erum í gislingu
„Við lítum þannig á að við, eins
og reyndar þjóðin öll, séum í gísl-
ingu vegna verkfallsins."
Einar Slgurðsson útgerðarmaöur
í DV.
íslendingurinn í hnotskurn
„Frú Sigríður er fimmta land-
Ummæli
vætturin, íslendingurinn í hnot-
skum.“
Rósa Ingólfsdóttir i DV.
Lágu vel viö höggi
„Ég sagði fyrir leikinn að þetta
væri heppilegur tími til að koma
til Eyja og vinna... Þeir rúlluðu
upp Val og áttu að vinna Fram
og lágu því vel við höggi.“
Bjarni Jóhannsson, þjáltari Blika, i
DV.
Ódrengilegasta sem
ég hef kynnst
Þetta er það ódrengilegasta sem
ég hef kynnst í knattspym-
unni... Siðareglurnar verða að
engu með svona framkomu."
Gauti Laxdal í DV um
framkomu KR-inga.
Gone with the Wind er vinsæl-
asta kvikmynd allra tíma.
Vinsælustu kvik-
myndirnar
Samkvæmt skrá eru kvik-
myndir Stevens Spielbergs, Jur-
rassic Park og E.T. vinsælustu
kvikmyndir sem gerðar hafa ver-
ið í Bandaríkjunum. Þá er miðað
við tekjur í dollurum sem komið
hafa inn. En þar sem miðaverð
hefur verið sveiflukennt og yfir-
leitt farið hækkandi eftir því sem
árin líða gefur þessi hsti ekki
rétta mynd af því hver vinsælasta
myndin er.
Blessuð veröldin
Gone with the Wind var gerð
árið 1939 og var óhemju vinsæl,
en í aðgangseyri komu tæpar 80
milljónir dollara sem þætti ekki
nema rétt sæmilegt í dag. Þegar
þessi upphæð er framreiknuð
kemur í ljós að 80 milljónimar
eru orðnar 827 milljónir og þar
með er Gone with the Wind vin-
sælasta kvikmynd allra tíma.
Með þessari framreiknireglu er
í öðru sæti teiknimyndin Mjall-
hvít og dvergamir sjö (1937) en
framreiknaður aðgangseyrir af
henni er 622 milijónir dollara. Ef
þessi viðmiðun yrði notuð í dag
lækkuðu Jurrassic Park og E.T.
í 6. og 7. sæti og upp fyrir þær
fæm Star Wars (1977), The Sound
of Music (1965) og Jaws (1975).
DV
Léttir til norðanlands
Norðanáttin er að ganga niður og
verður hægviðri um mest allt land.
Síðdegis og í kvöld og nótt verður
Veðrið í dag
hæg vestan- og suðvestanátt á land-
inu, skýjað verður sunnan- og vest-
anlands en aftur á móti léttir þá til
um norðan- og austanvert landið.
Gera má ráð fyrir að hiti komist upp
í 10 til 12 stig á þeim slóðum en held-
ur svalara verður sunnan- og vestan-
lands. Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðvestan- og vestangola og skýjað
þegar líður á daginn og yfir nóttina.
Hiti 7 til 11 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.45
Sólarupprás á morgun: 3.08
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.00
Árdegisflóð á morgun: 1.23
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 5
Akurnes léttskýjað 7
Bolungarvík léttskýjað 4
Keflavíkurflugvöllur hálfskýjað 8
Kirkiubæjarklaustur skýjað 8
Raufarhöfn alskýjað 3
Reykjavík léttskýjað 7
Stórhöfði léttskýjað 8
Bergen léttskýjað 10
Helsinki skýjað 18
Kaupmannahöfn skýjað 13
Ósló súld 11
Stokkhólmur þokumóða 13
Þórshöfn rigning 7
Amsterdam rigning 13
Barcelona heiðskirt 17
Berlín rigning 13
Chicago léttskýjað 21
Feneyjar léttskýjað 17
Frankfurt skýjað 12
Glasgow léttskýjað 8
Hamborg alskýjað 12
London súld 15
LosAngeles heiðskírt 17
Lúxemborg skýjað 11
Madrid léttskýjað 16
Malaga þokumóða 19
Mallorca heiðskirt 20
Montreal heiðskirt 19
New York súld 17
Nuuk rigning 5
Orlando heiðskírt 24
París skýjað 14
Róm léttskýjað 15
Steindór Gunnarsson, sundþjálfari ársins:
„Þetta er mikill heiður og viður-
kenning á þvi sem ég er að gera.
Það er greinilega tekið eftir okkur
og þetta sýnir aö við erum á réttri
leiö. Ég stefni á að koma einhverj-
um sundmönnum lengra og þaö er
örvandi að fá þessa nafnbót en það
er ekki endirinn á gangi mála, það
er alltaf hægt að gera betur," segir
Steindór Gunnarsson sem fyrir
skömmu var kosinn sundþjálfari
Maöur dagsins
ársins hér á landi.
Steindór hefur þjálfað alla ald-
urshópa hjá Sunddeíld Njarðvíkur
í fjögur ár, ásamt því að starfa sem
kennarí, en hann er íþróttakennari
að mennt. Steindór segir að þessi
tilnefning hafi komið honum á
óvart: „Ég er ekki sundmaöur sjálf-
ur og hef ekki verið sundþjálfari
lengi svo aö þaö er ekki síst mikil
viðurkenning aö þeir sem velja
Steindór Gunnarsson.
sundþjálfara ársins eru þjálfarar
sem hafa mikla þekkíngu og vit á
íþróttinni."
