Þjóðviljinn - 26.05.1938, Page 1
FIMMTUD. 26. MAÍ 1938
120. TÖLUBLAÐ
Hinn nýbakaði guð.
SiAlansasta sorprit verald-
ariniar tekið i tSln belglrlta
,Mein Kampr í stað biblíHnnar á ðitnrnm
pýskra kirkna. Hakakressinn í stað
bins kristna kross
LONDON I GÆEKV. (F. Ú.)
g REZKA blaðið Manchester Guardian og Times
og fleiri brezk blöð skýra frá stofnun nýs fé-
iiagsskapar í Þýzkalandi, er nefnir sig hina þjóðlegu
kirkju þýzka ríkisins. Markmið hinnar þjóðlegu kirkju
þýzka ríkisins er sett fram í stefnuskrá í 30 liðum.
Segir þar í fyrsta lagi að þessi kirkja beygi síg al-
'gjörlega undir vald ríkisins og skoðanir þær í þjóð-
pmismálum, er þýzka ríkið byggir á.
Fimmta grein stefnuskrár-
innar hljóðar á þessa leið: Hin
þjóðlega kirkja er staðráðin í
því, að afmá óafturkallanlega
með öllum þeim ráðum, sem
nauðsynleg eru, hina kristnu
tru, sem innflutt var til þýzka-
Iands á hinu háskalega ári 800
og þrýst upp á þýzku þjóðina
þó að hún væri algerlega
framandi eðlis.
I þrettándu grein stefnuskrár
ínnar er sagt svo :
Hin þjóðlega kirkja þýzka
ríkisins krefst þess, að prent-
un og útgáfa heilagrar ritning-
ar og allra kristilegra bók-
mennta, verði þegar í stað
stöðvuð. Hin eina trúarbók
hinnar þjóðlegu kirkju er Mein
Kampf eftir Hitler ríkiskanslara
Eftirfarandi stefnuskrárgreinar
sýna hvernig hana á að nota
sem biblíu hinnar nýju kirkju.
16. gr. Hin þjóðlega kirkja
hins þýzka ríkis lýsir því yf-
ir, að merkasta rituð bók þjóð-
ar • vorar er bók leiðtogans,
„Barátta mín“, og hún er sér
fyllilega meðvitandi þess, að
þessi bók inniheldur ekki ein-
ungis hinar háfleygustu, held-
ur einnig hina hreinustu sið-
fræði fyrir nútímalíf þjóðar
vorar.
17. gr. Hin þjóðlega kirkja '
hins þýzka ríkis hefir gjörtþað
að hlutverki sínu að beita öll-
um kröftum sínum til þess að
útbreiða bókina „Barátta mín“
og til þess að hvetja hvern
Þjóðverja til þess að lifa lífi
sínu eftir þessari bók og sam-
kvæmt grundvallarreglum fíenn-
ar.
19. gr. Hin þjóðlega kirkja
vill hreinsa af ölturum kross-
inn og biblíuna og allar myndir
helgra manna.
20. gr. Á ölturum hinnar
þjóðlegu kirkju skal vor helg-
asta bók, „Barátta mín“ vera
helguð hinni þýzku þjóð og þar
(Frh. á 4. síðu.)
ikaiðarðrjðkll að ankast
Hla«p í Súln og Núpivðtnnm í gar.
fvðlr rnnnséknnrlntðanirar eflga að
leggia af sflað flrú Refkjavík í dag.
ÖKULHLAUPIÐ frá Skeiðarárjökli færðist mjög
í aukana í gær. Óx Skeiðará jafnt og þétt og
breiddist út yfir eystri hluta sandsins.. I gær fóru
Núpsvötn einnig að vaxa og stafar vöxtur sá frá jökul-
hlaupi í Súlu, sém fellur til Núpsvatna úr Skeiðarár-
jökli vestanverðum. Skeiðará hefir hinsvegar upptök
sín í jöklinum austanverðum. Ekkert hefir enn orðið
vart eldsumbrota, en Pálmi Hannesson rektor skýrði
blaðinu svo frá í gær, að hann búist við, að hlaupið
standi í sambandi við eldgos, er kemur upp seinna.
I dag er í ráði að tveir
leiðangrar leggi af stað frá
Reykjavík austur, til þess
að rannsaka jökulhlaupið..
