Þjóðviljinn - 06.02.1938, Side 3
ÞJOÐVILJINN
Sunnudagurinn 6. febrúar 1938
þlÓOVIUINII
Málgagn . Kommúnistaflokks
Islands.
Ritstjðri'. Einar Olgeirsson.
RititjðrnJ Bergstaðastræti 30.
Slmi 2270.
Afgreiðsla og anglýsingaskrif-
itofa: Laugaveg 38. Simi 2184.
Kemur. út alla daga nema
mánudaga.
Askriftagjald á mánuði:
Reykjavik og nágrenni kr. 2,00.
Annarsstaðar á landinu kr. 1,25
1 lausasölu 10 aura eintakið.
Prentsmiðja Jöns Helgasonar,
Bergstaðastræti 27, simi 4200.
Alþýðublaðið gegn
Alþýðuflokknum.
Kitstjórar Alþýðublaðsins eru
nú lagðir á flótta frá flestum
fyrri ósannindum sínum í sam-
bandi við svik Stefáns Jóhanns
Stefánssonar við samninga þá er
gerðir voru á milli verkalýðs-
flokkanna. En þeim fer eins og
fleiri flóttamönnum, _ að þeir
reyna að hlaða sér vígi á undan-
haldinu -til þess að skýla flótt-
an.um og grípa þá til hin.s sama
haldlausa efnis og áður ,fyr,
nýrra lyga.
I gær þorir Alþýðublaðið ekk-
ert að fidlyxða um saknæmi
ydeynisamnpigsins«, er það gerði
mest veður út af í fyrradag. Má
vera að St. Jóhann, semiertalinn
góður lögfræðingur, hafi bent
Alþýðublaðs-piltunum á að gera
sig ekki að viðundri í augum al-
mennings í landinu, með slíkum
bjánaskap.
Nú er það heldur ekki orðið
neitt foirsíðunúmer hjá Alþýðu-
blaðinu, að kona komst. ekki í
bæjarráð. Þjóðviljinn benti Al-
þýðublaðinu á þá staðreynd að
það var algert einkamál Alþýðu-
flokksins og kommúnistum ger-
samlega óviðkomandi. En þá
finnur blaðið bara upp ný og
enn fáránlegri »sannindi«.
Annars er síst úr vegi að gera
framkomu Sfefáns Jóhantns Ste-
fánssonar og »drengskap« hans
í þessu máli nokkuð gleggri skil,
en gert hefir verið til þessa.
Stefáni Jóh. Stefánssyni var
fullkunnugt. um. bæði samning-
inn og starfsskrána áður en
hann tók sæti á listanum. Hami
vissi, hveXnig liún var í öllwn
atriðum og Jón Axel hafði lagt
áherslu á ýyis þau atriði, sem
Stefán Jólmnn og Alþýðublað-
ið dcemir nú liarðast. Samt tók
hann sæti á listanum. Gerði
hann það til þess eins að geta
verið sjálfur höfuðpaurinn í því
að svíkja þennar, samning. Fyrst
með yfirlýsingu sinni og síðar á
bæjarstjórnarfundi? Hvernig
sem þessiari gátu er velt fyrir
sér hlýt.ur út.kom,an að vera sú
sama að hér hafi verið um ó-
drengskap að ræða. Ef Stefán
Jóhann Stefánsson lítur á það
sem svik við Alþýðuflokkinn að
halda, samninga þá er Alþýðu-
flokkurinn K Reykjavík gerir við
kommúnista., vcru það þá ekki
líka svik af þeim sama Stefáni
Jóh. Stefánssyni að taka sæti á
lista með kommúnistum?
Framkoma Stefáns öll í þess-
um málum er með þeim eins-
Q d dvitako sningin í
Húsavík og: blekk-
ingar HriflnJónasar
Kommúnistar eru reiðubúnir
að taka að sér forustuna i
málum hreppsins, ef peir fá
meirihluta hreppsnefndarinn-
ar að baki sér.
