Þjóðviljinn - 14.06.1938, Side 1

Þjóðviljinn - 14.06.1938, Side 1
Með aðstoð fbaldsins „slgraðl“ hægrl-kllkan. Tillagan um maboðssviftinguHa feld með 45 atkv. mun. Tillagan um lagabreytiogamar feid með 28 atkv. mun. 1300 manas greiddu atkvæði Meirihlnti ▼erkanannna er á méil hægri-klíkuiwL Hán mnn sanna að arena „sigrar11 rerða dýrkeyptir i ATKVÆÐAGREIÐSLUNNI í Dagsbrún lauk kl. 10y2 á sunnudagskvöldið og höfðu þá nákvæmlega 1300 Dagsbrúnarmenn neitt atkvæðisréttar síns. Hefir aldrei verið jafn mikil þátttaka í nokkurri Dagsbrúnarkosningu, enda smalaði „Skjaldborgin” og íhaldið saman til þess að fella tillögurnar, sendu út falsbréf og beittu allri þeirri óhæfu er þeir kunnu. Atkvæði voru talin í gær og var talningu lokið á sjötta tímanum. Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þessi: Tillögur um lagabreytingar: 647 nei, 619 fá, 17 seðlar auðir og 15 ógildir. þá var ennfremur kosið um það, að svifta ýmsa þeirra trúnaðarmanna sem höfðu svikið félagið og stefnu þess trúnaðar- mannaréttindum. Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þau, að 639 sögðu nei — 594 sögðu já, 48 seðlar voru auðir og 14 ógildir. Með taumlausum blekkingum, lygum og falsbréf- um, tókst „Skjaldborgmni“ að hafa betur í kosningun- um. En þess ber þó að gæta að hún fekk ekki helming greiddra atkvæða. Þegar frá eru dregnir bitlingameim „Skjaldborg- arinnar og aðrir handlangarar, sem margir eru í Dags- brún, en aldrei koma nálægt verkamannavinnu, og fylg- ismenn annara flokka, svo sem .íhaldsins og Fram- sóknar, þá sést það best, hve rúin „Skjaldborgin“ er fylgi verkamannanna. Úrslit atkvæðagreiðslunnar sýndu það greinilega, að klofningsmennimir eru í miklum minnihluta meðal verkamannanna í Dagsbrún.. Verkamannafylgi þeirra mun tæpast komast upp fyrir 200 þegar öll kurl koma til grafar. Kosningabaráttan var mjög Tiörð, og tjölduðu Skjaldborg- armenn því, sem til var. Síð- asta daginn sendu þeir út bréf til félagsmanna, þar sem 8 af ,,trúnaðarmönnum“ Dagsbrún- ar lýsa því yfir, að kosningarnar standi um hluti, sem aldreihafa verið ræddir af neinum í sam- tbandi við kosninguna. þjöðvilj- !nn birtir bréf þetta í dag til þess að mönnum skuli gefast kostur á því aði kynnast „heilindum“ og „dreng skap“ þessara pilta. I bréfinu stóð, að kosið væri um þaði, hvort ætti að hækka iðgjöldin til félagsins eða ekki. Og svo. furðu ósvífnir voru menn þess- ir, að nefna ákveðnar tölur svo sem 41 krónur í iðgjald af2500 kr. tekjum. Á þetta atriði hafði aldrei ver- ið minst af neinum, endá mun það fyrst og fremst liafa átt að klæja eyru þeirra félags manna, sem líta á Dagsbrún, sem andstæðing sinn. Við smölunina beitti „Skjald- borgin“ hinu mesta ofurkappi, og sásf í hópi smalanna maður nokkur, Jakob Sigurðsson að nafrii. Hann er bílstjóri, ogeinn af sauðtryggustu smölum íhalds ins, en annars svo alþektur mað ur, aðekki þarf að kynna hann fyrir verkamönnum hér í bæn- um fremur en öðrum bæjarbú- luní. I kjósendahópi „Skjaldborg arinnar“ sáust menn eins og Sigurliði Kristjánsson (Silli) kaupmaður, og orðrómur geng- ur um bæinn, að íhaldið hafi haft Viðbúnað „SkjaIdborginni“ til hjálpar, og Vísir var í einu og öllu á sama máli og Al- þýðublaðið, í Dagsbrúnarmál- um nokkurn tíma fyrir kosn- ingarnar. Jafnvel menn, sem Alþýðu- blaðið sagði á föstudaginn að biðu dauðans uppi á Landsspít- ala, sáust á þönum í bíl frarri og aftur við smalamenskuna.. Fjöldi af ríkisskrifstofum urðu alt í einu kosningaskrifstofur, og starfsmenn tryggingastofnan anna eins og Erlendur