Þjóðviljinn - 17.03.1938, Side 2

Þjóðviljinn - 17.03.1938, Side 2
Fimtudagurinn 17. mars 1938. ÞJOÐVILJINN Yiðtal við Papanin og félaga hans um vísindastörf flokksstarf og daglegt líf á rekisjakanum Heige Holm, blaðamaður við Arbeiderbladet í ■ Kaupmannahöfn, var fyrsti blaðamaðurinn frá jj Vesturevrópu, er hafði tal af hinum heimsfrægu jj leiðangursmönnum. Jermak, 2. nia-rs 1938. I kvöl'd kom ég um borð í Sov- étísbrjótinn Jermak, og var fyrsti blaðamaðurinn frá Vestur Evrópu, sem fékk viðtal við þá Papanin, Krenlcel, Fedoroff og Sjirsoff og auk þess við prófess- or Otto Juljevitsj Sclvmidt. Vegna óveðurs. hafði »Jermak« ásamt »Múrmanets« lagst út af Kopervik, nokkru fyrir norðan Stavanger. »Múrmanets« á að halda áfram til Múrmansk, en Jermak fer til Leningrad, Það var ekki tekið út með sældinni fyrir mig að finna »Jer- mak«, en þegar ég loks sat í ká- etUnni og þeir Papanin, Krenkel, Fedoroff, Sjirsoff og Schmidt á móti mér, þá voru allir erf'iðleik- ar gleymdir. Fjcirmenningarnir litu mun betur út en við, sem nöfðum ekki sofnað blund tvo síðustu sólar- hringana, meðan við vorum að eltast, við þá. Krenkel, loftskeyta rnaourinn, sagði að þeir hefðu allir þyngst þessa níu mánuði, sem þeir dvöldu norður á jakan- jim. Papanin ræður ekki við sig af fjöri, a,ugu hans gneista er hann segir frá lífinu norður frá, og fylgir orðunum eftir með mikl um handatilburðum. Eitt af því fyrsta sem ég spyr um er hunidurinn þeirra, — Það var fimti þátttakand- inn í leiðangrinum, segir prófess- or Schmidt og var hann valinn af sérstakri norður-rússneskri hundategund, einkum vegna fjörsins. Þess vegna hlaut hann nafnið »Kátur«‘. Ég spyr Papanin hvernig þeim hafi verið innanbrjosts, er þeir sáu björgunarliðið frá »Taimir« koma, gangandi í áttina til þeirra. Papanin svarar: Ég mótmæli því eindregið að hér'hafi verið um björgun að ræða. Okkur var ekki bjargað, við vorum sóttir. Við höfðum lokið því starfi er við .höfðum fyrirfram sett okk- ur og einn liður í því var sá, að við yrðum sóttir. Þegar ísjakinn sprakk eina nóttina. — Lentuð þið ekki í stórhætt- ur á ísjakanum? — Nei, svarar Papanin. Þó að ísinn springi undir okkur, þá kom það engum á óvænt,. Það hefði ei,ns gétað ,skeð á norður- heimisskautinu. Einu sinni vor- um við tveir saman að vinna úti við brúnina á jakanum, er byl- ur skall á, svo að við sáum ekk- ert frá okkur., Við ráfuðum um í fjóra klukkutíma áður en við íundum aðsetursstaðinn. Af öðr- umi hætfum má nefna það er ís- jakinn sprakk í tvo hluta. Það vildi til að næturlagi, en daginn áður var öskrandi bylur. Við heyrðum brak og bresti, en það var svo kalt að okkur langaði ekki sérlega á fætur til að sjá hvað um væri að vera. En brest- irnir héldu áfram, og fór þá Sjir soff á fætur og athugaði hvað á gengi. Kom þá í Ijós, að jak- inn hafði sprungið á tveimur stöðum. Önnur sprungan lá rétt við tjaldið þvert yfir jakann og klauf hann alveg í tvent. Jakinn sem áður var 2 km. á breidd og 3 km. á lengd, varð nú 30 m. breiður og 50 m. langur. En svo kom önnur rifa, undir tjaldið og eyðilagði það. Bygðum við þá snjóhús og bjuggum, í því eftir það. Isrekið margfaldaði starf- ið sem leiðangursmenn urðu að leysa. Það sem varð okkur mesta undrunarefnið var það hve hratt jakinn rak. Hér tók prófessor Schmidt fra.m, í: Vegna þess hve hratt ís- inn rak, margfaldaðist það