Blekkiiigimi Alþýdublað§ÍKi8
vísað heim til S*öðtirlmsasima
Stefán Jóh. Stefánsson & Co. vissu um
öll atriði samningsins og höfðu ekkert
við pau að athuga fyr en prem dögum
fyrir kosningar.
Jónas, Jónisson þeysir af stað
í dálkum Nýja, dagblaðsins í
gær og reynir hann nú að fá sig
slegin til riddara á hreppsnefnd-
arkosningum þeim, sem nýlega
eru afstaðnar í Húsavík.
En af því nálega öll greinin
er eintómur uppspuni og vísvit-
andi blekkingar verður ekki hjá
því komist að taka hana til
nokkurrar -meðferðar og skýra
um leið frá því hvernig í þess-
um kosningumi liggur.
Eftir hreppsnefndarkosning
arnar stóðu ,saki.r þannig að kom
múnistar fengu þrjá fulltrúa,
framsóknarmenn 2, jafnaðar-
m,enn einn og íhaldið einn. Þetta
atriði er annað af því tvennu,
sem J. J. segir satt, frá í grein
sinni, og hitt sú staðreynd að
Karl Kristjánsson hafi verið
kjörinn oddviti.
Þegar skyldi kjósa. oddvita lá
auðvitað beinast við, að komm-
únistar sem voru stær.sti flokk-
urinn í kauptúninu tækju að sét-
forustuna í málum hreppsins.
Þet.ta atriði töldu, kommúnistar1
einnig sjálfsagt og höfðu ákveð-
dæmum,, sem lengi mun þurfa
að leita eftir hliðstæðu við í ís-
lenskum stjórnmálum.
1 Alþýðublaðinu í gær reynir
Jón Baldvinsson að láta hlutina
lít;a svo út, sem samkomulag það
er náðist á milli Alþýðuflokks-
ins og Kommúnistaflokksins
hafi verið brct á stefnuskrá og
»statutum« Alþýðuflokksins. En
var það þá ekki brot, á þessari
sömu stefnuskrá, að slíkir samn-
ingar voru gerðir í nálega öllum
bæjum og kaupstöðum á landinu
og meira að segja haldnir. Á
Isafirði var meira að segja sa.ni-
þvkt ákveðnari starfskrá en hér.
Á Norðfirði voru ákvæði um út-
strikanir af svipuðu tagi og hér.
Við þetta, hefir stjórn Alþýðu-
sambandsins ekkert haft að at,-
huga svo vitað sé opinberlega,
eða hvergi hefir hún l,átið þá
skoðun í ljós á prenti. 1 lögum
Alþýðusambandsins er það líka
ákveðið að fulltrúaráðið á hverj-
um stað hafi æðsta vald í mál-
um flokksins í sínu umd-æmi.
Það var fulltrúaráðið . hér í
Reykjavík, sem samþykti kosn-
ingasamvinnuna við kommún
ista og hafði til þess fulla heim-
ild í lögum Alþýðusambandsins.
Að lokum er síst úr vegi að
ið Pál Kristjánsson, sem odd-
vita. En þá kom1 að því að leita
eftir meirihluta hreppsnefndar•
iiinar til þess að styðja. forustu
ha,ns.
Lei.tuðu kommúnistar þegar
til jafnaðarmanna, og taldi full-
trúi þeirra Sigurður Kristjáns-
scin' til þess að byrja með allar
líkur til þess að slík samvinna
gæti tekist.
Vildu kommúnistar að Sigurð-
ur gerði málefnasamning við þá
um stjórn hreppsins fyrir hönd
jafnaðarmanna. Þessu var Sig-
urður hinsvegar ekki viðbúinn,
og mun hann hafa leitað ráða
hjá forustumönnum Alþýðusam,-
handsstjórnarinnar hér fyrir
aunnan.
