Þjóðviljinn - 29.01.1938, Blaðsíða 1
A - LISTINN
Laugavegí 7
Sími 4824
3. ARGANGUR
LAUGARDAGINN 29. JAN. 1938
23. TOLUBLAÐ
Hú§mædnr! Hindrið
mjólknr- A - listinn
fylltíp Ilði
liækknnina. Kjósid A-listann!
Eyjölfur Jóhannsson og Olafur Thors lieimta
ad mjolkurverdið hækki, en skrif Morgun-
blaðsins eru stadlausir stafir.
Látið lista mjólkurhringsins, lista íhaldsins bíða ósigur.
"VTÝJASTA kosningabomba íhaldsins er sú, að stjórnar-
^ flokkarnir séu búnir að semja um hækkun mjólkur-
'verðsins að kosningunum loknum og að Haraldur Guð-
xnundsson ráðherra hafi lýst því yfir á fundi, að ekki yrði
komist hjá mjólkurhækkun.
Þjóðviljinn hafði tal af Haraldi Guðmundssyni
atvinnumálaráðherra og lýsti hann því yfir, að eng.
ir slíkir samningar hefðu farið fram milli stjórnar-
fiokkanna og að yfirlýsing sú, er hann á að hafa
gefið á flokksfundi væri heilaspuni Morgunblaðsins.
Nú er það vitað að mjólkursöluuefnd ræður verðlagi
imjólkurinnar hér í bænum. Mjólkursöluneínd sú, er skip-
uð að miklum meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarmönn-
um. Alþýðuflokkurinn á þar aðeins einn fulltrúa. Sé
mjólkurhækkun í aðsigi og hafi einhverjir samningar jrer-
ið gerðir um það mál er það fyrir tilstilli íhalds og Fram-
sóknar og eftir saminngum þeirra á milli
Engir slíkir samningar munu þó hafa verið gerðir enn
en hitt er vitað að Eyjólfur Jóhannsson og Ólafur
Thors hafa gert háværar kröfur um að mjólkin
yrði hækkuð til verulegra muna frá núverandi
verðlagi.
En engum Reykvíking- skyldi
koma slíkt, á óvart, þó að íhaldið
hugsi til mjólkur hækkunar. Það
er í fylstu samræmi við stefnu
íhaldsins og EyjóLfs Jóhanns-
sonar frá öndverðu.
Haustið 1933 tilkynti mjólkur-
hringurinn Eyjólfur Jóhannsson
<og Korpúlfsstaðabúið 5 aura
verðhækkun á hverjum mjólkur-
lítra og blöð íhaldsins töldu
þessa verðhækkun sanngjarna
og réttlátaj!) í alla staði. Ihalds-
flokkurinn. sem heild stóð ein-
huga með þessu fáheyrða okri.
Kommúnistaflokkurinn og Al-
þýðuflokkurúin Jiófu baráttu
gegn þessari herferð íhaldsins.
Blöð beggja flokkanina beittu
séir. hiklaust, á móti hækkuninni
og mjólkurhringurinn varð að
láta í minni pokann, svo óvin-
■sælt var þetta tiltæki meðal al-
mennings.
Ihaldið hefir æfinlega og við
•öll tæki.færi verið á móti mjólk-
.urlækkun. Það vair á móti henni
1934 þegar rætt. var um lækkun
mjólkur og boðaði til íundar-
halda og hverskonar bægslar
gangs til þess að koma í veg fyr-
:ir að mjólkin yrði lækkuð.
Og nú fara þessir sömu herr-
ar af stað á nýjan leik Ölafur
Thors og Eyjólfur Jóhannsson og
heimta það að verð mjólkur
verði þegar í stað hækkað. Enn
hefir þessi krafa strandað á mót
þróa Framsóknarflokksins og
kosningahræðslu broddanna í
Sj ál fsfæðisf lok k num. 1 þenna
hóp hafa, ennfremur bæst ýms-
ir íhaldsmenn og stórbændur í
Mosfellssveit og annarsstaðar í
nágrenni Reykjavíkur.
Þetta eru mennirnir, sern
lieimta mjólkurhækkun, svo að
búktal Morgunblaðsins lætur
hlálega í eyrum reykvískra kjós-
enda.
Alþýðan verður að skipa sér
fast, um A-listann og vinna sleitu
laust áð (Sigri hans. Þannig verð-
ur best komið í veg- fyrir mjólk-
urhækkunina að kosningunum
loknum.. Ekki er að vita nema
Kjósendur!
Munið að koma snemma á
kjörstað á morgun. A-Listinn er
listi allrar alþýðu. Gerið sigur
hans semi giæstastan og ósigur
C-listans sem herfilegastann.
að Jónas frá Hriflu geti síðar
mfiir kúgað flokksmenn sína í
mjólkurverðlagsnefnd til þess að
ganga að kröfum þeirra ólafs
Thors og Eyjólís Jóhannssonar.
Húsmæður og aðrir Reykvík-
ingar.
Tryggið algetran sigur A-list-
ans á morgun. Þá: er urn.- leiu
trygt að verðlag mjólkurinnar
hækkar ekki.