Fer annar leiðangurinn land
veg austur. Eru það þeir Jó-
hannes Áskelsson jarðfræð-
ingur og Tryggvi Magnús-
son verzlunarmaður. Hug-
mynd þeirra er að ganga á
jökulinn og komast að eld
stöðvunum við' Grímsvötn,
þar sem gaus 1934.
Þá fer flugvélin austur í
kvöld, ef fært þykir, með þá
Pálma Hannesson rektorog
Steinþór Sigurðsson kenn-
ara. I för með þeim verður
Vigfús Sigurgeirsson Ijós-
myndari, og ætla þeir fé-
lagar að taka Ijósmyndirog
kvikmyndir af jökulhlaup-
inu. Verður að taka myndir
þessar úr lofti, þar sem ekki
er hægt að lenda flugvél
þar eystra.
Frásogn Hannessr
á Núpsstað
Um sjöleytið síðdegis í gær.
átti Þjóðviljinn tal við Hannes
Jónsson bónda á Núpsstað.
Skýrði hann svo frá, að jök-
ulhlaupið hefði farið vaxandi
andi eftir því, sem leið á dag-
inn. Kvað hann mikið vatn
renna niður miðjan Skeiðarár-
sand, einkum við svonefnda
Sigurðarfitjaála. Þá væri komið
hlaup í Súlu, sem kemur undan
vesturrönd Skeiðarárjökuls og
fellur til Núpsvatna. Væru þau
í miklum vexti. Hinsvegar
sagði Hannes, að erfitt væri
að átta sig til hlítar á gangi
hlaupsins á austurhluta Skeið-
arársands, sökum þoku, sem
byrgir að miklu leyti útsýn yf-
ir sandinn, Engra eldsumbrota
hefði hinsvegar orðið vart enn-
þá.
Eins og áður hefir verið
skýrt frá, er símasamband rof-
ið austur yfir sandinn og hefir
aðeins verið hægt að ná sam-
bandi austur yfir sandinn með
loftskeytum.
F/egísir austan yfir
Skeiðarársand.
FAGURHÓLSMÝRI I GÆR.
FO.
Skeiðarárhlaupið hefir færzt
nokkuð í aukana í nótt. —
Breidd hlaupsins er 3 kílómetr-
ar um símalínu. — Vatnsmagn-
ið fer mest allt til sjávar beint
suður af Skeiðarársandi, en er
lítið eitt farið að renna suður
fyrir Ingólfshöfða. — Megn jök
ulfýla er nálægt hlaupinu.
Kl. 19.15 barst Fréttastofunni
svohljóðandi símskeyti frá Fag
urhólsmýri varðandi hlaupið í
Skeiðará:
Skeiðará hefir fjarað mikið
í dag nokkurn spöl fyrir vestan
Jökulfell, en vaxið meira enþví
nemur austur við Fellið. —
Vatnið ,sem rennur fram eini^
kílómetra austan við sæluhús-
Framh. á 4. síðu.
Jarðarf ðr Sndet-
anna fðr fram
með ró op spekt
LONDON I GÆRKV. F. U.
W Dag fór fram i Tékkó-
* slóvakíu jarðarför hinna
tveggja Súdeta, sem skotn-
ir voru til bana af tékk-
neskum landamæraverði á
fimmtudaginn var. Fór hún
fram að öllu leyti reglulega
og á friðsamlegan hátt..
Tékkneska lögreglan kom
þar hvergi nálægt, heldur
var lögreglu og herliði skip
að að halda sig innan dyra
á meðan á jarðarförinni
stæði, en reglu var haldið
uppi af einkennisklæddum
Súdetum. Hitler og Göring
höfðu sent blómsveiga á
kisturnar, en Henlein hélt
líkræðuna .
Ekki hafa verið gerðarnein-
ar ráðstafanir til þess, að þeir
dr. Hodza og Henlein ræðist
við í annað sinn, en dr. Hodza
átti tal í dag við ýmsa aðra full
trúa Súdeta.
Bær breuQnr til
kalðra kola.
Þann 23. þ. m. brann til
kaldra kola bærinn að Svína-
skógi á Fellsströnd. — Eldur-
inn kviknaði út frá olíuvél, —
Bóndinn, Sigurjón Halldórsson
sem býr þar aleinn, gekk eitt-
hvað frá ineð gesti, sem kom-
inn var, en nokkru síðar sáu
þeir rjúka úr bænum. Var eld-
Framh. á 4. síðu