Steindór sótti um stöðu sem
íþróttakennari við Njarðvíkurskól-
ann fyrir íjórum árum og í fram-
haldi af ráðningu hans var honum
boðið að taka viö sundinu: „Þetta
er búið að vera ánægjulegur tími
með krökkunum sem eru alveg frá-
bærir. Þaö er skemmtilegt að fylgj-
ast með framförum þeirra og sjá
hvað þau eru ánægð.“
Steindór segir að þjáifunin sé að
nálgast það að verða of mikil fyrir
einn mann aö standa í. Hann þjálf-
ar sex daga vikunnar og stundum
tvisvar á dag og þetta gerir hann
raeð starfinu í skólanum. Hjá hon-
um eru yfir áttatíu krakkar sem
æfa sund. Áður en Steindór kom
til starfa í Njarðvíkum hafði hann
sinnt kennslu á Snæfellsnesi og
Hólmavík. Sjáifur er hann úr
Þykkvabænum í Rangárvallasýslu.
Hans helstu áhugamál fyrir utan
íþróttimar eru útivera og ferðalög.
, Jln það er ekki míkill tími fyrir
tómstundaiðkun hjá mér þar sem
ég tel mig vera yfirbókaðan við
kennslu og þjálfun og kem stund-
um ansi seint heim á kvöldin."
Sambýliskona Steindórs er Heið-
rún Ingvarsdóttir og eiga þau tvær
dætur, Unni níu ára og Margréti
sem er á þriöja ári.
2. umferð í
Mjólkurbik-
arkeppni KSÍ
í gær fóru fram ellefu leikir í
2. umferö Mjólkurbikarkeppni
KSÍ en þetta er eins og flestum
er kunnugt útsláttarkeppni. Það
eru enn aöeins lið úr neðri deild-
um og b-lið stóru félaganna sem
íþróttir
eru í pottinum. Sextán efstu liðin
úr deildakeppninni í fyrra kom-
ast beint áfram í 16 liða úrslitin.
Keppninni verður framhaldið í
kvöld og fara þá fram fimm leikir.
Á Akranesi keppir ÍA U23 gegn
Snæfellsmönnum, í Keflavík leik-
ur Keflavfk U23 gegn ÍR, á KR-
velli leikur KR U23 gegn Sljörn-
unni U23, á Vaisvelli leika Valur
U23 gegn Víkingi Ól. og á Seyðis-
fjaröarvelli leika Huginn og KBS.
Skák
Fyrir síðustu umferð á alþjóðamótinu
í Málmey í Svíþjóð, sem tefld verður í
dag, eru Ivan Sokolov, Ulf Andersson og
Mikhail Krasenkov efstir og jafnir með
5,5 v. en Jóharm Hjartarson og Matthew
Sadler koma næstir með 5 v. Jóhann
mætir Sokolov í dag og hefur svart.
í þessari stöðu frá mótinu missti Svíinn
Jonny Hector, með svart og átti leik, af
skemmtilegri leiö gegn Sokolov:
I#
1 A iii
i m
W £ A
Atsa &
A A
S cjb
ABCDEFGH
Skákin tefldist 24. - Rc4? 25. Hxc4! dxc4
26. Bxh7 +! Kxh7 27. Dxf8 De5 28. Dxf7
Del+ 29. Kg2 De2+ 30. Hf2 De4+ 31.
Hf3 og kappamir sættust á jafntefli.
Frá stöðumyndinni hefði 24. - Rxg4!
25. Dxf4 Re5 +! verið afar sterkt og áffam
26. Dxg5 Rxf3+ og næst 27. - Rxg5, eða
26. Khl Dxf4 27. Hxf4 Rxd3 og gafflar
hrókana, með vinningsstöðu i báðum til-
vikum.
Jón L. Árnason
Bridge
I gær var vamarþraut í bridgedálknum
og hér kemur önnur til að spreyta sig á.
Lesandinn situr í sæti vesturs og sér að- (
eins spil norðurs (blinds) eftir neðan-
greindar sagnir. Suður er gjafari og AV
á hættu. Þú spilar út einspilinu í tigli,
litið úr blindum og austur setur ásinn en
sagnhafi gosann. Austur spilar tíguláttu,
sagnhafi setur tíuna og þú trompar.
Hverju spilar þú næst og hvers vegna?
♦ 64
V G98
> ♦ KD976
+ KD3
♦ K9873
V 763
♦ 2
+ 10765
♦ Á105
V 52
♦ Á8543
4» G84
♦ DG2
V ÁKD104
♦ G10
«*> Á92
Suður Vestur Norður Austur
lf Pass 2* Pass
2 G Pass 3» Pass
4» p/h
Ljósteraðfélagiþiimeraðgefaþérskila- i
boð um að spila spaða til baka með því '
að spila tíguláttunni. Nú er það í þínu
hlutverki að borga honum greiðann og
spila spaðakóngnum! næst. Ef þú spilar
lágum spaða tekur fálagi þinn í austur á
spaðaásinn og spilar sennilega aftur tígh
tÚ þess að reyna að uppfæra hugsanlegan
slag fyrir þig á hjartadrottninguna. Ef í
hann gerir það getur sagnhafi trompað
hátt, tekið trompin og losnað við spaða
ofan í tígul. Með þvi að spila lágum spaða
ertu í raun að gefa félaga skilaboð um
aö þú eigir ekki kónginn í litnum og vilj-
ir fá tígul til baka.
ísak örn Sigurðsson