Þjóðviljinn - 25.03.1938, Síða 1

Þjóðviljinn - 25.03.1938, Síða 1
3. ARGANGUR FOSTUDAGINN 25. MARS. 1938 70. TOLUBLAÐ Breska §tjórnin lætur ofbeidi ia§istaríkjanna aískittalanst. Svar til Litvinoíts: Fasistaherrumim gæti mislíkad ef lýðræðisþjóðirnar voguðu að gera með sér bandalag! Engin aðstoð yið iýdræðisstjdrnipiiar á 8páni og í Tékkóslóvakíu. EINKASKEYTI TIL ÞJOP^ILJANS KHÖFN 1 GÆRKVöLD/ rnÆÐA CHAMBERLAINS, forsætisráðherra Bretlands, um utauríkismálin, hefir mjög aukið á öryggisleysið og ófriðarhættuna í álfunni. Lýsti forsætisráðherrann yfir því, að hann teldi óframkvæmanlega tillögu Litvinoffs um bandalag iýðræðisþjóðanna, þar sem slíkt bandalag mundi einungis skifta álfunni í tvær fylkingar innbyrðis fjandsamlegar. Ennfremur lýsti Chamberlain yfir að breska «tjórnin mundi halda áfrarn hlntleysisstefnunni í Spánarmálunum, og teldi sér ekki fært að lofa Tékkóslóvakíu stuðningi þó á hana yrði ráðist. FRÉTTARITARI Kæða Chamberlains L0ND0N I GÆRKV. F.U. Chamberlain forsætisráðherra Breta flutti ræðu sína um utan- ríkismálastefnu Breta í neðri málstofu breska þingsins í dag. Hann hótf mál sitt með því að -endurtaka þá yfirlý.sing,u að grundvallaratriðið í utanríkis- málastefnu Breta væri það að varðveita friðinn, »því að vér vitum«, sagði Chamberlain, »að í stríði er enginn sigurvegari«. Fyrsta sporið til verndar friðnum: Vantraust á Þjóðabandalagið! Eftir að heimsstyrjöldinni 'iauk, sagði Chamberlain hefðu menn sett vonir sínar til Þjóða- bandalagsins. »Eg get ekki neit- .-að því«, sagði Chamberlain, »að traust mitt til ÞjóðabanctcUaffs- ins hefir beðið nvj'óg alvarlega Jinekki, en þó hefi ég ekki tap- að trúnni á það, að unt verði að reisa Þjóðabandalagið við og gera, það ennþá að því afli til varðveislu friðarins, sem því var upphaflega ætlað að verða. Þjóð- ir heimsins verða að taka sig •samian um að kveða niður þau iifl sem, á hverjum, tímia fela í sér ótfriðarhættu, en til þess þurfa þær að vera, vel vígbún- ,ar«. Tékkóslóvakía: Þá vék Chamberlain að mál- um Tékkóslóvakíu með sérstöku tilliti til öryggis hennar. Ný-af- staðnir atburðir í Austurríki, sagði hann, hefðu óhjákvæmi- lega vakið hjá mönnumí þá spurn ingu hvort ekki gæti skeð að samskonar örlög biðu Tékkósló- vakíu. Ef unt væri að einskorða, liið tékkneska vandamál við íramtíðarkjör Þjóðverja í land- inu, þá ætti að vera auðvelt, að leysa það, sagði hann. En við þeirri spurningu, hvort breska stjórnin væri við því búin að skuldbinda, s,ig til þess, að veit,a tékknesku stjórninni hernaðar- lega aðstoð, ef sjálfstæði lands- ins eða einhvers hluta þes,s, væri hætta. búin, kvaðst Chamberlain verða að svara því, að þess vceri ekM að vcenta að nokkur þjóð tceki á sig' slíka ábyrgð, nema þar sem hennar eigin bagsmmdr kæmu til greina. Þetta þýddi þó ekki það, sagði Chamiberlain, að Bretar myndu ekk,i undir nein- uml kringumstæðum koma til að- stoðar Tékkóslóvakíu, ef fram á það yrði farið. Það gæti orðið hættulegt ef lýðræðisríkin gerðu bandalag gegn fasisman- um! Því nEesti svaraði Chamberlain tillögu Litvinoffs um ráðstefnu milli lýðræðisþjóðanna, út af inn limun Austurríkis í Þýskaland og stefnu fasistaþjóðanna yfir- leitt. Hann sagði að slíkt myndi aðeins auka hinar stjórnmálar legu viðsjár, með því að skifta Evrópu niður í tvenn stjórnmála Launadeilan ó Siglufirði. Einkaskeyti til Þjóðviljans. Siglufirði í gærkvöldi. Eftlr ósk ríkisverksmiðjK- stjórnarinnar sneri’ sáttasemj- ari sér til verkalýðsfélagsins »l»róttur«, Jiegar verksmiðja- stjórn sleit samningsumleitan- nm, og óskaði eftir að félagið seadi einn mann sudur, og út- nefndi Erlend Þorsteinssoa, alþingismainn, til samninganm- leitana með