Þjóðviljinn - 13.01.1937, Síða 4
& Gamlö l?)i6 &
Svikari
Heimsfræg' og stórfengleg
amerísk talmynd frá írsku
uppreisninni 1922.
Aðalhlutverkið leikur af
framúrskarandi list
VICTOR MC LAGLEN
Böm fá ekki aðgang.
Næturlæknir.
Kjartan ölafsson, Lækjar-
götu 6 B, sími 2614.,
Næturvörður
er í Reykjavíkur- og Iðunnar
apóteki.
Utvarpið í dag
19,20 Hljómplötur: Sönglög
(Thil og Tibbet). 20.00 Fréttir.
20,30 Erindi: Efnisheimurinn,
IIL (Sigurkarl Stefánsson cand.
mag.)., 20,55 Tríó Tónlistarskól-
ans leikur. 21,25. Otvarpssagan.
21.50 Hljómplötujr: Endurtekin
lög (til kl. 22,30).
Skipafréttir
Gullfoss og Dettifoss eru í
Kaupmannahöfn, Goðafoss er í
Hull„ Selfoss fór í gærmorgun á-
leiðis til útlianda, Lagarfoss er í
Leith. Brúarfoss er á leið til
Vestmannaeyja frá Leith. —
Súðin fer 1 fyrstu strandferð á
þessu ári á föstudaginm
Keppendur
í Skjaldarglímu Ármanns eiga
að gefa sig fram við stjórn fé-
lagsins fyrir 22., þ. m.
þlÓOVIUINN
Til skem
Tarzan nútímans. Skógar-
verðir nálægt Ríga, Latviu,
komu um daginn að einkenni-
legri veru. í skógarrjóðri. Veran
hnipraði sig saman við rætur á
einu trénu, Þegar hún varð vör
við mennina, kþfraði hún með
undraverðri leikni upp í tréð og
héldu skógarverðirnir að þarna
væri api á ferð. Skutu þeir af
byssum sínum, en við það kom
veran niður til jarðar aftur og
reyndist þá að vera mitt á milli
apa og manns. Við nánari rann-
sókn kom í ljóe, að þetta var
vinnumaður, er hafði horfið af
einum búgarði þar í grendinni
fyrir mörgum, árum, Maðurinn
gat ekki talað og skildi heldur
ekki, þó tafað væri til hans.
unar o g
Eftir búslysið:
Fmþeganum láðist að greiða
farið.
★
1935 var sett met í tedrykkju
í Engiandi. Teeyðsla á hvert
fróðleiks
mannsbarn í Stóra-Bretlandi
1935 var að meðaltali 9,421 ensk
pund.
★
Amerísk kona, semi á heima í
þorpi, er hggur að allstóru fljóti,
var um daginn að þvo í fljót-
inu, þegar hún tók eftir trébala,
sem flaut niður eftir fljótinu.
Náði hún til bal,ans með haka,,
er var þar nærri, en hún varð
ekki lítið undrandi, þegar hún
sá :að í balanum lá nýfæddur
sveinn. Tók hún hann heim með
sér og var auglýst eftir foreldr-
um, en enginn hefir gefið sig
frarn. Konan hefir því ákveðið
að ala barnið upp, þó hún eigi
4 börn fyrir., Barnið var auð-
vitað skýrt Móses.
Félagar
sem hafa söfnunarlista fyrir
Þjóðviljann eða h,afa tekið þátt
í áskrifendasöfnumnni fyrir
blaðið, eru beðnir að mæta á
flokksskrifstofunni í dag frá kl.
5—7, og gera skil.
Ungbarnavernd Liknar
er opin á þriðjudögum og
föstudögum frá kl. 3—4.
Dagsbrúnarmenu!
Nú eru. aðeins eftir 3 dagar
þangað til, hægt er að hætta
kosningunni i Dagsbrún. Kjósið
því strax í dag.
Kosningin í Dagsbrún
að afloknum kjörtíma, kl„ 7 í
gærkvöldi, höfðu allsi um 840
Dagsbrúnarmenn greitt at-
kvæði, eða réttur helmingur
þeirra, sem, á kjörskrá eru,
Arraann
hefir beðið þess getið að
drætti í happdrætti Skíðaskála
Ármanns hafi verið frestað til
16., þi mt
NÝBRENT OG MALAÐ KAFR
FreyJugÖtu 26 — Siml 5432
Iðnsambandið
Framhald af 3. síðu.
Alls hafa því fjögur sveinafé-
lög, af fimm í sambandinu, lýst
sig fylgjandi því að sambandinu
verði skift. Þess verður því vænt
anlega ekki langt að bíða, að
sveinafélögin í byggingariðnað-
inum stofni sín eigin samtök c-
háð samtökum meistaranna.
„Vakna pú Island“
er ljóðasafn, sem allir purfa
að eignast. Petta er safn ís-
lenskra alpýðusöngva, enn-
fremur pýddra, erlendra verk-
lýðssöngva.
Bókin kostar kr. 1.25.
SjB l\fý/al?)ib sg
Leyndarmál
Charlíe Chau
Övenjulega spennandi,
skemtileg og vel gerð kvik-
mynd um nýjustu afreks-
verk leynilögregluhetjunn-
ar Charlie Chan í barátt-
unni við illræmd saka-
mannafélög.
Aðalhlutverkið, Charlie
Chan leikur
WARNER OLANDk
Aukamynd:
Talmyndafréttir.
Böm fá ekki aðgang.
/
Þjódyiljans
muníð gjald-
daga blaðsins
20. hvers
mánadar.
i:n:'iY.Trm
Siídin
fer héðan austur um land föstu-
dag 15. þ. m.. kl. 9 siðd.