Af þessum vafningum stafaði
það að nokkuð tafðist með kosn-
ing.u oddvitans. En þegar til kom
vildi Sigurður Kristjánsson ekki
géra, málefnasamning við komm-
únista.
Hinsvegar töldu kommúnistar
að það væri lítt gerlegt fyrir þá
að taka forustuna í málefnum
bæjarius þar sem þeir voru í
spyrja Jón Baldvinsson forseta
Alþýðusambandsins, hvort hon-
um finnist, framkoma Stefáns
Jóh. Stefánssonar í samræmi
við þær háværu kröfur um sam-
einingu, sem kcmu fram á Al-
þýðusambandsþinginu í, haust.
Hvort hann lítur svo á, að þó
kommúnistar gengju ekki að til-
boði því er þingið flaustraði
saman, þá sé þar með slegið
föstu að flokkarnir væru -að ei-
lífu sundraðir. Er framkoma
hans og Stefáns Jóhanns Ste-
fánssonar í samræmi við þau
heit, er þeir gáfu í Alþýðuhlað-
inu 15. nóvember 1937 um »ein-
lægni« og »sanngii'ni«.
Og að lokum kemUr mönnum
það kátlega fyrir sjónir að sjá
Alþýðublaðið ráðast: daglega á
sameiningu og samfylkingu
verklýðsflokkanna, eftir alt, sem
það hafði skrifað um þessi mál
eftir síðasta Alþýðusambands-
þing.
Það er þyi síst að undra þó
að flestum, sýnist framkoma Al-
þýðublaðsins og hœgri foringj-
anna í 'fullu ósamrœmi við Al-
þýðuflokkinn og vilja hans, eins
og hann kom fram á síðasta Ai-
þýðusambandsþingi.
Alþýðublaðið er sýnilega í hin-
um mestu vandræðum í gær.
Það sér að málaflutningur þess
er gjörsamlega ófær og veit að
enginn, rnaður trúir blekkingum
þess.
Því grípur það til þess ráðs i
öi’væntingu að staðhæfa, að all-
ar frásagnir Þjóðviljans séu
»rakalaus ósannindi« eins og
það.hafði áður haldið því fram
að það væri »lygi« hjá Þjóðvilj-
anum að -Stefán Jchann hefði
svikið samninga • verklýðsflokk-
anna. Slík málafærsla, sem þessi
dæmir sig sjálf í augum hvers
einasta manns, sem er ekki
haldinn af starblindri trú -á
málaflutningi Stefáns Jóhanns
& Co. og Alþýðublaðsins.
Skal nu mál þetta tekið fyrir
til nokkru nánari athugunar og
sýnt fram á að Stefán Jóh. &
Cci. VISSU VEL að hverju þeir
gengu er þeir tóku sæti á A-list-
anum,- þó að Alþýðublaðið vilji
láta líta -svo út, að þrenningin
hafi ekkert vitað hvað hún
gerði.
Fyrir fulltrúaráðaíundi, sem
haldinn var 6. jan. sl. lágu drög
að sitarfsskrá, en á fundi full-
minni hluta og höfðu enga trygg
ingn fyrir því að g,eta stjórnað
kauptúininu, þar sem meiri hluti
hreppsnefndarinnar var þeim
a.nds,tæður, eða vildi að minsta
kosti ekki tryggja þeim nokkurn
stuðning. Kommúnistar vildu
sem sé ekki eiga að bera ábyrgð
á gerðum andstæðs meirihluta.
Þetta var ástæðan fyrir því,
að annar framsóknarmaðurinn
Karl Kristjánsson var kosinn
oddviti, en ekki sú að kommún-
ietar hafi runnið af hólmirium
eins og Jónaa Jónsscin frá Hriflu
vill vera, láta.
En þó að svona færi að þessu
sinni munu kommúnistar halda
áfram að reyna að ná samning-
um víð Alþýðuflokkinn og full-
trúa hans í hreppsnefnd Húsa-
víkur um starfshæfan meiri
hluta i hreppsnefndinni. Það eru
því aðeins blekkingar þegar J.
