Þjóðviljinn - 31.03.1938, Síða 1

Þjóðviljinn - 31.03.1938, Síða 1
3. AKGANGUR FIMTUDAGINN 31. MARS. 193& 75. TÖLUBLAÐ Barátta Jönasar frá Hriflu gegn iðn- aðarmönnum. Dómur í máli Sveinbjarnar Kristjánss. Sókn íranco§ til Lerida §tödvnð? Stjöriiarheriiiai vinnur f jölda þorpa við Teruel. Utó mánaðamótiin janúar og febrúar stöðvaði Samband meistara í bygg'ingariðnaði Sveinbjörn Kristjánsson húsa- smíðameistara við málningar- vinnu í húsi, sem hann var að foyggja. Töldu meistarar aó Sveinbjörn hefði ekki, sam- kvæm,t lögum um iðju og iðnað, rétt. til að vinna að málningu. Jafnframt óskaði meistarasam- foandið eftir úrskurði lögreglu- stjóra um málið. Meðan rann- .sókn málsins fór fram setti meistarasambandið húsiö í bann og var bæði meisturum og svein- <um í byggingariðnaðarsamtök- unum bannað að vinna hjá Sveinbirni, svo sem samþyktir og samningar þessara samtaka gera ráð fyrir. Dómur er nú genginn í máli þessu og var Sveinbjörn sýknað- ur. Sýknudómurinn er bygður á foeim forsendum, að Sveinbjörn hafi leyfi til að vinna að máln- ingu »fyrir sjálfan sig og sit.t Iieimilí« eins og segir í iðnlögun- um. — Er hér vitanlega um. al- rangan skilning1 að ræða, þar sem það er vitað að byggingar jþær, sem Sveinbjörn þessi hefir foyggt, eru alls ekki bygðar »fyr- Stjórnin í Tékko- slovakiu sest að ir hann eða hans heimili«, held- ur er hér um framleiðslu að ræða, semi seld er hæstbjóðanda eins og hver önnur framleiðsla iðnaðarmanna, Með dómi þessum er því frek- lega gengið á skýlausai lagalega vernd, sem iðnaðarmönnum er veit,t að landslögum. Þessi dómur er þó aðeins einn þáttur í herferð þeirri, sem Jónas frá Hriflu hefir hafið gegn öllum; iðnlærðum, mönnum. — Virðist Jónas hafa, sjúklegt hatur á öllu því er lýtur að sér- þekkingu manna. -— Hefur hann gengið svo. langt, í þessu, að fyr- ir atbeina Framsóknarmanna munu beinlínis hafa verið gerð- ar ráðstafanir til þe,ss að flytja hingað iðnaðarmenn og fúskara utan af landi í þeimi tilgangi að rjúfa samtök iðnaðarmanna og svifta þá öllum lagalegum rétti. Jónas hefir með árásum sínum á iðnaðarmenn beinlínis hvatt menn til að hafa að engu öll gild- andi log umi iðnað. Það virðist, nú vera kominn tími til þess að iðnaðarmenn sem heild heimti skýr svör af Framsóknarflokknum í, þessum málumi og afstöðu formanns flokksins. Sé það stefna Fram- sóknarflokksdns, s,em Jónas hefir túlkað í iðnaðarmálunum verða iðnaðarmennirnir að taka af- stöðu til flokksins sem sliks. Byrgi stjórnarlida á Teruel vígstöövunum-. EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJANS, Khöfn í gærkv. STJÖRNIN í BARCELONA til- kynnir í dag að framsókn uppreisnar- manna til Lerida sé stöðvuð. I síðustu 36 klukkustundirnar hafa staðið yfír grimmilegar orustur við Cincafljótið og uppreisnarmenn hafa ekkert unnið á. Stjórnarherinn hefir byrjað g’agnsókn við Teruel og pegar tekið fjölda porpa í grend við borgina. FRÉTTARITARI. CORDELL HULL . utanríkisráðh. Bandaríkjanna. Cordel Hull reynir að mynda alþjóöa- samtök til hjálpar austurrískum flótta- mönnum. LONDON I GÆR (FO). Tíu ríki hafa, nú þegar senl ,svör sín við málaleitun Cordelí Hulls, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, um skipun nefndar til þes,s að greiða. fyrir austurrískum flóttamönnum. Eru þetta sjö ríki í Suður-Ame- ríku cg Frakkland, Belgía