starf, sem leiðangursmennirnir urðu að inna af hendi. Það er senni- lega einsdæmi hve mikið þessir fjórir rnenn hafa afkastað af vísindaatihugunum, það hefði verið ærið starf fyrir 20—30 manns. Papanin heldur áfram,: Við gerðumi m. a„ 23 dýptarmæling- ar, en um þær er hægt að fá hugmynd ef menn gera sér ljóst að við urðum að renna dýptar- lcðinu niður á 4290 m. dýpi, Síðasta veðurathugunin. Stjörwu- og segvlfrœðmgurinn Feodoroff gerir síðustu veðurat- Imgunina d jakanwnu mesta dýpi, sero mælt hefir verið við Nortíurheimsskautiö, og var það handlína. LccXð v'ar 80 kg. að þyngd. Við vorum ,sex klukku- tíma að draga það upp aítur, með handafli. — Höfðuð þið samband við heimili ykkar, spyr ég. — Við höfðum vikulega sam- band við f jölskyldur okkar, seg- ir Papanin, og prófessor Schmidt bætir við: Konurnar þeirra töluðú oft við þá í útvarpi frá Moskva. Fjórmenningarnir heyrðu greinilega, hvað þær sögðu, og gátu svarað þeim. Prófessor Schmidt svarar rækilega spurningu minni um ár arigra leiðangursins, — og lýsir því þýðingarmikla, starf i, er leið- angursmenn hafi unnið á sviði veðurfræði, haffræði og segul- fræði. Við vorum búnir ad gleyma kvenfóikinu. — Hvernig leið ykkur þarna norðurfrá í níu mánuði, kven- mannslausum? Prcfessor Schmidt þýðir spurninguna fyrir fjórmenning- ana og bætir við: Þar fenguð þið nærgöngula spurningu! Papanin brosir, og hinir segja: »0 — ágæt;lega«. ■ Papanin bætir við: Við höfð- um svo mikið að gera, að við gleymdum alveg tilveru kven- kynsins,, — en okkur er farið að ráma í það aftur. Krenkel segir: Fyrstu þrír mánuðirnir voru verstir, en síð- an 'var þaö ekki. svo bölvað. Sjir- scff og Fedoroff brosa og sam- þykkja,. Papamin, segir frá flokksstarf- seminni á jakanum. Hann var hjálfur selluformaðurinm »A sellufundunum ræddum, við um alt það sem var að gerast I flokknum heima, og yfirleitt urn landsins gagn og nauðsynjar. Þessi flokksstaVfsemi okkar átti FRAMHALD A 3. SÍÐU Hér birtist siðari blutinn af grein Eggerts Þorbjarnarsonar um kaupgjald og vöruverð í Sovétríkjunum. leikur á erindi tiil allra alþýðu- manna og kvenna á Islandi. Vöruverð í Sovétríkjun- um. Við komuim' þá að vöruverð- inu, trompi afturhaldsins. I þessu atriði snýst heimildarmað- ur Jcnasar um sjálfan sig eins og í launamálunum., 1 öðru orð- inu játar hann, að vöruverðið í Sovétríkjunum sé óðum að lækka, en í hinu orðinu á alþýð- unni þar að vera óg'erningur að lifa vegna dýrtáðar. Verðlisti sá, sem Levin birtir gefur alranga imynd af verði nauðsynjavara í Sovétríkjunum og er því bein fölsun. T. d. segir þar, að skór kosti 60—75 rúblur, en skór fást fyrir 25, 30, 40 og 75 rúblur og einstaka tegundir kosta meira. Levin segir, að al- fatnaður kosti. 320—800 rúblur, en alfatnað er hægt að fá fyrir 150 rúblur og þar yfir. Hann segir einnig að frakkar kosti 387—1100 rúblur, en þá er hægt að fá fyrir 150---250 rúblur og þar yfir. Sígarettupakkar með 25 stykkjum, kosta sarnkv. lista Levins 3 rúblur, en þeir fást (með sama stykkjaf jölda) fyrir 35 og 65 kópeka, 1.30, 1.50, 2.00, 2.50 og 3,00 rúblur. Svipað er að segja um verðlag matvæla. Læt, ég nægj,a í því. sambandi að geta þess, að ég keypti mat á venjulegu matsöluhúsi fyrir 65—75 rúblur á mánuði. Vitan- lega' er matartilbúningur á heimilum að jafnmiklu leyti ó- dýrari í Sovétríkjunum og hér á tslandi og geta menri