Þjóðviljinn - 14.04.1938, Page 1
3. ÁRGANGUR
FIMMTUD. 14. APRÍL 1938
87. TÖLUBLAÐ
Ekkert hitaveitnlán!
Börgarstlórl tilkynti i gær að lán fengist ekkifiEng-
landi nm ófyrirsjáanlegan tíma. Ovfst um lán 1 Sviþjóð
Lygar íhaldsins í hita-
vettnmáGmn aihjúpaðar.
PÉTUR HALLDÓRSSON borarstjóri kom heim úr utanför
sinni með Brúarfossi. Hafði hann, eins og kunnugt er, far-
ið utan litlu eftir miðjan febrúar, til þess að ganga frá láni
því, er hann hugðist útvega í Englandi.
Borgarstjóri kallaði fréttamenn blaða og útvarps á sinn
fund í gær, og tjáði þeim, að lánið fengist ekki um ófyrirsjá-
anlegan tíma í Englandi, og stæði það á leyfi enskra stjórnar-
valda. Hinsvegar kvaðst hann hafa leitað fyrir sér, í Danmörku
og Svíþjóð um lánveitingu til hitaveitunnar, og kvaðst hann
vongóður um, að það fengist, en gaf ekki frekari skýringar
á því, hvar, hvernig og hvenær mætti vænta þess.
F/ásögn Péturs Halldórssonar
Borgarstjóri skýrði svo nán-
ar frá atvikum á þessa leið:
Um þær mundir, sem hann
kom heim úr utanför sinni,
lagði enska stjórnin bann við
því, að lán væru veitt, án þess
að leyfi hennar kæmi til, og
fékk P. H. að vita það, fám
dögum eftir heimkomu sína.
.Pegar drógst að leyfi þetta
fengist, kvaðst borgarstjóri hafa
farið utan aftur, til þess að
kynna sér nánar alla málavexti.
Hafði þá nefnd sú, er var
•ensku stjórninni til ráðuneytis
í þessu efni, lagt á móti því,
að lánið yrði veitt.
En lánveitendur gerðu hins-
vegar allt sem þeir gátu
segir borgarstjóri — til þess
að að lánið mætti takast. Setti
þá stjórnin það helzt fyrir sig,
að hlutfallslega væri lánið of
hátt í samanburði við efni það,
er kaupa skyldi í Englandi.
Kvaðst þá borgarstjóri hafa, á-
samt lánveitendum, farið þess
á leit, að lánið lækkaði svo,
að efnisk'aup næmu 75 af hundr
aði lánsupphæðarinnar í stað
45 af hundraði, sem áður var
gert ráð fyrir. En leyfi stjórn-
árinnar til lánveitingarfinnar
fékkst ekki að heldur, þó að
láninu yrði svo fyrir komið.
Framh. á 2. síðu
Samningum Breta og Itala lofcið.
Italir eiga að taka fult tillit til hagsmuna
Breta og lýsa því yfir að þeir „þeir seil-
ist ekki til valda á Spáni“
inn og skal ítölum heimil um-
ferð um hann bæði í friði og
ófriði með sömu réttindum eins
og Bretar sjálfir hafa. Priðji
kaflinn fjallar um Miðjarðarhafs
málin og er talið, að hann muni
verða raunveruleg viðurkenn-
ing á jafnrétti Bretlands og It-
alíu til siglinga um Miðjarðar-
hafið. Fjórði kaflinn fjallar um
Spánarmálin, og er talið, að
hann muni aðallega vera á þá
leið, að ítalía lýsi því yfir, að
hún seilist ekki til landa eða
yfirráða á Spáni.
GALLO HERSHÖFÐINGI
yfirmaður 31. herdeildarinnar
spönsku, sem berst nyrzt í ÍAra-
gomu.
Bððir striðsaðilar ð
Spáni tilhynna sigra
LONDON I GÆRKV. FU.
Uppreisnarmenn segjast hafa
tekið bæ einnj í grennd við Tor-
tosa og aðeins 14 mílur frá
ströndinni. Pá segjast þeirhafa
sótt fram sunnan við Morella
og hafa tekið þar nokkrar hæð-
ir. Einnig segjast þeir vera á
góðri leið með að ná valdi yf-
ir samgönguleiðinni milli Bar-
celona og Frakklands.
I tilkynningum stjórnarinnar
segir aftur á móti, að á víg-
stöðvunumi í grennd við Lerida
hafi stjórnarherinn hrakið her
uppreisnarmanna norður fyrir
Segre-fljót og að þverá þess,
sem borgin Tremp stendur við.
Flokknr Haralds þriklof-
inn í málinn nm hækknn
atvinnnbótafjárins.