Tekið verður á móti vörum í
dag (miðvikudag).
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir einum degi fyrir burtferð.
HELSKIPIÐ eftir B. Traven 38
og það' varð steinhljóð í veitingaskálanum um hríð.
Svo stóðu þeir á fætur, litu til mín og hófu upp glösin.
— Auf Ihr Wohl, Deutscher1).
Því næst tók stúlkan disk og gekk með hann fyrir
hvern mann í veitingastofunni. Svo kom hún aftur
með diskinn og tæmdi hann fyrir framan mig. Það
voru seytján frankar og hérumbil sextíu sentímur.
Nú varð mér ekki skotaskuld úr því að borga matinn
og vínið. Og þegar ég tveim dögum síðar fór með
skipi til Barcelona, átti ég meira, að segja nokkra
franka, eftir.
Mér þótti ótrúlegt að óvinátta á milli manna af
ýmsum þjóðernum og löndum gæti átt sér stað, þar
sem enginn var til þess að blása að ófriðarkolunum.
Það var varla til mikils mælst, þó að menn væru dá-
lítið skynsamari en hundarnir, það er tiltölulega a,uð-
velt að æsa hunda, hvorn upp á móti öðrum, en þó er
það ekki hægt undir öllum kringumstæðum. En þao
er fátt auðveldara en að æsa mennina til hinna verstu
f jandskaparverka.
Ég sit og dorga. Það eru. ljótu vandræðin, að eng-
inn fiskur skuli vera svo vitlajus, að bíta, á öngul-
inn hjá mér. Bráðum er ég búinn með allan blóðmör-
inn, sem Hollendingarnir gáfu mér, Þetta, hlýtur að
stafa af því, að ég er dálítið annars hugar. Strax
þegar ég er búinn að veiða í soðið, þá fer ég út í skóg,
3) Skál yðar, Þjóðverji.
kveiki upp eld og steiki fiskana á teini. Það verður
einhver munur eða að éta þá upp úr olíuídýfu.
Enn einu sinni hefir verið étið af önglinum, en
enginn fiskur fest sig. Hvað er ég búinn að siitja hér
lengi? Að minsta kosti þrjár kiukkustundir. Það tek-
ur í taiugarnar að dorga svona lengi. Hitt skiptir
minna máli, þó að tímanum sé eytt til einskis. Þetta.
er þó altaf nytsamleg vinna, þetta hjálpar líka til
þessi að sjá fólkinu farborða, því að þegar ég hefi
etið fiskinn, þarf ég ekki að éta makkaronisúpu frá
einhverjum öðrum. Hún verður spöruð og hlýtur að
finnast við ársuppgjör í einhverri hagskýrslunni.
Svo gæti ég lika selt fiskinn. Ef til vill gæti ég
veitt svo mikið, að ég gæti eignast tvo peseta. Þá gæti
ég sofið í rúmi tvær nætur í röð.
— Sjáðu nú til, litli vinur, nú hefi ég að lokum náó
þér. Það ert þú, sem hefir étið upp fyrir mér allan
blóðmörinn. Ekki ertu þungur. Hálft kíló eða tæp-
lega það., Nei, þrjú hundruð grömmi, en þú spriklar
dásamlega. Það á ég ofur auðVelt með að skilja. Ég
hefi einnig reynt að sprikla, þegar lögreglan hefir
gripið mig. En nú er mig farið að langa í fisk.
— Já, vatnið er undursamlega svalt og sólin er
steikjandi heit. Hér hefir enginn lögregluþjónn held-
ur .reynt til þess að hefta fór mína. Aðeins ef þú
hefðir verið ofurlítið stærri. En fyrst þú ert nú einu
sinni veiddur, jæja, hvað skal gera, Ég vil miklu
fremur vera frjáls en mettur, svona á meðan vatnið
er blátt og sólin skín, svo ert þú spanskur fiskur.
Gott og vel, þú skajt ekki deyja. Syntu burtu og
bíttu á öng'ulinn hjá einhverjum öðrum. Flýttu þér
fiskur og ég bið að heilsa unnustu þinni.
Svo heyrist vatnsskvettur, fiskurinn syndir sina
leið og hverfur út í höfnina.
— Eg bið að heilsa, unnustu þinni. Svei.
— Þér eruð rólegur fiskimaður, kallar einhver að
baki mér.
Ég lít við og kem auga á tollþjón, sem stendur hjá
mér, Hann hefir staðið þarna og hlustað allan tím-
ann, Nú fer hann að1 skeliihlæja.
— Það hlýtur að vera meira af fiskum hér. Vatn-
ið er svo mikið í höfninni, segi ég og beiti öngulinn
aftur.
— Það þykir mér sennilegt, en þetta var altof stór
fiskur til þess að sleppa honum.
— Jú, víst vaa- hann stór, en það er af því, hvað
hann var búinn að éta mikið af beitu frá mér.
— Vegna hvers eruð þér að veiða, fyrst þér hendið
fiskunum jafnóðum aftur í sjóinn,
— Jú, ég geri það til þess að geta sagt við sjátfan
mig að kvöldi, að ég hafi ekki eytt deginum til einskis.
— Haltu áfram að veiða, sagði tollþjónninn og fór
leiðar sinnar.
XIV.
Með mörgu skipinu hefi ég siglt. Það vita hin-
ir eilífu guðir. Og skip hefi ég séð í þúsundatali.
Það hlýtur hinn heilagi Tórnas að vita, En aldrei fyr
hefi ég séð skip, sem líktist þessu. Það var einstakt.
Fljótt á litið virtust engir möguleikar til þess að slíkt