Þjóðviljinn - 01.05.1938, Síða 1

Þjóðviljinn - 01.05.1938, Síða 1
3. ÁRGANGUR Mætið ðil iá Læklartorgi SUNNUDAGINN 1. MAf 1938 98. TÖLUBLAÐ kl 2. Hinnftst Spánar i dagl Befið fé til að draga ár þfáaininm spðnskn barnanna! Eitt er það land hér í álfu, sem hátt á annað ár hefir ver- ið brennidepill þeirrar baráttu, sem nú er háð milli menningar og villimensku í heiminum. Fyr ir nær því tveim árum síðan hófu yfirstéttir Spánar, auðvald, her, aðall, kirkja, vopnaða upp- réisn gegn löglegri lýðræðis- stjórn landsins, vegna þess að að stjórnin hafði gerst svo djörf að sinna í verki frumstæðustu hagsmunakröfum hinna kúguðu vinnustétta, verkamanna og bænda. Borgarastyrjöld þessi var hafin að undirlagi og með tilstyrk fasistaríkjanna, enda snerist hún von bráðar upp í beina árásarstyrjöld af þeirra hálfu, — að öðrum kosti væri henni vitanlega löngu lokiðmeð algerum sigri stjórnarliðsins. — En, þrátt fyrir sívaxandi of- urefli, hefir alþýða Spánar, — sem þráir það eitt að fá að njóta landsgæða sinna í friði, — varið frelsi sitt alt fram á þennan dag af þvílíkum eld- móði og þrautseigju, sem þeir einir eiga, er í þjónustu rétt- lætisins standa. Á liðskönnunardegi sínum, 1. maí, hlýtur íslensk alþýða að beina huga sínum með sérstök- um hætti til Spánar: í ídag send- um vér blóði stokknum lietjum menningarvarnarinnar vorar heitustu hjartans kveðjur; ídag stöndum vér í anda við hlið þeirra og vottum hollustu hug- sjón þeirri, sem þeir máske láta lífið fyrir á þeirri sömu stund — og ef til vill hafa sumar þessar hetjur staðið við vora hlið, hér á Lækjargötunni, á undanförnum árum. En um leið og þeir fajla, hljót um vér að minnast þess sem þeir deyja fyrir, hins saklausa efniviðs framtíðarinnar, barn- anna, sem heyja sína þöglu bar- áttu við skelfilegar afleiðingar styrjaldarinnar og horfast í .augu við hungurvofuna, —tærð titrandi fórnarlömb villimensk- imnar. Þar getum við öll rétt virka ihönd til hjálpar,, með því að KomnftúnlstaVlokkurliiift safnar f kvöld og nœstn daga fé tll lýsis* kanpa banda spönsknm börnun* og verðar það afihent Friðarfélaginn leggja fram skilding til sam- skota þeirra, sem hafin eru hér í bænum, til lýsiskaupa handa spönskum börnum. Er hér með skorað á alla þá, er frelsi og framtíð Spánar unna, að leggja fram .ginn skerf í þessu skyni, enda þótt lítill kunni að verða. Margt smátt gerir eitt stórt. Verður alt það fé, er áskotnast kann, afhent Friðarfélaginu, ís- landsdeildinni, til fyrirgreiðslu. Viva la liberta! Viva la republica! Viva Espana! Minnist þess, íslensk alþýða, að börn Spánar, þyrst í sól og leik, skjögra nú um rústir lands síns með þjáningu vors eigin málstaðar á herðum. Einhver hin dýrmætasta menningarþjón usta, sem vér getum af hönd- um innt í dag, er því sú, að þurka út þótt ekki væri nema einn dropa af þeim blóðugaka- leik, sem þau verða nú dag- lega að bergja. Lifi frelsið! Lifi lýðveldið! Lifi Spánn! Kommúnistaflokkur íslands. 184 leiðangurs- mðnnnm í norð- nrhðfnm bjargað EINKASK. TIL pJÓÐVILJANS MOSKVA I GÆRKV. ÚSSNESKU Norðurheim- skautsflugmennirnir al- kunnu, Alexéjeff, Golovin og Orloff hafa á þrem flugvélum I sótt 184 menn af skipshöfnurn ísbrjótanna Sadko, Sedoff og Alalygin, sem voru frosnirinni í ísnum í Norðurhöfum. • Framh. á 2. síðu. ALEXÉjEFF

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.