Þjóðviljinn - 22.03.1938, Síða 1
TSJO-DE.
Sjómeim ákyeða sjáltir
kanp sitt og hata gerdar-
dómimi að engn
Sjómannafélögin ákveða kaup-
taxta á saltfiskveidunum með 309
atkv. g egn 151, en fresta ákvörðun
um kjörin á síldveiðunum.
Verklýðsfélögin voru reiðubúin til mótmælaverkfalls.
OUNDURINN i Sjómannafélagi Reykjavíkur, er haldinn
var í gær var mjög fjölmennur.
Samþykkt var ályktun frá stjórn félagains um að fé-
lagið mótmælti gerðardómnum, og teldi sig ekki buudið
af honum, en lieimilaði meðlimum sínum að ráða sig á
saltíiskveiðar upp á þau kjör, er tiltekin voru í síðustu
tillögu sáttasemjara.
Björn Bjarnason hafði flutt tillögu sama efnis, en
tók hana aftur fyrir tillögu stjórnarinnar.
Með þessari samþykt. sjómannanna er gerðardómur-
inn orðinn þýðingarlaust pappírsgagn, og sjómenn hafa
eftir sem áður frjálsar hendur um baráttu fyrir viðunandi
kjörum á síldveiðunum.
Dagsbrúnarstjórnin hafði einróma ákveðið að gang-
ast fyrir eins dags mótmælaverkíalli gegn gerðardómnum
í samráði við verkalýðsfélögin í Reykjavík og Hafnarfirði
ef framhald yrði á vinnustöðvun sjómanna. Átti stjórn
Dagsbrúnar tal við íörmenn flpstra v»-rkalýðsfélaganna, og
tjáðu formenn allra helstu verkalýðsfélaganna sig sam-
þykka slíku mötmælaverkfalli.
Ályktun félagsstjórnarinnar,
er eirinig, var undirrituð af
fimmrmanna-nefndinni, semi kos-
in var á síðasta fundi, var svo
hljóðandi:
»Sjóm ann afélag Re ykjav íkur
nótnxfBlir hardlega gerðardómi
þeim er settur var með lögwm 17.
þ. m. til að dcema um ágreimng
milli sjómann/x og togaraúlgerð-
armanna, svo og úrskurði dóms-
ins, uppkveðmum í dag. Telur fé-
iagið úrskurðinn ekki á þann
hátt bindandi fyrir meðlirni sína
að því sé óheimilt að gera ráð-
stafanir til að ekki verði lög-
skráðir á togara með þeim kjör-
um, sem í úrskurðmum er óikveð-
inn. En þar sem nauðsyn kref-
ur að lausn fáist nú þegar á
kaupdeilunni að því er varðar
saltfiskvertíðina og félagið tel-
ur að þau kjör sem til boða
standa á. þeirri vertíð séu eftir
atvikum ekki óviöimandi þá
heimilar félagið meðlwium sín-
nm að láta lögskrá sig á togara
með greindum kjörwm á saltfisk-
vertíð þeirri sem nú er að liefj-
ast«.
Atkvæðagreiðslan fór þannig:
<sajmanlagðar tölur sjómanna
frá Reykjavík og Hafnarfirði)
að 309 voru með tillögunni en
151 á móti. 43 seðlar voru auðir
og 2 ójgildir.
1 tillögu Björns Bjiarnasonar
var nánar ákveðið um síldar-
kjörin, en Björn dró hana til
baka til þess að ekki þyrfti að
greiöa atkvæði nem,a um eina
tillögu.
Með þessari afstöðu sinni hafa
sjómenn sjálfir ákveðið kaupin
og kjörin á saltfiskveiðunum og
algerlega vísað gerðardómnum á
bug.
Gerðardómuriim
Úrs'kurður hins lögþvingaða
gerðardóms íhaldsins og Fram-
sóknar var kveðinn upp kl. 9 í
gærmorgun.
Var dómur þessi kveðinn upp
af meirihluta dómsmanna, þeim
Hákoni Guðmundssyni formanni
dómsins, Porsteini Porsteinssyni
hagstofustjóra og Pétri Lá,rus-
syni starfsmanni Alþingis. Kjart,
an Ölafsson múrari, sem Hæsti-
réttur tilnefndi einnig í dóminn
og Kjartan Thors, fulltrúi at-
vinnurekenda gerðu báðir ágrein
ing um niðurstöður meirihluta
dómsins.
Úrskurður dómsins var nálega
í öllu sá sami og samningsgrund-
völlur sá., er sáttasemjari ríkis-
ins og sáttanefnd sú er Hæsti-
réttur skipaði á dögunum lagði
fram og þá var hafnað af báðum
aðilum.
