Þjóðviljinn - 10.06.1938, Síða 1
191 verkamaður
kaus í dag
VerkamenD.
AUlr Já
Elga Dagslirfinarvei'ka-
mean að rfiða Dagsbrfin?
JÞelr sem bera hag Dagsbráaar fyrlr brjðstl og
vllja aO ISg hennar sén haldln setja X vlð Já
Verkamann, mnnlð að hér er hosið
nm framiíð Qagsbrúnar.
OSNINGARNAR í Dagsbrún eru byrjaðar. Atkvæða
greiðsla hóíst á tilsettum tíma kl. 2 í gær og verð-
ur henni haldið áfram í dag frá kl. 2—10 e. h. Kosning-
in heldur áfram á morgun og á sunnutíaginn, og fer
hún fram á skrifstofu Dagsbrúnar í Aiþýðuhúsinu. At-
kvæði er greitt um lagabreytingar, sem samþyktar hafa
verið á tveimur fundum, af trúnaðarmannaráði og
stjórn Dagsbrúnar. Ennfremur er með kosningunni skor-
ið úr því með sérstakri atkvæðagreiðslu á öðrum kjör-
seðli hvort fulltrúum félagsins beri að hlíta samþykkt-
um þess eða ekki.
Báðar þessar atkvæðagreiðslur eru mjög þýðing-
armiklar fyrir framtið og starfsemi félagsins. Verka-
menn, mætið allir sem einn á kjörstað og mótmælið of-
beldi Skjaldborgarinnar með því að setja kross við JÁ
á báða atkvæðaseðlana.
Alþýðubl. reynir að blekkja verkamenn
Hubert Wilkins (í miðjunni) á kafbát sfnum „Nautilius“, er
hann ætlaði á til Norðurpólsins fyrir fáum árum.
Akafbáttil Norðurheims
skautsins næsta sumar
Flugleið frá Ameriku til Astal-
íu yfir Suðurheimsskautið.
EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐV. MOSKVA 1 GÆRKV.
ORÐURFARINN Hubert Wilkins, — er nú dvelur
í Moskva, lagði í dag fyrir prófessor Schmidt og
aðra vísindamenn Sovétríkjánna áætlanir sínar um
heimskautarannsóknir.
Hann kvaðsj hafa í hyggju þegar á þessu ári, að
taka þátt í rannsóknarleiðangri til Suðurheimskauts-
ins. Kvað hann það skoðuá sína, að framtíðarleiðin
milli Suður-Ameríku og Ástralíu yrði yfir Suðurheims-
skautið.. Flug Sovétflugmannanna yfir Norðurheims-
skautið til Amerlku, hefir bent mér á þessa leið, og
sannað að flugferðir um heimskautalöndin eru mögu-
legar.
Ennfremur kvaðst Wilkins vera að undirbúa vís-
indaleiðangur til Norðurheimskautsins næsta sumar á
kafbát. Lét hann það í Ijósi, að sér væri umhtigað að
ná samvinnu við vísindamenn Sovétríkjanna og norð-
Alþýðublaðið segir í gær að
kosningar þessar standi um,
hvort eigþ að afhenda komm-
únistum yfirráðin yfir Dags-
brún. Hér er öllum sannleika
snúið öfugt, eins og venja er
hjá „verkalýðsleiðtogunum"
Finnboga Rúti og Stefáni Pét-
urssyni. Sannleikurinn er sá, að
hér er kosið um, hvort Dags-
brúnarverkamenn eigi að ráða
Dagsbrún, eða fámenn klíka
fylgislausra klofningsmanna.
Hér er kosið um það, hvort
trúnaðarmenn Dagsbrúnar eigi
að hlíta úrskurði félagsins eða
verzla með það umboð, sem
félagið hefir falið þeim á hend-
xir.
Enginn einasti verkamaður í
Dagsbrún getur haft nema eina
skoðun á þessu atriði. (Allir
sem einn munu þeir mótmæla
einræði Alþýðusambandsstjórn-
arinnar. Allir sem einn munu
þeir setja kross fyrir framan
JÁ. Með því að skipa sér fast
um Dagsbrún munu verka-
pnennirnir svara hótunum
„Skjaldborgarforingjanna“ urri
að kljúfa Dagsbrún, og hótun-
um Alþýðublaðsins um, að fé-
lagið verði rekið úr Alþýðusam
bandinu.
f áttundu grein laga Dags-
brúnar segir svo:
„Allir félagsmenn eru skyld-
ir að hlýða lögum og fundar-
samþykktum“.
