Þjóðviljinn - 23.03.1938, Page 1
3. ARGANGUR
MIÐVIKUDAGINN 23. MARS. 1938
68. TOLUBLAÐ
Taka Frakkar Minorca
og 8pánska-Marokko?
Adalblað franskra jafnadarmanna tekur
undir kröfu kommúnista um öf lugan stuön-
ing við spönskn stjórnina og krefst hern-
aðarlegra aðgerða gegn sókn fasismans.
140000 erlendra hermanna í liði Francos
i Arragoninsókninni, en 20ooo Spánverjar
Fjöldafundur i París uiótmœlir innrás fasistaherjanna á Spáni.
EINKASKEYTI TIL ÞJ0PTrlLJANS KHÖFN I GÆRKVöLD/
y AFNAÐARM ANNALEIÐTOGINN Zyromski krefst
þess í grein í aðalmálgagni jafnaðarmanna
»Populaire« að Frakkland svari sókn fasismans á
;Spáni með eftirfarandi aðgerðum:
1. Frakkar taki eyjuna Minorca á sitt vald
til að vega á móti hinum sterku hernaðarstöðv-
um Itala í Mallorea. (Mallorca og Minorca eru
stærstu eyjarnar af Baleareyjunum.)
2. Frakkar taki Spánska-Marokko her-
skildi vegna þeirrar hættu scm Franska-Mar-
okko er búin af ylirráðum fasismans þar.
3. Fjölmennur her sé hafður til taks við
Pireneafjöll.
4. Lýðveldisstjórninni spönsku sé veitt öll
nauðsynleg hjálp.
Frönsku blöðin birta nu nákvæmar skýrslur
um herstyrk Franeos á Arragoniu-vígstöðvunum. í
liði hans þar eru 60 000 ítalskra hermanna,' 10 000
Þjóðverjar, 20 000 Portugalar, Rúmenar og Ung-
verjar, 10 000 manna nýlenduhersveit og 20 000
Spánverjar.
FRÉTTARITARI
Sovétstjórnin hvetur Frakklandsstjörn
til að veita spánska lýðveldinu lið
L0ND0N I GÆRKV. (FÚ).
I Barcelona er haldið áfram
að gv,afa upp úr rúsifcunum lík
þeirra manna sem farist hafa
í loftárásum undanfarið.. Er
þetta m.jög erfitt, verk og stwr-
hættulegt. Umj þúsund lík eru
þegar fundin og talið sennilegt;
að miklu fleiri muni hafa farist.
Landvamarmála.ráðherrann í
Barcelona gaf út, opinbera. til-
kynningu um, það í dag að þrátt
fyrir hamrömm áhlaup sem her
Francoe hafi gert, á Aragoníu-
vígstöðvunum;, með öllum helstu
hernaðartæk j um nútímans,
hefði honum ekki tekist að vinna
neitt á nú upp á síðkastið.
Uppreisnarmenn á Spáni hafa
hafið nýja sókn á vígstöðvunum
á Norður-Aragoníu og sækja
fram frá Huesca, en sú borg hef-
ir verið umkringd af stjórnar-
hernum siðan borgarastyrjöldin
hófst.
LONDON I GÆKVR. (FO)
Franski utanríkismálaráðherr
ann Poul-Boncour, átti á, laugar-
daginn tal við fulltrúa Sovét-
ríkjanna í París og er mælt
að þeir hafi rætt um þá kröfu
Rússa að franska stjórnin veitti
spönsku stjórninni lið.
Kort af Marolclco og Suður-Spáni
Stjórnin í Lithauen
segir aí sér.
Stjórnin, í Lithauen hefir sagt
af sér, vegna, þess að hún neydd-
ist til að ganga að úrslitakostum
Pólverja. Smetana forseti hefir
tekið lausnarbeiðninía gilda, en
beðið ráðherrana að gegna störf-
um sínuml áfram, þar til forsæt-
isráðherrann kemur heim en
hann dvelur nú í Sviss sér til
heilsubótar. (F.Ú.) #
Kjartan Thors
telur líklegt að
togararnir fari út
Þjóðinljinn hafði tál af
hr. Kjartan Thórs seint í
gærkvöldi og' spurði hvort
atvinnurekendur hefðu tek
ið afstöðu til gerðardóms-
ins á fundi þeirra í gær.