KJÓSIÐ A-LISTANN.
Lýðræöispík-
in með Þjóða-
bandalaginu.
Að lokinni ræðu Antþon.y Ed-
ens á fundi Þjóðabandalagsráðs-
ins í gær, talaði Yvon Delbos,
utanríkisráðherra Frakka, og
var ræða hans m.}ög í sama anda
og ræða Edens. Næstur talaði
Litvinoff, og kvað hann stjórn
Sovét-Rússlands á sama máli um
nauðsyn þess, að halda við Þjóða
bandalaginu. (F.O.)
Fj ölineimur
fundur í Idnó.
Sameiginlegi fundurinn með
Reykjavíkurdeild Iáommúnista-
flokksins og Jafnaðarmannafé-
lagi Reykjayíkur í gærkvöldi
var mjög fjölsóttur.
Á fundinum var gengið frá
.síðasta undirbúningi kosning-
anna. Ræður héldu Þorsteinn
Pétursson, Guðjón B. Baldvins-
son, Brynjólfur Bjarnason, Jón
Guölaugsson, Hafliði Jónsson,
Björn Bjarnason, Sigfús Sigur-
hjartarson og. Héðinn Valdemars
son, og var ræðum þeirra allra
ágætlega tekið.
Allir stuðningsmenn A-listans
eru ámintir um að lesa auglýs-
dngu listans um, kosningatilhög-
unina, sem birtist á, 4. síðu þe,ssa
blaðs og Alþýðublaðidu í dag.
Sj ömannastéttin stendur ein-
huga með A-listanum
Fundur Sjómannafélags Reykjvíkur í fyrrakvöld sýndi að
reikvískir sjómenn standa sem einn maður gegn íhaldinu
Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur sýndi það greini-
leg'a, að sjómennirnir í Reykja-
vík fylkja sér um A-List,ann.
Fundurinn samþykti stuðning
félagsins viö A-listann, og veitti
500 kr. í komingasjódhi )i.
Fundurinn samiþykti. einnig að
fela stjórninni að gefa út prent-
að félagsblað, er kæmi út einu
sinni á má.nuði, og verja til þess
500 kr. úr félagssjóði.
Ihaldiö hefii’ undanfarið ver-
ið að reyna að telja sjómenn til
fylgis við sig, og mun því hafa
orðið eitthvað ágengt við síðustu
kosningar.
En með fundi Sjómannafé-
lagsins í fyrrakvöld er íhaldinu
svarað að verðugleikum, Það er
margt sem bendir til þess, að ný
stétt,arvakning, sé að fara fram
meðal sjómannanna, það er and-
inn frá hinni hetjulegu baráttu
er hin djarfhuga íslenska sjó-
mannastétt liefir hád, sem lýsti
sér á f undmum. í fyrrakvöld, þaö
var fyrirheit um að sjómennirn-
ir vœru reiðubúnir að standa
fremst í barátturöðum alþýðunn-
ar, ein-s og svo oft áðutr.
Grimdaræði Japana
í Nanking
LONDON I GÆRKV. F.Ö.
Fulltrúi japönsku herstjórnar-
innar í Shanghai hefir skýrt frá,
því í hvaða erindagerðum Alli-
son, sendisveitarritari Banda-
ríkjastjórnar, var staddur í kín-
versku húsi í Nanking, er jap-
anskur lögregluvörður gaf hon-
um utan undir. Allipon var aö
kynna sér kæru þess efni,s, að
kínverskur kvenmaður, sem bjó
í húsinu, hefði verið svívirt af
japönskum hermönnum •inna.n
landareignar ameríks borgara.
— Japanski lögregluvörðurinn
hafði skipað Allison að hafa sig
á burtu, en Allison neitað því,
þar sem hann væri að gegna em-
bættisiskyldu sinni.
öllum. fréttaheiímildum ber
saman um, að hræðilegt ástand
ha.fi ríkt í Nanking, síðan Jap-
anir tóku borgina, og- að japansk
ir hermenn fari ráns hendi, ekki
einungis um hús og eignir Kín-
verja, heldur og útlendra borg-
ara, og að enginn kínverskur
kvenmaður sé óhultur fyrir
þeim. /
Or boéglnn!
Næturlæknir
í nótt er Ólafur Þorsteinsson,
Mánag'ötu 4, sími 2255.
Næturvörður
er þessa viku í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
Póstferðir
sunnudaginn 30. janúar. Frá
Reykjavík: Póstbíll til Þingvalla.
Til Reykjavíkur: »D'ron.ning Al-
exa,ndrin.e« frá Kaupmannahöfn,
Færeyjum og Vestmannaeyjum.
Leiðrétting
Prentvilla slæddist í fyrirsögn
greinar á 2. síðu »Þjóðv.« í gær.
Átti fyrirsögnin að vera: »Hús-
næðismál ungai fólksins og úr-
ræðaleysi íhaldsin,s«.
Ríkisskip
Súðin fór frá Seyðisfirði kl.
3 í gær áleiðis til Norðfjarðar.