Þjóðviljinn - 28.06.1938, Qupperneq 1
ÞiéðverjalielmsokMÍH:
Knatlspyrnnráðið bor
enga ðbyrgð á afglðpnm
fiísla Slgnrb|Brnssonar.
Fyrsli kapplelkiiriiíii: Þjóðrerjjar anan
islenska nryalsliðið með 2:1
Víggirðingar stiórnarhersins á Castellon-vígstöðvunum,
Tilraunir Gísla Sigurbjörnssonar og kumpána hans í mót-
tökunefnd pjóðverjanna til að setja pólitískan áróðursblæ á
heimsóknina, hefir mælzt mjög illa fyrir meðal íþróttamanna
og annarra íþróttavina í bænum.
þjóðviljinn átti í Igær tal við formann Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur, hr. Lárus Sigurbjörnsson og hr. Guðjón Einars-
son, knattspyrnudómara. Töldu þeir báðir óheppilegt, að geng
ið hefði verið á snið við ákveðið pólitískt blað með fregnir
og aðgang að kappleikjunum, og hefði það ekki verið gert að
tilhlutun knattspyrnuráðsins.
páttur Gísla Sigurbjörnssonar í þessu máli, er orðinn svo ó-
skemmtilegur, að sjálfsagt er að hann verði tafarlaust látinn
víkja úr móttökunefndinni. Að öðrum kosti er hætt við að
kappleikirnir og pjóðverjarnir verði látnir gjalda glópsku hans.
Mussolin lýsir því
yfiraðhanntelji Mall
orca ítalskt land.
Enn nýjar loftárásir é bresk skip.
LONDON í GÆRKV. F. U.
pað Ieikur ennþá nokkur vafi
á því, hvað spánska stjórnin
ætlaðist raunverulega fyrirþeg>
ar hún hótaði mótaðgerðum.
Hvort hún átti við að árásir
skildu gerðar á ítalskar borgir
eða hvort að Ioftárásir yrðu
gerðar á Majorca. pýzk og ít-
ölsk blöð, sem í þessu málí
endurspegla vilja hlutaðeigandi
ríkisstjórna, segja að loftárásir
af hálfu stjórnarinnar á Major
ca, mundu verða skoðaðar sem
hernaður á hendur ítalíu, þar
sem eyjan er að miklu Ieyti und
ir ítölskum yfirráðum og aðal-
stöð ítalskra flugvéla, sem berj-
ast með uppreisnarmönnum. —
Hvað sem spanska stjórnin hef-
ir haft í hyggju, þá hefir hún
engar sérstakar ráðstafanir gert
Spgi í London og' París eru menn
að vona, að það 'takist að miðla
málum.
Enn var skotið á tvö brezk
.skip í spönskum höfnum; í dag.
Annað varð fyrir sprengjuárás
á höfninni í Valencia. Rúmensk
ur maður af skipshöfninni var
drepinn og það er talið að all-
margir hafi særzt. í skipinu
kviknaði og var það dregið log-
andi út á sjó, er tí(íið að það
muni vera með öllu eyðilagt.
Á hitt brezka skipið var ráðizt
á höfninni í Ajlicante. Þrír af
skipshöfninni — allir brezkir —
voru drepnir, en nokkrir aðr-
ir særðir. Skipið var að flytja
matvæli og var trúnaðarmaður
frá hlutleysisnefndinni á skip-
inu. f
Kappleikurino
i gærkvöldi
Knattspyrnuveður var ekki
gott, allhvöss norðanátt og frek
ar kalt. Þjóðverjar kusu að
leika með vindi. Barst leikur-
inn til og frá milli marka og bar
ekki á sérstakri leikni hjá aðil
um. En brátt tóku Pjóðverjar
að sækja og léku mjög fallega.
Var mark íslendinga oft í jliættu
en Hermann bjargaði snilldar-
vel. íslendingar gerðu mörg
upphlaup, en þau strönduðu öll.
Er 20 mín. voru af leik fékk
Linken, hægri innframherji
Þjóðverja knöttinn fyrir marki
fslendinga og skaut óverjandj
skoti, 1 :0.
Leikur Pjóðverja var nú
mjög fallegur, léku ákaflega vel
sainan. Hermann fékk mörg
hættuleg skot, en varði með
afbrigðum vel. Björgvin Schram
var alstaðar og mátti telja hann
bezta manninn á vellinum. Sig-
urður Halldórsson var einnig á-
gætur.
Samleikur íslendingá var
mjög í molum, en gerðu þó
nokkur góð upphlaup. Björgvin
Bjarnason miðframherji virtist
mjög illa fyrir kallaður og kom
hann varla við knöttinn.
I seinni hálfleik batnaði leik-
ur fslendinga nokkuð, en tókst
samt sjaldan að eyðileggja hinn
hárfína samleik Þjóðverjanna.
Er 12 mín. voru af leik skoruðu
Þjóðverjar mark, 2 :0. Gekk nú
á ýmsu og lá heldur á íslend-
ingum, en þeir vörðust vask-
Iega. Björgvin var sem áður
allsstaðar og gaf Sigurður hon-
um nú lítið eftir. Samlcikur fs-
lendinga var enn í molum.