J. fullyrðir að þeir þori það ekki.
Kommúnistar eru reiðubúnir
að t-aka fórustuna í hreppsmál ■
um Húsavíkur strax, þegar þeir
hafa trygt sér þann meirihluta
sem þarf til þess, að geta gert.
nokkuð annað en borið ábyrgð
á verkum þeirra manna sem
sjálfir standa, ábyrgðarlausir
gagnvart þeim.
Skipafréttir
Guþfoss er í norður og vestur-
för. Goðafoss er í Reykjavík.
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
Dett.ifoss er á leið til Grimsby
frá Vestmannaeyjum. Lagarfoss
er fyrir norðan. Selfoss var í
Leith í gær.
trúaráðsins nokkru, síðar hlaut
hún samþykt án nokkurra efnis-
breytinga.
' Á -þessum fyrri fundi VAR
SAMÞYKT ÞAD ATRIÐI
SAMNINGSINS. SEM STE-
FÁN JÖHANN STEFÁNSSON
HEFIR NÚ SVIKIÐ, en þessi
atriði voru kosningasamvinna í,
nefnclir þæjarstjórnarinnar á
þeim grundvelli, sem, nokkru
síðar var undirritaður af full-
trúum beggja flokkanna.
Alþýðublaðið getur gengið úr
skugga um þetta með því að
kynna sér fundargerðina, SEM
ER SKJALFEST. Á þessum
fundi var það ákveðið að ganga
til kosningasamvinnu við komm-
únista á grundvelli samnings-
uppkastsins, sem fyrir lá.
Daginn eftir birtir Alþýðu-
blaðið Hsta flokkanna þó með
þeim forsendum, að EKKI SE
VIST að allir taki þar sœti,
vegna samningsins. En að kvöldi
sama dags hafði Stefán Jóhann,
Soffía Ingvarsdóttir og Jón Ax-
el Pétursson GEFIÐ KOST A
SER TIL SETU A A-LSITAN-
UM, A GRUNDVELLI ÞESSA
SAMNINGS, sem þau hafa nú
hafti að engu.
Þá kemur að því. atriði, þar
sem Alþýðublaðið heldur því
frarn að um lögbrot ha,fi verið
að ræða. Hér á blaðið við á-
kvæðið um útstrikanirnar. Þetta
atriði var sent. þrenningunni
allri og hafði hún ekkert við það
að athuga. Hinsvegar var aldrei
hægt að fá Stefán Jóh. Ste-
fánsson til þess að mæta á fundi
kosninganefndanna. En Jón Ax-
el Pétursson lýsti því yfir við
kosninganefndir flokkanna fyr-
ir hönd þeirra þremenmnganna
AÐ ÞETTA ATRIÐI VÆRI
SJÁLFSAGT.
Um þrdðja atriðið, nefndar-
kcisningarnar, vísast til greinar
Árisæls Sigurðssonar bæjarfull-
trúa á öðrum stað hér í blaðinu.
Póstferðir á morgun
Frá Reykjavík:
Mosfellssveitar-, Kj alarness,
Kjósar-, Reykjaness-, ölfuss- og
Flóa-póstar. Hafnarfjörður. Sel-
tjarnarnes. Dr. Alexandrine til
útlanda. Fagranes til Akraness.
Goðafoss vestur og norður.
Til Reykjavíkur:
Mosf ellssveitar-, K j alarness,
Kjósar-, Reykja,ness-, ölfusSr og
Flóa-póstar. Hafnarfjörður. Sel-
tjarnarnes. Lyra frá útlöndum.
Fagranes frá Akranesi.
Leikfélagið
sýnir »Fyrirvinnuna«, leikrit
hins heimsfræga eniska höfund-
ar W. Sommerset Maugham í
kveld kl. 8.
»Bláa kápan•
verður sýncl annað kvöld kl.
8J í Iðnó.