og Svíþjcð, og svara öll játandi, en Svíþjóð tekur þó þann, fyrirvara, að hún leggi til m,ann í nefnd- ina ef það verði alment • sam- komulag meðal stjórna að skipa hana. Italía hefir neitað að taka þátt: í nefndarskipuninni. Stjórnarnefnd alþjóðaráðs Gyð- mga. hefir tjáð stjórn Banda- rí.kjanna þakklæti sitt; fyrir þessa uppástungu. »Þegar vér förum út í ófriðinn, verðumfvér að drotna í loftinu og eyðileggja miskunarlaust baráttuþrek og sigurvonir övinapjóðanna«. Öll ræða Mussolinis var hötanir um stríð og stríðsæsingar. samningaborði með Sudeten-Þjóðverj- iim um kröfur peirra LONDON I GÆRKVÖLDI I frétt frá Prag segir, að rstjórnin í Tékkóslóvakíu muni innan skamms hefja viðræður við fulltrúa Sudeten-Þjóðverja, um þær kröfur, sem flokkurinn hefir lagt fram um sjálfsstjórn í héraðsmálum. Stjórnin hefir í byggju að sameina öll lagaá- kvæði viðvíkandi þjcðernis- minnihlutum í landinu í einn lagabálk. Þessi tilkynning var birt í Prag í gær. Sudeten, Þjóð- verjar krefjast nú þess, að al- mennar kosningar og kosningar í sveilastjórnir séu látnar fara frarn tafarlaust. F.Ú. LONDON I GÆRKV. F.U. Síðdegis í dag hélt Mussalini ræðu í öldungadeild ítalska þingsins um' vígbúnað Itala. Þykir ræðan ein hin eftirtektar- verðasta, er hann hefir lengi haldið. Hann mælti m, a. á þessa leið: »Besta vörnin, sem auðið er að koma við í ófriði er sú, aö ráðast. á, og vér erum að búa oss undir það, að hafa á takteinum bæði menn og hergögn fyrir ó- frið þar sem skjótlega verður skorið úr málunum«. Þá sagði hann ennfremur að hermanna- flutningarnir til Spánar og Li- byu hefðu ekki veikt Italíu að neinu marki, »1941 mun svo verða komið, að vér höfum á,tta fyrsta flokks orustuskip, og fjögur af þeim alveg ný. 1 þvi sambandi má minnast þess, að skerfur flotans til lausnar Ab- essiniustyrjöldinni var ajlveru- legur, en því er óhætt að lofa, að í næstu styrjöld mun floti vor ckki liggja aðgerðarlaus: inni á höfnum. Þess má ennfremur geta, að vér höfum 20—30,000 flugmenn á takteinum. Talan ein út af fyrir sig segir ekki rnikið, en þess ber að gæta, að hundr- uð þessara flugmianna hafa dýrmæta reynslu sem þeir hafa aflað sér í tveimur styrjöldum, livorri á eftir annari — styrjöld- inni í Abessiniu og styrjöldinni á Spáni. Og þegar vér förum út í ófriðinn, þá verðum vér að. drotna, í loftinu og eyðileggja miskunnarlaust baráttuþrek og sigurvonir ctvinaþjóðanna«. »Tvenns þarf að gæta í ófriði: árásarinnar og mótstöDunnar. Til skjótra, árása verðium vér að reiða oss, á flotann, árásarflug- vélarnar, stcrskotalioið og hern- FRAMHALD A 4. SIÐU Hundrad spreng- jum yarpad nid- ur yfir Castellon. LONDON 1 GÆR (FU). 1 gær urðu bæir á strönd Kataloníu fyrir loftárásum. Um eitt hundrað sprengjum var varpað niður yfir Castellon og ollu þær töluverðu manntjóni. Landvarnarráðuneyti spönsku stjórnarinnar hefir tilkynt hin- um tveim.ur stærstu verka- mannasamböndumi á Spáni, að allir verkamenn, sem unt, sé að vera án vegna atvinnuveganna, verði tafarlaust að ganga í her- þjónustu. Spánska sendisveitin í London hefir lýst því yfir, að frétt sú, sem birtist í málgagni páfans í Róm á dögunum, að 27 kaþólskir prestiar hefðu verið teknir af lífi af stjórnarhernum. þegar hann tók Teruel, sé ekki sannleikanum samkvæm.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.