Þjóðviljinn - 25.05.1938, Page 4
ap Ný/afó'io a§
TaoitskiQssóaataL
Unaðsleg ensk tónlistarkvik
mynd, þar sem fólki gefst
kostur á að sjá og heyra
frægasta píanósnilling ver-
aldarinnar Ignace Paderew-
ski spila Tunglskinssónöt-
una eftir Beethoven, As-dur
Polonaise eftir Chopin,ung
verska Rhapsodi nr. 2, eft-
ir Lizst og Menuet eftir Pa-
derewski.
Cípborginn!
Næturlæknir.
Björgvin Finnsson, Vestur-
götu 41, sími 3940.
Næturvörður
er í Ingólfs og Laugavegs
apóteki.
Otvarpið, í dag:
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Erindi umferðaráðsins:
Umferðarslys og tryggingar.
Ólafur Matthíasson fulltrúi.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Úr sögu líf-
trygginganna. Carl Tulinius
framkvæmdastjóri.
20.40 Hljómplötur:
a. „Borgarinn sem aðalsmað--
ur“, eftir Richard Strauss.
b. 21.15 íslenzk lög.
c. 21.40. Lög leikin á Haw-
aii-gítar.
22.00 Dagskrárlok.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir í síðasta sinn í kvöld
sjónleikinn „Pað er kominn
þJÓÐVIUINN
Tilkynning.
l’rof i eirsmíði, járnsmíði, ketilsmíði, málmsteypu
rennismíði og vélavirkjun verður haldið nú í júní-'
mánuði. Þeir nemendur, sem hafa rétt til þess að
ganga undir prófið, sendi umsóknir sínar, ásamt
námssamningi, vottorði meistara síns, vottorði
lðnskólans og skímarvottorði fyrir 27.. þ. m. til
forstjóra Landssmiðjannar gggJt*
Asgeirs Signrðssonar
dagur“, með frú Önnu Borg og
hr. Poul Reumert — sem gest-
um — í aðalhlutverkunum.
íslandsglíman.
verður háð á Iþróttavellinum
í Reykjavík miðvikudaginn 1.
júní n. k., vegna eindreginna
óska Vestmannaeyinga.
Keppt verður um glímubelti
I. S. í., handhafi Skúli Þorleifs-
son ^Ármann). :
Ennfremur verður keppt um
fegurðarglímuskjöld í. S. í.,
handhafi Sigurður Hallbjörns-
son (Ármann)
Öllum glímumönnum innan í.
S. í. er heimil þátttaka. Kepp-
endur gefi sig fram við formann
Ármanns fyrir föstudagsköld
27. maí n. k.
íþróttamótin í Reykjavík
sumarið 1938,
verða sem hér segir:
17. júní. íþróttamót.
Allsherjarmót I. S. í. dagana
10., 11. og 12. júlí.
Álafosshlaupið 31. júlí.
Dfengjamót Ármanns 3.—5.
ágúst.
Meistaramót I. S. í. 27.—28.
ágúst.
Hafnarfjarðarhlaupið 31. á-
gúst.
Glímufélagið Ármann sér um
öll íþróttamótin í sumar.
Flobksfélagar
og aðrir Iesendur!
Skiptið við þá, sem aug-
lýsa í þjóðviljanum, og lát-
ið blaðsins getið!
Skipafréttir.
Gullfoss fór frá Leith í gær
áleiðis til Vestmannaeyja, Goða-
foss var væntanlegur hingað í
morgun, Brúarfoss fór til Ak-
ureyrar í gærkvöldi, Dettifoss
Var í Grimsby í gær, Lagarfoss
er á leið til Leith.
Gamlal7)ib %
PáRNELL
Stórfengleg og áhrifamik-
il söguleg kvikmynd frá
Metro Goldwyn Meyer
um samtíðarmann Glad-
stones, írsku frelsishetj-
una Parnell, sem kallaður
hefir verið „hinn ókrýndi
konungur íra“.
Aðalhlutverkin leika hinir
vinsælu leikarar:
Clark Gable og
Myrna Loy.
Frá Kína
Framh. af 1. síðu.
mjög skipulega fram og í sam-
ræmi við þá stefnu kínversku
herstjórnarinnar, að hætta ekki
sínum mönnum að óþörfu, en
brjóta niður mótstöðuafl Jap-
ana. Þá ber hann á móti því,
að Japanir hafi umkringt kín
verska herinn, og segir að þeir
hafi ekki lið til þess.
Bókio, sem allir tala o
„Islenskur aðallu
ECtlr Þórberg Þórðarson
Ennþá einu sinni hefir Pórbergur Pórðarson komizt
á allra varir.. Nú deila menn um, hvor bókin hans,
íslenzkur aðall eða Bréf til Láru, sé skrifuð af meirí
snilld.. Sú skoðun mun þó sigra, að aldrei hafi ritsnílld
Pórbergs notið sín betuir í allri fjölhæfni, háði, fyndni
alvöru og gamansemi, heldur en nú í fslenzkum aðli..
Fæst í öllum bókaverslunum
LeikBélag Reykfavlknr
Gestirt
Annð Borg — Ponl Renmert
”Það er kominn dagnr”
Sjónleikur í 3 þáttum eftir Karl Schliiter.
5. sýnlng í kvöfd kf« 8.
Síðasta sinn.
Aðgöngumiðar seldir í dag eftir kl. 1 á 6 kr.