þá séð hvers virði fullyrðing Levins er ura það, að 20 rúblna daglaun í Sovétríkjunum svari til 2 króna dagkaups í, Svíþjóð. Það er því sjáanlegt, að auk aifts þess, sem, ýkt er í grein Lev- ins, þá hefir hann tekið verðlag- ið á dýrustu vörutegundunum, sem er eðlilegt, því að öðruvísi gat hann ekki náð tilgangi sín- um,. En eins og kunnugt er, hef- ir mikill munur verið í. Sovét- ríkjunum á verðlagi nauðsynjar vara og þeirra vörutegunda, sem heyra undir »lúxus«-vörur. Sannleikurinn um vöruverðið er sá, að síðtustu. 5—6 árin hefir það lækkað álíka kerfisbundið og launin hafa hækkað. Á árun- umi 1933—1937 lækkaði verðið sem hér segir: Kjöt 3 6% pylsur 45— brauð 63— smjör 64— sykur 71— iðnaðarvörui' 5-20— Aukin velmeg.un alþýðunnar hefir, ekki síst vegna, þessara verðlækkana, bætt mataræði fólks að miklum raun. Þannig óx neysla eftirtaldra fæðuteg- unda hjá hverri verkamanna- fjölskyldu að meðaltali árið 1937 borið saman við árið 1986: Kornvara '33% kjöt 115— feitimetá 900— mjólk 37— kúasmjör 112— sykur 73— egg 17— Eins og sjá má, bera tölur þessar ekki vott .um það hræði- lega ástand í Sovétríkjunum, sem Levin hefir búið til á papp- írnum. Sannleikurinn , er sá, að So- vétríkin eru eina landið í öllum heiminum, þar sem rekin er á- kveðin stefna verðlækkunar og launahækkunar. Og þessi sann- Sovétríkin hafa yfirstigið erfiðleikana, hvern af öðrum. 1 Sovétríkjunum, voru þó þeir tímar, að eikki var um velmegun alþýðunnar að ræða.< Það var eftir 4 ára, heimsstyrjöld og 4 ára stríð við 14 ríki og innlenda hvítliðaheri. Efnahagur landsins var þá mjög bágborinn. Alþýð- an varð þá að neita sér um iraargskonar lífsþægindi. Hún varð að spara við sig mat. og klæðnað til þess að geta bygt upp þann, iðnað, sem, síðar meir gæti lagt grundvöllinn að vel- megun fólksins. Hún varð að nurla saman erlend.um gjaldeyri til þess að kaupa vélar fyrir í stað neysluvara, eins og trotsk- istarnir vildu að gert væri. Við þessa erfiðleika bættwst svo spellvirki, borgaranna, trotsk- istanna og stórbændanna, sem kostuðu Sovétrí.kin of fjár. Það nægir að benda á það, að þegar samyrkjuheryfingin hófst árið 1929, slátruðu stórbændurnir ó- grynni kvikfjár og ollu þannig, er frá leið skorti á kjöti, mjólk og leðuryörum. Þetta tímabil erfiðleikanna, þegar alþýðan þurfti að safna nöglum og járnarusli til þess að reisa með fyrstu stóru: raf- magnsstöðina, er nú liðið hjá. I staðinn er nú komjnn stórfeldur fyrsta, flokks iðnaður og ný- tísku landbúnaður, sem eykur afköst sín gífurlega frá ári tit árs og lagt hefir grundvöllinn a,ð vaxandi velmegun fólksins í landinu. Til þessiara breytinga og vaxt- ar hins .sósía,listiska, kreppu- lausa þjóðfélags eiga hinar kerfisbundnu launahækkanir og* verðlækkanii' rót sína að rekja. Og þetta mun halda áfram. Þaö mun fara eins o>g verkamaður í Moskva sagði á fundi einum, er ég var viðstaddur, að bráðum mundi smjörpundið komast' mð- ur í nokkra kópeka. En hversvegna fer afturhald- ið slíkum hamförum nú á móti Sovétríkjunum? Það er vegna þeirrar stórfellclu vakningar, sem fram er að fara meðal ís- lenska verkalýðsins. Aíturhald- ið vill ekki að íslensk alþýða fái að vita sannleikann um sósíal- ismann og reynir með samtaka, árásumi að leiöa athygli hennar burtu frá framkomu afturhalds- FRAMHALD Á 3. SIÐTJ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.