Allar breytingatillögur kommúnista við
fjárlögin feldar af samfylkingu íhaldsins
Haraldsflokknum og Framsókn
í gær fór fram atkvæðagr.
um fjárlagafrumvarpið og
breytingartillögur þær, erfram
voru komnar.
Voru allar breytingartillögur
fjárveitinganefndar samþykktar,
og auk þess tvær tillögur frá
Finni Jónssyni, Bergi Jónssyni
o. fl.
Allar breytingatillögur Kom-
múnistaflokksins voru felldar,
og var yfirleitt órjúfandi sam-
fylking íhatds, Haraldsmanna,
Frajtnsóknar og Bændaflokksins
um að hindra framgang þeirra
hagsmunabóta fyrir alþýðu,sem ,
tillögurnar fólu í sér.. '
Þótti sérstaklega eftirtekta-
vert, að „Alþýðuflokkur" Har-
alds Guðmundssonar var þrí-
klofinn um það ,hvort ætti að
hækka framlagið til atvinnu-
bótanna, eftir tillögu Kommún-
i?taflokksins. Greiddi Erlendur
Þorsteinsson atkv. með hækk-
uninni, Ásgeir Ásgeirsson á
móti hækkun, en verklýðsfor-
ingjarnir Emil Jónsson, Sigur-
jón Ái. Óláfsson, Vilmundur.
Jónsson og Haraldur Guð-
GRANDI
sendiherra ítala í London.
LONDON í GÆRKV. FU.
jí REZKA stjórnin hélt ráð-
herrafund í dag til þess að
ræða um sáttmálann milli ítalíu
og Bretlands, og verður þetta
seinasti fundur stjórnarinnar áð
ur en gengið verður að því að
undirrita sáttmálann.
Spádómar um inni-
hald samningonna.
Prátt fyrir það, þó að efni
sáttmálans eigi ennþá að vera
leyndarmál, þykjast menn nú
vita, að hann sé, í fjórum meg-
in köflum, og fjallar einn um
Arabíu og undirróður ítala
gegn Bretum, meðal Múham-
edstrúarmanna. ítalía skuldbind
ur sig til þess, að láta slíkan á-
róður og aðra starfsemi, sem
Bretland teldi sér fjandsam-
lega, niður falla með öllu. Ann-
ar kaflinn fjallar um Suez-skurð
mundsson, j^pim þótti ekki á-
stæða til að hafa skoðun íþessu
máli og sátu hjá. Mætti minna
þessa herra á þá afstöðu næst
þegar þeim þykir tímabært að
láta lýsa sér í Alþýðublaðitíu
sem fórnfúsum forsvarsmönn-
um atvinnuleysingjanu i.
Banatilræði við Steincke dóms-
málaráðherra Danmeiknr?
Nasisti skaut á hann tveim skotiim.
Ráðtaerrann sakaði ekki.
*
KHÖFN I GÆRKV. FÚ.
^ Á ATBURÐUR gerðist í danska þinginu í dag, meðan
Steincke dómsmálaráðhera stóð í ræðustól þingsins, og var
að tala, að skotið var á hann tveimur skammbyssuskotum úr
einni af áheyrendastúkum þingsins. .Skotin sökuðu Steincke
ekki ,en mönnum varð ákaflega hverft við í þinginu ogvarð
um stund eins og öllum féllust hendur.
Sá er skaut, og nokkrir menn sem með honum voru,
voru þegar teknir fastir. Tilræðismaðurinn var Suður-Jóti
25 ára gamall, Erik Westergaard að nafni. Telst hann nú vera
til heimilis í Aalborg, en er yfirlýstur nazisti og h'efir starfað
um hríð að útbreiðslustarfsemi fyrir flokk þeirra.
Dáttnr í útbreiðsiu-
starfseni nasista
Hann var þegar tekinn til yf-
irheyrslu og gaf þær upplýsing-
ar, að hann hafi gert þetta fyr-
ir áeggjun ónafngreindra flokks
manna sinna, en annars líti hann
á þetta verk sem part af út-
breiðslustarfi sínu. Lögreglan
hefir þegar gert ráðstafanir til
þess að handtaka þá menn, sem
talið er að séu í vitorði með
Westergaard, eða hafi v#rið á-
eggjunarmenn hans. Wester-
gaard hefir verið úrskurðaður í
varðhald fyrst um sinn.
Þegar nokkur ró var komin
'á í þinginu, flutti forseti álykt-
unartillögu, þar sem skorað er
í dómsmálaráðherrann að láta
fara fram róttæka og gagn-
gerða rannsókn á starfsemi
nazista í Danmörku, með það
fyrir augum, að löggjafarvald-
ið gerði síðan ráðstafanir til
þess, að komja í veg fyrir háska
lega starfsemi af þeirra völd-
um.