Vil- hjálmsson og Guðjón B. Bald- vinsson hlupu bæinn á enda og agiteruðu. Verkamenn borga með iðgjaldagreiðslunni til trygginganna! Á skrifstofum Alþýðublaðsins og Verkakvennafélagsins Fram- sókn voru menn í óða önn að útbýta styrkjum til félagsmanna til þess að þeir „héldu sannfær- ingu“ sinni í kjörklefanum og gætu greitt upp skuldir sínar við Dagsbrún. En höfuðtrompið á hendi klofningsmannanna var falsbréf- ið. Með því að faísa kosning- luna í laugum fjölda manna, og njóta aðstöðar allra þeirra afla, sem eru verkalýðshreyfingunni andstæð, hepnaðist þeim að fá 28 og 45 atkvæða meiri hluta, en vantar þó nokkur atkvæði til þess að fá helming allra greiddra atkvæða. garáttunni fyrir einingu verka lýðsins verður haldið áfram, og Dagsbrún mun leggja sinn skerf fram hér eftir sem hingað til, uns það mál er að fullu komið í trygga höfn. Niðurstöður kosninganna munu verða til þess að þjappa verkamönnunum í Dagsbrún fastar saman um þessi mál.. Eins og getið var um hér á dögunum, samdi Alþýðusam- bandið við eigendur h.f. Djúpu- víkur um kaup. Alþýðusamband ið samdi þetta bak við verklýðs- félagið og í forhoði þess. í gær hóf svo verkamanna- félagið á Djúpuvík verkfall til þess að knýja fram kröfur þær er það hafði gert og Alþýðai- sambandið hafði samið af því. Dagsbrún hefir heitið félaginu fullum stuðningi sínum og fyr- irskipað þeirn Dagsbrúnarmönn um, sem eru í Djúpuvík að •eggja þegar niður vinnu. I pjóðviljinn átti í gær tal við Sigurð Pétursson, formann Verk lýðsfélagsins á Djúpuvík: Skýrði Sigurður svo frá, að Kosninaatygar áttienninganna V" Hér bírtísí falsbréf áttrhenrt- inganna orðrétt: „Dagsbrúnarfélagi! Okkur er kunnugt um, að þú hefir ekki enn greitt' atkvæði um lagabreytingarnar og burt- rekstur okkar úr Trúnaðar- mannaráði og öðrum trúnaðar störíum fyrir félagið. Við væntum þess fastlega, að þú, sem góður Dagsbrúnarfé- lagi sitjir ekki hjá, þegar greitt er atkvæði um það, hvort' kom múnistar eigi einir að stjórna félaginu okkar að eigin vild. Við væntum þess, að þú haf- ir eigi gleymt því, að í vetur, á aðalfundi, ætluðu þeir, ásamt Héðni Valdimarssyni að hækká að stórum mun félagsgjöldin, þannig, að þau yrðu fast gjald, kr. 16,00, eins og nú, en auk þess 1 o/o af brúttó tekjum félag- anna, sem þýddi, að félagsgjald ið hefði orðið hjá verkamanni með kr. 2500.00 árstekjur kr. 41.00. Pessu fengu þeir þá ekki komið í framkvæmd, en fengu heimild til að hækka gjöldin síð ar. Pessu áformi sínu naamu þeir tafarlaust hrinda í famkvæmd, ef þeir fá meiri hluta við þessa atkvæðagreiðslu. Við höfum all. ir starfað lengur eða skemur í félaginu og vitum, að þú þekkir okkur alla að því, að vilja það Framh. á 4. síðu félagið hefði ekki getað sætt sig við úrslit samninga þeirra, er Alþýðusambandið gerði vig verksmiðju H.f. Djúpuvíkur. Kvað hann verkfallið hafið íþví skyni, að fá Verkalýðsfélagið í Djúpuvík viðurkent sem samn- ingsaðila, og ennfremur tilþess að knýja það fram, að verk- smiðjan taki minst 35 menn úr úr félaginu eins og var í fyrra og samningar höfðu náðst um þó að Alþýðusambandið lækk- aði þá tölu niður íéSo. Hinsveg- ar býst hann tæplega við að miklar breytingar verði á kaup inu og að erfitt muni að fá það hækkað úr því sem komið er. Þetta er eitt lítið dæmi um aðferðir „Skjaldborgafinnar“ í verkalýðsmálum: Svíkjast aftan að verkamönnum, og semja af þeim sjálfeögð réttindi Verkfall í Djúpuvík. Yerkalýðsíélagið krefst réttinda peirra, sem Alpýðusambandið svifti pað með samningum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.