Þjóðviljinn - 22.05.1938, Qupperneq 1
Varalið tókkaeska hersias l?ati
saman og flatt til landaaiæranna.
Islyggileoar horfur ð Evripostpiild.
EINKASK. TIL pJÓÐVILJANS K.HÖFN I GÆRKV.
Stjómin í Tékkóslóvakíu hefir kvatt saman þrjá yngstu
„árganga“ hersins, og gert aðrar þær ráðstafanir er þurfa
.þykir til að halda uppi lögum og reglu í landinu, og vera
viðbúin óvæntum atburðum.
Benes, forseti Tékkóslóvakíu hélt ræð|u í dag. Lýsti hann
þar varúðarráðstöfumim þeim, er stjórnin hefði séð sig knúða
til að gera. Fullvissaði hann áheyrendur sína um, að engiri
hætta væri á því, að komið yrði að Tékkoslovökum óvörum.
FRÉTTARITARI.
Pýzk blöð æsa
gegn Tékkum.
LONDON I GÆRKV. FÚ.
Orðrómur hefir gengið um
það í dag, að stjórn þýska-
lands og Tékkoslovakiu væru
báðar að flytja herlið að landa-
mærasvæðum þessara ríkja.
þýsk blöð eru ákaflega hávær
út úr árekstrum og óeirðum.
isem þau telja að hafi átt sér
stað milli Sudetta og annara
þegna Tékkoslovakiu og milli
Sudetta og lögreglunnar, og
mótmæla þau ákaft að Sudett-
ar verði fyrir nokkrum hindr-
•unum í starfsemi sinni.
Tékkneski her~
inn viðbúinn.
Fréttaritari Reuters í Prag
skýrir frá því í dag, að nokk-
uð af tékkneskum hermönnum
hafi verið flutt til landamær-
anna og þessi fregn er stað-
fest af tékknesku stjórninni,
sem að segir jafnframt, að her-
flutningar þessir séu takmark-
aðir og aðeins gerðir í því
skyni, að æfa hermennina í því
að fara með nýtísku vopn. Þá
er einnig skýrt frá því, að
nokkrar varaliðssveitir hafi ver-
ið kvaddar undir vopn og að
nokkrum landamæravegum hafi
verið lokað.
Pólskur og ung-
verskur her til
landamæranna.
Pá hefir einnig gengið orð-
rómur um það í ,dag, að pólsk-
ar og ungverskar hersveitir séu
að safnast saman við landamæri
Tékkoslovakiu. Þessi orðrómur
hefir ekki fengið staðfestu og
pólska sendisveitin í London
ber á móti því að um nokkurn
iiðsamdrátt sé að ræða.
Súdetum heitið
fullum lýðrétt-
indum.
Tékkneska stjórnin tilkynti í
gær, að hún væri reiðubúin til
að gera víðtækar tilslakanir við
Sudetta og aðra þjóðernisminni-
hluta í landinu, þar á meðal að
veita þeim sjálfstjórn og tryggja
þeim hlutfallslega tölu fulltrúa
í öll embætti og stjórnarstörf.
Seinna í gærkveldi hélt stjórn-
málanefnd Sudetta-flokksins
fund og samþykti þar að setja
fram nýjar kröfur. Fundurinn
ákvað að skýra tékknesku stjórn
inni frá því, að engar viðræður
gætu farið fram milli fulltrá-
Sudetta og stjórnarinnar fyrri
en endi væri bundinn á þann
fram, að hinn þýski minnihluti
ójöfnuð, sem Sudettar halda
eigi við að búa. Pessar ásakanir
um ógnir og ójöffiuð eru end.
Masaryk.
fyrsti forseti Tékkoslovakiu
urteknar í öllum þýskum blöð-
um í dag og mikið gert úr
þeim. Bæði í gær og í dag
birta þau greinar um að Su-
dettar verði að líða óþolandi
kúgun og verði hvað eftir ann-
að fyrir árástim af lögregltmni
og öðrum flokkum.
ð Betsvinmtofain
10. des. síðastliðinn stofnaði
fólk það er vinnur við neta-
bætingar hér í bænum, með
sér félag, er gekk sem deild
inn í Iðju. Nú undanfarið hafa
staðið yfir samningaumleitanir,
en strönduðu nú um miðjan
mánuðinn. í gær var svostöðv-
;uð vinna hjá þrem atvinnu-
rekendum í þessari grein.
Vinnustöðvunin nær til um 40
manna, karla og kvenna.