fnllnaðnramboði. Féiagsstjórnln lagði til að sendlr yrðu tveir menn héðaa og tilnefna einnig Sigfús Sig- urhjartarson. NokkrJr lisegri menn hófða í hótunnm, ef l'élagið kysi ekki Erlend tll samninganna. Á félagsfnndi i gærkvöldi var samþykt að senda alia samninganefndina, Ounnar .ló- liannss., Kristján á Eyri og .lóa Jðnsson til Rvíkur ef sátta- semjaid grciddi ferðakostnað þeirra og kaup, að öðruin kostl færu samningaumleitanir frawi hér á Siglufirði. Fréttaritari NEVILLE CHAMBERLAIN. Réttur 1. hefti þessa árgangs er ný- lega komið úk Heftið hefst á grein eftir Einar Olgeirsson séna hann nefnir »Á auðvaldinm að takast, að fá lýðræðið til þess að 'fremja, sjálfsmorð«. Ennfrem ur er í heftinu þýdd saga, sem nefnistf »Maðurinn á veginum«, »Jón Sig,urðsson« kvæði eftir Heigu Sœmundsson, »öveðurs- nótt« frásaga eftir Halldór Jóns- son, »Hljóðbær þögra« eftir Stef~ án ögmundsson, o. fl. leg sambönd, en ekkert gæti ver- ið hættulegra fyrir friðinn í álf- unni. Hinsvegar taldi Chamber- lain að nauðsynlegt væri að fá. allar þjóðir til þess að leggjast á, eitti um að auka skilning og sam- úð þjóða, á milli. Hann kvaðst iagna yfirlýsingu Ilitlers við- víkjandi Tékkóslóvakíu og kvað bresku stjórnina fúsa til þes,s að hjálpa eft;ir megni þessum tveim ur þjóðum til að jafna allan á- greining þeirra á milli. »1 þessu sam:bandi«, sagði Chamberlain, »er gagnslaust, að hóta að beita valdi. Það getur ekki haft, neitt gott í för með séi; en aftur á móti getur það verið hætit,ulegt«. Hlutleysið í Spánarmál- unum byggt á loforðum Mussolinis! Chamberlain gerði Spánar- málin að næsta, um,talsefni og lýsti á ný yfir því að breska stjórnin teldi ldutleysisstefnuna þá einu. réttu stefnu í þessa máli. Hann sagði, að Italir hefðu á ný fullvissað Breta um að þeir sækt ust ekki eftir neinumi landvinn- ingum á, Spáni, né eftir því að a,uka v,ald s,itt í Miðjarðarhafi, og hann kvaðst ekki hafa, neina ástæðu til þess að efa einlægni þeirra(H). Viðræðunumi milli FRAMHALD Á 4. SIÐU Jóna§ frá Hriflu og Mosa- slíeggtip gera samfykingu Árásir á Harald Guömundsson fyrir skipun formanna sjúkrasamlaganna. Sigurður Kristjánsson flytur þingsályktiunartillögu í Samein- uðu þingi, svohljóðandi: »Alþingi ályktar að fyrirskipa. atvinnu- málaráðherra að skipa, nú þegar formenn sjúkrasamlaga í kaup- stöðum landsins samkvæmt þeg- ar gerðum tillögum. tryggingar- ráðs«. Kom tillaga þe,ssi til umræðu á fundi sameinaðs þings í gær kl. 1. Réðust íhaldsmenn og Jón- as frá Hriflu að Haraldi Guð- mundssyni fyrir það að hann hefði ekki farið eftir "fTllögum tryggingarráðs um, skipun for- manna í sjúkrasamlögum: kaup- staðanna,. Kom greinilega í ljós samspil milli íhaldsins og Jón- asar í þessu máli. Ræða Jónasar var ósvífnari og strákslegri en menn eiga, alment að venjast, í þingsölumi nema þá helst af Thórsbræðrum,, — réðst hann, á, Harald af miklum móði, brá hon um um þekkingarleysi, andleg- an vanmátt, ódrengskap, bjána- skap, þroskaleysi, heimsku og vísvitandi lagabrot í. skipun for- mianns ,sjúkrasamlagsins á Isa- firði! Svaraði Haraldur öllu þessu m,eð vorkunnlátu glotti. Skýrðí ,hann frá að hann hefði ekki fylgt tillögum Tryggingarráðs umi val formanns sjúkrasamlag- anna í Vestmannaeyjum og Siglufirði, vegna þess hve fjár- hagur þessara sjúkrasamlaga væri illa kominn, og hann hefði ekki treyst þeim) mönnum, er til- nefndir voru, til að rétta hann við. Hahn. hefði enga skipað í staðinn, en óskað efti.r öðrum tillögum. Á Isafirði hefði hann skipað foirmann samkvæmt til- lögu, minnihluta Tryggingarráðs og yrðu dómstóiar að skera úr því hvort; það væri ólöglegt eða ekki. Umræðunni var frestað.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.