Svaraði Kjartan því, að
á fundirmm hefði að visu
verið rætt vváiið, en engin
ályjctun samþykt i því. Út-.
gerðarmenn liefðu strax
þegar lögin u'm gerðardóm
’voru samþykt ákveðið að
hlíta þeim dómi. og sú
ályktun stceði óhögguð. Frá
félagsins hálfu yrðu engar
liömlur á það lagðar að
skipin fæxu nv, þegar til
veiða, og teldi hann líklegt
að svo yrði.
Gunnlaupr Blondal
heldur stóra sýn-
ingu í París
Gunnlaugur Blöndal listmál-
ari og frú hans eru nýlega farin
til Parísar og munu dvelja þar
um hríð. Mun Gunnlaugur mála
þa,r nokkrar myndir og hefir
þegar verið ákveðið að hann
haldi stóra sýningu í París, þeg-
ar kemur fram á sumarið. F.Ú,
DOLFUSS.
Þjóöhetjur na§-
istanna: Moröing-
jar og giæpamenn
140 gyðingar eru
greftraðir í Vín
daglega.
LONDON I GÆRKV. (FÚ).
Ýms’ar tillögur hafa komið
fram um það, á hver.n hátt eigi
að reisa, við æru nasistans sera
tekinn var af lífi fyrir að myrða
Dolfuss 1934. Meðal annars er
lagt, til að mál hans verði tekið
íyrir á ný og sá dóm,ur feldur,
að hann sé sýkn saka, en önnur
tillaga er sú að lík hans verði
grafið upp og jarðað á ný með
mikilli viðhöfn og síðan reist
minnisraerki á, g,röf hans.
Ekkja Dolfuss Austurríkis-
kanslara er flúin frá Austurríki
til Sviss, eftir því sem. segir í
frétt frá, Austurríki í dag.
1 Genf stendur nú yfir alþjóð*
leg ráðstefna Gyðinga,, Ráðstefn-
an hefir samþykt ályktun þess
efnis, að Gyðingar í Austurríki
sæti nú verri meðferð og’ meiri
ofsóknum en nokkru sinni hefir
verið hlutsikifti Gyðinga í Þýska-
landi, 1 Vínarborg séu nu jarð-
aðir 140 Gyðingar daglega, en
áður hafi meðaltalan verið fjór-
ar jarðarfarir á dag í. grafreit-
um, Gyðinga.
Alþingi
Forsætisráðherra
gefur yfirlýsingu.
Tillögu Einars Olgeirssonar og ísleifs
Högnasonar um gjaldeyri handa inn-
lenda iðnaðinum vísað til nefndar.
Forstætisráðherra gaf í byrj-
un fundar í neðri deild í gær
yfirlýsingu um að lausn iogara-
deilunnar væri nú að nálgast og
hann myndi því byrja, á eftir-
grenslun í þinginu eftjr hinu póli
tíska ástandi, .svo trygt sé að
ráðuneytið hafi þingræðislegan
meirihluta bak við sig,
Fyrir n. d. lá í gær til einnar
umræðu þingsályktunartillaga
l'rái Einari Olgeirssyni og Isleifi
Högnasyni um, að skora á ríkis-
stjórn að hlutast til um að næg-
ur gjaldeyri fáisfc handa inn-
lendri iðju. E. 0. hafði frarn-
sögu., Sýndi hann fram á hver
voði vofði yfir, ef innlendur iðn-
aður yrði að meiru eða minna
ieyti að stöðvast vegna hráefna-
skorts, þar sem þúsundir manna
hefðu nú lífsviðurværi sitt af
þessum iðnaði. Lagði Einar til að
tillögunni yrði vísað til iðnaðar-
nefndar svo hún gæt,i, athugað
ástandið og látið álit sitt í ljósi
við framhaldsumræður málsins.
Var það samþykt með 17 atkv.
— Skúli Guðmiundsson kom með
tillögu um að vísa málinu til rík-
isstjórnarinnar, en tók hana aft-
ur.