Ekki tekið á móti pöntunum í síma.
Alexander Avdejenko;
Eg elska . . 43
vinnurekstri sínum, að honum varð aldrei skota-
síkuld úr því að finna einhvern, sem gat selt fyrir
hann, það, sem aflaðist. Svo hafði hann fullar hend-
ur fjár og gat keypt eins og hann vildi af heima-í
bruggi og kokain virtist hann aldrei skorta. Svo
hófst glymjandi glasaglaumur, ,,Vængurinn“ skelii-
hló í öl- og kokainvímunni. Þá hafði hann það til
að faðma mig að sér og sverja við allt sem hon-
um var heilagt, að slíkan snilling hefði hann aldrci
haft áður í þjónustu sinni. Hann reyndi meira að
segja að kyssa mig við hvert tækifæri. Eg var
byrjaður að drekka. „Vængurinn fylti glasið mitt
upp á barma og eg skolaði köldum vökvanum nið-
ur kverkarnar og reyndi þannig að kæfa hinn dular-
fulla eld, sem brann' í hjarta mínu.
Þannig leið einn dagurinn á fætur öðrum: Heim-
áoknir í ókunnar íbúðir, fullir sekkir, heimabrugg
og söngur.
Dag nokkurn hafði eg og „Máninn“ komið okkur
slaman um að við skyldum látast vera veik'ir.1
(Við láum í hnipri undir ábreiðunum og skulfum
eins og rennblautir hundar. Eg var jafnvel farinn
að trúa því sjálfur, að eg væri meira en lítið veikur.
|Eg ligg á hliðinni og smátt og smátt verður
mér öll min tilvera ljósari en áður. ,Eg lít á vin
minn og nú sýnist mér eg sjá hanrf í Öðru ljósi en
eg hafði séð hann nokkru sinni fyr. Daufur geisli
frá olíulampanum fellur á tötra han. Höfuð hans
er nær hulið af þykku, rauðu hári, >sem gljáir á
eins og fægðan kopar. Þelta hár getur aldrei dökn-
að, hvor.ki af sóti né óhreinindunum úr svörtu
lambskinshúfunni, sem hann bar sýknt og heilagt
á höfðinu. Hárið liggur í 'gullnum tjáslum um enni
lians og kinnar og hverfur að lokum undir óhrein-
an klút, sem hann hefir um hálsinn.
!Eg spyr blíðlega:
— Hvaðan ertu?
— Eg er upprunninn hér úr kvosinni, svarar
„Máninn“ og þrýstir heitum fótum sínum fastar
að mér.
i— Frá Óþefskvosinni, og eg man ekki til þess
að hafa séð þig nokkru sinni.
i— Eg er ekki frá þinni „Óþefskvos“, eg er frá
okkar Óþefskvos í Juzooka. Hefir þú áldrei heyrt
talað um bæ með því nafni? Faðir minn vann þar
í námu, en mamma drakk og hóraðist. 'Stundum
barði hún mig1 í andlitið svo að stóriega sá á mér,
eg kvartaði undan þessari meðferð við föður minn,
en hann var enginn maður til þess /að standa í
slíkum málum. Þó ráðlagði liann mér að reyna að
l'atma mömmu fyrir mig. Þetta reyndi eg ,líka.
Dag nokkurn gat eg lokkað hana að kjallaralúk-
unni, sem stóð opin. Eg liafði hraðann á og hrinti
henni niður í kjallarann og lokaði hlemnmum á
eftir henni. Þar varð hún að dúsa uns pabbi konr
heim. Eg sagði honum livernig komið væri, ten
hann fór að öskra og óskapast og 'þaut eins og
elding að kjallaraopinu. En þa ðan heyrðist hvorki
stuna né hósti framar. Svo greip hann fyrir kverk-
ar mínar, kastaði mér á gólfið og sparkaði á mér
eins og vitstola maður.
„Máninn“ þagnaði augnablik, leit á mig og hélt
svo áfram sögu sinni:
— Þá nótt hljóp eg að heiman ,og hefi aldrei
látið sjá mig þar síðan.
— Svo lá hann kyr við lilið mína, með opna»
varir eins og hann vildi halda áfram sögu sinni.
En hann hikaði og vætti sóttheitar varir sínar með
tungunni og starði áfjáðum tindrandi augum á olíu-
lámpann. Einhver hálf ósýnileg hönd dró glugga-
tjaldið frá og gula yfirskeggið á myndinni, aem
hékk á veggnum, virtist hr.eyfast. Einhversstaðar
í fjarska heyrðist hundgá. Kveikurinn í lampanum
brann út og ljósið sendi frá sér bjartari geisla um
leið og það sloknaði. „Máninn“ lauk frásögu sinni
í skyndi:
— Faðir minn skyldi mér eftir minningu sem ég
gleymi aldrei.
Hann fálmaði Ú myrkrinu eftir hönd minni og bar
hana að fæti sínum. Ég fann að þar var gapandi ör.
Eg gat mér strax til hverju „Máninn“ mundi hvísla
að mér. (
— Hann braut fótinn.
Hann slepti ekki hönd minni. Það var sem hann
vjæri hræddur um að hann misti hana þá alveg.
— Þú segir, að þú sért kallaður vanskapnaðux^.
Það er slæmt. Kallaðu þig heldur dýriíng. Augu
þín eru eins og í dýrlingailiyndunum. N