Hafði vindstaðan nú breytzt
fslendingum í óhag. Er 10
mín voru eftir af leik tóku ís-
lendingar að sækja og tókst
þeim nú að ná góðum samleik.
Björgvin 'Schram tók sér nú
stöðu sem miðframherji í stað
Björgvins Bjarnasonar. Er 4
mín. voru eftir af leik gerðu
íslendingar ,snarpt og fallegt
upphlau]) og skoraði Högni
prýðilegt mark, 2:1. Kom nú
fjör mikið í leikinn og virtust
fslendingar ætla að jafna, en
leikurinn var nú á enda.
Menn höfðu búizt við mikl-
um yfirburðum Þjóðverja, og
er það mjög ánægjulegt, að ís-
lendingar stóðu sig svona vel.
Þegar þess er gætt, að knatt-
spyrnumenn okkar stunda þessa
íþrótt aðeins í frístundum sín-
um, en þessi flokkur Þjóðverja
mun stunda íþróttina nær ein-
göngu, eru þessi úrslit mjög
mikil meðmæli með íslenzkum
knattspyrnumönnum.
Lið íslendinga var ekki nógu
vel samæft. Má þakka dugnaði
einstakra leikmanna þennan
góða árangur. Fyrst og fremst
má nefna Hermann, Björgvin
og Sigurð, og var ánægjulegt
að sjá Björgvin bera af þýzk-
um úrvalsmönnum.
Næsti kappleikur verður á
miðvikudag, þá keppa Þjóðverj
arnir við íslandsmeistarana, Val.
x
Iþröttaför Ak-
ureyringa til
Vestm.eyia.
Sunnudaginn 26. júní kom
hingað til bæjarins 23. manna
sund- og knattspyrnuflokkur frá
íþróttafélaginu „Þór“ og sund-
félaginu „Gretti“ á Akureyri.
Eru þeir á leið til Vestmanna-
eyja til að keppa þar í sundi og
knattspyrnu. í sundflokknum
eru 12 menn frá báðum félög-
unum. Síðastl. sumar kom sund-
flokkur frá Vestmannaeyjum til
Akureyrar og keppti |isr en fór,
halloka. Sumarið 1935 keppti
knattspyrnuflokkur frá Eyjum á
Akureyri og sigraði.
íþróttafélagið ,,Þór“ er stofn-
að 6. júní 1915. og því elsta og
stærsta starfandi íþróttafélag á
Akureyri Eins og nærri má geta
hefir oltið á ýmsu með félagið
á svo mörgum árum. Síðastlið-
ið haust sigraði það í öllum
knattspyrnukappleikjum á Al-
ureyri og allt virðist benda til
að það eigi góða og athafnaríka
framtíð fyrir höndum.
Núverandi formaður félags-
ins er Kári Sigurjónsson prent-
ari. Hefir hann vakið athygli á
sér sem mjög góður bringu-
sundsmaður.
Sundfélagið „Grettir" er
stofnað síðastliðið ár og nýtur
mikilla vinsælda á Akureyri eins
og „Þór“.
Fararstjóri ferðarinnar til
„Eyja“ er Tryggvi Þorsteins-
son.
LoftQimtar f Kfna
LONDON í GÆRKV. F. U.
Kínverjar telja sig hafa skot-
ið niður 5 japanskar flugvélar
í Iqftorustu yfir Jangtse. Japan
ir hinsvegar telja sig hafa skot
ið niður 35 kínverskar flugvélar
en játa að hafa misst 3. Þá telja
Kínverjar sig ennfremur hafa
gert sprengjuárásir á tvö jap-
önsk herskip á Jangtse-fljóti og
ikveikt í þeim. Ennfremur eyði-
lagt fyrir Japönum 4 flugvél-
',ar, sem voru í lendingarstað.
Þá segir lolcs íleinni fregn frá
Tokio, að Japanir hafi brotizt
þvert yfir flóðasvæðið í grennd
við Gulafljót og hafi sigrast á
kínverskum hersveitum í sókn
áleiðis til (^hengchow.
Njria trfiarbrðsðin!!
LONDON í GÆRKV. F. U.
Áhangendur hinnar nýju nor-
rænu trúar í Þýzkaflandi söfnuð
ust saman í gærkvöldi á fjall-
inu Hess|leberg, sem Hitler lýsti
yfir fyrir nokkrum árum, að
vera skyldi heilagt fjall. Á fjall-
inu hafa verið kynt stórbál, og
ávarpaði Julius Streicher mann-
fjöildann. Hann sagði m. a.:
„Eftir að hafa horft inn í 'þenn-
an hei^laga eld og varpað synd-
um vorum á bálið, göngium vér
niður af fjallinu með hreinar sál
ir. Vér þurfum ekki að játa
syndir vorar fyrir prestum. Vér
erum vorir eigin prestar, og
vér erum nær Guði eftir að
hafa klifið þetta heilaga fjali.“