Þjóðviljinn - 02.07.1938, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.07.1938, Blaðsíða 1
3. ÁRGANGUR LAUGARD. 2. JOLI 1938. 150. TÖLUBLAÐ BApeningsstofn bnnda i Sovét- ríbfnnnm vexiðri FJðlgnnim er nesi í samyrkjnhúnm EINKASKEYTI TIL ÞJOÐV. MOSKVA I GÆRKV. Sovétstjórnin hefur birt áætlun um kvikfjárrækt- ina í Sovétríkjunum árið lv38, a árunum 1934 til 1938 fjolgaði búpeningi í Sovétríkjunum gífurlcga. u n 52%, sauðfé og geitr'é I engu öðru landi í heirni hef ir orðið eins ör fjölgun búpen- ings. Einkum hefir fjölgunin orðið mikil á samyrkjubúunum nú síðustu árin. Áætlunin um kvikfjárræktir.a 1938 gerir ráð fyrir að enn verði búpeningi fjölgað til Nautgiipum heíur fjölgað um 82% og svínum um 120% muna, einkum á samyrkjubúun- |um. T. d. er áætlað, að fjöldi nautgripa verði 10o/o meiri 1. jan. 1939 en ári áður. Einnig er gert ráð fyrir fjölgun búpen- ing's á ríkisbúunum. FRÉTTARITARI Breytingar á sjúkrasam- lagslögunum koma til framkvæmda. Fyrst eftir að alþýðutrygging ingarnar gengu. í gildi og samn ingar náðust við lækna um fram kvæmd sjúkratrygginganna, var það gert að reglu, að þeir, sem læknanna vitjuðu, greiddu úr eigin vasa til læknanna einn fjórða af lækniskostnaði, en sjúkrasamlagið greiddi aðeins þrjá fjórðu hluta kostnaðarins. Hefir ráðstöfun þessi verið hin óvinsælasta meðal almenp ings. Mönnum hefir að vonum þótt iðgjöldin til sjúkrasamlags- ins há, en hinsvegar oft reynzt torkleift að gjalda læknum þótt ekki væri meira e’n einn fjórði hluti af lækniskostnaði. Á þinginu í fyrrahaust voru lögin uin alþýðutryggingarnar ondurskoðuð að nokkru, og meðai annars var ákveðið, að sjúkrasamlagið skyldi í framtíð inni greiða læknishjálp að fullu, innan þeirra takmarka, sem ann ars eru ákveðin um greiðslu- skyldu sjúkrasamlaganna. Lög þessi gengu í gildi um nýjár síðastliðið, en komu þó ekki til framkvæmda fyr en nú um mánaðamótin, þar sem sex mánaða uppsagnarfrestur var á samningum þeim, sem sjúkra- samlagið hafði gert við Lækna- félag Reykjavíkur Skömmu eftir nýjár í vetur hófust svo samningar milli sjúkrasamlagsins annars vegar og Læknafélagsins hinsvegar, á grundvelli hinna nýju laga. Munu samningar þessir hafa gengið fremur stirðlega, þar sem þeir tóku svo langan tíma, en þeir voru hinsvegar undir- ýitaðir í fyrrakvöld og gengu í gildi í gær. Undanskilin þessum ákvæð- um eru þó enn þá gjöld fyrir nætur- og helgidagavitjanir og ennfremur gjöld til sérfræðinga eyrna- nef- háls- og augnlækna. Á sama tíma varð einnig sú breyting á starfsemi sjúkrasam- laganna, að nú geta þeir sem vilja tryggt sig þó að þeir hafi liærri tekjur en lögin gerðu í upphafi ráð fyrir að þeir mættu hafa, sem gætu orðið trygging- anna aðnjótandi. Verða þeir menn, sem þejssu vilja sinna og hafa slíkar tekj- ur, að gefa sig frarn við sjúkra samlagið fyrir 1. sept. n. k., og verða þeir ennfremur að grejiða helmingi hærri iðgjöld en aðr- ir samlagsmeðlimir. DjóDsefjarni nBBH Viking neO 4:1 Pað sannaðist með lejknum í gærkveldi að Víkingur hefði átt að ganga frá því að leika við Þjóðverjana og láta K. R. eða Fram keppa, í sinn stað. Menn vissu