Eina breytingin sem gerð var
frá því samningsuppkasti er sú,
að »premía« á síldveiðunum
skuli hækka í sama hlutfalli og
síldarverðið hækkar, ef síldar-
verð fer upp fyrir 5 krónur hjá
síldarverksmiðjium ríkisins.
Úrskurður gerðardómsins er
eftirfarandi:
FRAMHALD á 4. STHTJ
Tiilaga Brynjólfs
Bjarnasonap itm
mjóikurverdlag
rædd í EfH-deiid
1 E. d. urðu í gær miklar um-
ræður um tillögu Brynjólfs
Bjamasonar um verðlag á
mjólk.
Landbúnaðarnefnd hafði
klofnað um imálið. Meirihluti
nefndarinnar, Páll Zóphóníasson
og Porsteinn Porsteinsson vilja
vísa tillögunni til stjórnarinnar,
en minnihlutinn, Erlendur Þor-
steinsson, leggur til að tillagan
verði samþykt imeð smávegis
þreytingu. Guðrún Lá.rusdótt'ir
mælti með samþykt, tillögunnar.
Hermann Jónasson anælti á
móti till. og ko,m enn með þá
frumlegu og fáránlegu kenn-
ingu, að hér væri um atiriði. að
ræða er væri sambærilegt við
það, ef Framsóknarflokkurinn
bæri fram, frumvarp uim' lækkun
verkakaups með þeirri röksemd,
að þá, mundi eftirspurnin eftir
vinnu aukast!!
Málið var tekið út af dagskrá
lausit fyrir kl. 4 og. umræðunni
var frestað.
Kíiiverski þjódarhennn í
sólcn i Miö-Kiiia.
Nýii* sigrar Kommúnista
hersins í Sjansi og Hopei.
EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐV.
MOSKVA 1 GÆRKVÖLDI
Síðustu dagana hefir staða
kínverska hersins í Sjansii-fylki
batnað að mun. Þar eru nú 250
þús. kínverskra hermanna, og
hófu þær gagnsókn. Sjö japansk-
ar herdeildir voru gabbaðar inn
til fjalla, og urðu því óvirkar í
sókn Japananna.
I suðurhluta Sjansifylkis hörfa
Japanir nú norður á bóginn
til fljótsins Huangho. Barist er
víða um fylkið.
Nýjustu fregnir skýra frá
sigTum 8. hei’sins, er víða hefir
komist að baki Japana, einkum
í Sjansi- og Hcipeifylki.
Hinn 10. mars sigruðu kín-
verskir henmenn í Hopei-fylki
10 þúsiund manna setulið jap-
anskt í Fuping-borginni. 1 orust-
unum misitiu Japanir 20 skrið-
dreka.
Sigrar áttunda, hersins og
smáskæruhópa á landamæruini
Sjansi- og: Hopeifylkis hafa gert-
Japönum mjög erfitt. fyrir..
Frá Sjanghai er símað að kín-
verskur her sæki fram' á línunni
Vuhu-Hangstjou og einnig á
Lunghai vígstöðvunum.
Kínverskur her sækir þar
norður á bóginn, o,g hefir tekist
að hreinsa héraðið Linji af Jap-
önufn, eftir stórorustur, og tóku
Kínverjar þar m'ikið af hergögn-
um, og fjölda fanga, en japanski
herinn er á óregluleg.um flótta
á þessu svæði.
Fimtiíu þýskir flugmenn eru
nýkomnir til Sjanghai, til að
berjasti í liði Japana. Um sama
leyti komu 40 þýskar sprengju-
flugvélar til Tokio, og munu þær
verða sendar á Mið-Kína-víg-
stöðvarnar.
Eftir loftárás á Barcelona: Barnslík á götumim.
Framsókn upp-
reisnarhersius í
Aragoníu stönsud
Loftárásiniar á
Bai’celona liaia
kostad 3 |>ús-
undir inairna
líiið.
EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐV.
KHÖFN I GÆRKV. (FÚ.)
RÁ BAIICELONA er sím-
að að aðstaðu stjórnar-
hersins á Arragoníu-vígstöðv-
unuin hafi batnað síðustu-
dagana, einkum á hinni
erfiðu herlínu milli Caspe
og Alcaniz.
FRAMHALD A 4. SIÐU
Þjóðnýting á
olíulindunum
í Mexíkó
LONDON I GÆKVR. (FÚ)
Stjórnin. í Mexíkó hefir skipað
sjö manna ráð til þess a.ð starf-
rækja olíuframleiðsluna þar í
landi. Verkamennirnir eiga full-
trúa í þessu ráði, og hafa þeir
til bráðabirgða tekið að sér alla
stjórn á framleiðslunni. Hin
seytján erlendu, félög sem stund-
a.ð hafa olíuframleiðslu í Mexíkó
hafa beðið um frekari frest til
þess að verða við úrskurði hæsta
réttar.