Klofningsmennirnir
hafa fekið upp baráiiu
gegn Dagsbrún
Hægri foringjar Alþýðu-
flokksins hafa brotið lög Dags-
brúnar og virt fundarsamþykt
ir hennar að engu. Trúnaðar-
menn félagsins hafa leyft sér að
taka upp baráttu gegn marg.
yfirlýstri stefnu félagsins og ó-
tal fundarsamþykktum. í dag
og næstu daga kjósa Dags-
brúnarmenn um, hvort sá leik-
iur á að leggja félagið í auðn.
Dagsbrúnarmenn, hvaða póli-
tíska skoðun, sem þið hafið,
vitið þið, hvert vopn félagið
hefir verið í baráttu ykkar, all-
ir vitið þið, hvað þið eigið
Dagsbrún upp að unna. Þið
(sýnfð; í þessum kosningum sem
endranær tryggð ykkar við fé-
Iagið, setjið kross fyrir framan
JÁ á báðum atkvæðaseðlunum.
þeir, sem vilja halda lög og
samþykktir Dagsbrúnar í heiðri
seja JÁ. Hinir, sem vilja ofur-
selja Dagsbrún pólitískri stiga-
mennsku Stefáns Jóh. Stefáns-
sonar og Co. segja nel.
VorboðinQ efnir
til skemtnnar á
Arnarhóistúni
Stirkið barnaheiinili
Varboðais
Á sunnudaginn kemur, þann
12. júní efnir „Vorboðinn“ til
barnaskíemmtunar á Amarhóls-
túni, til ágóða fyrir sumarheim.
ili sitt.
Til skemmtunar verða ræðu-
höld, söngur, og dans, auk þess
basar, happdrætti og bögglar.
Tjaldi verður komið fyrir átún-
inu, þar sem menn geta keypt
allskonar veitingar. Aðgangur
að túninu er ókeypis.
Hjálpið börnunum í Reykja-
vík að komast til sumardvalar
lupp í svjeit. Allur ágóði rennur
til barnaheimilis V< rbcöans.
SiómaiiiiD-
félagsfnnd-
nr i kvðld.
Sigurjón heíir þrjóskast
við að halda íund þar til
skipin eru að íara á síld
Loksms, eftir margra mán-
aða svefn, en þó ekki fyr en
of seint, til þess að til nokk-*
urra aðgerða geti komið fyr-
ir síldveiðarnar, vaknar stjórn
Sjómannafélagsins til þess að
halda fund. j
Eftir það, að skipin hafa leg-
ið Ih ér í fléiri vikur, og eru
nú alveg komin að því að fara,
og sum þegar farin, þá fyrst
telur stjórnin ráðlegt að halda
fund, knúin til þless af,
áskorun mikijs fjölda sjómanna.
það er bersýnilegt, að stjóm
nrkömmði í þessum eínum.
ín er farin að óttast dóm sjó-
mannanna um aðgerðaleysi sitt
og aumingjaskap, og vill í
lengstu lög komast hjá að
standa fyrtr þeim dómstóli.
En fundurinn verður nú hald
inn, og sjómenn munu fjöl-
menna á hann, staðráðmr í íþví
að draga félag sitt upp úr því
feni aðgerðaleysis og ómensku,
sem stjórn Sigurjóns hefir kom-
ið því í.
Enginn sjómaður, sem vill
bæta hag stéttar sinnar, sem
vill að sjómannastéttin takiaft
ur þann virðingarsess, er hún
átti áður meðal íslenzkrar al-
þýðu, lætur sig vanta á fund-
inn í kvöld.
Frá Moskva er
ferðínni heiiið til
Noregs
I dag skoðaði Wilkins ýms
tæknisöfn í Moskva, og Ernst
Krenkel sýndi honum stöð
þeirra félaga á rekísnum, en
hún var flutt til Moskva og
komið þar fyrir á safni.
Wilkins fer bráðlega frá
Sovétríkjunum til Noregs, og
mun hann hafa tal af norskum
heimskautakönnuðum og að þvl
búnu halda heim til Ameríku.
FRÉTTARITARI.