það, að bæði Frarn og K. R. eru sterkari en Víking- ur, þrátt fyrir dugnað þei'rra á íslandsmótinu. Enda kom það á daginn, að þeir treystu sér ekki við Þjóðverjana nema að fá menn lánaða úr öðrum félögum. Fengu þeir 4 menn, þá Hrólf, Ellert og Magnús úr Val og Edward úr K. R. Þjóðverjar léku undan viiV í fyrri hálfleik, en Víkingar stóðu sig samt vel og gerðu mörg úpphlaup. Er 10 mín. voru af leik fengu þeir auka- spyrnu á Þjóðverja rétt hjá vítateig. Þorsteinn Ó. tók og skoraði afar fallegt mark, 1 :0. Gerðu nú báðir aðilar mörg hættuleg upphlaup og lá held- ur á Víking. Skoruðu Þjóðverj- ar tvö mörk í hálfleiknum og endaði hann með 2:1. Seinni hálfleikur var ekki e,inS fjörugur og sá fyrri. Lá nær því óslitið á Víking, þrátt fyr- ir að þeir höfðu vindinn heldur með sér. Er 17 mín. voru af leik, skoraði Linken fallegt mark, 3:1. Voru Víkingar nú sýnilega prðnir þreyttir og sko;rtir þá úthald. Er hálf mínúta var eftir af leik iskoruðu Þjóðverjar enn mark, 4:1. x. Hjólreiðaferð til Bessastaða. Hjólreiðaferð til Bessastaða verður farin að tilhlutun F. U. K. á laugardagskvöldið k!. 8 e. h. og lagt af stað frá Lauga- veg 38. Án efa verður skemmtilegt að koma til Bessastaða, þessa forn- fræga staðar, sem svo margar sögulegar minningar eru tengd ar við. Á Álítanesi eru og ágætir bað staðir. Þeir, sem ekki hafa reiðhjól til umráða, geta ferðast áleiðis með* Hafnarfjarðarstrætisvögn- unum og gengið síðan út á Álftanesið. Benes, forseti Tékkóslóvakíu og kona hans, koma til bæj- arins Tabor. — Fjöldinn fagnar forsetanum. Þjóðernamál Tékkó slóvakíu verðurleyst á næstunni Tékknesk skólabörn móðga hr. Hltler og ríkisstjórn hans. LONDDN f GÆRKV. F. U. Benes, forseti Tékkóslóvákíih iét þá skodun í Ijós í gær, að málið um réttaraðstöðu hirma ýmsu þjóðflokka innau ríkisins myndi bráðlega verða leyst á réttlátum grundvelli, þótt enn gæti skipt vikum, að fullí sim- komulag næðist. Tékkneska stjdrnin tiíkýnnir að hún hafi lagí fyr'r fulltrúa Súdeta tlllögur um rýít íusrgu- málafrumvarþ og ennfremur íil- lögur ura frtnhvarp varðandi réííaraðstöðu hinna einstöku þjóðflokka í landinis. Þingmenn Súdeta hafa l.?gt fram nýjar kröfur og halda því fram, að má! þeirra verði ekki Ieyst fyr en tékkneska stjórnin hefir breytt sínu stjórnmálálega viðhorfi. Þýzka stjórnin hefir lagí fram mótmæli við stjórnina í Tékkó- slóvakíu út af kvæði, er hún telur niðrandi fyrir Hitler og tékknesk skólabörn séu láíin syngja. Ennfremur hafi tékk- nest r hermenn heyrzt syngja það á göngu. Þessu hefir tékkneska utanrík isráðuneytið svarað á þann hátt að tékkneskum hersveitum sé bannað að syngja á hergöngu kvsöði, er séu stjórnmálapegs eðlis. Fræpr ensknr sknrðlæknlr sakaðir mn óleyf i legar féstir- esfðigar LONDON í GÆRKV. F. U. Aleck William Bourne., yfir skurðlæknir við Queen Cliar- lotte sjúkrahússins í London og einn af fremstu skurðlæknum og kvensjúkdómafræðingum Breta, vajrl í ;dag kærður íj;Mare lybone réttinum í Loridon fyr- ir að hafa gert ólöglegan upp- skurð á stúlkubarni innan 15 ára aldurs. (Frk. á 4. sí6u.)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.