SjÓBOBBadaprioi
Undirbúningur undir starf-
semi dagsins er hafinn. —-
Þeir, sem nú þegar hafa gef-
ið sig fram, til þátttöku í knatt-
spyrnunni, og aðrir, sem enn
Ihafa eigi gefið sig fram, en hafa
hug á að taka þátt í henni,
mæti á knatispyrnuvellinum í
dag, sunnudag, kl. 2.
Peir, sem hafa gefið sig fram
til þátttöku í söng, mæti á sama
jtíma í K.R.-húsinu.
Keppendur í kappróðri og
stakkasundi mæti í Stýrimanna-
skólanum sama dag kl. 4. Svo
og aðrir þeir, sem styðja vilja
að góðum árangri af deginum.
Undirbúningsnefndin.
Eirsar H. Kvaran, rithöfundur
andað'st aö heimili rínu hér í
bænum kl. óýa í morgun.
Með Einari H. Kvaran er sá
maður hniginn til moldar, sem.
!um margra ára skeið skipaði
öndvegi íslenskra bókmenta og
skáldsagnaritunar.
Einar H. Kvaran var fæddur í
Vallarnesi í Múlasýslu 6. des.
1859. Foreldrar hans voru þau
séra Hjörleifur Einarsson og
kona hans Guðlaug Eyjólfsdótt-
ir. Einar kom í lærðaskólann í
Reykjavík haustið 1875 og lauk
stúdentsprófi 1881. Að stúdents
prófi loknu sigldi hann til Kaup-
mannahafnar og hugðist að lesa
hagfræði, þó að lítið muni hafa
orðið úr því námi.
Pegar Einar kom til Kaupm,-
hafnar var Georg Brandes fyrir
nokkru kominn fram á sjónar-
sviðið og hafði farið sem
stormsveipur um alt menning-
arlíf þjóðar sinnar. Margt sem
var feyskið hrundi til grunna og
nýr gróður var að skjóta rót-
um á rústum hins helstirðnaða
tímabils, sam Danir kalla að
vísu enn „gullöld“ sína. Raun-
sæisstefnan var að sigra.
Einar Kvaran hreyfst með
þessum nýja straumi og ásamt
félögum sínum, Hannesi Haf-
Frh. á 3.. síðu.
Mæðradagurinn er í dag
Mæðrastyrksnefndin hefir skemmtanir og
blómasölu til ágóða fyrir starfsemi sína
Mæðrastyrksnefndin heíir und
anfárin ár unnið mikið og gott
starf. Pó að starfsemi hennar
hafi takmarkast af fjárskorti hef
ir þarna verið hafin starfsemi
af einstaklingum, er ætti í raun
réttri að vera skipulögð í stór-
um stíl fyrir opinbert fé. •
í viðtali við Pjóðviljann skýrði
Katrín Pálsdóttir frá eftirfarandi
atriðum í starfi nefndarinnar.
Nefndin hafði eins og áður,
Egilsstaði í Hveragerði til um-
ráða í fyrra sumar. Par dvöldu
á vegum félagsins um 220 mæð
ur og börn úr Reykjavík,
tveggja til fimm vikna tíma. Bjó
fólkið í húsinu og 16 tjöldum
er reist voru þar í nágrenninu.
Aðstæður allar voru mjög gðð.
ar í Hveragerði, en nú hefir
húsið verið leigt öðrum, 0fr
verður Mæðrastyrksnefndin því
að flytja þessa starfsemi sína
að Reykholti í Biskupstungum,
en gert er ráð fyrir að hún
verði með svipuðu sniði og
áður.
Auk þessarar starfsemi bauð
Mæðrastyrksnefndin í fyrra 55
mæðrum úr Revkjavík til viku-
dvalar á Laugarvatni, og nutu
þær þar sama atlætis og aðrir
gestir.
Blaðamaður frá Pjóðviljanum
talaðii í gær við eina af konum
þeim, sem dvalið hafa á Laugar
vatni undanfarin sumur á veg-
um Mæðrastyrksnefndarinnar.
Hún er fátæk verkanrannskona,
14 barna móðir, þrettán þeirra
lifa og eru heima hjá foreldrum
sínum, og er það yngsta aðeins
þriggja ára gamalt. Hún hefir
búið í Reykjavík í 16 ár sam-
fleytt, og á þeim tíma aðeins
einu sinni komist úr bænum, að
fráskildum Laugarvatnsferðun-
um.
Augu hennar ljóma, þegar
minst er á Laugarvatnsferðirn-
ar. „Par var gott að vera. Við
erum ekki vanar því, verka-
mannakonurnar, að dekrað sé
við okkur, -— ég hefi aldrei
komist í slíkt lúxuslíf um mína
daga. Þegar börnunum fjölgar,
verður maður svo bundin, all-
ur tíminn fer í heimilisstörfin,
Framh. á 4. síðu.