Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 3 Fréttir Samráðsnefnd um greiðsluvanda heimilanna: Ábyrgð þriðja aðila vandamál „Það sem er nýtt í þessu eru kannski þær tillögur sem nefndin sendir frá sér til lausnar greiðslu- vanda heimilanna. Það sem mér finnst athyglisverðast í þeim er um- ræða um ábyrgð þriðja aðila. Hér á landi eru ábyrgðarskuidbindingar í lánamálum mjög algengar og mörg erfiðustu greiðsluvandamál ein- staklinga eru af þeim sprottnar. Mörg dæmi eru til um að foreldrar - leiðbeiningarstöð fyrir fólk í vanda sett á laggimar hafi jafnvel misst aleiguna eftir að hafa skrifað upp á fyrir börn sín. Þetta eru feimnismál en með því að opna umræðuna og auka upplýsinga- skyldu innlánsstofnana til þeirra sem ábyrgjast lánin mætti kannski koma í veg fyrir einhver dapurleg tilfelli,“ sagði Ingi Valur Jóhannsson, formaður samráðsnefndar um greiðsluvanda heimilanna, en nefnd- in hefur skilað félagsmálaráðherra skýrslu um máliö. í skýrslu samráðsnefndarinnar kemur fram að hún telur helstu ástæður íjárhagsvanda heimilanna vera af þrennum toga: í fyrsta lagi lækkun launa, samdrátt í atvinnulíf- inu, veikindi og atvinnuleysi. í öðru lagi áhrif skattbreytinga, þ.m.t. skerðing vaxta- og barnabóta og auk- in skattbyröi. í þriðja lagi aukið framboð á lánsfé. Samráðsnefndin leggur fram 17 til- lögur sem ætlað er að fyrirbyggja greiðsluvanda og/eða stuðla að því að leysa greiðsluerfiðleika sem fólk hefur ratað í af ýmsum ástæðum. „Þegar er hafin vinna í sumu af því sem tekið er fyrir í skýrslunni, t.d, í sambandi við greiðsluaðlögunina, sem nefndin kýs reyndar að kalla skuldaaðlögun, en þar er unnið að frumvarpi sem leggja á fyrir i haust. Verið er að vinna að lengingu láns- tíma og búið er að hækka lánshlut- fallið. Ráðhérra hefur síðan leitað eftir samstarfi um að koma á til- raunaverkefni um leiðbeiningarstöð. Talað hefur verið um að þjóðkirkjan, biskupinn, bændasamtökin o.fl. komi að því verkefni," sagði Ingi Valur. -SV við laxadráp Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum: „Vaktmaður hjá okkur stöðvaði tvo menn kl. tvö í fyrrinótt þegar þeir voru að stela fiski. Þeir voru með háf og hamar og höfðu drepið sjö laxa þegar þeir voru gripnir á staönum," sagði Viktor Guðmundsson hjá Vogavík í Vogum við DV í gær. Mennirnir tveir komu á pallbíl í stöðina í fyrri nótt og voru þeir kærð- ir í gær. Engin loðna fannst Daniel Ólafeson, DV, Akianesi: Loðnuskipið Víkingur kom í fyrra- kvöld til Akraness eftir loðnuleit og að sögn Erlings Pálsson stýrimanns fannst ekkert af loðnu. Erhngur sagði að þetta væri slæmt því júlí hefði oft reynst vel undanfarin ár hvað veiði varðar. Eftir er að kanna svæðið við Grænland. Þar er mikill ís og ekki hægt að komast þangað. Vatnsverð til Kópavogs hækkar Samninganefndir Reykjavíkur- borgar og Kópavogsbæjar komust að samkomulagi þann 13. júlí um að hækka vatnsverð til Kópavogs úr 6,09 kr. á rúmmetra í 7 kr. og svo 8,10 kr. Hefur þetta verið samþykkt í borgarráði en er óafgreitt hjá Kópa- vogsbæ. Vatnsverð til Kópavogs verður því 7 kr. á rúmmetra frá 1. janúar 1995 en 1. janúar 1996 hækkar verðið í 8,10 kr. og gildir það verð í þrjú ár. „Það er samið um hækkun á svona 10 til 15 ára fresti. Það var gerðar- dómur sem ákvarðaði verðið árið 1981, minnir mig, og hann var laus núna,“ segir Guðmundur Þórodds- son vatnsveitustjóri. -GJ Sprengja með eitruð- um reyk Feðgar fundu torkennilegan hlut, sívalning sem líktist sprengju, í landi Vestri-Loftsstaða skammt frá Stokkseyri í fyrradag. Sérfræðingar lögreglunnar segja þetta vera banda- rískt reyk- og ljósdufl sem innihaldi fosfór og gefi frá sér eitraðan reyk. Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar mun sjá um að eyðileggja duflið en það er tahð vera frá stríðsárunum. -sv 34.900, EUROCARD raðgreiðslur V/SA RAÐGREIÐSLUR TIL 24 MAfN/AÐ^ INNKAUPATKYGGINC - FKAMLENGDUR ÁRYKGDAKTÍMI Samsung CB-3B35T er 14" sjónvarp meb ísl. textavarpi, inni- loftneti, Scart-tengi o.m.fl. Telefunken Cinevision 20 er 32" breiötjalds- sjónvarp meb 16:9 Black Matrix-skjá, textavarpi, 40 W Nicam Stereo Surround-magnara, 2 Scart- tengjum, Zoom o.fl. ásamt sjónvarpsskáp. Nordmende Prestige-72 KH er 100 Mz 29" sjónvarp meb Black D.I.V.A-skjá (svartur skjár), textavarpi, 80 W Nicam Stereo Surround-magnara, 5 hátalara kerfi, 2 Scart- tengjum, Zoom o.fl. ásamt sjónvarpsskáp. Nordmende RP-46 er 46" sjónvarp meb innbyggbum skjávarpa, textavarpi, 40 W magnara, 2 Scart-tengjum, S-VHS-tengi, fjölkerfa móttöku (Pal, Secam og NTSC), tímarofa o.fl. Nordmende SC-72 SFN er 29" siónvarp meb Black D.I.V.A-skjá (svartur skjár), íslensku textavarpi, 40 W Nicam Stereo Surround- magnara, 2 Scart-tengjum, Zoom o.fl. Nordmende Futura 84 er 33" sjónvarp meb Black Matrix-skjá, textavarpi, 40 W A-2 Stereo Surround-magnara, 2 Scart-tengjum, Zoom o.fl. Nordmende V-1242 SV er vandað 3 hausa myndbands- tæki meb Long Play sjálfhreinsandi búna&i á myndhaus, ásamt Show View o.fl. Telefunken M-9460 nic. er 6 hausa Nicam Stereo-myndbandstæki meb Long Play, NTSC- afspilun, 2 Scart-tengjum, Show View o.m.fl. Nordmende V-3445 SV er hágæða 6 hausa Nicam Stereo- myndbandstæki með Long Play, Jog-hjóli, hæg- og kyrrmynd, NTSC-afspilun oq 2 Scart-tenqium ásamt Show View o.fl. Telefunken F-531 er 28" sjónvarp meb Black Matrix-skjá, fsl. textavarpi, 40 W Nicam Stereo Surround-magnara, 2 Scart-tengjum o.fl. ung CB-5035T " sjónvarp meb xtavarpi, Scart- o.m.fl. A 80X er 21" sjónvarp meb flatskjá, íslensku textavarpi, Scart- i o.m.fl. Við tökLim vel a móti þér I Skipholti Sími: 5S2 9800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.